Þjóðviljinn - 30.06.1984, Qupperneq 14
______________TÓNLIST _____________
Raf- og tölvutónlist ó Kjarvalsstöðum
„Við þurfum aö berjast við
ýmsar hugmyndir og fordóma
almennings gegn raf- og
tölvutónlist, sem lengi vel þótti
bara garg. Þetta er nú samt
mjög að breytast og
almenningur er miklu
móttækilegri og jákvæðari
gagnvarttónlistinni, sem
einnig hefur þróast í átttil
meiri rómantíkur. Nú heyrast
jafvel laglínur og klassísk
tilþrif í þessari tónlist", sagði
Þorsteinn Hauksson einn
tónskáldannasem nú kynna
verk sín á Kjarvalsstöðum
undirsamheitinu „íslensk
hljóðlist".
Síðustu tónleikamir eru í dag,
en undanfama fjóra daga hefur
verið flutt daglega íslensk raf- og
tölvuhljómlist. Er þetta í fyrsta
skipti sem eingöngu íslensk
tölvu- og rafverk em flutt og jafn-
framt sögulegt yfirlit yfir þessa
tónlist frá því byrjað var að semja
hana hér á landi. Elsta verkið er
eftir Magnús Blöndal Jóhanns-
son og er það frá 1960, en nokkur
verkanna sem þarna em flutt
Listahátíð, en svo varð þó ekki.
Þorsteinn sagði að menn hefðu
haft mikinn áhuga á að koma
þessari hljóðlist á framfæri enda
væri hún nú mjög að ryðja sér til
rúms og áhugi almennings færi
greinilega mjög vaxandi.
„Við skólann sem ég var við í
Kaliforníu héldum við svona
hljómleika af og til og áhuginn óx
gífurlega á nokkmm ámm, eða
úr 600 áheyrendum upp í 4000
síðasta árið“, sagði Þorsteinn.
Verk Þorsteins, „Sónata“,
verður flutt í dag, „Two Etudes“
var flutt s.l. miðvikudag. Þor-
steinn hefur lokið framhaldsnámi
í tónsmíðum í Bandaríkjunum,
unnið við tónsmíðar og rann-
sóknir við IRCAM, Pompidou-
safninu í París og síðastliðin
fjögur ár við Standford Univers-
ity í Kalifomiu.
Auk verks Þorsteins verður
flutt í dag verk Þorkels Sigur-
bjömssonar „Fípur“ og verk eftir
Magnús Blöndal, „Samstirni“,
eitt af „elstu“ verkunum sem
samin em hérlendis og falla undir
þessa tegund tónlistar. Tónleikar
verða kl. 15.00 og aftur kl. 17.00.
þs
„Verkin œ rómantískari11
- segir eitt tónskáldanna, Porsteinn Hauksson
Þorsteinn Hauksson á Kjan/alsstöðum. Ljósm. Atli.
hafa ekki heyrst áður. „Verkin anna em tekin upp í fullkomnum að taka upp tæknitónlist hér á
eru flutt af segulbandi í litlum sal, hljóðstúdíóum erlendis, en nokk- landi“.
en einnig er hægt að hlusta á þau í ur hérlendis þrátt fyrir mjög erf- Hugmyndin var upphaflega að
stærri sal samtímis. Flest verk- iða aðstöðu íslenskra tónsmiða tii þessir hljómleikar yrðu hluti af
STIÖRNU
‘reikningaí
Æskusparnaður / Lífeyrissparnaður
Nú er sama á hverju gengur í verðbólgustríðinu. Með fullri
verðtryggingu og 5% vöxtum að auki, veita hinir nýju stjörnureikn-
ingar Alþýðubankans algjört öryggi og góða ávöxtun.
Við förum af stað með tvo sparireikningaflokka undir samheit-
inu Stjörnureikningar, annan fyrir æskuna og hinn fyrir lífeyris-
þega eða þá sem nálgast eftirlaunaaldurinn.
ÆSKUSPARNAÐUR
Hann er ætláður foreldrum, öfum og ömmum, eða öllum þeim
sem vilja gefa barni yngra en 16 ára sparifé. Þegar barnið verður
16 ára er upphæðin, með verðtryggingu og vöxtum laus til
útborgunar og gott vegarnesti út í lífið.
LÍFEYRISSPARNAÐUR
Hann er fyrir 65 ára eða eldri - tryggur bakhjarl þegar aldurinn
fer að segja til sín og tekjurnar dragast saman.
* Verðtryggö innistæða
og 5% vextir að auki!
Við gerum vel við okkar fölk
Alþýðubankinn hf.
Smávörur
í bílaútgerðina
og ferðalagið!
-sækjum við í bensfnstððvar ESSO
Olíufelagið hf
Suöurlandsbraut 18
Auglýsið í Þjóðviljanum
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi.
Lúðvík Ágúst Nordgúlen
fyrrv. símaverkstjóri
Brávallagötu 8
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 3. júlí kl 15.
Þórunn Nordgulen
Lúðvík Sigurður Nordgulen
Sigríður Einarsdóttir
Ásta Lúðvíksdóttir Nordgulen
Ásgeir Karlsson
Barnabörn og barnabarnabörn.
Laugardagur 30. júní 1984 ÞJÖÐVILJINN - SIÐA 15