Þjóðviljinn - 06.07.1984, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 06.07.1984, Qupperneq 7
LANDIÐ Kjötvinnsla. Dilkakjötið Auglýst sem sérstök gæðavara Ályktanir Þingeyinga um kjötsölu og niöurgreiöslur Föstudaginn 15. júní sl. var haldinn almennur bænda- fundur að Breiðumýri í Reykjadal, á vegum Búnað- arsambands S-Þingeyinga og nokkurra áhugamanna um markaðsmál landbúnaðarins. Frummælendur á fundinum voru Andrés Þorvarðarson forstjóri Selness h.f. og Gunn- ar Páll Ingólfsson forstjóri ísmats h.f., en þessir aðilar hafa sýnt kjötútflutningi áhuga og talið ónotaða mikla möguleika í þeim efnum Fjörugar umræður urðu um er- indi frummælendanna og mikill áhugi á að reyndar yrðu þær nýju leiðir, sem Gunnar Páll var tals- maður fyrir, þ.e. útflutningur unnins og pakkaðs kindakjöts, sem auglýst væri sem sérstök gæðavara. Nokkur gagnrýni kom fram á Búvörudeild SÍS og stjórnvöld fyrir hvernig staðið væri að sölu- málunum, en Magnús Friðgeirs- son, framkvæmdastjóri Búvöru- deildar upplýsti að búðið væri að semja um sölu úr landi á þeim kjötbirgðum, sem nú væru um- fram innanlandsþarfir. í fundarlok voru eftirfarandi tillögur samþykktar: „Almennur bændafundur Bún- aðarsambands S-Þingeyinga, haldinn að Breiðumýri í Reykja- vík 15/6 1984, skorar á stjórnvöld að vinna ákveðið að því, að velta öllum hindrunum úr vegi þeirra, sem vilja spreyta sig á útflutningi á íslensku kindakjöti“. „Almennur bændafundur haidinn að Breiðumýri í Reykja- dal þann 15. júní 1984 mótmælir því hve niðurgreiðslur á landbún- aðarafurðir hafa verið skertar að undanförnu. Slíkar aðgerðir eru ekki til þess fallnar að neyslu í landinu sé beint inn á þær brautir, sem þjóðhagslega eru hagkvæmastar.“ -mgh Mjólkurframleiðslan Frá Mjólkurbúi Flóamanna Innvegin mjólk 1983 minnkaði lítillega frá árinu áður Mjólkurframleiðendum á Suðurlandi fækkaði um 11 á síðasta ári, miðað við árið á undan. Voru þeir 753. Innvegin mjólk reyndist 38,3 milj. Itr, minnkaði um 0,2% frá fyrra ári. Þetta kom fram á aðalfundi Mjólkurbús Flóamanna, sem að þessu sinni var haldinn í Þjórsár- veri. Kúm hafði heldur fjölgað á svæði Mjólkurbúsins, eða um 58, voru 12.208. Meðalmjólkurinn- legg á hvern framleiðanda var 51.674 ltr. og hafði hækkað um 650 ltr. frá árinu 1982. Af þessum 753 mjólkurinnleggjendum lögðu 4 inn meira en 220 þús. ltr. Hæst var Félagsbúið í Holti í Stokkseyrarhreppi með 356 þús. ltr. þá búið í Laugardælum með 317 þús. ltr. Jósef Benediktsson, Ármóti í Rangárvallahreppi var með 250 þús. ltr. og búið á Þor- valdseyri undir Eyjafjöllum með 226 þús. ltr. Unnt reyndist vera að greiða framleiðendum grundvallarverð fyrir mjólkina en það var kr. 12,20 á ltr. á svæði Mjólkurbús- ins. Þegar dregin höfðu verið frá sjóðagjöld og flutningskostnaður var nettó útborgunarverð kr. 11,29. Fjárfesting hjá Mjólkurbúinu var allveruleg á árinu. Vógu þar þyngst nýtt mjölhús og vélar en einnig var keypt lóð og nýir bflar. Mjólk jókst nokkuð í vetur miðað við sömu mánuði árið áður. Nam aukningin tæpum 10,4% en síðan hefur heldur dregið úr framleiðslunni. Miðað við 5 síðustu dagana fyrir fundinn var aukningin frá sömu dögum fyrra árs aðeins 1,7%. Bændur hafa verið hvattir til þess að auka vetrarmjólkina, sem þýðir þá trú- lega minni sumarmjólk og því þarf þessi aukning tæpast að vekja hjá neinum undrun né skelfingu. Afurðasala hjá Mjólkurbúi Flóamanna gekk vel á sl. ári. Á tímabili minnkaði nokkuð sala á jógúrt en hefur nú aftur náð sér á strik. Þökk sé nýjum tegundum svo sem léttjógúrtinni. Hlutfall mjólkurinnar af framleiðslutekj- um bóndans var á sl. ári 72,56%. Var árið áður 70,52%. Hafði þannig aukist um rúm 2%. Á síðasta ári voru starfsmenn Mjólkurbús Flóamanna 117. Hafði þeim fjölgað um 2 frá árinu áður. -mhg TOYOTA /1 TeSafa^ W tí&ni, bjóbum vv ferbaskobun. Eru hern\ar, s^Vr'' ^ SSSíX* TOYOTA Nýbýlavegi8 200Kópavogi S. 91-44144

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.