Þjóðviljinn - 03.07.1984, Page 16

Þjóðviljinn - 03.07.1984, Page 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663. 3. júlí 1984 145. tölublað 49. örgangur DiðmnuiNN Landsins forni Samfelldur ís frá Kögri að Kolbeinsey Kyrrstöðuhœð sunnan landsins sökudólgur, - en jafnframt góðviðrisvaldur Það er tæpur áratugur síðan hafís hefur verið nær landi í júlímánuði en nú, - árið 1975 var ís norðan Vestfjarða og náði inn Húnaflóa. Hafísinn nú er sam- felldur dreifður ís og á eftir aðeins um tíu sjómflur að Kolbeinsey að austan og um 8 sjómflur að Kögri að vestan. 15 stig á Horni og í Lissabon Hornbjarg var einn hlý- jasti staður í Evrópu í gær- morgun klukkan sex, 15 stig, og í Vestur-Evrópu var ekki heitara fyrren fór að nálgast Miðjarðarhaf,- íSuður-Frakklandi. Hit- inn í Lissabon var jafn Horni. Hæg suðvestan átt yfir fjöllin skapar þarna eins- konar fönvind sagði okkur Bragi Jónsson veðurfræð- ingur, mikill raki í lofti heldur hitanum, og að auki var glaðasólskin á Horni í gærmorgun. í norðanverðri Evrópu var hinsvegar norðlæg átt ogsvaltskúraloft. -m ísinn er misdreifður en þekur að jafnaði um einn til þrjá tíundu af yfirborði sjávar. Sumstaðar er hann þó þéttari, til dæmis á Hala- miðum. ísinn virðist vera úr Vestur- Grænlandsstraumnum, sagði Þór Jakobsson á Veðurstofu, og ástæða þess að hann guðar hér á glugga er sennilega kyrrstöðu- hæð fyrir sunnan land sem veldur vestan og suðvestan átt fyrir norðan og vestan. Þessi langvar- andi suðvestanátt blæs beint á venjulega rekstefnu íssins og hrekur hann austur til okkar. Kyrrstöðuhæðir munu á allri jarðkringlunni algengastar hér fyrir sunnan ísland, frá Græn- landi til írlands. Margt er ókunn- ugt í veðurfræðinni um þessar hæðir, er meðal annars giskað á að þær verði til í skjóli mikilla fjallgarða og standi í tengslum við mishæðir á yfirborði jarðar. Sé því hafsvæði austan Grænlands- jökuls og mikils meginlands í Vesturheimi kjörland slíkra fyrir- brigða. Þessi hæð hefur að líkindum fært okkur hafísinn, - en einnig undanfarið góðviðri um land allt. Landsins forni fjandi fer ekki einsamall; á laugardag sáu skip- verjar á Snorra Sturlusyni tvo hvítabirni í ísjaðrinum útaf Kögri, sennilega birnu með hún sinn. Horn Jóhann hættir Vitavörður í aldarfjórðung Andstæðurnar hér eru skemmtilegar, sagði Jóhann vitavörður Pétursson á Horni í gær, - þessi hlýindi og hafísinn í sjónmáii hér utanvið. Hér er oft blíðviðri á þessum tíma árs en þessi hiti er óvanalegur. Veður hefur verið mjög gott alla síðustu viku á Horni og í gær- morgun brá svo við að þar var hæst hitastig allra veðurathugun- arstöðva í norðanverðri Evrópu. - Ferðamenn? Já, sagði Jó- hann, í júní komu tveir dýrðlegir hópar. I öðrum voru meðal ann- arra klerkarnir á ísafirði og í Bol- ungarvík, - það er í eina skiptið í mín 24 ár að prestur hefur komið hingað að vísitera, - hefur senni- lega hugsað með sér að mannin- um veitti ekki af guðs blessun áður en hann fer í siðmenning- una. - Já, ég er að fara í ársfrí, og hef enga trú á að ég komi aftur. Tuttugu og fjögur ár eru langur tími á þessum stað, það er mikil einangrun. Nei, ég veit ekkert hvað tekur við, ég ætla bara að halda áfram að lifa þangað til ég drepst. Maður er auðvitað fullur af hugmyndum eingsog allir. Mig hefur til dæmis alltaf langað til að sjá betur þennan litla hnött sem við svífum á í geimnum, - það má vel vera að ég láti það rætast. - Hann heitir Ragnar, sá sem tekur við, sonur Gróu og Hall- dórs sem hér var vitavörður, Víg- Jóhann á Horni: ég ætla bara að halda áfram að lifa þangað til ég drepst. lundssonar, hann var síðan á Dalatanga. Ég held að skipið fari frá Reykjavík um tvöleytið í dag og verður þá komið á morgun, - ég verð svo hér í þrjá eða fjóra daga meðan hann er að komast inní þetta. - Heyrðu, er hún ekki þarna hjá ykkur ennþá á Þjóðviljanum, hún Guðrún Guðvarðardóttir? Kysstu hana á ennið frá mér og það vel! Helgi vann Flateyjar mótið Jón L. Árnason og Helgi Ólafsson troða svefnplássi sínu í poka útí Flatey. (Mynd Alfí) Helgi Ólafsson vann helgar- mótið sem haldið var í Flatey. Helgi fékk 6 1/2 vinning af 7 mögulegum. Hann vann alla sína keppinauta nema Jón L. Árna- son sem var í öðru sæti með 6 vinninga. Teflt var í frystihúsinu og voru keppendurnir 32 hæst- ánægðir með aðstöðuna og mót- töku heimamanna. Gist var í tjöldum og setti einmuna veður- blíða svip sinn á mótshaldið. Eysteinn Gíslason bóndi í Skál- eyjum var meðal keppenda og fór hann og í skoðunarferð með hóp- inn. Fjölmenni var í eyjunni um helgina og á laugardagskveld var slegið upp balli og dansað fram á nótt. Skúlagötusvœðið Engin samkeppni! Sjálfstœðisflokkurinn vill ekki samkeppni um skipulag svœðisins til að fría lóðaeigendur við gatnagerðargjöldum. r Istað þess að bjóða til opinnar samkeppni um skipulag Skúla- götusvæðisins, einsog lofað var þegar deilurnar um svæðið stóðu sem hæst, hefur meirihluti skipu- lagsnefndar Reykjavíkur nú lagt til að Teiknistofu Guðmundar Kr. Guðmundssonar og Ólafs Sigurðssonar verði falið, í sam- ráði við Björn Hallsson arkitekt, að skipuleggja svæðið. Sigurður Harðarson, sem er fulltrúi Alþýðubandalagsins í nefndinni, kvað skýringu meiri- hlutamanna þá, að ekki væri tími til samkeppninnar, því innan eins og hálfs árs mun taka gildi breyting sem veldur því að af eignarlóðum þarf að greiða gatnagerðargjöld. Skúlagötulóð- irnar svokölluðu eru allar eignarlóðir og yrði samkeppni höfð um hönd er ljóst að ekki ynnist tími til að samþykkja teikningar af húsum þar áður en fyrrnefnd breyting gengur í garð. Ákvörðun meirihluta Skipu- lagsnefndar, sem er skipaður fulltrúum Sjálfstæðisflokksins, ræðst því ekki af umhyggju fyrir hagsmunum borgarbúa og tilvon- andi íbúa á svæðinu heldur af því hvort hægt sé að fría eigendur lóða þar við að greiða gatnagerð- argjöld! -ÖS Eskifjörður Líkfundur í gærmorgun fannst lík í höfn- inni á Eskifirði. Talið er víst að það sé lík af skipverja af Hilmi II en maðurinn týndist í janúar sl. Lflcið hefur verið sent til Reykja- víkur til krufningar. Öryrkjabandalagið Húsaleigan endurgreidd ígœr var byrjað að endurgreiða íbúum íhúsnœði Oryrkjabandalagsins 30% hœkkun á húsaleigu sem sett var á í heimildarleysi. Húsnæðisstjórn Öryrkjabandalagsins hefur ákveðið að taka til baka 30% hækkun á húsaleigu í íbúðum sín- um frá 1. júní sl. Eins og skýrt var frá í helgarblaði Þjóðviljans var þessi hækkun á húsalegu óheimil þar sem Hagstofan hafði gefíð út tilkynningu um 2% hækkun frá og með þessum mánaðamótum. Samkvæmt lögum sem Alþingi samþykkti í vor er óheimilt að hækka húsaleigu hverju sinni um- fram það sem Hagstofan tilkynn- ir. „Við erum búin að vera að endurgreiða fólki þessa hækkun núna í dag og menn eru alveg himinlifandi", sagði Anna Ing- varsdóttir framkvæmdastjóri Ör- yrkjabandalagsins í samtali í gær. Hún sagði að hússtjóm banda- lagsins hefði ekki verið kunnugt um hin nýsamþykktu lög Alþing- is þegar hækkun húsaleigunnar var ákveðin. „2% hækkunin tekur því gildi núna en við endur- greiðum fólki þá leigu sem tekin var í leyfisleysi í síðasta mánuði. Við héldum að við værum að gera það sem við mættum gera en fyrst svo er ekki þá kemur ekki annað til greina en að endurgreiða þessa hækkun. Jafnframt verðum við að leita nýrra leiða til að rétta af rekstrarstöðu Öryrkjabandalags- ins“, sagði Anna Ingvarsdóttir. -•g- (

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.