Þjóðviljinn - 06.07.1984, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 06.07.1984, Qupperneq 2
FRETTIR Deilan í Hafró Úrskurði ráðuneytis fylgt Sjávarútvegsráðuneytið sagði landmenn eiga að kjósa stjórnarmanninn. Viljum að sjómenn kjósi líka segja landsmenn í athugasemd til blaðsins. Helgi Seljan alþingismaður talaöi á útifundi við Hótel Varðborg á Stórstúku- þinginu. Stórstúkan A f jórða þúsund félagar Um 30 barnastúkur með 2200 meðlimum eru starfandi á ís- landi auk 21. undirstúku með 900 félögum. Fulltrúar margra þeirra voru samankomnir á Stórstúku og Unglingaregluþingi sem haldið var á Akureyri í fyrri mánuði auk erlendra gesta. Á Unglingarregluþinginu var Kristinn Vilhjálmsson endur- kjörinn stórgæslumaður, en aðrir í stjórn voru kosnir, Arnfinnur Arnfinnsson, Sigrún Oddsdóttir, Árni Norðfjörð og Karl Helga- son. Á Stórstúkuþinginu var Hilm- ar Jónsson endurkjörinn Stór- templar, en aðrir í framkvæmda- stjórn eru séra Björn Jónsson, Sigurgeir Þorgrímsson, Bryndís Þórarinsdóttir, Arnfinnur Arnfinnsson, Guðlaugur Fr. Sig- mundsson, Guðbjörg Sigvalda- dóttir, Árni Valur Viggósson, Ingibjörg Johnsen, Björn G. Eiríksson og Sveinn Kristjáns- son. Meðal samþykkta sem gerðar voru á þinginu má nefna, að 10. janúar ár hvert verði bindindis- dagur, og að árið 1986 verði ár bindindis. Einnig voru sam- þykktar tillögur um friðarmál. í tilefni 100. ára afmæli Regl- unnar var gefið út veglegt af- mælisrit, og dagana 21. til 27. júlí n.k. verður haldin alþjóðleg menningarráðstefna í Reykjavík. Meðal ræðumanna verður Jan Ording, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Alþjóða- heilbrigðisstofnunar Sameinuðu þjóðanna. Starfsmenn Hafrann- sóknarstofnunar að Skúla- götu 4, landmenn, hafa sent Þjóð- viljanum athugasemd vegna skrifa blaðsins á dögunum um deilur sjómanna og landmanna stofnunarinnar vegna kosningar fulltrúa starfsmanna í stjórn Hafrannsóknarstofnunar. Segir í athugasemdinni sem er birt hér á eftir, að það hafi verið Sjávarút- vegsráðuneytið sem úrskurðaði svo að landmenn skyldu einir kjósa fulltrúa í stjórnina. „Þann 15. júní sl. barst bréf frá Sjávarútvegsráðuneytinu til Óvenju mikil hvalveiði í gær höfðu veiðst samtals 94 hvalir samkvæmt upplýsingum Péturs Andréssonar í Hvalstöð- inni, þar af 88 langreyðar og 6 sandreyðar. Einn bátur var á leið inn með eina langreyði. Undan- farna daga hefur verið þoka á miðunum, og bátarnir þurft að lóna aðgerðalitlir og því hefur að- eins dregið úr veiðinni. Að öðru leyti hefur hún gengið mjög vel, og að sögn Péturs eru áratugir frá því jafngóð hvalveiði hefur verið. Þess má geta að sandreyður fer yfirleitt ekki að veiðast í miklum mæli fyrr en um miðjan ágúst. -ÖS starfsmanna Hafrannsóknastofn- unarinnar, þar sem þeim var gert að kjósa fulltrúa starfsmanna í stjórn stofnunarinnar. Ekki er starfandi starfsmannafélag hjá stofnuninni, og því boðuðu trún- aðarmenn starfsmanna til undir- búningsfundar að kosningunni, þar sem rætt var kosningafyrir- komulag, kjörgengi og kosninga- réttur var til umræðu. Komu þar fram nokkur vafaatriði m.a. hvort sjómenn á skipm stofnun- arinnar skyldu vera aðilar að þessu kjöri, en stéttarfélög þeirra hafa þegar fulltrúa í stjórn og munu eiga hann áfram skv. hin- um nýju lögum. Eftir nokkra um- ræðu ákvað fundurinn, að til þess að tryggja að löglega væri að kosningunni staðið, þá skyldi leitað eftir úrskurði Sjávarút- vegsráðuneytisins um það hverjir hefðu kosningarétt og kjörgengi. 19. júní barst svar frá ráðuneyt- inu þar sem úrskurðað var að starfsmenn að Skúlagötu 4, Sjá- varbraut 2 og útibúum stofnunar- innar skuli tilnefna hinn nýja full- trúa. í framhaldi af kjöri fulltrúans í stjórn var haldinn fundur þar sem skipaðir voru tveir menn til þess að undirbúa stofnun starfs- mannafélags Hafrannsóknar- stofnunarinnar og þeim falið að leita eftir því við sjómenn, að þeir . skipuðu þriðja manninn í undir- búningsnefndina. Jafnframt sam- þykkti fundurinn með öllum greiddum atkvæðum, að óska eftir því við sjávarútvegsráðu- neytið að í framtíðinni fari kosn- ing stjórnarfulltrúans fram á veg- um þessa starfsmannafélags og að sjómenn á hafrann- sóknaskipunum hefðu þar fullan kosningarétt og kjörgengi sem aðrir starfsmenn stofnunar- innar“. Náttúruvernd Skoðunar- og söguferð um Mosfellssveit N.V.S.V., Náttúruverndarfélag Suðvesturlands fer náttúru- skoðunar- og söguferð um Mos- fellssveit laugardaginn 7. júlí kl. 13.50 frá Varmárskóla í Mosfells- sveit (hægt verður að fara í rút- una við Norræna húsið kl. 13.30 og fara þangað að ferð lokinni). Aætiað er að ferðinni Ijúki kl. 18.00-19.00. Fargjald er 200 kr., frítt fyrir börn í fylgd fullorðinna. AJlir eru velkomnir. Farið verður frá Varmárskóla yfir í Mosfellsdal, Helgadal að Leirvogsvatni (Svanavatni). Þar snúið við og farið gegnum Reykjahverfi. Síðan ekið með Hafrahlíð yfir á Suðurlandsbraut upp á Sandskeið. Til baka sömu leið að Skyggni. Þaðan farið sunnan Ulfarsfells að Varmár- skóla. Að lokum ekið til Norræna hússins í Reykjavík. Leiðsögu- menn verða: Ingvar Birgir Frið- leifsson jarðfræðingur ræðir um jarðfræði svæðisins og beislun varmaorkunnar. Gísli Már Gísla- son líffræðingur kynnir plöntu- og dýraríkið almennt, en tekur sérstaklega fyrirlífríki Varmár- innar. Ólafur Dýrmundsson landnýtingarráðunautur sýnir mismunandi aðgerðir við upp- græðslu lands. Með í ferðinni verða fróðir menn um sögu og örnefni svæðisins, m.a. verður sagt frá merkum rústum við Blikastaðatá. Litið verður á um- hverfi fyrirtækis þar sem öll um- gengni er til fyrirmyndar. Síðan verður ekið í gegnum svæði ann- ars fyrirtækis þar sem í undirbún- ingi er merkilegt framtak starfs- manna og fyrirtækis að sameinast um að bæta og fegra umhverfið utan húss og innan. Mosfellssveit er með ungan byggðarkjarna sem er í mjög örum vexti. Margt hefur verið þar gert en margt er ógert. Nátt- úrufræðisafn er ekki komið upp og ekki heldur byggðasafn. Sér- stök samtök áhugamanna um umhverfismál á svæðinu eru ekki starfandi. En nýstofnað Sögufé- lag Kjalarnessþings er þegar orð- ið virkt, og ýmis önnur félags- starfsemi er fjölbreytt og þrótt- mikil. Upplýsingar veita: Einar Egils- son sími: 40763 og Grímur Norð- dahl sx'mi: 666057 wittð Ljúfindb í ^bfádmmv c ælkeraverslunin ^ J \/f atarmikil braud- KV (S Kjötbær, Laugavegi 34a, hefur ávallt gott úrval heitra rétta í hádeginu. Það kemur sér vel fyrir vinnandi fólk og vegfarendur að geta valið á milli 5 heitra rétta hvern virkan dag í hádeginu. JLJvíc júfmeti Kjötbæjar léttir dagsverkið. * Viðskiptavinir Kjötbæjar geta snætt heitt Ijúfmetið í versluninni, - þar er andrúmsloft sem fellur sælkerum vel í geð. Eins er hægt að fá matinn í sér- stökum umbúðum sem halda honum heitum. Þessir ljúfmetisbakkar tryggja góða meðferð á góðum mat. ^S/lsneið íhádcginu ogmeð kaffinu. Hvern virkan dag tilreiða matreiðslu- meistarar Kjötbæjar ríkuleg og girnileg salöt, með besta fáanlega hráefni. Þá má ekki gleyma álegginu. Að mirmsta kosti 25 áleggsgerðir eru í boði. Þetta er eitthvað ofan á brauð! 1 Kiötb jötbær er „delikatessen “ sniðinn eftir þýskri fyrirmynd. Kjötúrvalið í Kjötbæ er með ólíkindum gott: Safaríkar pylsur og steikur. fiiötbœr Laugavegl Ma-Síml 14165 þjóðhátíð NT skýrir frá því á forsíðu í gær að Bandaríkin hafi haldið upp á sinn afmælisdag upp í Árbæ og birtir með mynd fróðlega: sendi- herrann og Steingrímur forsætis- ráðherra eru í keppni iim það hvor er duglcgri við að setja niður tré. Yfir þessu samlyndi öllu er svo fyrirsögn: Þjóðhdtið. Þetta er athyglisvert vegna þess, að einmitt NT varð fyrir því óláni á dögunum að gleyma fjörutíu ára afmæli lýðveldisins í sínu sautjánda júní blaði. En nú er semsagt fundin sú þjóðhátíð sem NT man eftir - vel og ræki- lega.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.