Þjóðviljinn - 07.09.1984, Qupperneq 9
UM HELGINA
Kardimommu-
bærinn
Um helgina hefjast að nýju
sýningar hjá Leikfélagi Akur-
eyrar, á Kardimommubænum í
leikstjóm Teodórs Júlíussonar
sem sýndur var 27 sinnum fyrir
fullu húsi s.l. vor. Sýningar verða
aðeins í septembermánuði.
Fyrstu sýningar haustsins verða á
laugardag og sunnudag kl. 17.00.
Glerblástur
á sunnudag
Ásunnudaginn9. sept. kl. 13.30-
17.00 munu Dönsku glerlista-
mennirnir Finn Lynggaard og
Tohai Munch sýna glerblásturs-
aðferðir í glerverkstæðinu í Berg-
vík á Kjalamesi. Þetta er í tengs-
lum við glersýninguna „Stefnu-
mót glervina“ sem stendur á
Kjarvalsstöðum til 16. sept.
Listafólk frá
Azerbajdsjan
heimsækir
ísland
Nína Kasimova frá Azerbajd-
sjan nefnist þessi söngkona en
hún er ein sovésku listamann-
anna sem koma fram á sovéskum
dögum, sem nú em haldnir á ís-
landi í 9. sinn. Sovésku dagarnir
vom settir á mánudagskvöldið í
Hlégarði með fjölbreyttri dag-
skrá, en í kvöld kemur listafólkið
fram í Varmalandi í Borgarfirði.
Á laugardagskvöld verður dag-
skráin svo flutt í Þjóöleikhúsinu.
Þá verður á laugardag opnuð sýn-
ing að Vatnsstíg 10 á ýmsum list-
munum frá Azerbajdsjan, en þeir
eru frægir fyrir teppagerð,
skartgripi og útsaum.
Exsept hópurinn sýnir um þessar
mundir i Listasafni ASÍ um 60 verk,
málverk, grafík og teikningar. Exsept
hópurinn eru þeir Guðmundur Ár-
mann, Kristinn G. Jóhannsson og Óli
G. Jóhannsson, og sjást þeir hér á
myndinni. Sýningin er opin kl. 14-22
um helgar en 16-22 virka daga.
Sinfónían
út á land
í gær fimmtudag fór Sinfóníu-
hljómsveit Islands af stað í tón-
leikaferðalag um Vesturland og
Vestfirði. Hljómsveitin leikur á
eftirtóldum stöðum:
Búðardal föstudaginn 7. sept. kl.
21.00.
Þingeyri laugardaginn 8. sept. kl.
21.00.
Bolungarvík sunnudaginn 9.
sept. kl. 15.30.
ísafirði sunnudaginn 9. sept. kl.
21.00.
Suðureyri mánudaginn 10. sept.
kl. 21.00.
Patreksfirði þriðjudaginn 11.
sept. kl. 21.00.
Á efnisskránni er m.a. Sin-
fónía í g-moll eftir Mozart, atriði
úr óperum eftir Verdi og Goun-
od, ísL sönglög o.fl.
Einleikari í þessari ferð er Rut
Ingólfsdóttir, fiðluleikari og ein-
söngvari Kristinn Sigmundsson.
Stjómandi er Klauspeter Seibel,
en hann kemur gagngert frá
Þýskalandi til þess að fara í þessa
ferð. Hann er aðalstjómandi fíl-
harmóníuhljómsveitarinnar í
Numberg og fyrsti hljómsveitar-
stjóri ópemnnar í Hamborg.
Seibel hefur ferðast víða og
stjórnað mikið bæði austan hafs
og vestan og er nú nýkominn frá
Japan, þar sem hann stjórnaði
gestaleik óperunnar í Hamborg á
ýmsum ópemm.
„Gott að búa í Kaupmannahöfn" segir Hjálmar. Ljósm. Atli.
Frá Skaga til Hafnar
Hjálmar Þorsteinsson sýnir í Norrœna húsinu.
„Það voru margir hissa á því að
ég skyldi taka mig upp, selja og
flytja af landinu, þegar ég átti að-
eins 7 ár eftir í eftirlaunin. En mig
langaði til að gera þetta, - setjast
að erlendis og helga mig listinni.
Og Kaupmannahöfn er yndisieg
borg og ég stunda söfnin grimmt.
Eftir því sem ég skoða meira af
list erlendis, sé ég æ betur hvað
við eigum frábært listafólk á ís-
landi“, sagði Hjálmar Þorsteins-
son, myndlistarmaður, sem á
laugardag opnar málverkasýn-
ingu í Norræna húsinu.
Hjálmar var myndlistarkennari á
Akranesi og vann m.a. að til-
raunakennslu í mynd- og hand-
mennt með tónlist. Sjálfur segist
hann alltaf mála við tónlist, mest
klassík en einnig við rokk eða
gríska tónlist (Theodorakis).
Hann býr skammt utan við
Kaupmannahöfn og líður vel.
„Það er ódýrt að ferðast og
borða þarna úti. Næst ætla ég að
„éta“ upp vinnustofuna mína
uppi á Skaga, þ.e. selja hana og
Ufa af kaupverðinu um sinn, því
ekki lifi ég af því einu að mála“.
Hjálmar hefur sýnt nokkrum
sinnum áður, 1982 í Listasafni
ASÍ og í október s.l. í húsi Jóns
Sigurðssonar í Kaupmannahöfn.
Innan skamms ætlar hann að
halda sýningu með dönsku lista-
konunni Susanne Rosenkrantz.
þs
Ragna Ingimundardóttir, með tvo keramikmuni sem hún hefur gert.
Málverk
og snertilist
fyrir blinda
Hér sjáum við einn gesta á sýn-
ingu Helga Jósepssonar Vopna í
Þribúðum, Hverfisgötu 42, en
hann sýnir málverk og snertilist,
sem einkum er ætluð blindu fólki.
Þetta er 10 einkasýning hans og
eru 42 verk á sýningunni, þar af
12 upphleypt verk fyrir blinda.
Helgi útskrifaðist úr MHÍ 1974
og er myndlistarkennari á
Vopnafirði. Þar hélt hann sína
fyrstu sýningu 1978 og komu 600
manns á hana, sem þótti gott í
aðeins 900 manna byggðarlagi.
Sýningu hans lýkur á sunnudag-
inn, opið er frá 14-22 um helgar
og 16-22 virka daga.
Keramik í Langbrók
Ragna Ingimundardóttir opn-
ar keramik sýningu í Gallerí
Langbrók á laugardaginn. Hún
lauk námi frá keramikdeild
Myndlista- og Handíðaskóla ís-
lands árið 1981 og hefur síðan
stundað framhaldsnám við Gerrit
Rietyeld Academi í Hollandi.
Þetta er fyrsta einkasýning henn-
ar, en hún hefur tekið þátt í sam-
sýningum. Sýning er opin 12-18
virka daga og helgar frá 14-18.
ITALIA in ISLANDA
Á morgun laugardaginn 8.
september kl. 14.00 mun verða
opnuð sýning á grafíkverkum og
verkum með upphleyftri aðferð
svonefnd „relievografia“, eftir 14
ítalska myndlistarmenn. Sýning-
in verður í Listamiðstöðinni við
Lækjartorg, annarri hæð.
Flest verkin á sýningunni eru
eftir Giovanni Leombianchi sem
er mörgum íslendingum kunnur
eftir að hafa komið hér til lax-
veiða og náttúrskoðunar unda-
nfarin sjö sumur. Giovanni hefur
málað margar myndir hér á landi
auk þess sem hann er með í
yinnslu myndaseríu frá Norðurá í
Borgarfirði.
Giovanni hefur þróað eigið
„stafróf“, sem hann nefnir um-
hverfisstafrófið, eitt tákn fyrir
hvert af frumefnunum sem
mynda jarðlífið, vatn, eldur, loft
og jörð. Þetta tema er gegnum-
gangandi í flestum myndum hans
og vekur mikla athygli.
Þá er ein mynd eftir hvem
hinna 13 listamannanna og vinna
þeir myndir þessar í kringum
tölustafinn sjö. Hver listamaður
túlkar hina magfsku tölu sjö eftir
sínum stíl.
Myndir þessar eru allar unnar í
vinnustofu Giovanni Leombianc-
hi í Mílanó.
Alhr þessir listamenn eiga það
sameiginlegt að starfa að mestu
leyti í Mflanó og telja sig til ít-
alskra listamanna, þótt í hópnum
sé einn breti, einn kínverji og
einn frakki, Maurice Henry.
Listamenn þessir eru reiðu-
búnir að eiga nánari samskipti við
íslenska kollega sína, til dæmis
vinnustofuskipti um lengri eða
skemmri tíma, skipti á sýningum í
galleríum innan vébanda hópsins
og svo framvegis.
Sýningin er opin daglega milli
klukkan 14.00 og 22.00 og lýkur
henni sunnudagskvöldið 16. sept-
ember.
Þá verður á laugardag opnað
gallerí f Listamiðstöðinni, þar
sem leiga og sala á grafík og mál-
verkum fer fram. Er það lítill sal-
ur við hlið sýningarsalsins.
Föstudagur 7. september 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9