Þjóðviljinn - 05.06.1984, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 5. júní 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 23
RUV 1
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bœn. Morgunút-
varp. 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál.
Endurt. þáttur Marðar Ámasonar frá kvökf-
inu áður.
9.05 Morgunstund barnanna: „Hlndin
góða“ eftir Krlstján Jóhannsaon. Viðar
Eggertsson les (2).
9.20 Leikflmi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar.
Þulur velur og kynnir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.).
10.45 „Man ég það sam löngu lsið“ Ragn-
heiður Viggósdóttir sér um þáttinn.
11.15 Tónlelkar. Ólafur Þórðarson kynnir.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.20 Fráttlr. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar.
Tónleikar.
13.30 Sven Bertll Taube syngur lög eftir
Theodorakls Art Blakeley, Count Basie o.fl.
leika jasslög.
14.00 „Endurfœðingin“ eftir Max Ehrllch.
Þorsteinn Antonsson les þýðingu sína (4).
14.30 Mlðdeglstónleikar. Hljómsveit Tónlist-
arskólans í Pan's leikur danssýningarlög
eftir Guiseppe Verdi og Camille Saint-
Saéns; Anatole Fistoulari stj.
14.45 Upptaktur - Guðmundur Benediktsson.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 Slðdegistónlelkar. Guðmundur Jóns-
son syngur með Kartakór Reykjavíkur „Flyv,
fugl, flyv“, eftir Johan Hartmann; Sigurður
Þórðarson stj. / Guðmunda Elíasdóttir syng-
ur „Skal blomstrene da visne" og „Irmelin
Rose“ eftir Cart Nielsen. Anna Pjeturss
leikur á píanó. / Kartakór Reykjavíkur syngur
„Fædrelandssang" eftir Cart Nielsen; Sig-
urður Þórðarson stj. / Manuela Wiesler og
Sinfóníuhljómsveit danska útvarpsins leika
„Euridice" fyrir Manuelu og hljómsveit eftir
Þorkel Sigurbjömsson; Gunnar Staem stj. /
Sinfóníuhljómsveit Islands leikur „Jalouise"
eftir Jacob Gade; Páll P. Pálsson stj.
17.00 Fréttlr é ensku.
17.10 Sfðdeglsútvarp. Tilkynningar.
19.50 Vlð stokkinn. Sljómandi: Gunnvör
20.00 Sagan: Flambardssetrlð II. hluti,
„Fluglð heillar“ eftlr K.M. Peyton. Silja
Aðalsteinsdóttir les (8).
20.30 Ensk þjóðlög.
20.40 Kvðldvaka: a) Hafnfirski söðlasmiður-
inn I Klattau Gunnar Stefánsson les frá-
söguþátt eftir Jón Helgason ritstjóra. b) Úr
IJóðum Fornólfs Þorsteinn frá Hamri les.
21.10 Fré ferðum Þorvaldar Thoroddsen um
ísland. 1. þéttur: Austurtand sumarið
1882. Umsjón: Tómas Einarsson. Lesari
með honum: Snom Jónsson.
21.45 Útvarpssagan: „Þúsund og ein nótt“
Steinunn Jóhannesdóttir les valdar sögur úr
safninu í þýðingu Steingrims Thorsteins-
sonar (22).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins. Orð kvóldsiris.
22.35 Listahétíð 1984: Tonleikar f Bústaða-
kirk|u 3. þ.m. Gunnar Kvaran og átta aðrir
sellóleikarar flytja ásamt Elísabetu Eriings-
dóttur söngkonu tónlist ef* r Johann Sebast-
ian Bach og Villa-Lobos. - Kynnir: Ásgeir
Sigurgestsson.
23.45 Fréttir. Dagskrártok.
RUV 2
10.00-12.00 Morgunþéttur. Símatími. Spjallað
við hlustendur um ýmis mál líðandi stundar.
Músíkgetraun. Stjómendur: Páll Þorsteins-
son, Ásgeir Tómasson og Jón Ólafsson.
14.00-16.00 Vagg og velta. Létt lög af hljóm-
plötum. Stjómandi: Gísli Sveinn Lottsson.
16.00-17.00 Þjóðlagaþéttur. Komið við vítt og
breytt í heimi Þjóðlagatónlistarinnar. Stjóm-
andi: Kristján Sigurjónsson.
17.00-18.00 Frfatund. Unglingaþáttur. Stjóm-
andi: Eðvarð Ingólfsson.
RUV
19.35 Hnétumar. Lokaþáttur. Þýðandi Þrándur
Thoroddsen. Sögumaöur Edda Björgvins-
dóttir.
19.45 Fréttaégrlp é téknméll.
20.00 Fréttlr og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Myndlistarmenn. 2. Ragnar Kjartans-
aon, myndhöggvari og leirkerasmiður.
20.40 Á jénrbrautaleiðum. (Great Little Rail-
ways). Nýr flokkur -1. Guilgrafaralestin.
Heimildamyndaftokkur i sjö þáttum frá
breska sjónvarpinu, BBC, um gamlar jám-
brautir og iestarferðir á fögrum og oft fáföm-
um slóðum i Norður- og Suður-Ameriku,
Evrópu og Asiu. Þýðandi og þulur: Ingi Kart
Jóhannesson.
21.25 Verðlr laganna. 3. Pólitíkin er sötn við
slg. Bandariskur framhaldsmyndaftokkur
um lögreglustört í stórtxrrg. Þýðandi Bogi
Amar Finnbogason.
22.15 Elnkarekstur - Opinber rekstur? Pall-
borðsumræður á ráðstefnu sem Stjómun-
arfélag Islands gekkst fyrir á Hótel Sögu, 9.
maí síðastliðinn og Sjónvarpið lét þá taka
upp. Þátttakendur enr: Ámi Gunnarsson,
Ingi R. Helgason, Jón Magnússon, Valur
Valsson, Vilhjálmur Egilsson og Þröstur Ól-
alsson. Umræðum stýrir Þórður Friðjóns-
son.
23.20 Fréttir f dagskrérlok.
Hlutverk Þorsteins
illa búið til
Jafnaðaröflin
þurfa að
sameinast
Síðasti þáttur þingsjár var með
ágætum. Þar áttust við formenn
tveggja flokka.
Svavar Gestsson er súperintel-
ligent maður og fór á kostum
öetta kvöld. Hann bókstaflega
malaði alveg andstæðing sinn.
Þorsteinn Pálsson var eins og stór
bómullarhnoðri þó svo hann
skorti ekki greindina. Manni datt
ósjálfrátt í hug að þarna væri
kominn efnilegur maður sem
hefði tekið að sér hlutverk sem
hann vissi að hann gæti ekki
leikið vel af því að hlutverkið
væri illa búið til. Þegar hann
ræddi varnarmálin var eins og
hann væri stokkinn út úr höfði
Geirs Hallgrímssonar og færi
með vasabókarklisjur frá honum.
Jafnaðaröflin
sameinist
Það er sorglegt til þess að vita
með alla þá góðu vinstri flokka
sem til eru á Islandi að þeir skuli
ekki getað sameinast. Alþýðu-
bandlagið, Alþýðuflokkurinn,
Bandalag jafnaðarmanna,
Kvennalistinn, Kvennaframboð-
ið, þó auðvitað sé ég ekki að
stimpla þessa tvo síðast nefndu
flokka neinni ákveðinni vinstri
stefnu þá hafa þeir þó gengið í
berhögg í allmörgum málum við
aðalhægriöflin, Framsókn og
Sjálfstæðið og tel ég því á vissan
hátt hægt að setja framangreinda
flokka undir sama hatt. Það er
löngu vitað að ef þessi jafnaða-
röfl gætu orðið sammála í nokkr-
um málum gæti komist á jafnað-
armannastjóm á íslandi eins og
hefur verið hjá nágrannalöndum
okkar þar sem atvinnugróði og
laun fólks hafa haldist í hendur.
Því það hefur alltaf verið þannig
að jafnaðarmannaflokkar berjast
framar öðru fyrir lífsviðurværi
fólks.
Það sem var mergur málsins í
þessum viðræðum síðustu Þing-
sjár var þetta tvennt; Skatturinn
sem dreginn var af atvinnurek-
endum til að þeir hefðu það enn
Svavar fór á kostum.
betra, þann skatt átti alls ekki að
taka af atvinnurekendum heldur
að láta þá borga í húsnæðismála-
sjóð launafólks og sjá þá hvort
fari ekki að koma glufa í húsnæð-
ismál hins venjulega launþega.
Ef að öllu því fólki sem kýs Sjálfs-
tæðisflokkinn gæti skilist að það
er alls ekki eins gott að lifa á ís-
landi eins og þjóðartekjuskýrslur
frá EFTA segja til um þar sem
þjóðartekjur íslendinga eru
sýndar með þeim hæstu í heimi;
þessar þjóðartekjur, þessi blóm-
strandi gróði atvinnufyrirtækja,
hann er aldrei á íslandi hinum
venjulega vinnuþræl og
launaumslagsmanneskju til
góða. Þarna skilur með okkur og
nágrannalöndum okkar þar sem
þjóðartekjulínan hjá EFTA og
launalína fólksins fylgist stöðugt
að, en hjá okkur er alltaf gapandi
bil á milli þjóðarteknahækkunar
og launateknahækkunar.
Styrka
jafnaðarmannastjórn
Það er alltaf að verða meiri og
meiri munur á milli fátækra og
ríkra á íslandi. Við erum svo fá
og landið er fullt af litlum kóng-
um segja þeir sem ekki vilja
breyta neinu. Það er ekki það.
Það hefur aldrei verið ríkisstjórn
Þorsteinn elns og hnoftrl.
sem hefur haft nægilegt bolmagn
til að breyta þessu. Oftast eru
ríkisstjómir sem alls ekki vilja
breyta þessu og það er mergur
málsins. Við þurfum styrka jafn-
aðarmannastjórn sem fengi að
starfa a.m.k. fjögur ár því þær
stjórnir sem hafa viljað gera
eitthvað í þessa átt hafa aldrei
setið nógu lengi til að geta fram-
kvæmt það sem þeir ætluðu. Hitt
sem mér fannst vera aðalatriðið
sem kom fram í viðræðunum á
skjánum var þessi eilífðar tugga
að síðasta ríkisstjórn hafi skilið
svo illa við þegar hún hrökklaðist
frá. Málið er það að hver ríkis-
stjórn er metin af sínum eigin
verkum, sem hún framkvæmir
hér og nú en ekki stöðugt vera að
afsaka sig í skjóli síðustu ríkis-
stjórnar. Þorsteinn Pálsson kom
einlæglega fram og það er
auðheyrt að hann talar af heiðar-
Ieik. En hann veit sjálfur að verk-
efnið er óframkvæmanlegt ef
horfast á beint í augu við konu
eða mann með launaumslag.
Alltof mörg mál voru svæfð í
þinglok og hrákasmíðin á af-
greiðslu mála undir lokin var
hrottaleg. Nú er bara um eitt að
ræða: Nota sumarið vel undir
undirbúning afgreiðslu mála
strax næsta haust en ekki þar
næstavor.
Sjónvarp kl. 20.35:
Myndlistarmenn - í
tilefni Listahátíðar
í tilefni af Listahátíð 1984 hef-
ur Félag íslenskra myndlistar-
manna leitað til sjónvarpsins um
gerð stuttra kynningarþátta á
nokkrum meðlimum félagsins.
Eru þessir þættir framlag FIM til
Listahátíðar. Val listamannanna
hafði stjórn félagsins með hönd-
um en umsjón þáttanna hefur
Halldór Björn Runólfsson, list-
fræðingur.
Hver þáttur er aðeins þriggja
til fimm mínútna langur og því
binda stjórnendur sig við afmark-
að svið hvers myndlistarmanns.
Reynt er að bregða ljósi á vinnu
hans hér og nú, en þróunarferill
og æviágrip látin liggja milli
hluta. Markmiðið er að draga
fram í dagsljósið þá fjölbreytni
lista og listamanna, sem rúmast
innan vébanda Félags íslenskra
myndlistarmanna.
Skrifið
eða
hringið
Lesendaþjónusta Þjóðvilj-
ans stendur öllum landsins
konum og mönnum til boða,
er vilja tjá sig í stuttu máli um
hvaðeina sem liggur á hjarta.
Nöfn þurfa að fylgja bréfi, en
nafnleyndar er gætt sé þess
óskað. Utanáskriftin er: Les-
endaþjónusta Þjóðviljans,
Síðumúla 6, 105 Reykjavík.
Þá geta lesendur einnig
hringt í síma 81333 alla virka
daga milli klukkan 10 og 6.
Ragnar Kjartansson, myndhöggvarl og leirkerasmiöur, vlð störf sín.
I kvöld kynnumst við verkum höggvara og leirkejasmiðs. Þátt-
Ragnars Kjartanssonar, mynd-
urinn hefst kl. 20.35.
bridge
Það eru ekki endilega stóru
spilin sem gefa mest í aðra
hönd. Lítum á spil þar sem Jón
Baldursson og Hörður Blöndal
gera mikið úr litlu. Spil 15, gjaf-
ari S N/S á:
Norður
S AK73
H D962
TKD4
L 84
Vestur
S 109
H K87543
TG96
LKD
Austur
SDG64
H A
TA852
L 6532
Suður
S852
HG10
T 1073
L AG1097
Jón vakti á grandi í norður,
passað til vesturs sem skaut
inn 2 hjörtum, tvö pöss og Hörð
ur barðist í 2 grönd, sem var
lokasögnin. Útspil hjarta ás,
sem ég er nú ekki alveg sam-
mála. Varla á félagi mikið, ef
hugað er að sögnum, og því er
augljóslega rétt að sækja eigin
lit. Nú, austur skipti í spaða og
Jón vann strax. Laufi svínað og
kóngur átti slaginn. Spaða 10,
gefin. Vestur spilaði þá tígul-6,
kóngur og ás og austur hélt
áfram spaða sókninni. Inni á
kóng spilaði Jón hjarta og vest-
ur hefur sennilega ekki verið í of
miklu stuöi, allavega vardrepið
á kóng. Meiri tígull, Jón leist
ekki á að hleypa nú, enda aðrir
möguleikar í stöðunni. Hann fór
því upp meö drottningu. Tók
síðan hjartaslagina tvo, austur
fleygði tígul og laufi
Nú er komin nokkuð góð taln-
ing í spiliö og Jón gat rétt til um
það sem á vantaði. Hann spil-
aði laufi og það bað um ásinn úr
borði.
120 gaf 22 í aðra hönd, þ.e
hreinan topp.
Einn niður, eða 100 í A/V gaf
N/S ríflega meðalskor
Tikkanen
Það er góð byrjun að meta
lífið ekki minna en þú sjálfur
ert metinn í skattamati.