Þjóðviljinn - 30.06.1984, Síða 13
MENNING
Námskeið í
Kramhúsinu:
Dans,
leikur,
íþróttir
í næstu viku hefst í Kramhús-
inu við Bergstaðastræti 5 daga
námskeið í dans- og líkamsþjálf-
un ætlað öllum þeim sem vilja
kynna sér nýjungar í þjálfun
dansara, leikara, íþrótta- og fím-
leikafólks.
Námskeiðið hefst fimmtudag-
inn 5. júlí og stendur til þriðudags
10. júlí. Allar upplýsingar gefur
Hafdís Árnadóttir, Kramhúsinu
við Bergstaðastræti, en hún hefur
tekið þátt í námskeiðum fjórm-
enninganna undanfarin þrjú ár.
Kennarar námskeiðisins eru:
Betty Toman, prófessor og
stjórnandi dansa við ríkishá-
skólann í Iowa og fyrrverandi
forseti Sambands bandarískra
dansara og danskennara. Hún
hefur sjálf háskólamenntun á
sviði danslistar (ms) og hefur
starfað í leikhúsi sem dansahöf-
undur og leikari, auk þess sem
hún hefur verið fengin til að
skipuleggja þjálfun dansara, við
ýmsa fræga dansskóla og lagt
grundvöllinn að starfi dansflokka
víða uji Bandaríkin.
Thomas Malling er leikstjóri
að mennt, frá Ríkisleiklistarskól-
anum í Kaupmannahöfn og hefur
leikstýrt margskonar sýningum.
Þá hefur hann starfað sem
leiklistarkennari við Leiklistar-
skólann í Kaupmannahöfn og
Óðinsvéum. Fögin sem hann hef-
ur lagt áherslu á eru: tækni leika-
rans, comedia dellarte og trúð-
leikur.
Olav Ballisager starfar sem
kennari við íþróttakennaradeild
kennaraháskólans í Árósum.
Hann hefur sjálfur stundað fram-
haldsnám í Bandaríkjunum og
þjálfað íþróttamenn og fimleika-
fólk út frá sínum eigin hugmynd-
um, sem fela í sér ný sjónarmið
varðandi þjálfun íþróttafólks.
Þóra Óskarsdóttir kennir við
sjúkraþjálfaraskólann í Árósum.
Hún er íþróttakennari að mennt
og hefur ásamt manni sínum,
Olaf Ballisager, stundað fram-
haldsnám í Bandaríkjunum. Þau
hafa sfðan starfað mikið saman
við þjálfun fimleikafólks í Árós-
'im.
Tveir sem kunna handbragðið.
Hleðslumenn halda ndmskeið og gefa út tímarit
Endurvekum bessa
fornu
„Áhugi á hleðslulist hefur
blundað í mönnum og nú
ætlum við að snúa vörn í sókn
og halda námskeið með öllum
bestu hleðslumönnum á
landinu. Við höfumfulla
ástæðu til að ætla að margir
muni sækja námskeiðið, því
þegar við vorum með
námskeið fyrir nokkrum árum
uppi við Esju komu fleiri
hundruðmanns.
Námskeiðið nú verður í tengsl-
um og beinu framhaldi af útgáfu
nýs tímarits, þar sem fjallað verð-
ur um hleðslu og bæjargerð úr
torfi, viði og grjóti. Blaðið sem
kemur út einu sinni á ári nefnist
„Endurfæðing hleðslulistar“.“
Það er ritstjóri þessa sérstaka
tfmarits, Tryggvi Hansen, sem
segir frá þessari fornu og næstum
gleymdu byggingarhefð á íslandi.
Tímaritið mun koma út 15. júlí,
verður 40-50 síður og kemur út
einu sinni á ári sem fyrr segir.
Tryggvi sagðist hafa fengið hug-
myndina að blaðinu nú í sumar og
með ritinu á að stuðla að endur-
vakningu þessarar vinnuaðferð-
ar, kenna mönnum hana og
kynna helstu listamenn landsins á
þessu sviði, svo að aðferðirnar
gleymist ekki að þessum
mönnum gengnum. Þjóðminja-
vörður hefur bent á bestu
hleðslumenn á landinu, en þeir
hafa unnið við endurbyggingu
ýmissa sögulegra minja og bæja
um landið, t.d. í Þjórsárdal. Nú á
seinni árum hefur vaknað áhugi á
að nýta þessar aðferðir í görðum,
við gerð skúlptúra og sem ytri
veggja í íbúðarhús.
„Við viljum tengja þessar að-
ferðir nútímanum og kenna
yngra fólki þær. Það eru aðeins
„Þessir menn eru svo hógværir'
örfáir menn sem kunna þetta til
hlítar og þeir eru svo hógværir að
þeir koma þessu ekki á framfæri
nema með þrýstingi og aðstoð.
Námskeiðið hefst um verslun-
armannahelgina og verður við
Leirvogsvatn. Við erum
sannfærðir um að margir munu
leggja leið sína þangað" sagði
Tryggvi að lokum.
A væntanlegu námskeiði verða
kenndar ýmsar hleðsluaðferöir.
Kennarar verða allir núlifandi
hleðslumenn á landinu, eftir því
sem best er vitað. Þeir eru:
Gunnar Tómasson Laugum, Jó-
hann Arason úr Gufudalssveit,
Jóhann Auðunsson Vatnahjá-
leigu, Magnús Snæbjörnsson frá
Grund Eyjaf, Stefán Stefánsson
Brennigerði Skagafirði, Sveinn
Einarsson frá Hrjót Hjaitastaða-
þinghá, Tryggvi Hansen Elliða,
og hugsanlega Sigþór Skærings-
son frá Þorlákshöfn.
Gallery Lcekjartorg:
ítalskur málari og umhverfisverndarmaður sýnir
dal sem vakið hefur mikla athygli umhverfisverndarmanna víða um
heim. Þá kynnir hann einnig „umhverfisstafróf“ sitt, sem sett er saman
úr táknum frumefna jarðefnanna. Þetta er nokkurs konar náttúru-
verndarstafróf og vinnur hann allar myndir sínar út frá forsendum
jafnvægis í náttúrunni. í haust ætlar Giovanni að sýna 50 grafíkmyndir
hjá Gallerý Lækjartorgi og kynnir hann nokkur þeirra verka nú, auk
verka í silki og postulíni. Samhliða þeirri sýningu verður sýning 14
ítalskra grafikera, þeirra þekktustu á Ítalíu í dag.
Giovanni Leombianchi nefnist ítali sem undanfarin 7 ár hefur koniið
til íslands til náttúruskoðunar og lax- og silungsveiða og tekið miklu
ástfóstri við land og þjóð. Hann er menntaður í listaháskólanum í
Mflanó en hefur unnið mjög að umhverfísmálum auk listsköpunar og
tengt það saman.
I gær opnaði hann sýningu í Gallerý Lækjartorg þar sem hann sýnir
myndir málaðar hér á landi, myndamöppu frá Grímsá í Lundareykja-
VERSLUNARTIMAR I SUMAR:
í Ármúla: Mánud.— miðvikud. kl. 09.00—18.00.
Fimmtud. kl. 09.00—20.00.
Ffistud, kl. 09.00—22.00. Lokaö laugardaga.
■V*
M
Vörumarkaðurinnhf.
Ármúla 1A, s. 686111,
Eiðistorgi 11, s. 29366.
Á Eiðistorgi: Mánud.— miövikud. kl. 09.00—19.00. *
Fimmtud. kl. 09.00—20.00.
Föstud. kl. 09.00—22.00. Lokaölaugardaga.
12 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 30. júni 1984