Þjóðviljinn - 07.09.1984, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 07.09.1984, Blaðsíða 1
Ráftherrar storma á Mtnni riklsstjómarfundlnn í gær. Albert kemur úr gagnstnöii átt. Ljósm. Atll. Ríkisstjórnin Fjárlagagerðin strand í ríkisstjórninni. Bankarnir loka á öll ný útlán ogframlengingar. Staðan verri „en hún hefur verið íáratugi<(. Stuttifundurinn breyttist í harða deilu ráðherranna sem stóð langtfram á kvöld. Steingrímur varð að aflýsa blaðamannafundinum. Það er bara kommusetningin eftir, sagði Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins þegar þingflokkarnir höfðu í fyrradag fjallað um efnahags- stefnuna, Q árlaga vandann og óskalistann frá formönnum stjórnarflokkanna. Ríkisstjórn- arfundurinn í gærmorgun átti að vera stuttur og Steingrímur Her- mannsson hafði látið blaðafull- trúa ríkisstjórnarinnar boða blaðamannafund kl. 15.00 til að kynna samkomulagið. Síðan átti á Framsóknarfundi á Hótel Sögu að baða sig í árangrinum. En þá tók veruleikinn völdin og ráðherramir lentu í hörku- deilum um hvemig ætti að leysa hin raunvemlegu vandamál. Fjárlagagerðin reyndist í algemm hnút. Viðskiptahallinn hafði ver- ið skilinn eftir. Ekkert raunhæft lá á borðunum um erlendu skuld- imar. Ríkisstjómarfundurinn stóð í marga klukkutíma. Upp úr hádeginu var blaðamannafundin- um aflýst. Síðdegis gáfu bankam- ir út tilkynningu um að þeir hefðu lokað á öll ný útlán og fólk og fyrirtæki fengju ekki framleng- ingu á eldri lánum. Um kl. 17.30 kom ríkisstjómin á ný saman til fundar. „Það verð- ur engin niðurstaða á fjárlagalot- unni nú“, sagði forsætisráðherra í viðtali við Þjóðviljann. „Fjár- málaráðherrann er ekki sérstak- ur Þrándur í götu. Spurðu Ragn- ar Arnalds hvemig sé að ná sam- an fjárlögum", sagði forsætisráð- herra stuttur í spuna. Á einum sólarhring höfðu hin raunvem- legu vandamál breytt óskalista- leikriti Þorsteins og Steingríms í hreina martröð. Á fundi ríkisstjómarinnar risu harðar deilur milli ráðherranna um gmndvöll fjárlaganna á næsta ári. Margir ráðherranna vildu koma sér hjá niðurskurði og Al- bert Guðmundsson setti þeim Þorsteini og Steingrími stólinn fyrir dymar. Þegar þessar deilur stóðu sem hæst kom tilkynningin frá viðskiptabönkunum eins og reiðarslag. Þar segir að í pening- amálunum hafi „keyrt um þver- bak í ágústmánuði. Staða bank- anna er nú verri en hún hefur ver- ið í áratugi... Bankamir hljóta enn að draga mjög úr útlánum. Fyrst um sinn verður það að vera í þeim mæli að næst sé tekið fýrir ný útlán... Ennfremur verður framvegis ekki unnt að semja um lengingu lána í þeim mæli, sem áður hefur tíðkast.“ Það em ekki nema nokkrar vikur síðan ríkisstjórnin taldi sig vera búna að leysa vanda banka- kerfisins með því að gefa vextina „frjálsa“. Þorsteinn Pálsson kall- aði þær aðgerðir mestu tímamót í efnahagsstjóminni í marga ára- tugi. Nú er ljóst að tímamótin em þveröfug. Bankamireru komnirí algert strand og loka bara á útlán- astarfsemina. Kenning markaðs- kreddunar hefur reynst blöff. Ríkisstjómin mun halda áfram að funda í dag. m/v/ór Samningarnir Lítiö miðar áfram GuðmundurJ: Þeir eru staðir. Magnús Gunnarsson: Fœristí rétta átt Pað miðar lítið. Það kom til dæmis ekkert út úr þessum fundi okkar og Vinnuveitendasambandsins í morgun, sagði Guðmundur J. Guðmundsson formaður Dagsbrúnar í gær við Þjóðviljann. „Þeirra tilboð em svo lítil og óljós að við gátum ekki gert nein gagntilboð. Þeir em staðir“. Guðmundur bætti við að framhaldið yrði fiklegast þannig að Verkamannasambandið myndi halda sambands- stjómarfund á mánudag, og á þriðjudag yrði svo annar fundur með Vinnuveitendasambandinu. „Við emm að færast í rétta átt“, sagði hins vegar Magnús Gunnars- son hjá Vinnuveitendasambandinu, „menn em famir að horfa á réttu vandamálin. En þetta gengur hægt“. í gær var haldinn framkvæmda- stjómarfundur hjá VSl þar sem menn veltu vöngum yfir stöðunni. Samkvæmt heimildum Þjóðviljans var meðal annars rætt um mögu- legan samningafund við iðnverkafólk yfir helgina, en ýmsir iðnrekend- ur em orðnir órólegir með stöðu samninganna, einkum eftir að fréttist af því að Iðjufélögin hyggðust afla sér verkfalísheimildar á næstunni. Á mánudaginn munu svo vinnuveitendur halda sambandsstjómar- fund, en í því eiga sæti 62 manns hvaðanæva að af landinu. Sá fundur mun því verða nokkurs konar herráðsfundur, og vænta má að uppúr því komi í ljós hvort VSÍ er alvara í að semja, eða hvort Friedman- haukamir svokölluðu, sem vilja verkfall, hafa náð yfirhendinni. -ÖS

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.