Þjóðviljinn - 02.08.1984, Page 12

Þjóðviljinn - 02.08.1984, Page 12
MANNLIF MANNLIF Þaft má nú finna stund milli stríða. Mynd: HJH Gengið vel í sumar í gestamóttökunni á Húsmæðr- askólanum á Laugarvatni var ung og brosandi kona. Þetta var hótel- stýran Hóimfríður Gísladóttir. Hólmfríður sagði að þetta væri annað sumarið hennar á hótel- inu. Hún er íþróttakennari að mennt en starfar á veturna sem móttökustjóri á Hótel Borg. Eitthvað urðum við undrandi á svip því hún bætti við að flest allar hótelstýrumar væru húsmæðra- kennarar. f þessu embætti, hótel- stýra á Eddu hóteli, eru yfirgnæf- andi meiri hluti konur, sagði Hólmfríður, það em aðeins 3-4 karlar. Vinnutíminn hjá henni er frekar langur eða frá átta á morgnana og til eitt á kvöldin í þrjá mánuði samfleytt. Hólmfríður sagði að þessi vinnutími væri í lagi, þetta væri skemmtilegt starf og aðaðllinn í þessu væri sá að starfsfólkið væri alveg sérstakt. Hún sagði að sam- vinnan væri mjög góð, allir hjálp- ast að í einu og öllu. Um starfsemina sagði hún að það væri nánast alltaf fullt um helgar, en í miðri viku væri ekki nánda nærri eins mikið. Það eru lang mest íslendingar sem em á Húsmæðraskólanum, fólk úr Reykjavík sem skreppur um helgar til að slappa af. Utlending- arnir em á Menntaskólanum því þar er boðið upp á svefnpoka- pláss. Hólmfríður sagði að hjá þeim væri aðeins boðið upp á herbergi og væri það dýrara en annarstað- ar. Eins væri maturinn eitthvað dýrari hjá þeim því þau keyptu dýrara hráefni svo að maturinn væri ömgglega góður. Hún sagði LAUGARVATN Laugarvatn er sá staður sem ferðamenn geta fundið mjög margt viö sitt hæfi. Staðurinn er bæði vinsæll af íslenskum og er- lendum ferðamönnum. Laugvetningar bjóða ferða- mönnum upp á marghliða þjón- ustu. Má þar nefna mjög fullkomna tjaldaðstöðu, sumar- hótel á menntaskólanum, hús- mæðraskólanum og héraðskól- anum. Til afþreyingar er boðið upp á hið landsfræga gufubað, bátaleigu, seglbrettaleigu, „min- igolf", sundlaug og hestaleigu í Miðdal, 5 km frá Laugarvatni. Laugarvatn er stærsta skóla- setur landsins í sveit en einnig merkur sögustaður. Á söguöld hefur Laugarvatn tengst alþingis- staðnum á Þingvöllum sem ná- lægur áfangi. Kristnitökuárið 1000 voru Norð- og Sunnlend- ingar skírðir í lauginni sem stað- urinn dregur nafn sitt af. í dag er hún nefnd Vígðalaug og hafa margir trú á lækningamætti vatnsins í henni. Gömul sögn segir að lík Jóns Arasonar bisk- ups og sona hans hafi verið þvegin í Vígöulaug vorið 1551 áður en þau voru flutt norður til Hóla. Við lauginaeru sex aðfluttir steinar sem bera fornt örnefni, Líksteinar. Það er ekki nýtt að nota skóla á Laugarvatni fyrir sumarhótel. Héraðsskólinn var stofnaður 1928 og þegar á næsta áratug var farið að nota hús hans til gestamóttöku á sumrin. íþrótta- kennaraskólinn var stofnaður 1932, Húsmæðraskóli Suður- lands 1942-44 og Menntaskólinn að Laugarvatni 1947-53. HS að fólk væri tilbúið til að borga aðeins meira fyrir góðan mat. Hólmfríður sagði að sama fólk- ið kæmi allt að þrisvar sinnum yfir sumarið í helgarfrí. Þetta væri auðvitað meðmæli með staðnum svo og kortin sem fólkið útfyllti, þ.e. gestir geta sagt sitt álit á hótelinu, matnum og þjón- ustunni, og yfirleitt er dómurinn jákvæður. Hólmfríður sagði að Verslun- armannahelgin hefði verið full- bókuð í sumar enda væri það há- punktur sumarsins. Hún sagði að þau veittu 20% afslátt eftir þriggja daga dvöl á staðnum svo og í miðri viku. Eins væri hægt að semja um afslátt ef fólk vill eyða sumarfríinu sínu á staðnum. Hún sagði að líka væri veittur afsláttur á mat ef fólk dvelur lengi, svo og þeir hópar sem kæmu, þeir fengju afslátt. Hólmfríður sagði að þetta sumar hefði gengið vel í alla staði og hún væri alveg til í að vera þarna næsta sumar þrátt fyrir að maður og börn væru í bænum. Þau koma ailtaf um helgar og í miðri viku og þetta er ágætis til- breyting sagði þessi geðþekka hótelstýra að lokum. HS Vittu láta myndina koma I bla&inu? sagði Olga Ingólfsdóttlr 3 ára. LAUGARVATN Allt tll alls í veitingasalnum á Húsmæðr- askólanum sátu þau hjónin Helga Harðardóttir og Sigurður Grétar Guðmundsson úr Kópavogi. Þeim var nokk sama þó að þau væru trufluð og voru til í að spjalla við okkur. Þau ætluðu að gista tvær nætur á hótelinu en þetta var ekki í fyrsta sinn sem þau væru þarna. „Það vill þannig til að þetta er uppáhaldsstaðurinn okkar“ sagði Sigurður „við höfum gist á öðrum Eddu hótelum en okkur líkar lang best hér.“ Þau bentu á að það væri ekki lengi verið að keyra frá Reykja- vík að Laugarvatni en þó er þetta sveit og maður nýtur allra þæg- inda um leið. Þau hældu staðnum í hástert og sögðu að þeim findist maturinn mjög góður, starfsfólkið ákaflega vingjarnlegt og persónulegt og þjónustan til fyrirmyndar. Helga sagði að þegar þau færu í frí þá vildu þau hafa allt til alls. Þeim líkaði ekki eins vel að vera á Menntaskólanum því þar væri ekki baðherbergi og ekki bar, svo og mörg hin Eddu hótelin þau hafa ekki þessi þægindi þess vegna völdu þau þennan stað. Um hvort að það væri dýrt að j vera á Eddu hóteli svöruðu þau því til að það væri ekki. Miðað við annað hérlendis þá væri það ekkert dýrara en gerist og gengur. Þau hjónin voru sammála um það að á Laugarvatni væri allt til alls nema þeim fannst vanta úti- sundlaug en hún er víst í bygg- ingu. Þau sögðust alltaf nota guf- ubaðið og finnst það mjög gott. Þau sögðu að það væri einn hlutur sem þau ættu eftir að prufa og það væri hestaleigan. Með henni fannst þeim að Laugarvatn hefði fengið aukið gildi. Það tengist því að draumaferðin þeirra er að fara ríðandi yfir Kjöl og þau vonuðust til að geta látið þann draum rætast sem fyrst. Hvað með að ferðast erlendis? Þau sögðust hafa gert það en þá aðeins á vorin eða haustin. Þau vildu ekki fórna tíma um sumarið heldur fannst þeim að fólk ætti að Iengja sumarið þannig. Þau fara ekki út í ár vegna fjárhagsins, eins og svo margir aðrir. Þau hjónin Helga og Sigurður voru ákveðin í að njóta helgar- innar, slappa af og skemmta sér eins og fólk á að gera þegar það er í fríi. HS Góður mórall Þau voru eldhress krakkarnir i eldhúsinu þegar við kíktum þar inn til að trufla þau við vinnuna. Öll gáfu þau sér tíma til að setjast niður og spjalla um lífið og starfið á Eddu hótelinu á Húsmæðra- skólanum. Þau sem voru á vakt heita: Ingi B. Erlingsson, kokkur, og bróðir hans Páll, aðstoðar- Frá vinstri er Jóhanna Björnsdóttir, Páll Erlingsson, Ingi Erlingsson, Harpa Hreins- og Guðrúnardóttir, Móeiður Bernharðsdóttir og Sigrún Óskarsdóttir. Þau gáfu sér tíma fyrir Ijós- myndarann þó nóg væri að gera. Mynd: HJH kokkur, Harpa Hreins- og Guð- rúnardóttir, sem hefur lengstan starfsferil á staðnum eða átta sumur, Sigrún Óskarsdóttir sér um herbergin, Móheiður Bcrií- hardsdóttir sér um uppvaskið, og Jóhanna Björnsdóttir vinnur í salnum ásamt Hörpu. Þau sögðu að starfsfólk staðar- ins væru 14 og væri unnið á vöktum. Unnið er frá 7-15 og 15- 23. Þau þurfa að hreinsa 27 her- bergi en eiga 2-3 til vara. Matsal- urinn er opinn frá kl. 8 á mor- gnana og er morgunmatur til 9.30, hádegismatur frá 12-14, kaffi frá 15-18 og kvöldverður frá 19-23. Öll voru þau sammála um það að það væri mikið álag á starfsfólkinu. „Þettá er skorpu- vinna eins og hótelvinna er“, sagði Ingi. Þessi vinna er þriggja mánaða töm og er lang mest að gera um helgar, þá er allt fullt. Starfsemin dettur niður í miðri viku en þó em stundum ráðstefnur þá og nóg að gera. Þau sögðu að það væri allt í lagi að vinna svona mikið því þetta væri vel borgað. Að vísu er fasta kaupið ekki hátt en bónusinn lyftir því upp. Þegar Þau sögðu að það væri mjög blandað fólk sem kæmi og Harpa sagði að hún þyldi ekki þegar fólk rétti upp hendina, smellti fingr- um og flautaði á þau. „Það er eins og við séum hundar. Ég þoli það ekki.“ Þau sögðu að mórallinn væri sérlega góður í sumar, allir hjálp- uðust að og þá gengur allt eins og í sögu. Þau sögðust ekki festa sig í sínu starfi, þ.e. ef einhver hefur lítið að gera þá gengur hann í annað starf þar sem vantar hjálp. Þetta er einn liðurinn í að svona hótel gangi vel og þau bentu á að þessi staður væri einn af fáum þar sem bónus fékkst fyrir nýtingu. Hvað ætli þau geri svo í þeim fáu frítímum sem gefast? Það er margt, svöruðu þau. Fara á ball, lesa, sofa, gufubað, skreppa í bæ- inn og margt fleira. Það er ekki seinna vænna en að hætta þessu spjalli því gestirnir biðu og allt eftir að gera en greini- legt var að samstarfið var gott og mórallinn fínn því allir hjálpuðu öllum, eins og einhverstaðar stendur. HS msHERJÓLFUR ÁÆTLUN UM ÞJÓÐHÁTÍÐINA1984: Föstudag3.8. Frá Vestmannaeyjum kl. 05:00 — — Frá Þorlákshöfn kl.09:30 — — Frá Vestmannaeyjum kl. 14:00 — — Frá Þorlákshöfn kl. 18:00 Laugardag4.8.FráVestmannaeyjum kl. 10:00 — — Frá Þorlákshöfn kl. 14:00 Sunnudag 5.8. Frá Vestmannaeyjum kl. 10:00 — — Frá Þorlákshöfn kl. 14:00 Mánudag 6.8. Frá Vestmannaeyjum kl. 05:00 — — Frá Þorlákshöfn kl. 09:30 — — Frá Vestmannaeyjum kl. 14:00 — — Frá Þorlákshöfn kl. 18:00 HERJÓLSFERÐ ER GÓÐ FERÐ HERJÓLFUR H.F. S Skrifstofa Vm. 98-1792 og 98-1433 ® Vöruafgreiðsla Vm. 98-1838 S Vöruafgreiðsla Rvík 91-86464 JJJJJJ EJ Þjónusta við þjóðveg Esso þjónusta. Opið alla daga frá kl. 9.00 til 23.30. Veitingar - matvörur - hreinlætisvörur - ferðavörur - flugþjón- usta - bílaleiga. Viðgerðir, hjólbarðasala, varahlutasala, smurstöð, vélasala. Innisundlaug opin mánudaga-föstudaga8-10, 15-17, 20-22 laugardaga 14-16. Tjaldstæði. Með fyrsta flokks snyrtiaðstöðu án gjaldtöku. Veiði í silungsvötnum nálægt Blönduós. Heimilisiðnaðarsafn opið þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 16 til 18. Njótið samspils Blöndu og náttúrunnar í Fagrahvammi. Kaupfélag Húnvetninga Blönduósi Opið daglega frá 9.00-12.20 og 13.20-18.00. Matvörudeild opin á sama tíma á laugardögum. Allar nauðsynjar í ferðalagið. Ferskar - frosnar - niðursoðnar matvörur, unnar kjötvörur, pissur, franskar kartöflur, BLÖNDU appelsínusafinn í 1/i og 1/4fernum, sumarbolir, skyrtur, sokkar, skór, hlífðarföt, myndablöð, bækur, kort, tímarit, leikföng, viðlegubúnaður, veiðivörur, grill, garðáhöld, kælibox, skallaboltar, blakboltar, badmintonspaðar, flugur. Styttið ferðatímann með góðri snældu eða Yamaha gítar, tölvuskemmtara eða tölvuspili. Reiðvörur, reiðhjól, úr, Ijósmyndavörur, Brandsstaðaskeifurnar vinsælu. Kaupfélag Húnvetninga Blönduósi Skagaströnd Velkomin til Blönduóss Útibú Skagaströnd opin virka daga 9.00-12.20 og 13.20-18.00 C c. c. c nnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnn

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.