Þjóðviljinn - 07.09.1984, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 07.09.1984, Blaðsíða 3
FRETTIR Iðnverkafólk Stefnir í gjaldþrot heimilanna Enginn lifir af 13 þúsund krónum á mánuði. Staða iðnaðarins er mjög góð og svigrúm til kauphœkkana. Eg hef enn ekki hitt einn einasta mann sem heldur því fram að það sé hægt að lifa af þrettán þús- und krónum á mánuði. Það er samt það sem fjöldi iðnverkafólks gerir í dag. Og það eina sem við erum í rauninni að fara fram á í kjarabaráttunni núna er að fólkið fái laun sem það getur lifað af. Er það of mikið? Þetta sagði Guðmundur Þ. Jónsson, formaður Landssam- bands verkafólks, við Þjóðvilj- ann í gær. „Við höfum haldið viðræðu- fundi við iðnrekendur en því mið- ur hefur alls ekkert komið útúr þeim, og það verður að segjast einsog er að það er ekki nokkur hreyfíng í samningunum. En á sama tíma er verðlag að hækka og afkoma heimilanna hefur ein- faldlega stórversnað. Þið hafið verið að birta í Þjóðviljanum dæmi af því hvernig kjör sumra starfsmanna í iðnaði eru og þau eru því miður sönn. Fólk sem lifir á taxtakaupi hefur á stundum tæplega til hnífs og skeiðar. Þetta eru afleiðingar stjómarstefnunn- ar í landinu, sem hefur hreinlega leikið heimilin svo grátt að fáist ekki úrbætur, þá stefnir í gjald- þrot heimilanna.“ Svigrúm til kauphækkana Guðmundur tók sem dæmi, að myndu atvinnurekendur ganga að öllum kröfum iðnverkafólks, þá yrðu flestir samt sem áður ekki með meira en 17 til 19 þúsund krónur miðað við fullan starfsald- ur, þó stöku maður kynni að fara yfir 20 þúsund hafi hann unnið mjög lengi hjá sama fyrirtæki. „Þetta eru nú öll ósköpin sem við förum fram á, og menn geta þá sjálfir dæmt, hvort þetta séu óheyrilegar kröfur“. „Eg tel að það sé mjög gott svigrúm til launahækkana í dag. Það er þensla í greininni. Til dæmis birtast í blöðunum dag eftir dag endalausar auglýsingar eftir fólki, þetta gildir um sauma- stofur en einnig annan iðnað. Það er meira að segja ekki fátítt að iðnrekendur hringi til okkar og spyrji eftir því hvort við höfum eitthvað af fólki á skrá sem þeir gætu fengið í vinnu. Þannig að það er engum blöðum um það að fletta að staða iðnaðarins er góð í dag, og ég veit ekki hvenær er svigrúm til kauphækkana ef ekki í dag“, sagði Guðmundur. Guftmundur Þ. Jónsson: „Engin atvinnugreln stenst tll lengdar nema hún getl brauðfætt starts- fólkið. En þaö gerlr lönaöurlnn tæplega I dag“. Fundahöld framundan - Hvað er þá framundan hjá Landssambandi iðnverkafólks? „Það verða umfangsmikil inn- byrðis fundahöld hjá okkur um helgina. Hjá Iðju á Akureyri og okkur í Reykjavík munu stjóm og trúnaðarmannaráð koma sam- an til að íhuga næsta skref. Það er kominn september og ljóst að við þurfum að athuga okkar gang í baráttunni. Ég á svo von á því að félagsfundir verði hjá Iðjufélög- unum uppúr helginni". - Munuð þið nota fundina til að afla verkfailsheimildar? „Það er alveg ljóst að það lang- ar engan í verkfall. Það er ekki fyrr en í allra lengstu lög sem við íhugum að beita því. Hins vegar hefor nú ekkert gengið né rekið á samningafundum og því ljóst að það þarf að sýna viðsemjendum okkar að það er full alvara á bak við okkar kröfur. Þannig að ég tel líklegt að á fundum stjómar og trúnaðarmannaráðs verði rætt um að afla verkfallsheimildar og það er ekki ólíklegt að við fylgj- um í fótspor annarra félaga sem em þegar farin af stað og öflum okkur verkfallsheimildar“. Guðmundur sagði að lokum að atvinnurekendur þyrftu að gera sér ljóst að það gæti ekki nokkur maður lifað af 13 þúsund krónum í dag. „Það getur engin atvinnu- grein staðist til lengdar ef hún getur ekki brauðfætt sitt fólk. En það gerir iðnaðurinn því miður ekki í dag.“ Það er greinilegt að ríkisstjómin hefur ekki þolað hristinginn af Kröflugosinu. Allt að hrynja til grunna! Kröfluvirkjun Óvenjulega venjulegt Við höfum ekki orðið vör við neinar breytingar hér, sagði Stef- án Gunnarsson í Kröfluvirkjun í gær. Virkjunin gengur sinn vana- gang þrátt fyrir gosið og holumar em eins og þær eiga að sér, sami hiti, sami kraftur og sama gas- hlutfall, en við fyrri Kröflugös hefur gasvirknin yfirleitt aukist í holunum. - Þetta er nánast óvenjulegt, sagði Stefán. Nokkuð dró úr gosinu í gær og skjálftavirkni var lítil sem engin við virkjunina að sögn starfs- manna. Bókagerðarmenn Ekkert miðar í gær var haldinn sáttafundur í deilu bókagerðarmanna og prentsmiðjueigendíEkkert mið- ar í samkomulagsátt en annar fundur var boðaður á laugardag- inn. Líkur á því að ekki verði af boðuðu verkfalli eftir helgi eru litlar. _ ÖS Blaðamenn Ekkert miðar Blaðamenn og útgefendur hitt- ust á fyrsta fundi sínum hjá sátt- asemjara árla í gærmorgun. Ut- gefendur höfðu vísað launadeilu aðila þangað eftir tvo árangurs- lausa samningafundi. Fundurinn í gærmorgun stóð stutt og ekkert nýtt kom fram. Búist er við að nýr fundur með deiluaðilum verði haldinn á morgun eða sunnudag. _ ÖS BM Vallá Hugur Á vinnustaðafundi sem Dags- brún hélt með starfsmönnum steypustöðvarinnar BM Vallá fór meðal annars fram skoðanakönn- un um viðhorf til mögulegs verk- falls. Mennimir gátu valið um tvo kosti, annars vegar að þiggja kauphækkun upp á fimm prósent eða farin á hinn bóginn í verkfall. Af um fjömtíu mönnum sem vom á fundinum sátu þrír eða fjórir hjá en allir hinir vildu frem- ur fara í verkfall en sætta sig við svo lága hækkun. Einsog kom fram í blaðinu í gær verður fundur hjá Dagsbrún í Iðnó á laugardaginn til að afla verkfallsheimildar. _ ÖS ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3 Um 1000 kMimrar og foreldrar bama úr grunnakólum á Raykiavfkuravaaölnu afndu tll fundar I Slgtúnl í gaar. Miklll hugur var I fólkl, og fundar- gestlr sammála um aö kennarastarflö væri f mlkilli kreppu vegna bágra launakjara stóttarlnnar. Marglr tóku tll máls á fundlnum. Ljósm. Atll. Vestfirðir Fjöldaflutningar á hagfræðingum Lítil hreyfing á samningum. Sáttasemjari œtlaði vestur en hœtti við. Að beiðni atvinnurekenda á Vestfjörðum og Alþýðusambands Vest- fjarða fóru hagfræðingar ASÍ og VSÍ ásamt tveimur hagfræðingum kjararannsóknarnefndar vestur á ísafjörð í gær til að aðstoða við ýmsa útreikninga í tengslum við kjarasamninga sem standa yfir vestra. Jafnframt stóð til að sáttasemjari, Guðlaugur Þorvaldsson, flygi vestur í dag og meira að segja var búið að panta fýrir hann flugfar vestur. Það breyttist hins vegar í gær, og Guðlaugur mun ekki fara. Forystumenn innan verkalýðshreyfingarinnar og VSÍ töldu ólíklegt í gær að skriður kæmist í bráð á samninga vestra, þrátt fyrir fjöldaflutn- inga á hagfræðingum vestur á bóginn.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.