Þjóðviljinn - 03.07.1984, Side 11
LESENDUR
ísfilm og hugsjón
samvinnuhreyfingarinnar
Höfuðlaus her
ÞJÚÐVIIJINN
Það er augljóst að mjög
skiptar skoðanir eru meðal sam-
vinnumanna um þá ákvörðun
meiri hlutans í stjórn S.Í.S. að
Sambandið gangi til samstarfs
um fjölmiðlun við fyrirtækið ís-
film h.f.
í ísfilm h.f. sem Reykjavíkur-
borg, Almenna bókafélagið,
Morgunblaðið og Dagblaðið eru
meðal hluthafa, er ekki líklegt að
hugsjónir samvinnuhreyfingar-
innar komi til með að eignast
marga talsmenn.
Þvert á móti er líklegt, og
reyndar alveg víst, að fjrjáls-
hyggjan og hin steinblinda
markaðshyggja eiga svo volduga
talsmenn í Isfilm h.f. að sú stefna
mun verða þar alls ráðandi, og þá
ekki síst fyrir tilstilli hinna
langsterkustu fjölmiðla hér-
lendis, Morgunblaðsins og
Dagblaðsins.
Auðvitað er ekkert undarlegt
við að þeir sem saman eiga, stofni
með sér samtök af ýmsu tagi. En
samvinnumenn sem vilja vera
trúir hugsjónum samvinnu- og
félagshyggju, hljóta að staldra
hér við og spyrja ýmissa spurn-
inga.
Er t.d. ekkert athugavert við
þá málsmeðferð að örfáir menn
geti í krafti valds síns og án allrar
umræðu í samvinnufélögunum,
ráðstafað fjármunum Sambands-
Júlíus Kr. Valdimarsson talar
um það í síðasta helgarblaði
Þjóðviljans að efnahagslegt of-
beldi og lág laun séu undirrót
margs iils.
Það er staðreynd að kjör starfs-
fólks samvinnuhreyfingarinnar,
að minnsta kosti þeirra sem vinna
ins til styrktar málstað and-
stæðum hreyfingunni?
Finnst mönnum ekkert furðu-
legt, að við, óbreyttir félagsmenn
í kaupfélagi, bændur og lands-
byggðarfólk, erum með einu
pennastriki orðin samherjar
frjálshyggjunnar í Reykjavík,
með Moggann og Dagblaðið í
broddi fylkingar?
Það vita allir sem vilja vita, að
sú breyting sem illu heilli stendur
til að gera á núverandi útvarps-
lögum er ekki síst hugsuð til hags-
bóta fyrir hin sterku öfl frjáls-
hyggjunnar.
Isfilm er tæplega tilviljun í því
sambandi og gerir það málið enn
alvarlegra fyrir Samvinnuhreyf-
inguna. Fyrir rúmu ári fóru fram
umræðurámilliS.Í.S. ogM.F.A.
(Menningar- og fræðslu-
sambands Alþýðu) um hugsan-
lega samvinnu þessara aðila um
fjölmiðlun. Sambandið taldi sér
þá ekki fært, m.a. vegna fjár-
skorts að standa að slíku með
M.F. A. M.F.A. var að sjálfsögðu
ekki boðin aðUd að ísfilm h.f.
Það er hinsvegar hart til þess að
vita, ef menn neyðast til að trúa
því að meirihluti stjórnar Sam-
bands íslenskra Samvinnufélaga
hafi valið sér samstarfsaðila í
þessu máli af hugsjónaástæðum.
Jón St. Árnason
Finnsstöðum.
hjá kaupfélögunum úti á landi,
eru mjög bág. Júlíus er fram-
kvæmdastjóri Vinnumálasam-
bands samvinnufélaganna. Ætlai
hann að beita sér fyrir því að bæta
kjör starfsmanna samvinnu-
hreyfingarinnar?
Hansína Stefánsdóttir,
Selfossi.
Atlantshafsbandalagið er ekki
bangið. Það afmunstraði Jósep
gamla Lúns framkvæmdastjóra
sinn á föstudegi (22. júní) og lét
sér í léttu rúmi liggja, þótt eftir-
maður hans, Carrington lávarð-
ur, kæmi ekki til vinnu fyrr en á
mánudegi. Þetta furðulega and-
varaleysi Natómanna varð tilefni
þessa limruteturs:
Hjá Nató varð höfuðlaus her
í heila tvo daga - trú mér -
frá því Lúns gekk burt stúrinn
eftir langastríðs-kúrinn,
þar til Carrington sá loks að sér.
Alrekur.
Þakkir fyrir
nýtt og betra
blað
Margrét hringdi og var glöð:
Ég vil koma á framfæri
þökkum til starfsmanna Þjóðvilj-
ans fyrir nýtt og betra blað. Það
er orðið fjölbreyttara og
skemmtilegra án þess að pólitíkin
fari forgörðum.
„Flokksmálgagnssvipurinn“ er
ekki lengur jafn yfirþyrmandi og
hrútleiðinlegur og hann var hér
áður fyrr, þegar jafnvel þing-
ræður „okkar manna“ þóttu boð-
legt forsíðuefni. Hafið öll þökk
fyrir.
Kjör starfsfólks
samvinnuhreyfingarinnar
Námsmenn í N-Kaliforníu
Opið bréf til Ragnhildar
Fyrir nokkrum dögum barst
okkur frétt um að samþykkt hefði
verið á Alþingi frumvarp sem fel-
ur í sér mikinn niðurskurð á lán-
veitingum til námsmanna. Vegna
þess að ljóst er að þessi ákvörðun
setur námsferil fjölda náms-
manna í verulega hættu, óskum
við eftir að gera grein fyrir skoð-
unum okkar á námslánastefnu og
jafnframt greina frá hvernig mál
horfa við fólki sem er við nám í
Bandaríkjunum.
Um námslánastefnuna
almennt.
1) Um alllangt skeið hefur það
verið ríkjandi skilningur í ís-
lenskum menntamálum að
menntun fólks sé nauðsynleg
fyrir framþróun í nútíma þjóðfé-
lagi. Menntun er orðin nauðsyn-
legur og óaðskiljanlegur hluti af
vexti og viðgangi alls þjóðfélags-
ins. Þess vegna hefur sú stefna
smám saman mótast að ríkið
hvetji ungt fólk til náms. Sú að-
stoð hefur verið í formi lána til að
mæta þeim beina fjárhagslega
kostnaði sem ungmennin leggja í
til að byggja upp þann menntun-
arforða sem landinu er nauðsyn-
legur á komandi árum og ára-
tugum.
Okkur er fullvel ljóst að efna-
hagsástand á fslandi er mjög
slæmt nú og einnig að horfurnar,
lítið til næstu framtíðar, eru
dökkar. Við drögum það hins-_
vegar í efa að það sé rétt stjórnar-
stefna að draga verulega úr fjár-
festingu í menntun, því að mjög
miklar líkur er á að lífsafkoma
þjóða verði í auknum mæli í
beinum tengslum við menntunar-
stig þeirra.
Því er það, að þjóð sem van-
rækir að styðja uppvaxandi kyn-
slóð til að afla sér góðrar
menntunar er að dæma hana til
samkeppni við ódýrt lág-
menntunar vinnuafl þróunar-
landanna.
2) Annar megin þáttur í þróun
íslenskrar menntastefnu síðustu
áratugi er að stefnt hefur verið að
því að gera ungmennum kleift að
afla sér menntunar burtséð frá
því hver fjárhagur foreldranna
er. Þessi stefna hefur byggst á
tvennu: í fyrsta lagi þeirri
mannúð sem íslendingar eru
kunnir að og í öðru lagi þeim
skilningi að andlegir og verklegir
hæfileikar æskufólks séu svo
mikilvæg og dýrmæt auðlind að
tryggja verður að hún nýtist,
óháð því hvort foreldrar hafi þau
peningaráð sem þarf til að láta
það verða að veruleika.
Sú staða
sem upp er komin.
Hverjai eru nákvæmlega af-
leiðingar af niðurskurði fjár-
veitingar til Lánasjóðsins kemur
væntanlega ekki fram fyrr en í
ágúst eða september. Helstu
málsatvik eru eftirfarandi sam-
kvæmt upplýsingum fulltrúa okk-
ar á íslandi.
1) Nú er þegar búið að úthluta
lánum fyrir meirihluta ársins
1984 út frá þeim lögum sem í gildi
hafa verið um lánaaðstoð við
námsmenn (þ.e. lán fyrir u.þ.b.
95% námskostnaðar).
2) 15 til 20% skerðing á fjár-
veitingunni á árinu kemur því
nær öll fram á haustmánuðunum
þremur sem leiðir til mjög hárrar
skerðingar í prósentum talið,
nema mikill fjöldi námsmanna
hverfi frá námi.
3) Fulltrúi SÍNE í stjórn Lána-
sjóðsins segir okkur að væntan-
lega setji sjóðurinn fram tækni-
lega kosti um það hvernig kjör
námsmanna verði skert og kynni
menntamálaráðherra.
4) Ljóst er að þeir kostir sem
valdir verða geta ráðið því hverjir
og hversu margir hrökklast frá
námi. Þess vegna fara hér á eftir
ábendingar um ýmis atriði sem
við teljum að taka þyrfti til
greina.
Atriði sem hafa þarf í
huga við niðurskurð.
1) Við teljum að forðast verði
að ákveðnar námsgreinar eða
námslönd verði fórnarlömb
niðurskurðarins.
2) í þessu sambandi má nefna
að Bandaríkin eru í hópi dýrari
námslanda hvað framfærslu-
kostnað varðar. Hér helst það í
hendur að ef námsland er framar-
lega í þróun er námskostnaður
oftast hár. Við teljum það
skammsýni að gera ráðstafanir
sem hrekja sérstaklega námsfólk
í Norður-Ameríku frá námi.
3) Það er sérkenni á Bandaríkj-
unum, Kanada og Bretlandi að
skólagjöld eru há, sem oft kemur
til vegna þess að skólarnir eru
búnir dýrum tækjum. Sú hug-
mynd sem heyrst hefur fleygt, að
beina niðurskurði sérstaklega að
skólagjöldum, mundi því fyrst og
fremst koma niður á náms-
mönnum í þessum löndum.
4) Þó að við, eins og aðrið ís-
lendingar, séum tilbúnirað herða
sultarólina eru ekki nema fá prós-
entustig möguleg til skerðingar
því að námslán eru miðuð við nær
því lágmarks framfærslukostnað.
Reyndar komast margir í veru-
legan fjárhagsvanda á hverjum
vetri á núverandi lánakjörum.
5) Námsmenn erlendis eiga að
jafnaði erfiðara með að mæta
tekjuskerðingu en námsmenn á
íslandi vegna eftirtalinna á-
stæðna:
Sumir geta fengið ódýrt hús-
næði, fæði o.s.frv. hjá foreldrum
eða kunningjum.
Auðveldara er að fá ígripa-
vinnu á íslandi. í Bandaríkjunum
t.d. hafa námsmenn og makar
þeirra ekki atvinnuleyfi, hvorki á
skólatíma eða í fríum. Undan-
tekning er aðstoðarkennsla við
skólana, sem er ekki nærri öllum
opin.
Svo dýrt er að fara heim til
vinnu á sumrin að harla lítil búbót
er að, jafnvel þótt ferðastyrkir
komi til.
Félagsleg aðstoð sem getur
orðið fólki til hjálpar á erfiðum
tímum er tiltæk á íslandi og
Norðurlöndunum. Á þessu er
vöntun í Bandarísku þjóðfélagi
þannig að námsmenn sem kom-
ast í fjárþröng eiga erfitt með að
fleyta sér yfir slík tímabil.
6) Sú leið að afla aukatekna
með aðstoðarkennslu og sækja
um styrki hefur verið gerð merk-
ingarlaus með reglum Lánasjóðs-
ins. Hann dregur upphæðir af
þessu tagi að fullu frá lánsupp-
hæð. Sú leið aðmæta tekjuskerð-
ingu að einhverju leyti með eigin
framtaki er því mönnum útilok-
uð. Það er tillaga okkar að þessu
verði breytt þannig að slíkar tekj-
ur verði ekki dregnar frá láni
meðan tekjur og lán til samans
eru undir áætluðum framfærslu-
kostnaði.
Niðurlag
Með bréfi þessu viljum við
benda á að þær niðurskurðarað-
gerðir sem samþykktar hafa verið
á Alþingi stefna framtíð Náms-
manna erlendis í mikla hættu.
Við skorum því á stjórnvöld að
taka þessi mál til alvarlegrar
endurskoðunar um leið og gögn
Lánasjóðs liggja fyrir í haust.
Þriðjudagur 3. júlí 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15