Þjóðviljinn - 30.06.1984, Blaðsíða 2
FRETTIR
VERIÐ VELKOMIN!
Snæðið Ijúffenga KENTUCKY FRIED CHICKEN
kjúkiinga að Hjallahrauns og Reykjanesbrautar
Síðastl vlnnudagurinn hjá Togaraafgreiðslunni. Einar Einarsson við
löndun úr Herjólfi I gærmorgun. Fyrirtækið verður lagt niður 1. júlí og enn
er alls óvíst hver verður framtíðaratvinna meginþorra starfsmannanna
(mynd: -eik).
Skemmtanir
Stuðmenn í Kolaportinu
Hljómsveitin Stuðmenn hefur en aðstöðuna þarf að kanna nán-
sent borgaráði bréf og óskað ar.
eftir leyfi til að halda unglinga- Þá hefur skátahreyfingin óskað
skemmtun í bflageymslu borgar- eftir að fá að halda útiskemmtun í
innar undir Arnarhóli, eða í Kol- Hljómskálagarðinum nú í sumar
aportinu svonefnda. Málið var með sama sniði og í fyrrasumar
tekið fyrir á borgarráðsfundi í og verður það leyfi vafalaust
gær en ekki endanlega afgreitt en veitt.
fulltrúar voru jákvæðir erindinu, -lg.
ERUM FLUTTH
Þetta hús er á
horni Hjallahrauns
og Reykjanesbrautar
Þórshöfn
Konur efna til
ti
friðaraðgerða
Brýna nauðsyn ber til að kjarnorkuvopnaandstœðingar snúi bökum
saman gegn kjarnorkumengun umhverfis og hugarfars segir íyfirlýs-
ingu Samtaka herstöðvaandstœðinga.
Samtök herstöðvaandstæðinga
hafa sent frá sér stuðningsyf-
irlýsingu við friðaraðgerðir á
Þórshöfn sem konur á Þórshöfn
ætla að gangast fyrir 7. júlí
næstkomandi. Stuðningsyfirlýs-
ing SHA er á þessa leið:
Samtök herstöðvaandstæðinga
fagna því frumkvæði sem konur á
Þórshöfn og nágrenni hafa tekið
Bœkur
Ferðavasabók
Fjölvíss
Ferðavasabókin, uppsláttarrit
ætlað ferðamönnum, er kom-
in út. Bókin inniheldur margs-
konar hagkvæmar upplýsingar
fyrir ferðafólk jafnt innanlands
sem utan. Þetta er fyrsta tilraun
til að gefa út slíkt rit hérlendis, en
vasabækur sem þessar hafa öðlast
miklar vinsældir erlendis.
Meðal efnis í bókinni eru 48
litprenturð kort, vegalengda-
töfíur, upplýsingar um gististaði
og aðra ferðamannaþjónustu,
um sendiráð og ræðismenn er-
lendis, vegaþjónustu, veðurfar á
ýmsum stöðum og margt fleira.
Fjölvís, sem gefur bókina út,
annast sérágyllingu framan á
kápu án endurgjalds fyrir stofn-
anir, fyrirtæki eða félög sem
kaupa 20 eintök eða fleiri af bók-
inni.
með því að efna til friðaraðgerða
á Langanesi þann 7. júlí n.k.
Það ber brýna nauðsyn til að
k j arnorku vopnaandstæðingar
taki höndum saman í baráttu fyrir
verndun lands, þjóðar og tungu -
gegn kjarnorkumengun um-
hverfis og hugarfars, gegn ógnum
k j arnorku vopna.
Við mótmælum vitfirringslegu
vígbúnaðarkapphlaupi risaveld-
anna í Norðurhöfum. Við
skorum á íslensk stjórnvöld að
beita sér gegn því af öllum mætti
að Bandaríkin komi fyrir stýri-
flaugum í þúsundatali í höfunum
umhverfis ísland. Við krefjumst
þess að hætt verði við fram-
kvæmdir í Helguvík, að hætt ver-
ið við að koma langdrægum orr-
ustuþotum af F-15 gerð fyrir á
Keflavíkurflugvelli og að hætt
verði við öll áform um að setja
upp ratsjárstöðvar á Vestfjörð-
um og Norðausturlandi.
Samtök herstöðvaandstæðinga
hvetja hópa herstöðvaandstæð-
inga og annarra friðarsinna um
land allt að veita framtaki Þórs-
hafnarkvenna verðugan stuðning
og senda fulltrúa í Langanes-
göngu.
-v.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN Laugardagur 30. júní 1984