Þjóðviljinn - 28.08.1984, Page 8
FRIÐARMÁL
Endumýjun og uppbygging herstöðvanna á Islandi er liður í því að áætlunin um getu til þess að eyða vopnabúri
Sovétmanna í Barentshafi geti orðið að veruleika, segir Michio Kaku prófessor í kjarneðlisfræði við New York háskóla.
Ljósm. eik.
ísland tengist nú áœtlunum
um að nota hina nýju kynslóð
kjarnorkuvopna
til þess að geta eytt endurgjaldsgetu
kjarnorkukafbáta Sovétmanna í
Barentshafi’
Sú illmennska sem þú hefur
gefið til kynna að ráði ferðinni í
áætlunum bandaríska herráðsins
er þinn tilbúningur. Stórveldin
reyna vissulega að sjá fyrir alla
hugsanlega þróun stríðsátaka og
undirbúa ráðstafanir sínar í sam-
ræmi við slíkar spár - ég held hins
vegar að markmiðin sem þú ætlar
Bandaríkjunum séu þinn eigin
heilaspuni.
Eitthvað á þessa leið hljóðuðu
mótmæli Ágústs Valfells, sem
kvaddi sér hljóðs eftir að banda-
ríski kjarneðlisfræðingurinn
Kaku hafði flutt hryllingslýsingu
sína á stríðsáformum bandaríska
herráðsins á Hótel Loftleiðum
síðastliðinn laugardag.
missti marga japanska ættingja
sína í Híróshíma, lýsti ennfremur
stríðshættunni í dag og byggði
enn á bollaleggingum hershöfð-
ingjanna. Fyrirsjáanleg stig
kjarnorkustríðs nú á tímum eru
fjögur: Takmarkað stríð með
Evrópu sem vettvang, langvar-
andi stríð á Norður-Atlantshafi,
afvopnunarárás og loks árás að
fyrra bragði (pre-emptive first
strike).
Kjarnorkuvopnin sem sam-
svara þessum fjórum mögulegu
útgáfum stríðsins eru mismun-
andi. í takmörkuðu stríði hafa
nifteindasprengjur mesta þýð-
ingu, í langvarandi stríði skipta
Kjarnorkuvígbúnaður
Bandaríkin ætla sér möguleika
á að eyða vopnabúri Sovétmanna
HVERJIR FÓRNA -
I ÞAGU HVERRA?
Almenn fundir Alþýðubandalagsins
á Norðurlandi Eystra.
DALVÍK, FREYVANGUR, RAUFARHÖFN,
Fimmtudaginn 30. 8.
kl. 20.30.
Fimmtudaginn 30. 8.
kl. 20.30
Fimmtudaginn 30. 8.
kl. 20.30.
Framsögumenn:
Svavar Gestsson,
Vilborg Harðardóttir.
F ramsögumenn:
Steingrímur J.
Sigfússon,
Ragnar Arnalds.
F ramsögumenn:
Hjörleifur
Guttormsson,
Svanfríður Jónasdóttir
HUSAVIK,
AKUREYRI,
Sunnudaginn 2. 9.
kl. 20.30
F ramsögumenn:
Svavar Gestsson,
Helgi Guðmundsson,
Svanfríður Jónas-
dóttir.
Sunnudaginn 2. 9.
kl. 15.30
F ramsögumenn:
Helgi Guðmundsson,
Svavar Gestsson,
Steingrímur J.
Sigfússon.
Leyniskjöl
herráðsins
Prófessor Kaku lýsti í löngu og
ítarlegu máli innihaldi ákveðinna
leyniskjala bandaríska herráðs-
ins, en af þeim var nýlega létt
leyndarskyldu, í samræmi við
bandarísk lagafyrirmæli um þess-
konar plögg. Tímabilið sem hann
fjallaði um nær allt frá stríðsárun-
um fram til ársins 1993.
Á meðan Sovétríkin voru enn
bandamenn Bandaríkjanna í
síðari heimsstyrjöldinni, hóf
bandaríska herráðið undirbúning
áætlana um að leggja Sovétríkin
undir sig. Áformað var að her-
nema landið eftir að mótstaða
væri brotin á bak aftur með
kjarnorkusprengjum, en til að
tryggja sigur reiknuðu herfor-
ingjarnir með að þurfa 1000
sprengjur. Peirri tölu var ekki
náð fyrr en 1954.
Bandaríski prófessorinn sagði
að herráðið hefði orðið að hætta
við áformin - en ekki vegna þess
að Rússar voru búnir að koma sér
upp kjarnorkusprengjum líka,
heldur vegna þess að í ljós kom
að þeir áttu flugvélar sem dugðu
til að varpa sprengjunum á
Bandaríkin og gátu valdið mann-
falli sem Bandaríkjaforseti áleit
óverjanlegt.
Flugvélarnar komu herráðinu í
opna skjöldu og var öllum árásar-
plönum viðvíkjandi Sovétríkjun-
um slegið á frest. Stríðsáformin
voru eflaust ekki einhliða, pró-
fessor Kaku kvaðst hins vegar
einungis geta gert grein fyrir
bandarískum skjölum. Sovét-
menn tíðka ekki birtingu slíkra
hernaðarskjala.
Fjórar stríðslýsingar
Þessi Bandaríkjamaður sem
stýriflaugar mestu máli og Pers-
hing II flugskeytin koma að mest-
um notum í afvopnunarárás. En
ef Bandaríkin ætla að gera árás
að fyrra bragði, henta best
Trident-kafbátar, MX-risaflug-
skeytin og stríðsaðgerðir úti í
geimnum.
Mikilvœgi stjórn-
tœkja
Hvernig tengist ísland þessum
stríðsáformum? Jú - stefnt er að
því að árið 1993 verði Bandaríkin
og bandamenn þeirra reiðubúin
að heyja langvarandi kjarnorku-
stríð á Norður-Atlantshafi. Þes-
skonar stríðsrekstur krefst mjög
flókins og margbreytts fjarskipta-
og eftirlitsbúnaðar. Radarstöðv-
ar, AWACS-flugvélar og annar
rafeindabúnaður eru nauðsynleg
tól, til að stjórna mergð af stýrif-
laugum (cruise missiles).
Rafeindaeftirlits- og upplýs-
ingatæki af þeirri gerð sem verið
er að koma upp á íslandi verða
forgangsskotmörk í kjarnorku-
styrjöld, það gefur auga leið.
Kaku gat þess ennfremur að af-
vopnunarárás Bandaríkjamanna
beinist án efa meðal annars gegn
sovéskum kafbátum í Barents-
hafi og einnig þessvegna geti
hernaðarmannvirki á íslandi ver-
ið Sovétmönnum til mikils skað-
ræðis.
Prófessor Kaku lagði áherslu á
að hann hefði einungis lýst stríðs-
áformum bandaríska herráðsins,
eins og þau liggja fyrir í skjölum
frá herráðinu. Sovétríkin séu
ekki þarmeð saklaus eða skárri,
því miður sé staðreyndin sú að
upplýsingar um áform sambæri-
legra hernaðarstofnana þar í
landi liggi ekki á lausu.
8 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN J Þrlðjudagur 28. ógúst 1984