Þjóðviljinn - 30.06.1984, Qupperneq 16
ÞJOÐVILJINN
KVIKMYNDIR
/g
gegnum
eldlínunni" leiðir vel í Ijós mátt
myndarinnar í alþjóðlegri fjölmiðl-
un og veltir fyrir sér hvort Ijósmynd-
arinn eigi að láta sér nœgja að
taka myndir eða hvort hann leiðist
eða neyðist líka til að taka afstöðu.
Tvö stríð sem eru okkur enn
í fersku minni, Falklands-
eyjastríðið og innrásin á
Grenada, eiga fyrir utan ann-
að eitt sameiginlegt. Þar var
aðgangur bannaður fyrir blað-
amenn og Ijósmyndara.
Hversvegna? Máttur Ijós-
myndarinnar og kvikmynda-
EINAR KARL
HARALDSSON
vélarinnar er mikill og blaða-
menn og Ijósmyndarar hafa
oft gefið aðra mynd af
stríðsrekstri en styrjaldaraðil-
um hefur líkað. „Sannleikur-
inn fellur fyrstur í styrjöld",
sagði Hiram Johnson öldu-
ngadeildarþingmaður árið
1917.
Víetnamstríðið er ef til vill
skýrasta dæmið um þetta. Enda
þótt blaðamenn frá Vestur-
löndum sæju stríðið gegnum lins-
ur sínar Bandaríkjamegin þá
miðluðu þeir smámsaman mynd
af stríðsrekstrinum sem varð
bandarískum almenningi um
megn og hann reis upp gegn hon-
um. Hefðu Hvíta húsið og Pen-
tagon ráðið því og stjórnað hvað
fjölmiðlar birtu má búast við því
að öðruvísi hefði farið í Víetnam.
Herstjórar og valdhafar hafa því
mikinn ímugust á hinu alþjóðlega
blaðamannaliði þegar þeir fara út
að stríða, enda þótt þeir geti illa
án þeirra verið og vilji gjaman
beita því fyrir sinn vagn.
Mynd um
blaðamenn
fjallar um breytingar á fólki og
þjóðfélagi, uppreisn alþýðu
manna gegn harðstjórn og spill-
ingu. Uppreisn sem auðveit er að
hrífast af. Að vissu leyti má einn-
ig líta á hana sem umræðu um
tilvistarvanda þriggja blaða-
manna, lausamennskuljósmynd-
ara, gamalreynds stjörnufrétta-
manns og útvarpsfréttaritara,
sem báðir hinir fyrrnefndu elska
eins og gengur í bandarískum
spennumyndum.
Upphafssenur myndarinnar í
Chad eru frábærar. Þar er Russell
Price ljósmyndari á vettvangi að
mynda vopnaviðskipti stjórnar-
hers og skæruliða og mynd hans
af skæruliðum á fflum með eld-
spúandi þyrlu yfír höfði sér kemst
á forsíðu Tme í Bandaríkjunum.
„Ég tek myndir, ekki afstöðu"
segir Price og skrápurinn á
reyndum blaðamönnum er hrjúf-
ur eins og vel kemur fram í orð-
ræðum þeirra og lýsingum á hót-
ellífinu. „Og það er huggulegt
lítið stríð í gangi í Nicaragua“ sem
hugsanlega er forsíðuefni og ögr-
andi verkefni fyrir þá sem vilja
leggja sig í lífshættu. Þangað
þjóta blaðamennirnir í sam-
keppnisanda hinnar kapítalísku
pressu og leitin að Rafael, hug-
arsmíð handritahöfundanna Ron
Shelton og Clay Frohman, hefst,
en hann er byltingarforinginn,
ímynd andstöðunnar, og ekki vit-
að hvort hann er lífs eða liðinn.
Afstaða eða
afstöðuleysi
Þó að myndin af fflríðandi
skæruliðum og þyrlunni í Chad
hafi verið hlutlæg lýsing á atburð-
um er hún engu að síður skoðana-
mótandi. Hún gefur lesendum þá
ímynd að annarsvegar eru skær-
uliðar með málstað og hinsvegar
eru hin ráðandi öfl með pening-
ana og nýtísku drápstól. „Ríkis-
stjórnir hafa alltaf á röngu áð
Price mundar vopn sín við hlið Marcel Jazy, franska CIA-njósnarans sem leikinn er af Jean-Louis Trintingnant.
í eldlínunni, myndin sem Há- „ . . , ,
skólabíó sýnir um þessar mundir, tramnald l opnu
Sandínisti við sandpokavegg hjá höfuðstaðnum. Þjóðvarðliðar í borginni Esteli þar sem háð var harðvítugt návfgi
margsinnis 1979. Myndin er úr bók Susan Meiselas.
16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 30. júní 1984