Þjóðviljinn - 06.07.1984, Síða 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663.
6. júlí 1984 148. tölublað 49. árgangur
DJÓÐVIUINN
Stigahlíðalóðirnar
Skattarnir þeirra leyndarmál
Ríkisskattstjóraembœttið neitar Pjóðviljanum um upplýsingar um
skattgreiðslur lóðahafa í Stigahlíð. Fyrir nokkrum árum greiddu sumir
þeirra ekki krónu í tekjuskatt og höfðu vinnukonuútsvar
Leynilistinn sem Þjóðviljinn
birti í gær um kaupverð ein-
stakra lóða í Stigahlíðinni hcfur
vakið mikla athygli og fjöldi les-
enda haft samband við blaðið og
óskað eftir að birt yrði hvað við-
komandi lóðakaupendur hafa
greitt í skatta undanfarin ár. I
blaðinu ■ dag stóð einmitt til að
birta þær tölur en samkvæmt
upplýsingum ríkisskattstjóraem-
bættisins eru þær tölur leyndarm-
ál. Skattskráin sögð lokuð bók og
ekki veitt leyfi til að leita þar fyrr-
nefndra upplýsinga.
„Við höfum ekkert leyfi til að
hleypa einum eða neinum í þess-
ar skrár eftir að sá tími er liðinn
að þær hafa verið hafðar frammi
fyrir almenning", sagði Ævar Is-
berg vararíkisskattstjóri, en
þangað var Þjóðviljanum vísað af
hálfu Skattstofunnar í Reykja-
vík.
Þegar álagningarskrár og
endanlegar skattskrár eru lagðar
fram hverju sinni eru þær opnar
almenningi í hálfan mánuð til
skoðunar en samkvæmt lögum er
þeim síðan lokað. „Þetta er alger-
lega lokað samkvæmt lagasetn-
ingu og við myndum ekki hleypa
einum einasta manni í skrárnar
hvorki blaðamönnum né öðrum"
sagði Ævar.
Á sl. alþingi voru hinsvegar
samþykkt ný skattalög þar sem
segir m.a. í einu ákvæðinu að
leyfð sé opinber birting á skatt-
skrám. Þessi nýju lög eiga að taka
gildi frá og með álagningu skatta
fyrir þetta ár. Ævar ísberg sagði
að það væri hins vegar mat ríkis-
skattstjóra að átt væri við hina
endanlegu skattskrá fyrir þetta ár
sem kemur út í byrjun næsta árs
og þá fyrst tæki þetta nýja ákvæði
gildi, hvernig svo sem bæri að
túlka það.
Mörg undanfarin ár hefur
skattskráin verið gefin út og seld
almenningi en svokölluð Tölvu-
nefnd hefur síðustu árin stöðvað
þá útgáfu. Það væri óheimil
prentun persónuupplýsinga.
Þegar flett er í síðustu skatta-
og útsvarsskrám sem gefnar hafa
verið út kemur í ljós að nokkuð
stór hópur þeirra sem fjárfestu í
miljónalóðunum í Stigahlíðinni
voru fyrir aðeins fáum árum í
hópi hinna lægstu skattgreið-
enda. Sumir greiddu engan
tekjuskatt og höfðu vinnukonu-
útsvar.
Síðar í þessum mánuði verður
lögð fram álagningarskrá skatta
fyrir þetta árið og verður hún
opin almenningi í hálfan mánuð.
Þjóðviljinn mun að sjálfsögðu
nota hið fyrsta tækifæri til að upp-
lýsa landsmenn um þær fróðlegu
tölur sem þar verður að finna.
->g-
Borgarstjórn
Hundahald leyft með skilyrðum
í gærkvöldi rann upp söguleg stund
í borgarstjórn Reykjavíkur. Hunda-
hald með ákveðnum skilyrðum var
leyft á ný eftir um 60 ára bann við
hundahaldi. Hin nýja samþykkt var
samþykkt með 11 atkvæðum Sjálfs-
tæðismanna en aðrir greiddu atkvæði
á móti eða sátu hjá. Þeir sem greiddu
atkvæði á móti voru Adda Bára Sig-
fúsdóttir, Sigurjón Pétursson, Guð-
mundur Þ. Jónsson, Guðrún Jóns-
dóttir og Katrín Fjeldsted. Margar
breytingatillögur voru felldar, m.a.
frá Öddu Báru Sigfúsdóttur sem
gengu út á það að svipuðum reglum
væri beitt og í Kópavogi. Þorsteinn
Thorarensen, fréttaritari Reuters á
íslandi, var á pöllum og sagðist hann
búast við því að samþykktin yrði á
forsíðum dagblaða um víða veröld í
dag.
Afhjúpun gagnrýnd
Davíð Oddsson borgarstjóri
gagnrýndi á borgarstjórnarfundinum
í gærkvöld að Sigurjón Pétursson
hefði brotið trúnað og afhjúpað sölu-
verð Stigahlíðalóðanna í dagblöðum.
Sigurjón sagðist aldrei hafa gengist
undir neinn trúnað og í söluskilmál-
um lóðanna væri ekki gert ráð fyrir
trúnaði í þeim efnum.
Magnús fær ekkert að vita
Þá var á fundinum í gær borin fram
tillaga af Sigurjóni Péturssyni þess
efnis að Magnús Skarphéðinsson bíl-
stjóri fái afrit af greinargerð um hann
sjálfan vegna uppsagnar hans. Þetta
var fellt af meirihlutanum. Fulltrúar
Kvennaframboðs og Alþýðubanda-
lags sögðu að trúnaður af þessu tagi
þjónaði þeim eina tilgangi að koma í
veg fyrir að Magnús gæti borið hönd
fyrir höfuð sér og sótt sinn rétt ef
honum sýndist svo. Sólrún Gísladótt-
ir sagði að alls konar sögusagnir
hefðu komist á kreik um ástæður
uppsagnarinnar svo að betra væri að
fá málið á hreint. Davíð Oddson
sagðist aldrei hafa heyrt neinar slíkar
sögur. Sólrún upplýsti þá að borgar-
stjóri sjálfur hefði farið með slíkar
sögur í sinni áheyrn. -GFr.
Hamarshúsið
Dagsekt-
um beitt?
Ég tel það komi sterklega til
greina að beita byggingarmeist-
ara Hamarshússihs dagsektum,
eða jafnvel senda mál hans til
Sakadóms ef hann fer ekki að
ákvæðum byggingarreglugerð-
ar“.
Þetta sagði Magnús Skúlason,
fulltrúi Alþýðubandalagsins í
Byggingarnefnd Reykjavíkur.
En eins og Þjóðviljinn greindi frá
á þriðjudag þá samþykkti nefnd-
in einróma hörð mótmæli við því
að eigendur Hamarshússins hafa
nú auglýst til sölu íbúðir sem
Byggingarnefnd hefur ekki sam-
þykkt, og getur ekki samþykkt,
þareð þær brjóta í bága við gild-
andi reglur.
Magnús Skúlason sagði að lög
heimiluðu að byggingarmeistari
væri áminntur og jafnvel sviptur
starfsleyfi, ef um alvarleg brot
væri að ræða. Hann sagði að
dæmi væru til um að Byggingar-
nefnd hefði sent Sakadómi kæru
og mál jafnvel farið alla leið til
Hæstaréttar. „Hins vegar er al-
gengara, og raunar árang-
ursríkara, að beita dagsektum,
en til þess hefur Byggingarnefnd
heimild. Og það tel ég koma
sterklega til greina“.
-ÖS
Finnskar eða frjálsar? spurðu menn
þegar þeir sáu þessa jarðávexti í
gær. Nokkur tonn af kartöflum, trú-
lega af suðrænum toga voru komnar
uppí Gufunes, í þann stað þar sem
ruslið hættir að vera til. Grænmetis-
verslun landbúnaðarins sendi ekki bí-
linn sinn með ónýtar kartöflur á
haugana í gær, svo þessar hljóta að
vera úr öðrum vígstöðvum? (Ljós-
mynd í gær -eik).
Myndbönd
Einka-
umboð
á bresku
efni
Borgfilm h.f. stendur í samn-
ingaviðræðum við BBC um
einkaumboð á bresku sjónvarps-
efni. Til stendur hjá fyrirtækinu
að semja við flciri aðila um einka-
rétt á sjónvarpsefni.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans standa nú yfir samningar
við BBC um sjónvarpsefni, en
þar úti er verið að setja á fót sér-
staka myndbandadeild, BBC-
video. Fleira er þó á döfinni hjá
Borgfilm h.f. því þeir vonast til
að geta fengið hjá fleiri aðilum
myndbandaefni. Hugmyndin er,
að öðru vísi efni verði en boðið er
upp á hjá þeim myndbanda-
leigum sem nú starfa hér á landi.
Markmiðið er að bjóða almenn-
ingi betra efni en gerist og gengur
nú, og má benda á að reynt verð-
ur að fá bestu sjónvarpsþætti
BBC.
Borgfilm er elsta kvikmynda-
félag landsins, stofnað 1959, en
var gert að hlutafélagi 1975.
Draumur félagsins hefur lengi
verið sá að geta fjármagnað ís-
lenska kvikmynd að sögn tals-
manna fyrirtækisins og með þess-
um nýju samningum er vonast til
að sá draumur rætist með haust-
inu.
Fyrsta efnið sem Borgfilm h.f.
fær eru hinir sívinsælu Dallas-
þættir og er reiknað með að
fyrstu spólurnar verði leigðar út
um miðjan júlí. -hs