Þjóðviljinn - 07.09.1984, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 07.09.1984, Blaðsíða 2
Ferðaþjónustan Höfum enga umsókn fengið Skólafatlaðra var neitað ífyrra afþví Ferðaþjónustan gat ekki annað flutning- num „Hingað hefur ekki borist nein umsókn um flutninga fyrir Skóla fatlaðra f vetur“, sagði Steindór Björnsson, forstöðumaður Ferð- aþjónustu fatlaðra í gær. ,,Það var sótt um þetta í fyrrahaust en við gátum ekki sinnt því að keyra 10 hjólastóla til viðbótar milli klukkan 3 og 4 á daginn.“ Ferðaþjónusta fatlaðra er nú rekin sameiginlega af Reykjavík- urborg, Kópavogi og Seltjamar- nesi og njóta um 300 manns ak- sturs aðallega til og frá vinnu og skóla en einnig annarra erinda. 6 bflstjórar starfa við ferðaþjónu- Hjálmar Arnason kennarl vlð FS, Fjóla Slgurftardóttir verslunar- stjóri og varaformaður VS og Guöjón Omar Hauksson formaður Félags kaupsýslumanna á Suður- nesjum. Starfsnám ÍFS Fjölbrautaskóli Suðurnesja er að hefja starfsnám f samvinnu við þrjá aðila á Suðurnesjum. Verð- ur höfð samvinna við fleiri aðila ef þessi frumraun með tengsl skólans og atvinnullfs tekst vel. Það em Verslunarmannafélag Suðumesja, Félag Kaupsýslu- manna og Kaupfélag Suðumesja sem em í samvinnu við Fjöl- brautaskóla Suðurnesja með 'námskeiðin. 11 verslunargreinar verða kenndar fyrir áramót og kennslustundir verða frá 16.15- 19.15. Nemendur fá frí úr vinnu án þess að launin skerðist og eiga rétt á tveggja launaflokka hækk- un ljúki þeir námskeiðinu. At- vinnurekendurnir greiða 1/3 af námskeiðsgjaldinu og stéttafé- lagið 1/3. -jp I Freeport fundar Freeportklúbburinn boðar til almenns borgarafundar að Hótel Loftleiðum Kristalsal, á morgun laugardaginn 8. september kl. 14.45. Fundarefni er umfjöllun um á- fangaskýrslu áfengjsmálanefndar ríkisstjómarinnar, sem nýlega kom fram á sjónarsviðið og feng- ið hefur töluverða umfjöllun á lesendasfðum dagblaðanna. FRÉTTIR Á sumrln er minna að gera hjá Ferðaþjónustunni og er tíminn notaður til að yfirfara bflana og gera vlð þá. Stelndór Björnsson forstöðumaður fyrirtækislns (á innfelldu myndinnl) segir að Skóla fatlaðra hafi ekkl verið neltað um flutninga í haust, enda hafl engin umsókn borist um slíkt. Ljósm. Atli. stuna sem hefur 5 bfla til umráða og er einn þeirra aðeins notaður til vara, að sögn Steindórs. Hann sagði einnig að Sjálfsbjargarfé- lagar hefðu oft hvatt til þess að fleiri sveitarfélög á höfuðborgar- svæðinu gengju til samstarfs við borgina um þennan akstur. - Hefur komið til tals að neita blindum um þessa þjónustu? „Nei. Á einum fundi stjórnar- nefndarinnar kom það hins vegar til tals að það þyrfti ekki sérstak- lega útbúna bfla til að aka blind- um, en við keyrum þá eftir sem áður og það hefur ekkert frekara gerst í því.“ -Á1 Vélstjóranám Raunhæfe kennslu Norrœna vélstjórasambandið hveturyfirvöld mennta- mála til að notaðir verði vélarúms-samlíkir við kennslu vélstjóra hér líkt og í nágrannalöndum okkar Norræna vélstjórasambandið sem í eru um 20 þúsund fé- lagar, hefur sent Ragnhildi Helgadóttur menntamálaráð- herra og skólanefnd Vélskólans bréf þar sem yfirvöld mennta- mála herlendis eru hvött af þunga tU þess að hlutast til um að vélarúms-samlíkir verði notaðir við kennslu vélstjóraefna á ís- landi. Frá þessu bréfí er skýrt í nýút- komnu tbl. Sjómannablaðsins Víkings. í bréfinu segir að á aðal- fundi norræna vélstjórasam- bandsins NMF sem haldinn var fyrr í sumar hafi verið upplýst að við vélstjórakennslu herlendis væri ekki notaður svokallaður vélarúmssamlíkir. „Á öllum Norðurlöndunum hefur vélstjórum og öðru starfs- fólki í vélarrúmum skipa verið fækkað í algjört lágmark. Af- leiðing þessa er sú að þeir ungu menn sem ráða sig á skip til öflun- ar lögboðinnar starfsreynslu til atvinnuréttinda, fá í fæstum til- fellum raunhæfa verklega þjálfun í notkun og rekstri vélbúnaðarins um borð. Þess vegna verður að afla hluta starfsreynslunnar innan veggja skólans. Þar verður að gefa nemendum kost á, með sem raunhæfustum hætti, að komast í snertingu við og kynnast notkun vélbúnaðar skipa“, segir m.a. í bréfí NMF. Af þessum ástæðum hvetji sambandið af þunga yfirvöld menntunarmála til þess að hlutast til um að slíkur búnaður verði notaður við vél- stjórakennslu hérlendis. -Ig- Bolungarvík Sjálfsbjörg 25 ára Skábraut fyrir hjólastóla sett upp við sjúkrahúsið. Spítalanum afhent þjálfunartœki. 22 félagsmenn og um 40 styrktarmenn. Frá fréttaritara Þjóðviljans í Bolungar- vfk. Igær voru liðin 25 ár frá stofnun Sjálfsbjargar í Bolungarvík. Aðalhvatamenn að stofnun fé- lagsins voru Trausti Sigurlaugs- son og Ingibjörg Magnúsdóttir frá Isaflrði. Fyrsti formaður þess var Kristján Júlíusson kennari, sem gegndi því starfi í 10 ár. Hann var mjög virkur félagsmaður og vann að hugsjón félagsins með oddi og egg. Tveir af stofnfélögunum eru enn búsettir á Bolungarvfk og virk í starfl, þau Birna Pálsdóttir og Jóhann Krist- jánsson. Félagsmenn eru nú 22 og að auki um 40 styrktarmenn. Núverandi formaður er Krist- ján Jensson, en auk hans eru í stjóm Anna Jóna Hálfdanardótt- ir og Jónína Sveinbjömsdóttir. í samtali við fréttaritara Þjóðvilj- ans sagði Kristján að næstkom- andi laugardag yrði haldið uppá afmælið með matarveislu, þar sem boðið væri miðstjóm Sjálfs- bjargar og stjórn Sjálfsbjargar á ísafirði. Þar mun Pétur Pétursson héraðslæknir flytja erindi og Björg Kristjánsdóttir kynna sögu félagsins. Kristján rómaði mjög störf héraðslæknis í þágu félagsins og kvað félagsmenn hafa haft mik- inn stuðning af honum. Þá kom fram hjá honum að félagið hefur safnað fyrir þjálfunartækjum handa sjúkrahúsinu í Bolungar- vík en þau vom formlega afhent í fyrrakvöld. Kristján kvað bæjar- félagið hafa staðið sig vel gagnvart félaginu og öll þjónusta af hálfu spítalans og læknisins væri til fyrirmyndar. Fyrir nokkmm dögum var lok- ið við að setja upp skábrautir við sjúkrahúsið fyrir hjólastóla, sem gjörbreyta allri aðstöðu fyrir hreyfihamlaða. -khg/ÖS Bandalag kennara- félaga stofnað Skrefí áttina til sam- einingar kennara í eitt stéttarfélag Búið er að stofna Bandalag kennarafélaga, en stofnaðilar eru kennarafélögin tvö í landinu: Hið íslenska kennarafélag og Kenn- arasamband Islands. Stofnunin var samþykkt á þingum félag- anna fyrr í sumar, en hún er veigamikið skref í átt til aukinnar samvinnu og síðar meir ef til vill sameiningar allra kennara í eitt stéttarfélag. Á blaðamannafundi í tilefni stofnunarinnar kom fram að helstu stefnumið BK munu vera kröfur um hærri laun, lögvemdað starfsheiti og sjálfstæðan samn- ingsrétt. Þess má geta að samvinna fé- laganna hefur aukist á undan- fömum ámm til muna. Þannig hafa þau gefið í sameiningu út ritið „Ný menntamál“ og síð- astliðið haust stóðu þau einnig saman að fjölmennu uppeldis- málaþingi. Ákveðið var að formaður og varaformaður kæmu hvor frá sínu félagi til skiptis og sætu eitt ár í senn. Hlutkesti réð ákvörðun formanns fyrsta starfsárið og Svanhildur Kaaber frá KÍ mun gegna þeirri stöðu, en varafor- maður er Kristján Bersi Ólafs- son. _ ÖS Stéttarsambandið Vandið betur tilveika Ábendingar til fjöl- miðla Á nýafstöðnum aðalfundi Stéttarsambands bænda voru fjölmiðlar töluvert gagnrýndir fyrir óvandaðan og vilhallan fréttaflutning af málefnum land- búnaðarins. Þykir þar tíðum gæta þekkingarskorts og hirðu- leysis um að afla réttra upplýs- inga, sem ætti þó að vera metnað- armál góðs fjölmiðlafólks. f framhaldi af þessum umræðum samþykkti fundurinn svohljóð- andi ályktun: „Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1984 mótmælir harðlega þeim gegndarlausa og órök- studda áróðri gegn framleiðslu-, sölu- og skipulagsmálum land- búnaðarins, sem iðulega hefur komið fram í fjölmiðlum. Fundurinn skorar á stjómend- ur fjölmiðla að sjá til þess að þeir, sem fjalla um landbúnaðarmál, vandi svo sem við verður komið hverskonar upplýsingaöflun um þau mál sem önnur, þannig að sannleikans sé leitað hverju sinni. Fundurinn felur stjórn Stétt- arsambandsins að standa vel á verði gegn hverskonar rangtúlk- un á málefnum landbúnaðarins og telur að slíku verði best mætt með aukinni upplýsingagjöf til starfsfólks fjölmiðla m.a. með fræðslufundum og kynningar- ferðum“. -mhg 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.