Þjóðviljinn - 05.06.1984, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 05.06.1984, Blaðsíða 10
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 5. júni 1984 Hafnarfjarðardagur Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur ákveðið að efna ár- lega til Hafnarfjarðardags, þar sem hluti af starfsemi Hafnarfjarðarbæjar verði kynntur. Hafnarfjarðardagur verður haldinn 5. júní og að þessu sinni verður kynnt starfsemi slökkviliðs og bæjarútgerðar. Fiskiðjuverið við Vesturgötu og slökkvistöðin við Flatahraun verða opin á milli kl. 10:00 og 16:00. Bæjarbúar eru hvattir til að nota þetta tækifæri til að heimsækja stofnanirnar og kynnast starfsemi þeirra. Bæjarstjóri. TÓNLISTARSKÓLI ^ NJARÐVÍKUR Eftirtaldar kennarastööur eru lausar til um- sóknar viö Tónlistarskóla Njarðvíkur: Fiölukennarastaöa, forskólakennarastaöa, málm- og tréblásarakennarastaða, gítar- kennarastaöa (æskilegt að viðkomandi geti tekiö organistastarf viö Ytri- og Innri Njarö- víkurkirkju). Umsóknarfrestur er til 10. júní. Allar nánari upplýsingar gefur skólastjóri, Örn Óskars- son, í síma 92-3154. Skólanefnd. Bæjarritari Siglufjarðarkaupstaöur vill ráöa bæjarritara og þarf viðkomandi aö geta hafiö störf sem fyrst. Upplýsingar veitir undirritaður ásamt fráfar- andi bæjarritara. Skriflegar umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf þarf aö senda undirrituöum fyrir 15. júní n.k. Bæjarstjórinn Siglufirði. ÚTBOÐ Tilboð óskast í 2400 m3 gröft og 1890 m3 af fyllingu vegna byggingar leikskóla og skóladagheimilisins Hálsakots. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi 3 Reykjavík, gegn kr. 1500.- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 21. júní n.k. kl. 14 e.h.. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800 Vélsmiðja Húnvetninga, Blönduósi óskar að ráða eftirtalda starfsmenn: 1. bílamálara eða vanan málara 2. járnsmið 3. rafvirkja 4. bifvélavirkja. Ágæt vinnuaðstaða. Getum útvegað húsnæði. Nánari upplýsingar gefur Gunnar í símum 95-4128 á daginn og 95-4545 á kvöldin. SKÓLASTJÓRA VANTAR að tónlistarskóla Sandgerðis. Umsóknarfrestur til 15. júní n.k. Upplýsingar gefur Margrét í síma 92-15263. Tónlistarskóli Sandgerðis. „Ég gagnrýnl ennfremur sérdellls óvandaða umsögn um sýnlnguna á „Sölku Völku“ í Þjóðvlljanum. Hun sýndi skilningsleysi. Skilningsleysl á gildi mennlngarstarfseml. Þjóðviljlnn hefurfjarlægst markmið sín nokkuð miklð, þegar vinnandi menn á Húsavík, sem af elju og vandvlrknl nýta allar tómstundlr sínar til listsköpunar, fá slíka sendingu frá honum“, seglr María Krlstjánsdóttlr m.a. í greln slnni. Myndin er úr sýnigu Lelkfélags Húsavtkur á Sölku Völku. María Kristjánsdóttir skrifar: Besta eignin Til Einars Karls Haraldssonar ritstjóra Þjóðviljans „Þó Þjóðviljinn sé ekki altaf prentvinnulaus og margt megi að honum finna þá er hann eftilvill besta eignin í hverju smáu húsi í landinu“. (Halldór Laxness - 1945 - vegna söfnunar fyrir prentsmiðju) Þar sem ég hef óljósan grun um að jafnvel lestrarkunnáttu fari hrakandi hjá blaðamönnum Þjóð- viljans ætla ég að endurtaka aðalat- riðin í athugasemd minni frá 22. maí og skýra þau nánar. Ég gagnrýndi Þjóðviljann fyrir að hafa ekki sinnt fréttaskyldu við Leikfélag Húsavíkur. í níu daga sat blaðið á fregn um það, að fimmtíu manns á Húsavík hefðu lagt nótt við dag í margar vikur til þess að koma á fjalirnar „Sölku Völku“ eftir Halldór Laxness. Þetta sýnir áhugaleysi. Áhugaleysi á lífí fólks, sem blaðið á að þjóna. Áhugaleysi á menningarviðleitni alþýðu manna. Ég gagnrýndi ennfremur sérdeil- is óvandaða umsögn um sýninguna á „Sölku Völku“ í Þjóðviljanaum. Hún sýndi skilningsleysi. Skiln- ingsleysi á gildi menningarstarf- semi. Þjóðviljinn hefur fjarlægst markmið sín nokkuð mikið, þegar vinnandi menn á Húsavík, sem af elju og vandvirkni nýta allar tóm- stundir sínar til listsköpunnar, fá slíka sendingu frá honum. Varasöm stefna Það er nauðsynlegt að minna ykkur á, að menning þjóðar er ekki síst undir því komin, að sem flestir einstaklingar hennar sinni listum. Einnig, að aðeins er liðin stutt stund frá því að öll leikhús á íslandi voru kenndi við áhuga en ekki at- vinnu og í þeim síðamefndu starfa enn menn, sem komust til þroska í hinum fyrmefndu. Leikhús okkar má kannski kalla stór eða smá eftir því hvaða viðfangsefni þau velja sér, og hver skil þau gera þeim, en öll em þau greinar á sama meiði, því ber að fjalla um sérhvert þeirra af kostgæfni. Óvandaðar umsagnir er hægt að forðast með því að ráða hæfa menn til að skrifa um leikhús. Hæfur er sá, sem hefur þekkingu á viðfang- sefninu, sem glímt er við, þekkingu á því umhverfi sem verkið er leikið „Það erekkiút- gáfufélagí Reykjavík sem á Þjóðviljanriy ekki heldurforystaAl- þýðubandalags- ins, né ritstjórn blaðsins, heldur vinstrisinnaðir vinnandi menn í landinu... Við meðeigendur mína vil ég segja: Stöndum vörð um eignarréttinn!í( í og þekkingu á öllum tjáningarm- eðölum leikhússins, sögu þess og aðferðum. Almennrar menntunar hlýtur og að vera krafist og hæfi- leikans að orða hugsun sína í rituðu máli. Sæmileg velvild til annarra manna getur heldur ekki verið undanskilin, né sjálfstæð skapandi vitund, sem gerir kröfur til leikhússins og tengir það samtíð- inni. Sú stefna Þjóðviljans að hafa ekki fastráðinn hæfan mann til þess að skrifa um leikhús er varasöm. Án þekkingar verða ekki dregnar ályktanir sem koma bæði lesendum og leikhúsi að gagni. Hættuleg verður hinsvegar þessi stefna, þeg- ar blaðið gerir engar kröfur til þess sem skrifar gagnrýnina, ekki einu sinni að hann orði skammlaust hugsun sína. Þá er ekki rýnt til gagns, þá er skrattanum skemmt. Þjóðviljinn á ekki að skemmta skrattanum. Þjóðviljinn á að sýna leikfélögum landsbyggðarinnar áhuga og senda til þeirra hæfa menn. Stefna Þjóðviljans í menn- ingarmálum á ekki að vera tilvilj- unarkennd og duttlungafull heldur meðvituð og markviss. Þetta var aðalatriðið. Þjóðviljinn er eign okkar Aukaatriðið var blaðamaðurinn og sannleikurinn. Sannleikurinn er hinsvegar ekki aukaatriði. Hann er ekki afstæður, og lygin verður ekki að sannleika, þó hún sé sögð tvis- var. Spurningin er, hver hefur hag af því að Þjóðviljinn ljúgi. Áukaatriði geta að sjálfsögðu gert sig að aðalatriðum og rit- stjórar tekið upp þann ósið að láta aðra svara bréfum sínum með leikskólaorðbragði. Þannig má drepa á dreif gagnrýni og þannig má sóa pappír. Viðmælendur mína kýs ég að velja sjálf. Ég losna hinsvegar ekki við Þjóðviljann. Vinur minn einn hef- ur bent mér á, að það gagni lítið að segja blaðinu upp. Eigandi dag- blaðs getur, sagði hann, sé hann óánægður með reksturinn, breytt rekstrarfyrirkomulaginu, sagt upp starfsmönnum þess og ráðið aðra nýja. Útgáfu blaðsins getur hann einnig hætt, en þó hann segi upp áskrift heldur hann áfram að vera eigandi blaðsins. Þetta er að sjálf- sögðu rétt hjá manninum. Það er ekki útgáfufélag í Reykjavík sem á Þjóðviljann, ekki heldur forysta Alþýðubandalagsins, né ritstjórn blaðsins, heldur vinstrisinnaðir vinnandi menn í landinu. Þeir hafa frá upphfi fjármagnað og rekið Þjóðviljann. Yfirráðaréttur þeirra hefur að vísu verið skertur, og eng- inn heldur því lengur fram að blað- ið sé besta eignin. Eign okkar er það samt. Við höfum komið okkur upp þessari eign til að þjóna hags- munum vinnandi stétta og engum hagsmunum öðrum. Við starfsmenn mína á ritstjórn- arskrifstofunum vil ég segja þetta: ósannar myndir af veruleikanum gagna mér ekki, því síður flótti inní einkalífið eða hneykslisögur af borgaralegu siðgæði. Það eina sem gagnar eru orð, sem gerá veru- leikann skiljanlegan og skapa með- vitund, er leiðir til athafna. Við meðeigendur mína vil ég segja: stöndum vörð um eignar- réttinn! Húsavík, 31. maí, 1984 María Kristjánsdóttir

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.