Þjóðviljinn - 30.06.1984, Síða 3
Öryrkjabandalagið
Húsaleiguhækkunin ólögleg
Óskað eftir að Öryrkjabandalagið taki til baka 30% hækkun húsaleigu
frá 1. júnísl. Hagstofan tilkynnti aðeins 2% hækkun.
eim tilmælum hefur vcrið
beint til stjórnar Öryrkja-
bandaiagsins að það dragi til
baka tilkynnta hækkun á leigu-
gjöldum á íbúðum bandaiagsins í
Reykjavík og Kópavogi. Sú
hækkun var að meðaltali 30% á
hverja íbúð og tók gildi 1. júní sl.
Framkvæmdastjóri Öryrkja-
bandalagsins sagði í samtali við
Þjóðviljann í síðustu viku að þessi
mikla hækkun væri tilkomin
vegna slæmrar rekstrarstöðu
bandalagsins sem sjáifseignar-
stofnun og leyfilegar hækkanir
síðustu ára hefðu ekki verið að
fullu nýttar.
Þessi hækkun þýðir að í mörg-
um tilfellum þurfa íbúar í þessum
íbúðum að greiða allt að 60% af
heildarráðstöfunartekjum sínum
í húsaleigu og hússjóðsgjöld í
hverjum mánuði.
Hagstofan hefur nýlega til-
kynnt að leyfilegt sé að hækka
húsaleigu um 2% frá og með 1.
júlí. 30% hækkun Öryrkjaband-
alagsins tók hins vegar gildi 1.
júní og er með öllu ólögleg því
samkvæmt lögum er óheimilt að
bæta á hækkanir húsaleigu ónýtt-
um fyrri hækkunum. Þá virðist
einnig ljóst samkvæmt athugun
Þjóðviljans að Öryrkjabanda-
lagið hefur 3 sl. ár nýtt sér að fullu
allar hækkanir á húsaleigu sam-
kvæmt hækkun húsnæðisvísitölu
á hverjum tíma.
Bragi Guðmundson félags-
málafulltrúi í Kópavogi, en þar
leigir Öryrkjabandalagið út 43
fbúðir, sagði aðspurður um þessa
miklu hækkun húsaleigu Öryr-
kjabandalagsins að sér sýndist
ótvírætt að hún bryti í bága við
lög um húsaleigu sem samþykkt
voru á Alþingi í vor. Samkvæmt
þeim lögum er óheimilt að hækka
húsaleigu meira en sem nemur al-
mennum launahækkunum sam-
kvæmt tilkynningu Hagstofunnar
hverju sinni.
„Hagstofan hefur tilkynnt 2%
hækkun 1. júlí þannig að 30%
meðalhækkun 1. júní getur ekki
staðist. Ég hef óskað eftir því við
Öryrkjabandalagið að umrædd
hækkun á húsaleigu verði tekin til
baka og ég þykist þess fullviss að
þessi mistök verði leiðrétt“, sagði
Bragi.
Mér er ljóst að tilefni þessarar
miklu hækkunar eru rekstrarerf-
iðleikar, enda hefur Öryrkja-
bandalagið enga sjálfstæða tekj-
ustofna og vafalaust verður að
finna lausn á þeim vanda. Ég er
sannfærður um að aðrar og betri
lausnir séu færar í þeim efnum en
sú að hækka húsaleigu hjá öldr-
uðum og öryrkjum sem sjaldan
hafa búið við jafn þröngan kost'
og nú. Ég er þess fullviss að Ör-
yrkjabandalagið mun nú sem
endranær taka mið af þörfum
þeirra sem höllum fæti standa í
samfélaginu", sagði Bragi Guð-
brandsson.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
tókst blaðinu ekki að ná tali af
Önnu Ingvarsdóttur fram-
kvæmdastjóra Öryrkjabandal-
agsins í gær vegna þessa máls.
-*g-
Danir
borga
Sendiherra Danmerkur hefur
afhent Einari Hákonarsyni
listmálara tékka til fullrar
greiðslu á bótum vegna skemmda
á bát hans sem danskur sjóliði var
valdur að í Reykjavíkurhöfn fyrir
skömmu.
Það var 12. júní sl. sem drukk-
inn danskur sjóliði af eftirlits-
skipinu Beskytteren tók nýjan
bát Einars Hákonarsonar,
Manga RE 160 traustataki í höfn-
inni og sigldi honum í næstu
landsteina með þeim afleiðingum
að hann strandaði og skemmdist
mikið
Utanríkisráðuneytið fór þess á
leit við danska sendiráðið að
danska ríkið bætti eiganda báts-
ins tjónið og var Arnljóti Björns-
syni prófessor falið að meta
tjónakröfu eiganda.
í stað gömlu flokkanna fjögurra
finnst mér að ættu að koma fjórir
nýir, Fiokkur mannsins, Flokkur
konunnar, Flokkur barnsins og
Flokkur heilbrigðrar skynsemi.
Samfélagsfrœðihópur
Stuðningur frá
Kennarasambandinu
íályktunfrá KÍerfarið lofsamlegum orðum um námsefni í
samfélagsfrœði og harmað að það hafi verið gert tortryggilegt í
umræðu.
Eins og Þjóðviljinn hefur greint
frá hafa höfundar námsefnis í
samfélagsfræði lýst yfir að þeir
telji sér ekki lengur fært að vinna
samningsbundin verkefni fyrir
menntamálaráðuncytið. Kenn-
arasamband íslands hefur nú
fjallað um málið og stjórn þess
samþykkti nýlega ályktun þar
sem þungum áhyggjum er lýst
yfir þróun þessara mála.
I ályktuninni er bent á, að
samning námsefnis taki langan
tíma sem þurfi að byggja upp
markvisst með kerfisbundinni
áætlanagerð og tilraunakennslu.
Jafnframt segir að námsstjórar og
annað starfsfólk skólarannsókna-
deildar hafi á undanförnum árum
unnið ómetanlegt starf í þágu
skólanna. Síðan segir:
Stjóm KÍ lýsir áhyggjum sín-
um yfir því að ekki hefur tekist að
tryggja áframhaldandi uppbygg-
ingarstarf þess hóps sem unnið
hefur af áhuga, alúð og kostgæfni
að samningu nýs námsefnis í
samfélagsfræði. Stjórnin harmar
einnig að sú umræða og umfjöll-
un um starf hópsins sem átt hefur
sér stað á undanförnum mánuð-
um hefur ómaklega gert verk
hans tortryggilegt,..
Verslunarmenn Árnessýslu
Stuðningur
við Búseta
Fundurinn gerir þá kröfu til
stjórnvalda að Búseta séu
tryggð lán frá Húsnæðisstofnun
ríkisins á sambærilegum kjörum
og tíðkast í nágrannalöndum okk-
ar, til þess að markmið þeirra nái
fram að ganga.
Þannig hljóðar niðurlag álykt-
unar félagsfundar í Verslunar-
mannafélagi Árnessýslu, sem
haldinn var í lok síðasta mánað-
ar. Lýsti fundurinn yfir ánægju
sinni með stofnun Húsnæðissam-
vinnufélagsins Búseta og vonar
að þar muni opnast leið fyrir
tekjulágt fólk til að komast í var-
anlegt húsnæði, sem uppfyllir
kröfur nútímans án þess að færast
of mikið í fang.
-V.
Vinningarnir í hinu glæsilega Ólympiuhappdrætti: 11 Ford Escort og 3
Ford Sierra.
Kolmunna-
rannsóknir
við írland
Sovéska vísindarannsókna-
skipið „Persej 111“ leit við í
Reykjavíkurhöfn í gær á heimleið
til Murmansk. Skiðið hefur und-
anfarnar 6 vikur stundað rann-
sóknir á kolmunnastofninum um
200 mílur út frá írlandsströndum
í samvinnu við þarlend fiskimála-
yfirvöld. Að sögn rannsóknar-
manna tókust athuganir og til-
raunaveiðar með ágætum en
nokkur lægð er nú yfir kolmunn-
astofninum.
Yfir 80 skipverjar eru á Persej
III þar af 13 vísindamenn og áttu
fulltrúar þeirra viðræður við
starfsbræður sína hjá Hafrann-
sóknastofnun meðan skipið lá í
höfn. -lg/-mynd -eik.
Söfnuðu áður
en skulda nú
Ríkisstofnanir í B-hluta fjár-
laga hafa tekið út um 285 miljónir
af innistæðum sínum í bankanum
í ár, en á sama tíma í fyrra höfðu
þær lagt inn 485 miljónir. í mál-
gagni Seðlabankans, Hagtölum
mánaðarins, segir að þessar
hreyfingar ráðist að verulegu
leyti af því hvernig erlendum lán-
tökum vegna opinberra fram-
kvæmda er háttað. -6g
14 bílar í
vinninga
í því skyni að afla fjár vegna
þátttöku Islands í Ólympíuleik-
unum í Los Angeles í sumar hefur
Ólympíunefnd Islands hrundið af
stað happdrætti og eru 14 Ford-
bflar í vinninga.
í frétt frá Ólympíunefndinni
segir að mun fleiri íþróttamenn
fari á leikana í Los Angeles en
upphaflega hafi staðið til og að
þar muni mest um landsliðið í
handknattleik. 30 íþróttamenn
fara til leikanna og auk hand-
knattleiksmannanna eru það 8
frjálsíþróttamenn, 4 sundmenn,
2 júdómenn og 1 lyftingamaður.
Standa vonir til að fulltrúi íslands
komist á verðlaunapall á leikun-
um nú, en eins og kunnugt er hef-
ur Einar Vilhjálmsson sýnt undra
góðan árangur í spjótkastinu að
undanförnu.
Dregið verður í happdrættinu
14. ágúst, tveimur dögum eftir að
Ólympíuleikunum lýkur. -v.
Laugardagur 23. júni 1984 ÞJÓÐVILJINN - SlÐA 3