Þjóðviljinn - 03.07.1984, Blaðsíða 4
LEIÐARI
Samfélagsfræði og ráðherra
Fyrir skömmu var haldiö hér í Reykjavík
endurmenntunarnámskeiö fyrir sögukennara í
framhaldsskólum landsins. Aðalkennari var
bandarískur prófessor, Edwin Fenton, sem er
einn þeirra sem í heimalandi sínu hefur unniö
aö mótun nýrra kennsluaðferða og gerö nýs
kennsluefnis í sögu og öðrum greinum samfé-
lagsfræöa.
Nú um helgina birtist viðtal viö Fenton hér \ '
Þjóöviljanum. Þar kenndi margra grasa, og
fyrir þá sem tortryggnir eru á nýjungar í sögu-
kennslu ætti aö vera nokkur hughreysting aö
sjá, hvílíka áherslu nýjungamenn leggja bæði
á mikilvægi þjóðararfsins og svo á þaö, að
þekkingaratriði þurfa ekki aö glatast í námi,
þótt áherslur beinist einnig aö því að skilja og
spyrja. Það er og athyglisvert, hve mikla hrif-
ingu gesturinn lætur í Ijós á starfi því sem hér
hefur að undanförnu verið unniö á sviði
kennslu í samfélagsfræðum, hve vel sá hópur
manna sem þar var að verki hefur starfað
saman og hve vönduö vinnubrögð hann hefur
tamiö sér.
Þessi ummæli eru einkar fróöleg í Ijósi þess
sem hefur veriö aö gerast í menntamálaráöu-
neytinu aö undanförnu. Eftir að misjafnlega
vel innrættir lýöskrumarar höföu haldiö uppi
margvíslegum ómaklegum ásökunum á hend-
ur þeirra, sem á undanförnum árum hafa unn-
ið að gerð nýs námsefnis í samfélagsfræðum
fyrir íslenska skóla, fara nokkur þau tíðindi
sem leiöa til þess, að það fólk sem hér á hlut
aö máli, lýsir því yfir aö þaö treysti sér ekki til
þess að vinna aö þessum verkefnum lengur
fyrir ráöuneytið.
í bréfi frá tólf mönnum sem yfirlýsinguna
undirrita kemur ýmislegt fram um fjandskap
ársgamals menntamálaráöherra, Ragnhildar
Helgadóttur, við það starf sem unnið hefur
veriö að á undanförnum árum meö þeim
ágætum sem m.a. hinn bandaríski sagnfræö-
ingur gat um. Menntamálaráðherra hefur ekki
andmælt í neinu þeim ásökunum, sem yfir
hafa duniö samfélagsfræöina á undanförnum
mánuðum og þá einkum í Morgunblaðinu.
Nema síður væri: hún hefur í reynd tekið af-
stöðu gegn því fólki sem aö þessum málum
hefur unnið, komiö í veg fyrir árlegan vinnuf-
und námsefnishöfunda, ráðiö nýjan náms-
stjóra í þessum fræöum sem ekki hefur
nauðsynlega þekkingu á því þróunarstarfi sem
unnið hefur veriö. Þar aö auki hefur ráöherra
boöað „endurskoðun á stööu samfélagsfræði
á efri stigum grunnskóla" án minnsta samráðs
viö það fólk sem aö þessum málum hefur
starfað árum saman.
Það er ekki gott að átta sig á því hvers konar
stefna þaö er sem ráöherra vili reka. Sögu-
þekking og þjóöernislegur arfur þurfa ekki aö
víkja þótt reynt sé aö efla forvitni og skilning
nemenda á samtíð og sögu - nema síöur væri.
Enda er því ekki haldið fram beinlínis af hálfu
oddvita menntamálaráðuneytisins. Það eina
sem stendur eftir er einskonar lágkúruleg
hægrikergja, allsherjar tortryggni út í þá sem
hafa aðrar skoöanir á uppeldis- og þjóöfélags-
málum, valdsmennska sem vill losna við alla
nema jábræður. Og svo sú leit að sökudólgum
sem er svo algeng á krepputímum. Yfirvöld
hafa tilhneigingu til að skella skuldinni á skóla-
kerfið þegar þau telja eitthvað að, sagði fyrr-
greindur Edwin Fenton í viðtalinu hér í blaðinu.
Það er líka miklu þægilegra en að reyna að
svara því, hvaða afleiðingar vaxandi vald
harðsvíraðs vitundariðnaðar yfir lífsstundum
barna og unglinga hefur - ekki síst fyrir þekk-
ingu þeirra, skilning og þjóðernisvitund.
KLIPPT OG SKORIÐ
Tvíburanaut
Einsog tvíburanaut í votu flagi
bölsótuðust Morgunblaðið og
Sjálfstæðisflokkurinn í samein-
ingu allan síðasta vetur gegn því
sem þessi tvö forneskjutröll töldu
grímulausa ásýnd heimskomm-
únismans í íslenskum skólamál-
um, samfélagsfræðinni.
Allt það fólk sem á einhvern
hátt tengist þessari námsgrein og
kennslu hennar í grunnskólum
landsins var umsvifalaust gert að
boðberum marxismans, hávær-
um ásökunum um innrætingu og
spillingu saklausra barnshuga var
brugðið á loft, og mjög var í efa
dregið að starfsmenn vildu sina
starfi sínu af dugnaði og ein-
Iægni. Svo hatrammur var áróð-
urinn og beiskt gallið sem vall af
leiðarasíðum Morgunblaðsins að
á stundum var einna frekast af
þeim að sjá að gervallur grunn-
skóli íslands væri í gíslingu marx-
ismans.
Persónulegar
árásir
Harkalegar árásir voru skipu-
lagðar á hendur einstaklingum
sem höfðu afskipti af samfélags-
fræðinni. Þannig varð til dæmis
Erla Kristjánsdóttir, námsstjóri
greinarinnar, fyrir mjög þungum
árásum í Morgunblaðinu, þrátt
fyrir þá staðreynd að Erla hafði
einungis verið í forsvari fyrir
námsstjórn greinarinnar um
skamma hríð, en námsefni henn-
ar og kennslustefna hins vegar
verið í mótun allar götur frá því
Gylfi Þ. Gíslason sat á þeim sess
sem Ragnhildur Helgadóttir
velgir nú.
Þetta hefur nú valdið þvf að
höfundar námsefnis í samfélags-
fræði, sem fram til þessa hafa
tekið að sér samningsbundin
verkefni í námsefnisgerð fyrir
menntamálaráðuneytið, hafa til-
kynnt ráðuneytinu að þeir sjái sér
ekki fært að annast námsefnis-
gerðina lengur. í yfirlýsingu sem
send var fjölmiðlum kemur mjög
skýrt fram, að framkoma Ragn-
hildar Helgadóttur,
menntamálaráðherra, meðan
árásirnar stóðu yfir í Morgun-
blaðinu, eiga ríkan þátt í ákvörð-
un höfundanna. í yfirlýsingunni
segir meðal annars:
„í ljósi þess sem hér hefur verið
raírið vekur það furðu að
menntamálaráðherra skuli ekki
hafa talið sér skylt að bregðast
við þeim árásum og ómaklegu
ásökunum sem dunið hafa yfir í
fjölmiðlum mánuðum saman og
stefna að því að gera hið nýja
námsefni tortryggilegt í augum
almennings sem og þá einstak-
linga sem að því hafa unnið. Hér
er ekki beðist undan gangrýni:
hins vegar hefði mátt vænta þess
að æðstu yfirmenn menntamála-
ráðuneytisins sinntu þeirri skyldu
sinni að verja starfsmenn sína
andspænis persónulegum áhróðri
vegna verka sem unnin voru á
vegum þess“.
Brotið í blað
Ákvörðun höfundanna réðst
þó af fleiru en einungis því að
Ragnhildur horfði aðgerðalaus á
undirmenn sína sæta ómaklegu
aðkasti. Sú stefna sem er við lýði í
kennslu og þarmeð námsefnis-
gerð í samfélagsfræði hefur verið
í mótun langa hríð, nánar tiltekið
frá því að Gylfi Þ. Gíslason, þá-
verandi menntamálaráðherra,
skipaði sérstaka nefnd árið 1970
til að fjalla um þessi mál.
Skömmu áður hafði heimsþek-
ktur sérfræðingur frá Berlín, dr.
Wolfgang Edelstein, verið feng-
inn til ráðuneytis um þessi mál.
Frá því er skemmst að segja, að
undir hans leiðsögn hefur verið
mótuð stefna í kennslu samfe-
lagsfræði sem hefur vakið athygli
langt út yfir landsteina vors
gamla Fróns. Mikilvægi starfsins
sem nýbreytni á þessu sviði má
meðal annars marka af því að er-
lendar stofnanir hafa styrkt þessa
starfsemi með fjármunum.
Eitt af því sem brotið var upp á
í hinni nýju samfélagsfræði var að
virkja nemendur sjálfa, reyna að
taka mið af reynslu þeirra sjálfra
og brjóta þannig upp einstefnu-
kerfið sem alltof lengi hefur verið
burðarásinn í kennslu í íslenskum
skólum, - þar sem kennarinn
tyggur og nemendur gleypa.
Einhliða
endurskoðun
Svona kennsluhættir eru hins
vegar ekki hátt skrifaðir með
þeim sem nú aka seglum
menntamálaráðuneytisins, og án
þess að hafa nokkurt samráð við
námsstjóra í samfélagsfræðum
gaf Ragnhildur Helgadóttir út
yfirlýsingu fyrir skömmu, þar
sem hún kvaðst hafa í hyggju að
láta endurskoða „stöðu samfé-
lagsfræða á efri stigum grunn-
skóla“.
Eitt af því sem hefur heyrst frá
andstæðingum hinnar nýju
samfélagsfræði er, að fremur en
líta til Þýskalands um fyrirmyndir
ættu hérlendir að snúa sjónum
sínum til Bandaríkjanna. Af
þeim sökum er fróðlegur sá dóm-
ur sem Edwin Fenton, bandarísk-
ur prófessor sem vinnur að
mótun sögukennslu sem þáttar í
samfélagsfræði, kvað uppi í Helg-
arblaði Þjóðviljans yfír starfí
landa vorra aðsóttra:
Viðurkenning
„Ég var hér á ferð einnig í fyrr-
asumar og vann tvær vikur með
starfsfólki Skólarannsóknar-
deildar, m.a. Erlu Krisjánsdótt-
ur, námsstjóra í samfélagsf-
ræðum.
Þau voru og eru að vinna að
námsþætti um landnám Banda-
ríkjanna og ég varð mjög hrifinn
af þeirra starfí. Áhugi þeirra
beinist að því að athuga hvað
haldi þjóðfélagi saman, þrátt
fyrir los og átök, eins og var á
landnámstímanum í Bandaríkj-
unum og því er það tilvalið efni.
Ég var hrifinn af því að sjá
hversu vel hópurinn vinnur sam-
an. Þau virða skoðanir hvers ann-
ars og sömuleiðis sjálfstæði. Þá
kom mér einnig á óvart að sjá
hversu miklu efni námsstjórinn
og Loftur Guttormsson hafa við-
að að sér um samfélagsfræði-
kennslu á ýmsum skólastigum í
ýmsum löndum. Ég persónulega
þekki enga manneskju, sem hef-
ur eins mikla yfirsýn yfir þessa
hluti og Erla Kristjándsóttir.
Mér virðist fólkið í stjórn sam-
félagsfræðanna vinna við mjög
nauman fjárhag og því er það
þeim mun eftirtektarverðara sem
það er að gera. Það leggur allt sitt
fram og vinnur jafnvel kauplaust
og ég virði það mikils“.
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Utgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson.
Fréttastjórar: Óskar Guðmundsson. Valþór Hlöðversson.
Blaðamenn: Auður Styrkársdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Guðjón Friðriks-
son, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Mörður Árnason, Súsanna
Svavarsdóttir, össur Skarphéðinsson, Víðir Sigurðsson (íþróttir).
Lió8mvndir: Atli Arason, Einar Karlsson.
Utlit og hönnun: Svava Sigursveinsdóttir, Þröstur Haraldsson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir.
Augiýsingastjóri: Ólafur Þ. Jónsson.
Auglýsingar: Margrét Guðmundsdóttir, Ragnheiður Óladóttir, Anna
Guðjónsdóttir.
Afgreiöslustjóri: Ðaldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Símavarsia: Aðalbjörg Óskarsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir.
Húsmóðlr: Bergljót Guðjónsdóttir.
Bíistjórl: Ólöf Sigurðardóttir.
Innheimtumaöur: Brynjólfur Vilhjálmsson, ólafur Bjömsson.
Pökkun: Hanna B. Þrastardóttir,
Jóhanna Pétursdóttir, Karen Jónsdóttir.
Útkeyrala, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn:
Síðumúla 6, Roykjavík, sími 81333.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 22 kr.
Sunnudagsverð: 25 kr.
Askriftarverð á mónuði: 275 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 29. júní 1984