Þjóðviljinn - 30.06.1984, Side 1
SUNNUDAGUR
MENNING
Listahátíð
6 miljón króna halli
Nýir
Samkvæmt bráðabirgðaupp-
gjöri á rekstri Listahátíðar
sem lagt var fram í borgarráði í
gær er reiknað með að tap á hát-
íðinni nemi minnst 6 miljónum.
Þetta er mun hærri tala en áður
útreikningar
hefur verið nefnd í þessu sam-
bandi og kom borgarráðsmönn-
um mjög á óvart.
Með þessu reikningsuppgjöri
fylgdi beiðni um viðbótarfjár-
lagðir fram í
veitingu frá borgarsjóði strax til
að bjarga kaupgreiðslum.
Áætlað tap á Listahátíð eins og
það var kynnt borgarráði hálfum
mánuði áður en hátíð hófst var
borgarráði í
800 þús. krónur. Inn í þeirri upp-
hæð var uppgert tap af kvik-
myndahátíð uppá 500 þús. kr. Sú
tala sem kynnt var fyrir borgar-
ráðsmönnum í gær 6 miljónr
króna halli er því nærri tvítug-
gœr.
faldur áður áætlaður rekstrarhalli
af hátíðinni. Það er því greinilegt
að ýmislegt hefur farið öðru vísi
en menn ætluðu fyrir ekki löngu.
-•g-
Stigahlíð
Davíð
bað enn
um frest
Minnihluti borgar-
ráðs krefst upplýs-
inga.
Á borgarráðsfundi í gær gaf
Davíð Oddsson borgarstjóri eng-
ar frekari upplýsingar um kaup-
endur og kaupverð einstakra lóða
í Stigahlíðinni, þrátt fyrir óskir
fulltrúa minnihlutans þar að lút-
andi.
Sigurjón Pétursson og Guðrún
Jónsdóttir létu bóka þá kröfu á
fundinum að borgarstjóri léti
borgarráðsmönnum í té afrit af
hverjum einstökum kaupsamn-
ingi vegna Stigahlíðalóðanna.
Eftir harðar umræður óskaði
borgarstjóri eftir fresti fram á
þriðjudag til að svara þeirri mála-
leitan. Sagði Sigurjón í samtali
við Þjóðviljann í gær að hann ætl-
aði sér ekki að taka við þessum
upplýsingum sem trúnaðarmáli
frá borgarstjóra.
„Það er rétt að það komi fram
að í útboðsgögnunum fyrir Stiga-
hlíðarlóðirnar er enginn staf-
krókur um leynd, nema meðan
kaupin eiga sér stað, en það er
ekkert ákvæði um leynd eftir að
kaup eru um garð gengin. Borg-
arstjóri getur því ekki skýlt sér
bakvið einhverja samþykkt um
að leynd eigi að ríkja um þessi
mál því sú samþykkt er hvergi
til,“ sagði Sigurjón Pétursson._j
Utifundur
á mánudag
Á mánudaginn kemur kl. 17.30 verður á Lækjartorgi útifundur undir kjörorðunum: Hrindum
árásinni á kjörin. Til baráttu í haust. Svavar Gestsson og fleiri sem verða málshefjendur á
útifundinum kynntu vegfarendum hann í miðborginni síðdegis í gær og dreifðu kynningarriti.
Húsnœði
Alexander gefur, Albert innheimtir
Miljónirnartilfyrstaskiptismannaáttuaðveraframlag ríkis en eru orðnar að láni.
eim sem eru að byggja eða
kaupa er í fersku minni að um
áramótin veitti ríkissjóður Bygg-
ingarsjóði ríkisins „bráðabirgð-
afyrirgreiðslu“, 260 milljónir, til
að standa undir 50% viðbótarláni
til þeirra sem byrjuðu að koma
sér þaki yfir höfuðið árin 1982 og
1983. Alexander Stefánsson lýsti
því þá yfir að allar vonir stæðu til
þess að þessar milljónir yrðu
hreint framlag ríkissjóðs til
skuldum hlaðins Byggingarsjóðs-
ins. Nú á miðvikudag var á
stjórnarfundi í Húsnæðisstofnun
lagt fram bréf frá Alexander og
tilkynnir hann þar að framlagið
sé orðið að láni frá ríkissjóði til
Byggingarsjóðs.
Lánið er skuldabréf upp á 274
milljónir, með 5,25% vöxtum til
17 ára með jöfnum greiðslum
tvisvar á ári og hefjast 1. febrúar
á næsta ári, verðtryggt.
„Það var alltaf ætlunin að þeir
borguðu þetta aftur“ sagði Al-
bert fjármálaráðherra í gær,
„þetta var lán og um það talað í
upphafi.“ Alexander Stefánsson
var afar upptekinn í gær en Þrá-
inn Valdimarsson formaður
stjórnar Húsnæðisstofnunar
sagði að það væri ekkert vafamál
að félagsmálaráðherra hefði ætl-
ast til að hér yrði um framlag að
ræða, - „en það er ekki svo að
hann ráði nú öllu. Þetta væri
býsna gott framlag ef það hefði
verið framlag". Urslit málsins
komu Þráni ekki á óvart miðað
við það sem hefur gerst á undan-
förnum árum.
Sigurður E. Guðmundson
framkvæmdastjóri var ekki tilbú-
inn að nefna tölur um skulda-
byrði hjá Húsnæðisstofnun en
sagði að þeir þyrftu að greiða
stórar summur í margar áttir.
Vegna fjárhagserfiðleika Bygg-
ingarsjóðs hefur bið eftir lánum
nú undanfarið verið um mánuði
lengri en vanalegt var. Húsbyggj-
andi sem áður hefði fengið lán
um fimm mánuðum eftir að fok-
helt varð þarf nú að bíða uppund-
ir sjö mánuði að sögn Katrínar
Árnadóttur hjá Byggingarsjóði
ríkisins.
Á stjórnarfundi Húsnæðis-
stofnunar á miðvikudag voru
bókuð mótmæli við breytinguna
úr gjöf í lán og gerðu það fulltrúar
Alþýðuflokks, Alþýðubanda-
lags, Kvennalista og Álþýðusam-
bands íslands. Fulltrúi ASÍ á
fundinum var Bjöm Þórhallsson.
-m