Þjóðviljinn - 05.06.1984, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 05.06.1984, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 5. júnl 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17 Nýir leið- sögumenn Eftir vetrarlangt nám, útskrifuð- ust 37 nýir leiðsögumenn nú um miðjan maí. Það er Ferðamálaráð fslands sem annað hvert ár gengst fyrir námskeiði af þessu tagi en kennslugreinar eru íslandssaga, jarðfræði, gróður, dýralíf, atvinnu- mál, þjóðfélagsmál, bókmenntir Bókaverslun Snæbjarnar verður öll í Hafnar- stræti 4 Bókaverslanir Snæjarnar í Hafn- arstræti nr. 4 og nr. 9 hafa nú verið sameinaðar í gjörbreyttu húsnæði í Hafnarstræti 4. Eftir breytingarn- ar stækkar húsnæði verslunarinn- ar um helming. Sérhæfing hennar verður meiri: í nýja húsnæðinu verða einungis á boðstólum enskar og íslenskar bækur auk kennslu- bóka á mörgum tungumálum og aukins framboðs á kennsluefní á spólum. Auður Vilhjálmsdóttir er arki- tekt hins nýja húsnæðis. Bókaverslun Snæbjarnar var stofnuð árið 1927. Frá 1953 hefur hún verið í Hafnarstræti 9, en Hafnarstræti 4 bættist við árið 1970. Bókaverslunin hefurekki síst sérhæft sig í erlendum kennslu- og fróðleiksbókum, en auk þess stóð Snæbjörn Jónsson að nokkurri ís- lenskri bókaútgáfu. Verslunin hef- ur um allangt skeið haft umboð fyrir bresku fyrirtækin Longmann, Hamlyn og Oxford University Press og Max Huber Verlag í Þýskalandi. í tilefni af opnun nýju verslunarinnar er þar kynning á listaverkabókum frá Pahidon Press á sérstöku kynningarverði. -áb. Orlof hús mæðra að Laugarvatni Orlofsnefndir Hafnarfjarðar, Kópavogs, Akraness, Snæfellsness og Vestmannaeyja hafa á undan- förnum árum haft samvinnu um húsmæðraorlof að Laugarvatni. Að þessu sinni hefur verið ákveðið að húsmæður frá Hafnar- firði og Kópavogi fari samtímis í orlof, dagana 25. júní til 2. júlí. Tekið verður á móti umsóknum í Hafnarfirði þriðjudaginn 12. júní kl. 18-20 í Góðtemplarahúsinu og í Kópavogi föstudaginn 15. júní kl. 18-19 í Félagsheimili Kópavogs, 2. hæð. og listir. Auk þess sem haldnir eru fyrirlestrar um helstu ferðamann- astaði og leiðir, haldið námskeið í skyndihjálp og notkun áttavita. Námskeiðsstjóri var í vetur Birna G. Bjarnleifsdóttir. Þetta er í fimmta sinn sem Ferða- málaráð gengst fyrir svona nám- skeiði en samkvæmt lögum um ferðamál frá 1976 er því falið að annast menntun og þjálfun leiðsögumanna. -S.dór Lelösögunemar í prófferð taka sér kafflhlé. Ljósm. Ingo Wershofen. Félags- fundur hjá Parkin- sonsamtökum Þriðji félagsfundur Parkinson- samtakanna verður haldinn í Sjálfsbjargarhúsinu, Hátúni 12, II. hæð, kl. 2:00 Iaugardaginn 9. júní nk. Á dagskrá eru venjuleg félags- störf, auk þes sem Jón Óttar Ragn- arsson flytur erindi um: Mataræði og heilbrigði almennt Mataræði og taugakerfið Mataræði og parkinsonveikin */# FRAD AF SKATTSKYLDUM TEKJUM AF ATVINNUREKSTRI -ITL1. JÚLÍ Fyrirtækjum og einstaklingum sem hafa tekjur af atvinnurekstri er nú heimilt að draga 40% frá skatt- skyldum tekjum til að leggja í fjárfestingarsjóð. Frádrátturinn er bundinn því skilyrði að helm- ingur fjárfestingarsjóðstillagsins sé lagður inn á bund- inn 6 mánaða reikning fyrir 1. júlí n.k. vegna tekna árs- ins 1983. Ef reikningsárið er annað en almanaksárið skal lagt inn á reikninginn innan 5 mánaða frá lokum reikningsárs. Innstæður á reikningunum eru verðtryggðar samkvæmt lánskjaravísitölu. Auk þess býður Lands- bankinn 1,54% stigum hærri vexti en gilda um aðra 6 mánaða reikninga. Það er besta ávöxtun, sem boðin er. Reikningsinnstæðum má ráðstafa að loknum 6 mánaða binditíma, en innan 6 ára. Enn er hægt að njóta þeirra skattfríðinda sem að framan er lýst, við álagningu tekjuskatts og eignaskatts á árinu 1984 vegna tekna ársins 1983. Fresturinn að þessu sinni er til 1. júlí n.k. Upplýsingar um stofnun fjárfestingarsjóðsreikninga eru veittar í sparisjóðsdeildum Landsbankans. LANDSBANKINN Græddur er geymdur eyrir

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.