Þjóðviljinn - 23.08.1984, Síða 6
MUNIfí
FERfíJ
VASA
BOKIJSA
Handhægt uppsláttarrit sem veitir fleiri almennar
upplýsingar um ferðalög og ferðamöguleika
innanlands og utan en nokkur önnur íslensk bók.
Meðal efnis eru 48 litprentuð kort, vegalengdatöflur,
upplýsingar um gististaði og aðra
ferðamannaþjónustu, um sendiráð og ræðismenn
erlendis, vegaþj ónustu, veðurfar á ýmsum stöðum og
margt fleira. Fæst í bókabúðum og
söluturnum um allt land.
Ferðavasabókin; ómissandi ferðafélagi!
FJÖLVÍS
Síðumúla 6 Reykjavík
Sími 91-81290
Frá
skólaskrifstofu
Reykjavíkur
Grunnskólar borgarinnar hefja starf í byrjun septem-
ber nk., sem hér segir:
Kennarar komi til funda, hver í sinn skóla, mánudag-
inn 3. september, kl. 9 árdegis.
Nemendur komi í skólana fimmtudaginn 6. septem-
ber.
Nánar auglýst síðar.
Skólafulltrúi.
Bfllinn í lctgi — beltin spennt
börnin í aftursæti.
GÓÐA FERÐ!
Póstur og sími
Nýtt tækjahús
við norðanverðan Arnarfjörð
Svo sem hermt var í fréttum á
sínum tíma brann tækjahús
Pósts og síma við norðanverðan
Arnarfjörð í febrúar sl. Nú hefur
nýtt hús verið sett upp í stað
þess, sem varð eldinum að bráð.
Kom húsið tilbúið „að sunnan"
og er nokkru stærra en það
gamla.
1 nýja húsinu verður gott rúm
fyrir öll nauðsynleg tæki en öllu
var til skila haldið með að hægt
væri að koma þeim fyrir í gamla
húsinu vegna þrengsla. Hefði því
nýtt hús sjálfsagt bráðlega verið
byggt þótt það gamla hefði ekki
brunnið. Sett hafa verið upp ný
radíótæki og því hægt að fjölga
línum út af svæðinu. Áður var
símasambandið um sæstreng yfir
Arnárfjörð með þeim afleiðing-
um, að tækjakostur hússins nýtt-
ist engan veginn til fulls.
Allt samband við norðanverða
Vestfirði og Ketildali fer í gegn-
um þetta nýja tækjahús Pósts og
síma. -mhg
Skógrœkt
Skógrækt á
Markailljótsaurum
Nokkrar ályktanir aðalfundar Skógrœktarfélags íslands
Fjölmargar tillögur komu fram
á nýafstöðnum aðalfundi Skóg-
ræktarfélaga íslands. Voru þær
ítarlega ræddar í nefndum og síð-
an af fundinum í heild. Hér fara á
eftir nokkrar af þeim ályktunum,
sem samþykktar voru:
Fundurinn...„fagnar vaxandi
áhuga bænda á ræktun skjól-
belta" og „beinir þeim tilmælum
til landbúnaðarráðherra að við
endurskoðun jarðræktarlaga
verði skjólbeltarækt gerð styrk-
hæf á sama hátt og aðrar jarða-
bætur. Máli þessu til stuðnings
vill aðalfundurinn benda á álit
skjólbeltanefndar, sem lagt var
fyrir ráðherra 21. okt. 1982“.
Skógrœkt á
Markarfljótsaurum
Fundurinn...„skorar á Skóg-
rækt ríkisins að kanna rækilega á
hvern hátt megi best koma upp
stórfelldum víði- og asparskógi á
Markarfljótsaurum, til fjölgunar
atvinnutækifæra og fjölbreytni á
búskaparháttum".
Fræsöfnun
Fundurinn... „leggur til að að-
ildarfélögin, í samvinnu við
Skógrækt ríkisins, efni til víð-
tækrar birkifræsöfnunar á þessu
hausti í þeim tilgangi, að sá birki í
gróðurvana og örfoka land þar
sem lönd eru friðuð. Tilgangur-
inn með þessu átaki sé fyrst og
fremst uppgræðsla með trjá-
gróðri en ekki eiginleg skóg-
rækt“.
Grœðireitir
Fundurinn... „beinir því til að-
ildarfélaga sinna að þau taki til
athugunar hvert á sínu svæði
hvort ekki sé tímabært að félögin
komi sér upp litlum græðireitum
til ræktunar á græðlingum til
eigin nota”.
Greinargerð: „Hér er átt við
framleiðslu til eigin nota t.d. í
smærri girðingar og útivistar-
svæði í heimahéraði. Fram hefur
komið vaxandi áhugi á slíkri
ræktun að undanfömu og sum fé-
lög hafa ráðist í hana með góðum
árangri. Slík ræktun ætti að vera
auðveld í sniðum og ódýr í fram-
kvæmd og því ekki smærri fé-
lögum ofvaxin“.
Gœðaflokkun
Fundurinn... „felur stjórn fé-
lagsins að beita sér fyrir að komið
verði á reglum um gæðaflokkun
og mat á skógar- og garðplönt-
um“.
Skógræktarskilyrði
í V-Skaft.
Fundurinn... „beinir þeim til-
mælum til Skógræktar ríkisins að
hún láti gera ítarlega könnun á
skógræktarskilyrðum í Vestur-
Skaftafellssýslu. í framhaldi af
slíkum athugunum, ef skilyrði
reynast hagstæð, verði gerð hér-
aðsskógræktaráætlun fyrir sýsl-
una, þar sem lögð verði áhersla á
ræktun nytjnskóga“.
Skipulags-
breytingar
Fundurinn... „samþykkir að
kjósa 5 manna nefnd til þess að
endurskoða og gera tillögur um
breytingar á skipulagi og starfs-
■háttum Skógræktarfélags Islands
og héraðsskógræktarfélaganna í
næstu framtíð.
Nefndin skoðaði m.a. eftir-
greindar hugmyndir.
1. Að aðalfundur Skógrækt-
arfélags íslands sé haldinn aðeins
annað hvert ár og samhliða hon-
um efnt til almenns skógræktar-
þings um íslensk skógræktarmál
og sé það opið og þátttaka allra
skógræktarmanna í því frjáls.
Slíkt skógræktarþing gæti t.d.
staðið í tvo daga en aðalfundur
félagsins síðan hinn þriðja. Þyki
rétt að hafa aðalfund á hverju ári,
mætti halda opið skógræktarþing
í tengslum við hann annað hvert
ár.
2. Að efnt verði til fundar for-
manna skógræktarfélaga lands-
ins, (eða fulltrúa þeirra og fram-
kvæmdastjóra), annað hvert ár.
Þar séu lagðar fram eða gerðar og
ræddar starfsáætlanir til tveggja
ára og fjallað um samskipti félag-
anna við Skógræktarfélag Is-
lands, Skógrækt ríkisins o.fl. að-
ila.
Nefndin kanni einnig eftir
föngum hvaða stuðningur kæmi
minnstu skógræktarfélögunum
best. Hún vinni starf sitt í samráði
við stjórn og framkvæmdastjóra
Skógræktarfélags íslands og geri
einnig tillögur um lagabreytingar
í samræmi við tillögur sínar um
starfsháttabreytingar.
Nefndin ljúki tillögugerð sinni
fyrir febrúarlok 1985 og verði
nefndarálitið þá sent skógrækt-
arfélögunum til álita, en síðan
lagt fyrir næsta aðalfund Skóg-
ræktarfélags íslands, ásamt um-
sögn félaganna".
-mhg
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 23. ágúst 1984