Þjóðviljinn - 07.09.1984, Blaðsíða 15
r
Helgar-
sportið
Knattspyrna
Frá 1. deild er sagt annars
staðar á síðunni en í 2. deild er
einnig leikin 17. og næst síð-
asta umferð og þar er geysi-
hörð barátta um hverjir fylgja
FH uppí 1. deild.
Vfðismenn standa best að
vígi, þeir eru með 27 stig og
fara austur á Vopnafjörð þar
sem þeir mæta föllnum Ein-
herjum. Tveir skæðustu
keppinautar þeirra, ÍBÍ og
ÍBV, mætast á ísafirði. Það er
stórleikurinn, bæði lið þurfa
nauðsynlega á sigri að halda.
ÍBÍ er með 26 stig og ÍBV 25.
Völsungur og Skallagrímur
leika á Húsavík. Hvorugt lið á
orðið teljandi möguleika á að
fara upp en vissara þó að af-
skrifa ekki neitt. Tindastóll og
KS, gömlu erkióvinirnir, leika
á Sauðárkróki og KS verður
að sigra til að lifa f voninni um
1. deildarsæti. Allir leikirnir
hefjast kl. 14 á morgun, laug-
ardag.
Fyrri úrslitaleikurinn um
meistaratitil 3. deildar verður
á Ólafsfirði á morgun kl. 14.
Þar mætast Leiftur og Fylkir,
sem leika bæði í 2. deild að
ári. Næstsíðasta umferðin í
úrslitakeppni 4. deildar er
einnig á dagskrá, Léttir og ÍR
mætast á Melavellinum og
Reynir Á. og Tjömes á Ár-
skógsströnd.
Handknattleikur
Riðlakeppni karla á Sumar-
móti HSÍ fer fram í Hafnar-
firði og Digranesi í Kópavogi
um helgina. Keppni hefst kl.
13 á laugardag og sunnudag.
A-riðiIlinn er leikinn í Hafn-
arfirði en hann skipa Valur-b,
Haukar, ÍR, FH og Fram. B-
riðillinn fer fram í Digranesi
og þar eigast við Fylkir,
Valur-a, Grótta, Stjaman og
HK. Úrslitaleikimir um
fjögur efstu sætin fara síðan
fram sunnudaginn 16. sept-
ember.
Golf
Tvö opin mót eru á dagskrá
um helgina. Sveitakeppni GSÍ
fer fram á Hólmsvelli í Leiru á
vegum Golfklúbbs Suður-
nesja, laugardag og sunnu-
dag, og sömu daga fer fram
Nissan-Datsun keppnin í
Grafarholti á vegum Golf-
klúbbs Reykjavíkur.
IÞROTTIR
1. deild
Slæm úrsl'rt
fyrir báða
Jafntefli Fram og Vals heldur Frömurum ífallslagnum og
veikirvon Vals um UEFA-sœti
Grímur Sœmundsen rekinn afleikvelli
Einn leikur var háður f 1.
deildarkeppninni í knattspyrnu á
ValbjarnavöUum í gærkvöldi.
Reykjavfkurfélögin Fram og Val-
ur skUdu jöfn 1:1. Það voru tvær
vítaspyrnur sem gefnar voru með
stuttu miUibUi í fyrrí hálfleik sem
réðu úrslitum. Grfmi Sæmund-
sen var vikið af veUi er fimmtán
mfnútur voru Uðnar af síðarí
hálfleik og spUuðu Valsmenn því
einum færrí það sem eftir var
leiksins. Þessi úrslit veikja nokk-
uð vonir Valsmanna um UEFA
sæti og hjá Fram má ekkert útaf
bregða, æUi liðið að halda sér í 1.
deUd.
Valsmenn fengu fyrsta hættu-
lega tækifærið er Hilmar Sig-
hvatsson átti gott skot á markið
sem Guðmundur Baldursson
varði meistaralega.
Á 18. mínútu dró síðan veru-
lega til tíðinda, eftir þvögu inn í
vítateig Fram skoppaði boltinn í
hönd eins varnarmanns Fram og
Þóroddur Hjaltalín mistækur
dómari þessa leiks dæmdi um-
svifalaust vítaspymu. HilmarSig-
hvatsson skaut boltanum hægra
megin á markið, Guðmundur
Baldursson náði að slæma hend-
inni á boltann, en inn fór hann.
Aðeins þremur mfnútum seinna
fengu Frammarar síðan víta-
spymu. Guðmundur Torfason
átti þá í baráttu við þrjá Vals-
menn og engin vemleg hætta virt-
ist vera á ferðum, Þorgrímur Þrá-
insson ætlaði að teygja sig í knött-
inn en kippti þess í stað löppun-
um undan Guðmundi. Úr vítasp-
ymunni skoraði síðan Guðmund-
ur Steinsson með föstu skoti
neðst í vinstra homið. Valsmenn
vom síðan öllu hættulegri eftir
markið og fengu þrjú tækifæri til
að komast yfir fyrir leikhlé. Fyrst
Valur Valsson dauðafrír inn í teig
en skot hans fór í utanvert hlið-
ametið, skömmu seinna bjargaði
vamarmaður Fram skoti Guð-
mundar Þorbjömssonar og síðan
átti Hilmar Sighvatsson skalla
rétt framhjá.
Fyrri hálfleikur náði því aldrei
að verða neitt skemmtilegur á að
horfa og sfðarí hálfleikur var enn
síðri. Sérstaklega virtust Fram-
leikmennimir hafa lítinn áhuga á
að reyna að spila fótbolta. Yfir-
leitt var boltinn sendur aftur til
markvarðar sem síðan átti að sjá
um að mata sóknarleikmennina
og þær tilraunir gáfu engan ár-
angur.
Á 15. mínútu braut Frammar-
inn Hafþór Sveinjónsson illa
áfyrirliða Vals, Grími Sæmund-
sen með þeim afleiðingum að sá
síðamefndi brást ókvæða við,
hristi Hafþór og skók og fékk að
launum rauða spjaldið. Hárrétt-
ur dómur en Hafþór hefði að ó-
sekju mátt fylgja með, margar
tæklingar hans í leiknum höfðu
verið í meira lagi vafasamar, en
hann slapp í þetta sinn með gula
spjaldið. Það sem eftir var
leiksins leit síðan aðeins eitt vem-
lega hættulegt færi dagsins ljós.
Guðmundur Torfason átti þá
góða sendingu yfir á nafna sinn
Steinsson en skot hans fór í vam-
armann og afturfyrir...
Þorgrímur Þráinsson, Hilmar
Sighvatsson og Guðmundur Þor-
bjömsson vom bestir Vals-
manna. Þá átti Guðni Bergsson
góðan leik að vanda.
Hjá Fram vom þeir nafnar
Guðmundur Steinsson og Torfa-
son bestir þótt þeir fengju ekki
mikið úr að moða. Þá var Þor-
steinn öruggur í vörninni.
Þóroddur Hjaltalín fékk það
lítt öfundsverða hlutverk að
dæma þennan leik og réði hann
ekki við þann starfa. Hann leyfði
leikmönnum liðanna að komast
upp með ljót brot sem síðan á-
gerðust er leið á leikinn.
- Frosti
2. deild
Njarðwik úr leik
Tveir Njarðvíkingar bornir útafog einn
rekinn útaf og FH vann 2:3!
Njarðvfldngar hafa nú misst af
1. deildarlestinni, þeir töpuðu 2:3
fyrir FH á Njarðvíkurvelli í gær-
kvöldi. Þó FH-ingum tækist að ná
forystunni strax á 20. sekúndu
gáfust Njarðvfkingar ekki upp og
jöfnuðu fyrir hálfleik. Seinni
hálfleikinn byrjuðu þeir mjög vel
og komust yfir en þurftu að láta f
minni pokann eflir að einum leik-
manni þeirra, Jóni Halldórssyni,
var vikið af leikvelli fyrír að slá til
andstæðings.
Eins og fyrr segir skoruðu FH-
ingar strax í upphafi. Var þar að verki
Karl Hjálmarsson sem náði knettin-
um eftir að markvörður Njarðvíkinga
hafði misst hann frá sér. Á 15. mín.
jafnar Hermann Hermannsson með
föstu lágskoti frá vítateigshorni f
homið fjær. FH-ingar áttu meira í fyr-
ri hálfleik en í upphafi þess seinni
Ísland-Wales
Forsalan á fullu
Forsala aðgöngumiða á landsleik íslands og Wales næsta miðviku-
dag er á fullu þessa dagana. Mikið hefur verið selt, og í dag verða
miðar seldir f Austurstræti frá kl. 12-18 og um helgina verða þeir á
boðstólum á Heimilissýningunni í Laugardal. Mánudag og þriðju-
dag verður selt f Austurstræti frá 12-18 og á miðvikudag frá 10-16 en
miðasala á Laugardalsvellinum hefst kl. 12 á miðvikudaginn.
náðu Njarðvíkingar góðu spili og á
51. mín. skoraði Haukur Jóhannsson
annað mark þeirra, með skalla eftir
sendingu frá Hermanni. Skömmu síð-
ar munaði minnstu að Hauki tækist
að skora þriðja markið en hann átti
hörkuskot í utanverða marksúlu.
Eftir þetta fer að síga á ógæfuhliðina
hjá Njarðvíkingum. Skúh Rósants-
son er borinn af leikvelli og nokkru
síðar var Jón rekinn útaf.
Einum fleiri fóru FH-ingar að
verða ágengari uppvið markið og á
73. mín. jafnaði Ingi B. Albertsson
með skalla af stuttu færi. Sigurmark
FH skoraði svo Hörður Magnússon,
nýkominn inná, með föstu skoti úr
mikilli þvögu, 2:3 - alveg óverjandi
fyrir Ólaf Birgisson sem kom í markið
skömmu áður fyrir örn Bjamason,
en öm var borinn í roti af leikvelli!
Hjá Njarðvík vom Haukur og Her-
mann H. bestir og hjá FH þeir Ingi
Bjöm og Dýri.
- ÞBM/Suðumesjum
Guðmundur Steinsson stefnir óð-
fluga á markakóngstign 1. deildar.
Grindavík
sigraði
Grindavík sigraði ÍK 3:1 í opn-
um og fjörugum leik í Grindavík í
gærkvöldi. Þetta var síðarí leikur
SV-ríðils 3. deildar. Símon Al-
freðsson, Hjálmar Hallgrímsson
(vfti) og Sigurður Ólafsson (með
skalla!) skoruðu fyrír Grindavtk
en Ólafur Petersen fyrir ÍK.
- VS
Mjólkur-
bikarinn
Nú í vikunni voru leiknir síðari
leikir 1. umferðarinnar í enska
mjólkurbikarnum í knattspyrnu.
Úrslit urðu þessi - samanlögð
úrslit í svigum:
Boumemouth-Aldershot.....0-1 (0-5)
Brlstol R.-Swindon.......0-1 (5-2)
Bury-Port Vale...........2-1 (2-2)
(Port Vale áfram á útimörkum)
Cambridge-Brentford......1-0 (1-2)
Cardiff-Exeter.................2-0 (2-1)
Chester-Blackpool..............0-3 (0-4)
Chesterfld.-Hallfax............1-2 (2-3)
Colchester-Glllingham..0-2 (2-5)
Crewe-Bumley.................0-3 (2-4)
Hartlepool-Derby.........0-1 (1-6)
Hull Clty-Lincoln..............4-1 (6-1)
Mlddlesbro-Bradford C....2-2 (2-4)
Millwall-Reading...............4-3 (5-4)
Newport-Bristol Clty...........0-3 (1-5)
Northampton-Cr.Palace...0-0 (0-1
Oldham-Botton................4-4 (5-6)
Oxford-Hereford..............5-3 (7-5)
Preston-Tranmere...............2-2 (5-4)
Rochdale-Stockport.............1-2 (2-5)
Rotherham-Darlington.....4-0 (6-1)
Southend-Orient..............0-0 (1-2)
Torquay-Plymouth.............0-1 (0-2)
Walsall-Swansea..............3-1 (5-1)
Wlgan-Wrexham................2-0 (5-0)
Wlmbledon-Portsmouth...1-0 (1-3)
YorkClty-Doncaster............50 (8-2)
Önnur umferð fer fram 26.
sept. og 10. okt. en þar koma til
leiks 1. deildarliðin og 14 efstu lið
2. deildar frá í fyrra.
-VS
1. deild
Fallslagur
í Kópavogi
Nœstsíðustu umferð lýkur um helgina
Fyrir tveimur árum vom Breiðablik og KA í svipaðri aðstöðu og nú, léku nánast
hreinan úrslitaleik um fall í 2. deild. Breiðablik vann 2-1 og skoraði sigurmarkið
úr vítaspyrnu sem KA-menn áttu erfitt með að sætta sig við - hór mótmæla þeir
úrskurði Guðmundar Haraldssonar dómara. Hvað gerist í Kópavoginum í
kvöld?
í kvöld kemst fallbarátta 1
deildarinnar í knattspyrnu í há
mark. Tvö neðstu liðin, Breiða
blik og KA, mætast á Kópavogs
velli og hefst viðureignin kl
18.30. Hvorugt lið má við því að
tapa leiknum, slíkt jafngildir nán-
ast falli. Jafntefli er líka mjög
slæmt fyrír báða aðila.
Þór og Víkingur leika á Akur-
eyri kl. 14 á laugardag. Bæði lið
eru enn á hættusvæðinu og þau
verða ekki fullskipuð, Þórsaram-
ir Nói Bjömsson og Sigurbjöm
Viðarsson em í leikbanni ásamt
Víkingnum Ragnari Gíslasyni.
ÍBK og KR mætast í Keflavík á
sama tíma. Þar er Evrópusæti í
húfi fyrir Keflvíkinga en KR er í
talsverðri fallhættu og má mjög
illa við ósigri.
Þróttur og íA leika á Laugar-
dalsvelli kl. 14 á laugardag. Ak-
umesingar hafa ekki að neinu að
keppa, þeir em þegar orðnir ís-
landsmeistarar, en aðra sögu er
að segja af Þróttumm. Þeir em í
talsverðri fallhættu og ekki bætir
úr skák að nýliðinn í landsliðinu,
Ársæll Kristjánsson, er í
leikbanni.
Að loknum þessum leikjum er
aðeins ein umferð eftir - spennan
er því að komast í algjört há-
mark.
-VS
Föstudagur 7. september 1984 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 15