Þjóðviljinn - 06.07.1984, Qupperneq 15

Þjóðviljinn - 06.07.1984, Qupperneq 15
ÍÞRÓinR Ævintýraleikur! Valur jafnaði 3-3 á síðustu mínútu framlengingar en KA sigraði í framlengdri vítaspyrnukeppni! Þorvaldur Jónsson markvörð- ur KA reyndist kollega sínum í Valsmarkinu, Stefáni Arnarsyni, snjallari og tryggði liði sínu sigur í vítaspyrnukeppni á Valsvellin- um í gærkvöldi. Leikur liðanna, sem var hörkuskemmtilegur, stóð ájöfnu, 3-3, eftirframlengingu og í framlengdri vítaspyrnukeppni varði Þorvaldur tvívegis, Stefán einu sinni, og KA sigraði þar með og tryggði sér sæti í 8-liða úrs- litum bikarkeppni KSÍ. í vítakeppninni skoruðu þrír fyrstu menn beggja liða, Valur Valsson, Hilmar Harðarson og Guðmundur Kjartansson fyrir Val en Bjarni Jónsson, Þorvaldur Örlygsson og Ásbjörn Björnsson fyrir KA. Þá varði Þorvaldur glæsilega frá Guðmundi Þor- björnssyni og Njáll Eiðsson skoraði fyrir KA, 4-3. Ingvar Knattspyrna 1. deild karla er annars staðar á síðunni en í 2. deild verður heil um- ferð um helgina. Vöisungur-FH, ÍBÍ- KS, Tindastóll-Skallagrímur og Einherji-ÍBV mætast kl. 14 á morgun og Njarðvík-Víðir kl. 14 á sunnudag. f 3. deild leika ÍK-Grindavík og Reynir S.-Fylkir kl. 20 í kvöld og HV- Víkingur Ó., Snæfell-Selfoss, Austri- Huginn, Leiftur-HSÞ.b og Magni- Valur Rf. kl. 14 á morgun. f 4. deild er toppleikur í A-riðli í kvöld, Ármann-Haukar, og í E-riðli á morg- un, Árroðinn-Vaskur. Guðmundsson jafnaði 4-4 en Mark Duffield gat tryggt KA sigur. Stefán varði skot hans með tilþrifum og þar með þurfti að framlengja keppnina. Ekki þó lengi, Þorvaldur varði strax frá Þorgrími Þráinssyni. Þá var kom- ið að bakverðinum knáa úr KA, Ormarri Örlygssyni. Honum urðu engin mistök á á örlaga- stundu - enda fæddur í gul/bláa KA-búningnum - og skoraði, 5- 4. KA hafði sigrað. Allt benti til þess að KA myndi ná að sigra í venjulegum leiktíma. Asbjörn Björnsson fékk boltann frá Mark Duffiéld á 13. mínútu og skoraði með föstu skoti í bláhornið niðri, 0-1. Síðan gekk á ýmsu, færi á báða bóga, en KA varð fyrir áfalli þegar Birkir Kristinsson markvörður var bor- inn af leikvelli á 18. mínútu, illa Golf Þrjú opin mót eru á dagskrá um helgina. Á Sauðárkróki á laugardag og sunnudag á vegum Golfklúbbs Sauðárkróks, á Garðavelli á Akra- nesi verður SR-mótið á vegum Golf- klúbbsins Leynis á morgun og Ein- herjamótið á að fara fram á sunnudag - staður óákveðinn. Frjálsar íþróttir Sumarhátíð UÍA stendur yfir alla helgina á Eiðavelli, Æskumót USVH 15-18 ára fer fram á morgun á Reykjaskólavelli og Héraðsmót HSS fer fram á Sævangsvelli laugardag og sunnudag. meiddur, jafnvel brotinn. Þor- valdur skíðastökkvari kom þá inná og varði stórkostlega tveimur mín. síðar skalla Hilmars Sighvatssonar af markteig. Strax á 2. mínútu síðari hálf- leiks virtist KA vera búið að gera út um leikinn. Ásbjörn sneri skemmtilega á Grím Sæmunds- en, komst inní vítateig Vals og renndi boltanum af öryggi fram- hjá Stefáni í netið, 0-2. En nú tók við látlaus Valssókn. Sóknirnar buldu á marki KA og á 61. mínútu gaf Guðmundur Þ. fyrir og Valur klíndi boltanum í netið af stuttu færi, 1-2. Tveimur mínútum síðar lék Steingrímur Birgisson hálfa Valsvörnina upp- úr skónum, skaut í samskeytin af stuttu færi, boltinn hrökk út á Ás- björn sem skallaði en Guðmund- ur Kjartansson bjargaði á mark- línu með stórbrotinni hjólhest- aspyrnu. Á 77. mínútu jöfnuðu svo Valsarar. Bergþór Magnússon komst innfyrir vörn KA og lyfti skemmtilega yfir Þorvald, 2-2. í fyrri hluta framlengingar gerðist ekkert markvert. En á sjöttu mínútu þess síðari lék Njáll laglega upp vinstri kant og gaf inná markteigshornið nær, hvar Siglfirðingurinn stóri Hafþór Kolbeinsson var staddur og ham- raði boltann í bláhornið, 2-3. Sigur KA blasti við á ný en mín- útu fyrir leikslok brá Þorgrímur 1. deild kvenna í knattspyrnu opnaðist uppá gátt í gærkvöldi er Valsstúlkunum tókst að sigra IA 3-2 á Akranesi í jöfnum og tvísýn- um leik. Valur virtist þó búinn að gera útum leikinn fyrir hlé. Sólrún Ástvaldsdóttir skoraði fyrst, þá Erna Lúðvíksdóttir beint úr aukaspyrnu og loks Guðrún Sæmundsdóttir með miklu lang- skoti, 0-3. Að auki átti Erna glæsiskot í samskeytin á Skagam- arkinu. En ÍA tók vel við sér í byrjun seinni hálfleiks og skoraði tvö mörk á fyrsta korterinu. Fyrst Ragnheiður Jónasdóttir og síðan Laufey Sigurðardóttir úr víta- spyrnu. ÍA pressaði talsvert eftir það en skapaði sér nánast engin færi og Valur hélt fengnum hlut. ÍBÍ vann óvæntan en sætan sigur á KR á ísafirði, 2-1. Arna Fylkisstúlkurnar hafa sett stefnuna á sæti í úrslitum 2. deildar í knatt- spyrnu. Þær unnu stórsigur á Fram, 7-0, á Framvellinum í síðustu viku og standa best að vígi í A-riðli. Úrslit urðu þessi: A-riðill: Fram-Fylkir 0-7 Grindavík-Haukar... 0-2 FH-Viðir 1-1 Fylkir ...4 3 1 0 12-1 10 Víðir ...4 2 1 1 3-2 7 ...4 1 2 1 3-2 5 FH ...3 0 3 0 2-2 3 Fram ...3 1 0 2 2-9 3 Grindavík ...4 0 1 3 2-8 1 Þráinsson sér inní vítateig KA og jafnaði með óheyrilegu þrumu- skoti. 3-3 og Lolli stökk hæð sína í loft upp. Síðan kom vítakeppnin með allri sinni spennu og KA- menn féllust í faðma - en Valsar- ar drupu höfðum - þeirra bikar- draumur var á enda. KA-liðið sýndi ódrepandi bar- áttuvilja og uppskar samkvæmt því. Þeir Erlingur Kristjánsson í vörninni og Njáll Eiðsson á miðj- unni voru yfirburðamenn - ekki bara’hjá KA heldur á gjörvöllum Valsvellinum. Erlingur átti allt sem kom nálægt hans vítateig og Njáll var sívinnandi á miðjunni og nú er farið að koma meira útúr honum en áður í spili. Bjarni Jónsson er efnilegur miðvörður og þeir Steingrímur og Hafþór voru hættulegir frammi. Bak- verðirnir Ormarr og Friðfinnur Hermannsson léku einnig vel. Valsliðið var jafnt og kraft- mikið en spilaði ekki eins vel og oft áður í sumar. Meira kýlt fram í þetta skiptið. Valur var brellinn á vinstri kantinum að vanda, Jó- hann Þorvarðarson sótti sig á miðjunni þegar á leið og Þor- grímur Þráinsson og Guðni Bergsson léku vel í vörninni. Þó finnst mér sóun að hafa Guðna sem aftasta mann. Helgi Kristjánsson dæmdi leikinn og gerði það all þokka- lega. Steinsen skoraði eina mark fyrri hálfleiks fyrir KR en í síðari hálf- leik skoruðu þær Stella Hjalta- dóttir skíðadrottning og Ingi- björg Jónsdóttir fyrir IBÍ og tryggðu liði sínu þrjú stig. Breiðablik mætti Víkingi á Kópavogsvellinum og vann auðveldan sigur, 5-0. Erla Rafns- dóttir skoraði fyrstu tvö mörkin og Ásta María Reynisdóttir og Sigrún (Skapta) komu Blikunum í 4-0 fyrir hlé. Erla bætti síðan við sínu þriðja og fimmta marki Breiðabliks í síðari hálfleik. Staðan er þá þessi í 1. deild kvenna, A-riðli: Brelðablik...........5 3 2 0 13-1 11 ÍA...................5 3 1 1 16-5 10 Valur.................5 3 11 8-3 10 IBI...................5 2 0 3 5-9 6 KR....................5 2 0 3 5-9 6 Vfkingur..............5 0 0 5 1-19 0 -BV/ast/VS Hveragerði-Afturelding............2-0 ÍR-ÍBK............................0-4 Selfoss-Stjarnan..................1-1 Hverageröi............4 4 0 0 14-3 12 ÍBK...................4 3 1 0 10-4 10 Afturelding...........4 2 1 1 12-8 7 Selfoss...............4 0 2 2 4-8 2 Stjarnan..............4 0 1 3 2-9 1 ÍR....................4 0 1 3 5-15 1 Sigurborg Ólafsdóttir og Berglind Elvarsdóttir skoruðu mörkin fyrir Hveragerði og Aðalheiður Reynis- dóttir gerði mark Víðis gegn FH. Jó- hanna Pálsdóttir og Berglind Guð- mundsdóttir skoruðu fyrir Hauka í Grindavík. Þorvaldur Jónsson kom inná sem varamarkvörður og varði tvívegis í vítaspyrnukeppni. Ormarr Örlygsson skoraði úr síð- ustu spyrnunni og tryggði KA slgur. Enn frestaö í Eyjum Enn gátu IBV og ÍA ekki mæst í bikarkeppni KSI. Leik liðanna var í gær frcstað í þriðja sinn vegna óveðurs í Eyjum og hann hefur nú verið settur á næsta mið- vikudagskvöld kl. 20. En til 8-liða úrslita í keppninni verður dregið í beinni sjónvarpsútsendingu í íþróttaþættinum á laugardaginn kemur. Eftir í keppninni eru Völsung- ur, Þór Akureyri, Þróttur R., KR, Fram, Breiðablik, KA og ÍA eða ÍBV. -VS 4. deild F Úr 3-1 í 3-6 á 25 mínútum! Súlan frá Stöðvarfirði vann glæsi- legan sigur gegn Hetti á Egilsstöðum, 3-6, er félögin léku þar í F-riðli 4. deildarinnar í knattspyrnu í fyrra- kvöld. Höttur leiddi í hléi, 3-1, og þannig var staðan er 25 mín. voru til íeiksloka en þá opnuðust allar gáttir og Stöðvarfirðingar skoruðu fimm mörk. Ársæll Hafsteinsson skoraði fyrst fyrir Súluna og tók síðan vítaspyrnu sem Ólafur Jónsson markvörður Hattar varði. Árni Jónsson jafnaði með óverjandi þrumufleyg af 40 m færi og Jón Kristinsson kom Hetti í 3-1 með tveimur mörkum. Undir lok- in skoraði svo Jónas Ólafsson 2 mörk fyrir Súluna, Ársæll, Magnús Magnússon og Einar Björnsson eitt hver. Leiknir er áfram á toppnum, vann Egil rauða 6-0 á Fáskrúðsfirði. Óskar Tómasson skoraði 2 mörk, Gunnar Guðmundsson, Helgi Ingason (víti!), Þorgils Gunnþórsson og Jón Hauks- son eitt hver. Sindri og Neisti skildu jöfn á Hornafirði, 2-2. Þrándur Sigurðsson og Ómar Ingi Bragason skoruðu fyrir Sindra en Snæbjörn Vilhjálmsson og Gunnlaugur Bogason fyrir Neista. Borgfirðingar sigruðu Hrafnkel 5-0 í Borgarfirði. Þorbjörn Björnsson 2, Pétur Örn Hjaltason, Jón Kjartans- son og Magnús Ásgrímsson gerðu mörkin. Vignir Garðarsson hjá Hrafnkatli var rekinn útaf í leiknum. Staðan í F-riðli: LelknirF.........9 7 2 0 31-3 23 Súlan............9 6 1 2 24-1419 Höttur...........9 4 2 3 20-16 14 Nelsti...........8 4 1 3 24-1513 Sindri...........9 3 3 3 15-1912 Borgarfjöröur....8 3 0 5 14-19 9 Hrafnkell........9 3 0 6 9-27 9 Egillrauöi.......9 0 1 8 7-28 1 -VS Föstudagur 6. júlí 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15 Um helgina: Tíunda umferð Tíunda umferðin í 1. deildarkeppn- inni í knattspyrnu fer fram um helg- ina, tveir leikir á laugardag og þrír á sunnudag. KR og Víkingur hefja slaginn á Laugardalsvelli kl. 14 á morgun. Kl. 16 hefst á Kópavogsvelli viðureign Breiðabliks og Þróttar og síðan verða þrír leikir kl. 20 á sunnudagskvöld. Þór og KA leika á Akureyrarvelli, ÍBK og Valur í Keflavík og Fram-f A á Laugardalsvellinum. f A er með 22 stig þegar keppnin er hálfnuð, ÍBK 18, Þróttur og Fram 11 stig, Valur, Víkingur, Þór og KR 10 stig, Breiðablik og KA 9 stig. Sundmeistaramótið Sundmeistaramót f slands fer fram í Laugardalslaug í Reykjavík um helg- ina og hefst kl. 20 í kvöld. Keppni heldur áfram kl. 15 á morgun og loks kl. 15 á sunnudag. Á mótið koma í fyrsta skipti gestir frá Færeyjum, 11 keppendur alls. Ekkert af okkar sundfólki sem dvelur erlendis kemur heim en þó ætti mótið að verða skemmtilegt, þar verða á ferðinni þær Ragnheiður Runólfs- dóttir og Bryndís Ólafsdóttir ásamt fjölmörgu öðru efnilegu sundfólki. Sumarhátíð UIA Sumarhátíð UÍA, sá árlegi stórvið- burður á Austurlandi, hefst að Eiðum í dag. Hátíðin verður sett kl. 17 en þá flytur Hermann Níelsson, formaður UÍA, ávarp. Kl. 17.15 hefst keppni í frjálsum íþróttum og stendur fram á kvöld. Á morgun, laugardag, verður frjálsíþróttakeppnin frá 9 til 17.30 en sundmót hefst í Eiðalaug kl. 14. Um kvöldið verður tjalddansleikur með Dúkkulísunum og Breakdanssýning. Á sunnudag hefst keppni í frjálsí- þróttum kl. 10 og lýkur kl. 12. Kl. 13.50 hefst hátíðardagskrá og stendur til kl. 17 en þá eru mótsslit. Reiknað er með miklu fjölmenni víðs vegar að af Austurlandi. Heiðursgestur hátíðarinnar að þessu sinni er Hermann Guðmundsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ. Framdagurinn Framdagurinn 1984 er á sunnudag- inn, 8. júlí. Knattspyrnudeild félags- ins verður með mikla dagskrá á gras- velli Fram og hún hefst með drengja- móti Eimskips og KSÍ, A og B, en það er úrslitakeppni Reykjavíkur- riðils og stendur frá 10.30 til 14. Þá tekur við 5. flokksleikur Fram og Breiðabliks, verðlaunaafhending til Framara fyrir sigra á Reykjavíkur- móti, 4. flokksleikur Fram og Vals, íslandsmótsleikur í 3. flokki milli Fram og Fylkis og loks kl. 17.20 ieika Fram og FH í 2. deild kvenna. Um kvöldið mætast svo Fram og ÍA á Laugardalsvelli í 1. deild karla. L.oks leika Fram og ÍA í 2. flokki á mánu- dagskvöldið. Á vegum handknattleiksdeildar verður einn leikur á grasvellinum, meistaraflokkar Fram og Vals mætast kl. 16.30. Þá verða Framkonur með kaffiveitingar í Framheimilinu frá kl. 14 til 18. annað. ..annað. ..annað. ..annad -vs 1. deild kvenna Allt galopið Valur vann áAkranesi ogÍBI lagði KR að velli 2. deild kvenna Stórsigur Fylkis B-riðill

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.