Þjóðviljinn - 03.07.1984, Qupperneq 13
U-SIÐAN
Dugnaðarforkarnir Eðvald, Benedikt, Pétur, Jón Björn, Gunnar E. og Gunnar Ö.
Besta vinna
sem maður hefur haft
Borgarráð Reykjavíkur og
Atvinnumálanefnd Reykjavíkur
féllust nýlega á tillögur æskulvðs-
ráðs um að ráðið megi í sumar
gera tilraun með vinnuhóp ung-
linga í tengslum við starfsemi
æskulýðsráðs. Er þetta hópur 12
unglinga ásamt 2 verkstjórum
sem er til þjónustu fyrir borgar-
búa, fyrirtæki og stofnanir í
Reykjavík. Er fólki boðið að
leigja þennan flokk, eða minni
hóp eftir þörfum til að leysa hin
ýmsu verkefni.
Síöastliðna viku voru sex úr
hópnum að vinna við félagsmið-
stöðina Ársel í Árbæ og við kíkt-
um þangað til að athuga hvað
þeir eru að fást við.
Tómas Guðjónsson, verkstjórí:
Allt mögulegt. Þetta er skipu-
lagt á vegum Æskulýðsráðs
Reykjavíkur og er aðallega fyrir
unglinga sem ekki hafa fengið
vinnu í sumar. Þetta er annars
eðlis en unglingavinnan á vegum
borgarinnar. Það er hærra kaup
hérna og gert er ráð fyrir að þetta
standi undir sér. Hópurinn gerir
tilboð í hin ýmsu verkefni, t.d.
hreinsa og gera upp lóðir og
garða, hreinsa timbur og þvo
glugga
Hérna í Arseli er þessi sex
manna hópur að reisa girðingu,
hinn helmingurinn af hópnum er
niðri í Þróttheimum, það eru
fjórir strákar og tvær stelpur.
Tómas verkstjóri.
Krakkarnir koma héðan og
þaðan. Það var haft samband við
krakka sem við vissum að voru
atvinnulausir. Nú, fimm af
krökkunum eru frá Útideildinni.
þetta hefur gefist mjög vel þessa
fyrstu viku. Þau eru geysilega
dugleg. T.d. þessi hópur, sem
byrjaði hér uppi í Árseli á mánu-
daginn fyrir hádegi og átti að
ljúka á föstudagseftirmiðdag, er
svo duglegur að hann klárar verk-
efnið um hádegi á fimmtudag.
Síðan er óráðið hvað þessi hóp-
ur fer að gera, nema einn úr
hópnum fer að höggva víra og
mála fyrir fyrirtæki hér í bænum á
morgun. Það er hægt að leigja frá
einum og upp í tólf af þessum
hóp. Það verður ekki bætt við
hópinn í sumar, hann er hæfilega
stór þar sem þetta er tilraun fyrir
næsta sumar. Það var líka dálítið
seint farið af stað.
Fyrirmyndin að þessu er
félagsmiðstöðin á Akranesi sem
er með svona vinnuhóp í gangi í
bænum. Hér er unnið eftir svip-
uðu kerfi og þar - leitað að til-
boðum og unnið eftir því.
Strákarnir í hópnum Eðvald,
Benedikt, Pétur, Jón Björn,
Gunnar E. og Gunnar Ö eru á
aldrinum 15-18 ára, og hvert
skyldi svo vera þeirra álit á
sumarstarfinu?
Besta vinna sem maður hefur
haft. Þetta er svo skemmtilegur
hópur, að vísu latir einstaklingar
inn á milli, viljum ekki nefna nein
nöfn. Nei annars okkur finnst
mjög gaman að vinna saman.
Kaupið er líka gott, svo fær mað-
ur að vinna í friði. Það er ekki
alltaf verið að reka á eftir manni.
Hvað hafíð þið unnið áður?
Við höfum allir ýmist verið í
skógrækt, byggingavinnu og ver-
ið í sveit hingað til.
Gunnar E: Við Eðvald vorum
þingsveinar í vetur. Það var
ágætt. En kaupið ferlega lélegt,
12.600 fyrir 9-5 vinnu.
Hvað gerið þið um helgar?
Förum út að skemmta okkur,
dettum í það eða bara eitthvað.
Sumir fara í Best diskótekið í
Kópavogi.
Gunnar E: Við Jón Bjöm
erum að spila í hljómsveit. Við
höfum að vísu ekki fundið nafn á
hana ennþá. Við höfum bara æft
saman í tvo mánuði, spilum létta
dægurmúsík. Við emm því mikið
á hljómsveitaræfingum um helg-
ar.
Við vinnum frá 8-4, þá förum
við bara heim og leggjum okkur.
Þetta er mjög gott. Verst að mað-
ur verður að leita sér að nýrri
vinnu í haust. Þá viljum við helst
fá vinnu eins og þessa, annars för-
um við bara að æfa breakdans
eða bara gömlu dansana.
Hvaða músík viljið þið helst
hlusta á?
Pétur: Þungarokk, svona 100
kfló.
Undir þetta tók allur hópur-
inn. Við viljum helst hlusta á
Blackfoot, White Snake, Deep
Purple, Pink Floyd og Black
Sabbath. Frístund er t.d ágætur
þáttur, en í honum er ekki nógu
mikið þungarokk. Nú, fyrst við
erum að tala um útvarp þá viljum
við líka tala um sjónvarp. Það er
þrællélegt. Við viljum meira af
klíkumyndum, t.d. Áfram-
myndir, Woody Allen og tékk-
neskar teiknimyndir og að lokum
viljum við fá sýningar um miðjar
nætur á dökkbláum myndum
með gulhvítum slettum.....
Við viljum koma fleiri óskum á
framfæri. Við óskum eftir stúlk-
um eða Eiríki Fjalar til að stytta
okkur stundir. Svo viljum við fá
fleiri blaðamenn, okkur finnst
svo gaman að tala.
ss
BEST DISKÓTEK
Nýlega var opnað nýtt
unglingadiskótek í Kópavogi.
Það ber nafnið Best-diskótek og
er til húsa í Bíóhöllinni. Húsið er
eitt það sérkennilegasta að koma
inn í, ósköp venjulegur bíósalur
með dansgólfi fyrir framan
sýningartjaldið.
Enda er ætlunin að þarna verði
kvikmyndasýningar á laugar-
dagskvöldum, áður en diskóið
sjálft hefst kl. 22. Verða þá sýnd-
ar léttar kvikmyndir við hæfi tán-
inga. Salurinn rúmar 460 manns,
og er húsnæðið rúmgott að sjá og
dansgólfið bara nokkuð stórt.
Eigendur eru Guðfinnur Þórðar-
son, Bjarni Þórðarson og Örn
Karlsson.
Þriðiudagur 3. júlí 1984 ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 17