Þjóðviljinn - 03.07.1984, Side 15

Þjóðviljinn - 03.07.1984, Side 15
FRÉTTIR í síðasta helgarblaði Þjóðviljans birtist réttri fyrirsögn. Viðtalið birtist hér í heild rangur viðtalstexti með mynd af sr. Agnesi sinni, og Þjóðviljinn biðst velvirðingar á M. Sigurðardóttur, en hins Vegar undir mistökunum. Nauðsynlegt að næra sálina einsog líkamann Biblíuna á ekki bara að geyma ífallegu bandi uppíhillu. Hún er sálarfœða trúaðra, segirsr. AgnesM. Sigurðardóttir. „Þaö sem áreiðanlegaverður mér minnistæðast af þessari prestastefnu er sameiginlegur bíblíulestur okkarprestanna. Það hefur ekki átt sér stað á þeim tveimurprestastefnum öðrum sem ég hef verið á, og fyrir mér er þetta nýr og ferskur viðburður". Þetta sagði sr. Agnes M. Sigurðardóttir, sem er vígð sem æskulýðsfulltrúi Þjóðkirkjunnar, þegar Þjóðviljinn hitti hana á prestastefnunni fyrir helgi. „í tilefni af því að 400 ár er liðin frá prentun Guðbrandsbiblíunn- ar þá hefur 1984 verið gert að Ári Biblíunnar og Bíblíufélagið stendur því fyrir fræðslu og hvatningu um aukinn biblíulestur í landinu. En til að svo verði þurfa náttúrlega prestarnir að taka þátt í því, bjóða söfnuðun- um uppá samlestur á Biblíunni, þar sem farið er í ritningarstaði og þeir ræddir og skýrðir, ef til vill út frá nýjum sjónarhornum. í því sambandi má geta þess að stjórn Biblíufélagsins hefur gefið út biblíulestrarskrá, þar sem gef- inn er upp einn ritningarstaður fyrir sérhvern dag“. - Heldurðu að fólk lesi gjarnan Biblíuna? „Það er erfitt að segja. Ef ég segi nei, þá er ég í rauninni að dæma fólk sem ég þekki ekki og hef ekki leyfi til. Ef ég á hins veg- ar að vera hreinskilin, þá óttast ég að það sé allt of títt að Biblían sé bara höfð í fallegu bandi uppi í skáp. Því viljum við hins vegar breyta. Ég veit að það er talsvert um að jafnvel trúað fólk lesi ekki Biblíuna að staðaldri. Hinu má ekki gleyma að fyrir okkur sem erum trúuð, þá er Biblían sálar- fæða, og alveg eins og líkamann þarf að næra með fæðu, þá þarf líka að næra sálina. Og í Bib- líunni finnum við allt það sem kir- kjan byggir á, og þess vegna þarf að auka þennan þátt kirkjustarfs- ins“. - En hvað gefur það fólki, sem hvort eð er trúir? „Mín reynsla er sú, að þeir sem á annað borð hafa kjark til að fara og taka þátt í biblíuleshóp - og við skulum ekkert fela að til þess þarf oft nokkurn kjark í upp- hafi - þeir verða bæði ánægðir og þakklátir eftir þá reynslu. Þeim finnst það efla trúarlíf sitt og trú- arskilning. Og við skulum ekki gleyma að í Biblíuna er ævinlega hægt að sækja eitthvað nýtt, - þó hún sé gömul er hún alltaf eins og ný“. ÖS Fermingarsystkini frá lýðveldisárinu Fermingarbörn frá árinu 1944. Pessi fermingarsystkini komu saman í Keflavík nýverið til að halda uppá fermingarafmœlið. Af því tilefni stofnuðu þau sjóð sem renna skal til byggingar langlegudeildar við Sjúkra- húsið í Keflavík. Virkjanaframkvœmdir Áhugi á samstarfi Sovésk viðskiptasendinefnd í Reykjavík Hafnar eru í Reykjavík við- ræður sovéskrar og íslenskrar nefndar um viðskipti milli þjóð- anna. Formaður sovésku sendi- nefndarinnar er Vladimír Simak- ov, yfirmaður deildar þeirrar sem annast viðskipti við vestræn lönd í sovéska utanríkisráðuneyt- inu. í viðtali við APN lætur hann í Ijós sérstakan áhuga á sovéskri þátttöku í uppbyggingu raforku- vera. Viðræðurnar eru liður í reglu- bundnum fundum um viðskipti landanna sem haldnir eru til skiptis í Moskvu og Reykjavík. I viðtalinu lætur Simakov í ljós ánægju með viðskiptin, en í fyrra nam útflutningur fslendinga til Sovétríkjanna 44,6 miljónum rúblna. Spurningu um það, hvaða vandamál séu helst fyrir hendi á sviði viðskipta landanna, svarar hann á þessa leið: „Þegar þessari spurningu er svarað er við hæfi að tala ekki um vandamálin, heldur um leiðir til að þróa áfram gagnkvæm við- skipti. Að okkar mati eru fyrir hendi ásamt verslunarviðskipt- unum, sem eru hefðbundið og helsta form þessara tengsla milli Sovétríkjanna og fslands, mögu- leikar á að þróa frekar þessi tengsl, sem eru fólgnir í sam- komulagi, sem undirritað var þann 2. júlí 1982 um efna- hagssamstarf milli Sovétríkjanna og íslands. Grundvöllur þessa samkomulags er stöðug og hag- stæð þróun viðskiptatengsla milli Sovétríkjanna og íslands, vax- andi þörf á þróun efnahagssam- starfs á breiðari grundvelli. f dag er framtíðin fólgin í samstarfi á sviði byggingar raforkuvera, þar sem þegar er fyrir hendi góð reynsla, er „Sigalda" var reist. Sovéska utanríkisviðskiptafyrir- tækið „Energomashexport" býr sig undir í félagi við fyrirtæki í Austurríki og Vestur-Þýskalandi að taka þátt í viðskiptum varð- andi byggingu raforkuvers við Blöndu. Sovéskir aðilar eru reiðubúnir til margþætts sam- starfs, þ.m.t. verkfræðiþjónustu, sölu einkaleyfa o.s.frv.“ Jökulhlaup Megn brenni- steinsfýla Sterk brennisteinsfýla, jökla- og orsök þess. Ekki væri óalgengt fýla, fylgir jökulhlaupi í Emstru að smá gusur kæmu úr Emstru, sem rennur úr Mýrdalsjökli um en mikil brennisteinsfýla fylgdi Þórsmörk í Markarfljót. Jökui- þessu hlaupi. I tímans rás hafa hlaupið hófst í gær og sagði Sigur- Kötluhlaup verið í ýmsar áttir, jón Rist vatnamælingamaður í þannig að ekki er heldur hægt að spjalli við Þjóðviljann í gær, að útiloka að sú gamla sé komin á ómögulegt væri að segja á þessu kreik. stigi um stærðargráðu hlaupsins -óg í\i Stærsta frímerkja- sýning á íslandi NORDIA 84 í Laugar- dalshöll 3.7-8.7 Opið í dag frá kl. 16.00 til 21.00. Sérstimpill fyrir DAG ÍSLANDS. Skemmtileg og fjölbreytileg sýning. Sýningarnefnd. Svo skal böl boeta MEGAS grammt) BRAGI grammi Laug^vegur 17 Simi 12040 MJJNIÐ FERÐJ VASA BOKINA Handhægt uppsláttarrit sem veitir fleiri almennar upplýsingar um ferðalög og ferðamöguleika innanlands og utan en nokkur önnur íslensk bók. Meðal efnis eru 48 litprentuð kort, vegalengdatöflur, upplýsingar um gististaði og aðra ferðamannaþjónustu, um sendiráð og ræðismenn erlendis, vegaþjónustu, veðurfar á ýmsum stöðum og margt fleira. Fæst í bókabúðum og söluturnumumallt land. Ferðavasabókin; ómissandi ferðafélagi! FJÖLVÍS Síðumúla 6 Reykjavík Sími 91-81290 Þriðjudagur 3. júlí 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.