Þjóðviljinn - 05.06.1984, Qupperneq 8

Þjóðviljinn - 05.06.1984, Qupperneq 8
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 5. júní 1984 Úrslit flokksþings finnskra kommúnista: Svo má deigt járn brýna... Fyrir rúmri viku lauk sögulegu þingi finnska kommúnista- flokksins með því að meirihlut- inn íflokknum, sem ergjarna kenndur við Evrópukommún- isma, neytti afis síns til að úti- loka minnihlutann, sem kennd- ur er við Moskvu eða Stalín jafnvel, frá forystu flokksins og þá miðstjórn. Þar með hafa nokkur úrslit fengist í baráttu sem hefur lengi staðið, þreytt flokkinn og dregið mjög úrafli hans. Evrópukommúnistar svonefndir vita vel, að með þessum málalok- um eiga þeir það á hættu að flokk- urinn klofni endanlega, vegna þess að minnihlutinn hefur nú krafist þess að efnt verði til aukaþings í haust. Moskvuhollir menn ráða 8 af 17 flokkshéruðum og það nægir til að þeir geti heimtað slíkt þing, sem vel gæti endað með formlegum klofningi. Það mundi að sjálfsögðu þýða, að minnsta kosti í byrjun, verulegt fylgistap Kommúnista- flokksins, sem er tiltölulega stór og hefur nú 27 þingmenn af 200 á fínnska þinginu. En hitt er jafnvíst, að fylgi flokksins hefði haldið áfram að réna ef flokkurinn hefði haldið áfram að þykjast vera einn en starfa í raun sem tveir eins og raunin hefur verið. Hnignun og sundrung í síðustu kosningum í Finnlandi fékk LFA, Lýðræðisbandalag fínnskrar alþýðu, - kosninga- bandalag vinstrisósíalista og kommúnista, sem kommúnistar ráða að mestu, 14 prósent at- kvæða. Þar með hafði LFA tapað um 4% atkvæða frá næstliðnum kosningum og skoðanakannanir nýlegar benda til þess, að sú þróun haldi áfram. Þettaerm.a. afleiðing 20 ára innbyrðis baráttu sem nú hefur verið knúið fram uppgjör í. Sovétríkin koma mjög inn í dæmið en ekki endilega með þeim hætti og margir halda. Meirihluti og minnihluti hafa lengi deilt um stjórnaraðild: meirihlutinn hefur viljað stjórnarsamstarf við finnska sósíaldemókrata en minnihlutinn hefur helst ekki viljað „flækja sig í kerfið“ eins og það heitir. Og ráða- menn í Moskvu hafa heidur stutt meirihlutann í því að kommúnistar taki þátt í stjórn - þótt þeir að öðru leyti taki undir við minnihiutann og telji hann hafa hreinni og „lenín- ískari" kenningu. Aðdragandinn Eftir að Finnland varð sjálfstætt ríki árið 1919 var háð rimmileg borgarastyrjöld milli hvítliða og rauðliða. Og upp úr henni og á millistríðsárunum lengst af var kommúnistaflokkurinn bannaður. 1944 var flokkurinn lögleyfður og í kosningunum 1945 fékk Lýðræðis- bandalagið, sem hann var kjarninn í, 23,5% atkvæða. Kommúnistar voru í stjórn fram í júlí 1948. Þá gekk orðrómur um að kommúnist- ar hygðust nota stöðu sína (þeir áttu m.a. innanríkisráðherrann) til valdatöku. Finnskir sósíaldemó- kratar voru upp frá því afar tor- tryggnir í garð kommúnista og var það ekki fyrr en 1966 að leiðir til samstarfs milli verkaiýðsflokkanna opnuðust aftur. Allt til 1982 voru Lýðræðisbandalagsmenn og þar með kommúnistar í aðild að mörg- um vinstri- og miðjustjómum. Þá hrökkluðust þeir út, og réði þar um mestu, að samstarfsflokkarnir voru orðnir þreyttir á tvískiptingu flokksins sem gerði ráðherra hans næsta órólega í sessi. Neitunarvald Allt frá 1957 hafði stefnuskrá kommúnistaflokksins reyndar ver- ið að breytast í þá vem, að alræði öreiganna vargefið upp á bátinn og síðar kenningin um nauðsyn vald- beitingar í þágu byltingarinnar. Lögð var áhersia á áfangaþróun til sósíalisma, helst með sem friðsam- legustum aðferðum. Stundum kom til mikils ófriðar út af þessum skil- greiningum öllum, til dæmis voru „stalínistar" hreinsaðir út úr mið- stjórn 1969. Sá armur gekk þá út. En sovéski kommúnistaflokkurinn tók þá að sér, í gömlum Komintern-stíl, að semja um mál- in, og fékk hann brottgöngumenn Haraldur Ingi Haraldsson Athugasemd Það er seint í rassinn gripið að kvarta undan grein sem birtist í blaðinu 9. maí síðastliðinn, þó get ég ekki á mér setið. Forsaga þessa máls er sú að þar sem ég var við nám í vetur, nánar tiltekið í Hol- landi, komu 3 langhundar um ís- lenska list í þarlendu blaði. Eftir að hafa átt símtal við Þjóðviljann samd- ist um að ég snaraði og stytti þess- ar greinar til birtingar í blaðinu. Þessar greinar voru um margt merkilegar og vörpuðu að mínum dómi skýru ijósi á stöðu íslenskrar listar og hefðu þannig átt fullt er- indi við listumræðu dagsins í dag, að maður tali nú ekki um hversu hollt það er og skemmtilegt að lesa eitthvað annað um listir en iistgagnrýni eina saman. Eftir að hafa fengið góðfúslegt leyfi blaðamannsins hollenska til verksins, snaraði ég, stytti og sendi, með vinsamlegum tilmælum um að fá viðkomandi blöð send út til Hol- lands og að þessum skrifum mínum ásamt uprunalegu greinunum yrði haldið til haga. 1 símtali við Þjóðviljann nokkru seinna var mér tjáð að failist hefði verið á þá hug- mynd mína að þetta yrðu 3 heilsíðugreinar sem birtast ættu í 3 tölublöðum í röð. Ekki fékk ég blöðinn send. En þegar heim var komið gróf ég viðkomandi tölu- blað (9. maí) upp á afgreiðslu Þjóð- viljans og þá voru greinamar 3 orðn- ar að fjórðungi úr opnu svo fag- til að koma aftur. Var þá gerður samstarfssáttmáli milli meirihlut- ans og minnihlutans, sem tryggði gagnkvæmt neitunarvald. í raun og veru var það ekki síst þetta gagnk- væma neitunarvald sem lamaði flokkinn, ekki síst vegna þess, að minnihlutinn taldi sig svo bylting- arsinnaðan að hann gat aldrei fellt sig við þær málamiðlanir sem óhjá- kvæmilega fylgdu aðild að ríkis- stjórn. Afskipti Sovétmanna Armarnir í flokknum studdu hvor sitt dagblaðið, þeir voru og tvískiptir í ýmsum greinum öðrum. Óánægjan með pattstöðuna magn- aðist og á aukaþingi árið 1982 var Jouko Kajanoja kosinn formaður út úr neyð. Hann var oddviti hóps sem kallaði sig „þriðju leiðina“ og ætlaði að sætta andstæður. Kjör Kajanoja kom á óvart, vegna þess að meirihlutinn hafði þá búið sig undir það, að Arvo Aalto tæki við formennsku í flokknum. Á þingi því sem er nýlega afstað- ið festust átökin mjög við persónu Arvos Aaltos. Minnihlutanum var boðið upp á það, að hann fengi áfram fulltrúa í miðstjórn flokksins í hlutfalli við styrkleika sinn. En minnihlutinn féllst ekki á að sam- þykkja Aalto sem formann í stað- inn. Og þá sauð upp úr. Meiri- hlutinn beitti atkvæðamagni, kaus Aalto formann og hreinsaði minnihlutamenn út. Þessi málalok eru verulegt áfall fyrir sovéska kommúnistaflokk- inn. Sovéskir fjölmiðlar hafa tals- vert skrifað um Kommúnistaflokk Finnlands að undanförnu, hrósað honum mjög fyrir vinfengi gott við Sovétríkin, en varað við endur- skoðunarhneigðum háskalegum innan hans og þá sérstaklega við Arvo Aalto. Sovétmenn sendu fjölmenna nefnd á flokksþingið finnska og hún lagði mjög að mönnum að þeir ekki styddu Aalto. Formaður nefndarinnar var sjálfur Míkhaíl Solomentsev, sem sagður er ábyrgur fyrir aga í Kommúnistaflokki Sovétríkjanna. En þótt meirihlutamenn og mannlega földum undir grein um verkalýðsmál að ekki var fyrir nema slyngustu afburðamenn að sjá hvað hér var á ferðinni. Helm- ingur greinarinnar fjallar um furð- ulega framkomu Davíðs Odds- sonar við hollenska blaðamanninn, og var þar hvergi skærum við kom- ið þar sem þeim var beitt af mikilli fimi þegar talið færðist að listum. Eftir að hafa kvartað sáran og barið mér á brjóst á skrifstofum reyndar Aalto sjálfur vilji vera vin- ir Sovétríkjanna, þá hafa þeir nú sagt hingað og ekki lengra með ykkar afskiptasemi. Óskir Sovét- manna voru hunsaðar og eru það í sjálfu sér veruleg tíðindi - ekki bara fyrir finnska vinstrihreyfingu, heldur og fyrir kommúníska flokka í Evrópu. Því finnski kommúnista- flokkurinn hefur jafnan verið sá, sem síst veitti Sovétríkjunum gagnrýnið aðhald í hinum stóru málum. Nú er þetta breytt. ÁB. Penlngahólf I Zurich: illur fengur vandlega geymdur. Eftir þjóðaratkvæðagreiðslu: Afram hægt að fela fé Svisslendingar eru þekktir að því að kunna að þegja um pen- ráðamanna voru mér boðin þau skipti, að þessum málum væru gerð betri skil, enda ekki um tímabund- ið efni að ræða. Það þótti mér miklu betra en ekkert. Nú er skoðun mín að Jóhannes Birkiland hefði verið fullsæmdur af harmsögu þessari og því einungis réttlæti að tilefni gæfust ekki til frekari skrifa. En það fór með greinarnar eins og kirkju klerksins, að ekki fannst tangur né tetur af þeim í sölum Þjóðviljans og er það vissa mín að kirkjan er endaði sem brenniviður fyrir fátæka hafi hlotið göfugri endalok en þær. Það er slæmt til þess að vita að hlutir sem þessir skuli gerast á Þjóðviljanum einmitt nú þegar þörfin fyrir skynsamiega listum- ræðu er afar mikil. Með ósk um skjótan bata. Haraldur Ingi Haraldsson myndlistarmaður inga. Og eru frægir um allan heim leynireikningar í Sviss, þar sem glæpamenn, einræð- isherrarog skattsvikarar geyma illa fengið fé sitt. Kann- ski sem svarar 90.000 miljón- um íslenskra króna alls. Ekki hefur öllum Svisslending- um líkað sá orðstír sem land þeirra fær af þessu fé og ýmisleg hneyksli sem upp koma. Flokkur Sósíal- demókrata hefur barist gegn bankaleyndinni og leiddi sú barátta til þess að á dögunum fór fram þjóðaratkvæðagreiðsla um málið. En Svisslendingar eru hagsýnir menn og vilja ekki af peningum missa, enda segir máltækið að þeir lykti ekki. Tillagan um að gefa er- lendum ríkisstjórnum upplýsingar um peninga, sem grunur leikur á að verið sé að fela með ljósfælnum hætti, var felld í þjóðaratkvæða- greiðslunni með um 70% atkvæða. Og verða þeir menn svissneskir áfram látnir sæta allströngum kár- ínum sem kjafta frá því, hver á hvað í bönkum þeirra.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.