Þjóðviljinn - 02.08.1984, Blaðsíða 17
Með fjölskylduna
Þeir eru margir sem ekki leggja
út í þann kostnað að byggja sér
sumarbústað, en vilja eigi að
síður eiga þess kost að skreppa
af og til út úr bænum og hvíla sig í
fallegu umhverfi við góðar að-
stæður. Fyrir þetta fólk eru fé-
lagsbústaðir eins og t.d. í Munað-
arnesi kjörin dvalarstaður. Nú
hefur opnast nýr möguleiki, sem
er sumarhúsin í Vík í Mýrdal. Og
eftir að hafa dvalist þar yfir helgi
er sannarlega hægt að mæla
með þeim.
Húsin eru alveg ný og voru
raunar ekki alveg fullkláruð þeg-
ar þau voru heimsótt. Fullkomin
eldurnaraðstaða var væntanleg í
húsin og einnig mætti bæta við
húsgögnum, en að öðru leyti eru
húsin sérlega smekkleg og falleg.
Tvö stór herbergi, annað með
fataskápum og hitt með eldhús-
krók og gott baðherbergi með
sturtu. Veröndin fyrir framan og
allt svæðið í kring er mjög
skemmtilegt. Húsin standa undir
fjalli og gróðurinn rétt við hús-
til Víkur
vegginn er einstaklega fallegur.
Fjaran fyrir neðan og fuglalífið
allt í kring sér fólki fyrir góðum
gönguferðum. Til Víkur er nú
steyptur vegur langleiðina frá
Reykjavík mjög auðkeyrður og
þægilegur (aðeins 3ja tíma akstur
úr bænum). Og þeir sem eru að
hugsa um að skreppa austur í Vík
geta pantað í gegnum Hótel Vík.
Bæði er hægt að fá stakar nætur
og vikudvöl.
-þs.
Hingað til hefur gistihúsið
Vík í Mýrdal orðið að útvega
gestum gistingu á einka-
heimilum, ef margt hefur verið
um manninn. Nú ætti þess
ekki lengur að þurfa, því tekin
hafa verið í notkun í Vík fimm
ný orlofs- og gistihús. Eigend-
ur þessara húsa eru Mýrdals-
hrepþur, Kaupfélag Skaftfell-
inga, Sambandið, Samvinnu-
ferðir-Landsýn og Olíufélagið
h.f..
Hvert hús um sig er 32 ferm. að
innanmáli. Tvö herbergi í risi, sitt
undir hvorri burst, eldunar- og
hreinlætisaðstaða.
Valdimar Harðarson arkitekt
hannaði húsin, sem eru eininga-
hús. Trésmiðja KF. Skaftfellinga
byggðu þau en yfirsmiður var Sig-
urjón Árnason í Vík. Klakkur hf.
gerði undirstöður. Urðu þær að
vera magnaðar því húsin eru, í
bókstafleguin skilningi, byggð á
sandi. Innréttingar og húsgögn
eru frá 3K.
Sú kvöð fylgir húsunum að þau
verði leigð Hótelinu í Vík í júní,
júlí og ágúst, en hótelið endur-
leigir þau svo þetta tilgreinda
tímabil. -mhg
MANNLIF
Lestrarefni
Biblían best
í ferðalagið
Mæðgurnar Signý Guðbjartsdóttir og Guðrún Bjarnadóttir að velja
krossgátublöð fyrir helgina. Mynd-eik.
Vík
„Ég var að koma úr þriggja
vikna ferð frá Ítalíu. Las Bíblíuna,
það er bók sem er gott að hafa
með sér í ferðalagið því hvar sem
hún er opnuð er eitthvað bita-
stætt til aflestrar", sagði Guðrún
Bjarnadóttir sem var ásamt dótt-
ur sinni í bókaverslun fyrir síðustu
helgi að velja lestrarefni.
Auðveldari gestamóttaka
5 ný orlofs- og gistihús
„Mér finnst skemmtilegast að
hafa með mér krossgátublöð í
ferðalagið“, sagði dóttirin, Signý
Guðbjartsdóttir 17 ára. „Ég hef
ekki lesið mikið í sumar, einkum
tímarit eins og Hús og hýbýli og
Líf og núna ætla ég að kaupa mér
krossgátublað og tímaritið
Mannlíf,“ sagði Signý. -jp
Glens
Sumarbókin er komin út, full af
glensi og gríni fyrir alla fjölskyld-
una. Meðal efnis má nefna fróðl-
eiksþætti um ferðalög innan-
lands og utan. Eins eru hug-
myndir að föndri, leikjum, og
ýmsu til dægradvalar. Svo og eru
þrautir og gátur.
Bókin er 100 bls. og kostar 198
kr.
í Sumarbókinni má finna fróð-
leik sem þennan:
VEISTU...
að Beethoven var algjörlega
heyrnarlaus, þegar hann samdi
Níundu sinfóníuna? HS
Fjallið, fjaran, fuglarnir og bústaðurinn góði voru umhverfi þessa drengs sem var alsæll í sumarfrfi í Vík um daginn.
Ólafur Sœvarsson (t.v.) vann ífiski í Vestmannaeyjum í vetur sem leið og Unnar
SigurðurHansen (t.h.) var sjómaður. Þeirhafa ferðast víða ísumaren voruáleið
austur á Höfn í Hornáfirði með A usturleiðarútunni þegar Þjóðviljinn hitti þá kl. 8
síðasta föstudagsmorgun. Höfðu ráðið sig til Kaupfélags Austur-Skaftfellinga í
fiskvinnslu. Mynd-eik.
Umferðarmiðstöðin
Ferðast ífiskinn
Snemma morguns hvern dag
og einkum fyrir helgar er mikið
um að vera í Umferðarmiðstöð-
inni. Fólk á leið í ferðalag, aðrirtil
vinnu úti á landi og enn aðrir á
leiðinni heim til sín að Ijúka ferða-
lagi til Reykjavíkur. Áföstudaginn
streymdi fólk frá Reykjavík, mikil
örtröð var rétt fyrir kl. 8 og alveg til
kl. 9 árdegis.
„Við erum sko ekki að fara í
ferðalag núna, erum búnir að
taka það út í sumar. Núna erum
við að fara að vinna í fiskvinnslu-
stöðinni austur á Höfn í Horna-
firði. - Já, alltaf í rútu,“ sögðu
ferðalangamir sem Þjóðviljinn
ræddi við á Umferðamiðstöðinni
á föstudaginn. Þeir voru að stíga
upp í Austurleiðarútuna, sögðust
hafa ferðast heilmikið í sumar.
„Hvert við ætlum um verslun-
armannahelgina? - Erum að spá i
að fara ekkert, eigum engan pen-
ing eins og er“ sögðu þeir. Viður-
kenndu þó að Atlavík freistaði
fyrst þeir á annað borð yrðu
komnir svo langt austur sem á
Höfn.
Félag sérleyfishafa hefur aukið
þjónustu sína á undanförnum
árum. Ferðalög milli ýmissa
staða á landsbyggðinni gera fólki
mögulegt að komast víða þótt
ferðast sé með rútum. Hringmið-
ar og tímamiðar sem gilda í mis-
munandi langan tíma gefa fólki
kost á að ferðast ótakmarkað
með áætlunarbifreiðunum fyrir
fast verð. Hægt er að kaupa leiða-
bók í Umferðamiðstöðinni þar
sem fjöldi ferðamöguleika með
rútum er kunngerður.
-jP
Odýrustu gríllkolki í bænum
Vörumarkaðurinn hl. ármúla ia eðistorgi u
Pressuð
kol - 3 kg á
119
s. 686111
s. 29366.
Flmmtudagur 2. ágúst 1984 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 17