Þjóðviljinn - 07.09.1984, Page 16
Aðalsími: 81333. Kvðldsfmi: 81348. Helgarsími: 81663.
Föstudagur 7. september 1984 202. tölublað 49. örgangur
DJÚÐVIUINN
Suðurland
Verkfall í sláturhúsunum
Munu ekki hleypa sláturhúsunum ígang nema samningar náist.
Verkfall hœfist um aðra helgi. Þýðir ekki að bíða með aðgerðir
Við ætlum ekkert að láta slátur-
húsin fara i gang fyrr en búið
er að semja. Sláturtíðin hefst
þann 17. september og við höfum
boðað verkfall frá og með þeim
degi hafi samningar ekki tekist.
Hjá okkur eru aðstæður þannig,
að það þýðir ekkert að bíða með
aðgerðir framyfir sláturtfð.
Þetta sagði Ingibjörg Sig-
tryggsdóttir formaður Verka-
lýðsfélagsins Þórs á Selfossi við
Þjóðviljann í gær. En Þór ásamt
öllum verkalýðsfélögum á Suður-
landi sem hafa sláturhús á sínu
svæði hefur boðað verkfall fyrir
starfsfólk í sláturhúsum frá og
með þarnæsta laugardegi.
„Það eru búnir að vera tveir
fundir en ekkert gengið saman.
Þeir sem hafa verið í samningun-
um fyrir VSÍ bjóða ekki neitt í
áttina að kröfum okkar“, sagði
Ingibjörg. Hún vildi ekki gefa
upp hvað VSÍ hefur boðið en
Þjóðviljinn hefur komist á snoðir
um að hið eina sem þeir bjóða eru
3 prósentin sem hefðu hvort sem
er komið ofaná launin þann 1.
september, og auk þess viðræður
á samningstímanum um hækkun
á bónusnum!
Ingjbjörg kvað kröfugerðina
miðast við kröfur Verkamanna-
sambandsins, en auk þess vildu
þau fá inn í taxta slátur-
hússfólksins svokallaðan SS-
bónus sem Sláturfélag Suður-
lands veitir föstum starfsmönn-
um. - ÖS
Skákþingið
Loksins
snilld
Fjórða umferð Skákþings ís-
lands fór fram í gær að Hótel
Hofi. Helgi Ólafsson vann Dan
Hanson í einni fallegustu skák
mótsins. Helgi tefldi óaðfinnan-
lega og var mál manna að loksins
væri tefit af snilld á skákþinginu.
Önnur úrslit urðu þau, að
Björgvin og Jóhann gerðu jafn-
tefli og sömuleiðis þeir Haukur
og Karl og Jón L. og Guðmund-
ur. Margeir vann Hilmar en
skákir þeirra Sævars og Ágústar
og Lárusar og Halldórs fóru í bið.
Skák Sævars og Ágústar er tvísýn
og Lárus er með betri stöðu í skák
sinni og Halldórs.
Biðskakir verða tefldar á
morgun, laugardag,kl. 18.
HBa
Helgi Ólafsson vann Dan Hanson í
einni fallegustu skák þingsins og
tefldi óaðfinnanlega.
Þingvallavatn
Sextán
punda uiriði
í vikunni veiddist sextán punda
urriði f net f Þingvallavatni. Líf-
fræðingarnir Sigurður Snorra-
son, Kristján P. Magnússon og
Hilmar Malmquist voru þar við
rannsóknir og lögðu meðal ann-
ars net útaf Miðfelli og fengu þar
þennan góða drátt.
Urriðinn var 80 sentímetra
langur hængur. Áður fyrri voru
boltar af þessu tæi ekki fáséðir í
Þingvallavatni en eftir að Sogið
var virkjað hefur urriðinn misst
af mikilvægum riðstöðvum og er
nú á tiltölulega hröðu undanhaldi
í vatninu. Hængtröll á borð við
þennan eru því fáséð.
-ÖS
Abyrgðarmaðurlnn í prentamlðjunnl með (yrsta tölublað I höndunum. Mynd: Atll.
Fjölmiðlun
ísafokl á götuna
Fyrir borgarastéttina, einkaframtakið og einstaklinginn
ísafold, vikublað fyrir íslendinga, rann útúr
prentvélum Blaðaprents um hádegisbil í gær, og
sfðan útá götumar. Ábyrgðarmaðurinn Ásgeir
Hannes Eiríksson sat prýðilega ánægður þegar
Þjóðviljann bar að og sagði að blaðið væri fyrir
borgarastéttina, einkaframtakið og einstalding-
inn, og mundi höggva þvert á öll önnur blöð.
Um 18 þúsund eintök komu úr fyrstu prentun og
átti að prenta meira síðdegis. Blaðið verður selt í
lausasölu, er 24 síður og útgefandi er auðvitað
Fósturmold hf. Meðal efnis er hólgrein um Miltoi
Friedman eftir Indriða G. Þorsteinsson, níð un
Ustamenn eftir „Freystein", frásögn af heimsóki
Ásgeirs Hannesar Eiríkssonar í bandaríska utan
ríkisráðuneytið og Pentagon, ljóð eftir Brynhild
H. Jóhannsdóttur og gagnrýni á Flugleiðir vegn.
fargjaldamála. Leiðari blaðsins er um gildi þess ai
græða. Á forsíðu er mynd af biskupshjónunun
með Ásgeiri ábyrgðarmanni á vörusýningunni.
- n
Smokkurinn
Veiddur í
flottroll?
Fjórir aðilar hyggjast
veiða smokk íflottroll.
Tilraunaveiðar
1979gáfu
upp í þrjú tonn í hali.
1800 tonn
flutt árlega inn
Pað á að fara að taka smokkinn
f flottroll sagði Einar Jónsson,
þjá Hafrannsóknastofnuninni f
gær, þegar Þjóðviljinn hafði við
hann samband tU að forvitnast
um, hvort ekki væri unnt að nýta
betur þessa merkUegu dýrateg-
und, sem af og tU viUist að strönd-
um íslands.
„Við gerðum tilraunir með að
veiða smokkfisk í troll á togaran-
um Elínu Þorbjarnardóttur þegar
smokkurinn gekk sumarið 1979.
Fyrst notuðum við mjög smáriðið
seiðatroll og það gekk afspymu
illa. En um leið og við fómm að
nota venjulegt flottroll fóm
veiðamar að ganga og allt upp í
þrjú tonn í hali fengust“.
Einar kvað að minnsta kosti
fjórar útgerðir hafa sýnt smokk-
fiskveiðum áhuga og nefndi út-
gerðir Elínar Þorbjarnardóttur á
Súganda, Sölva Bjamasonar,
báts sem er gerður út frá Patreks-
firði, og togaranna Örvars frá
Skagaströnd og Sléttanessins.
„Það er útbreiddur misskiin-
ingur að smokkurinn haldi sig yf-
irleitt við ísland. Það er alrangt,
þessi tegund lifir í djúpum suð-
vestur af írlandi og allt suður á
Azóreyjar. Það er einungis af og
til að hann kemur hingað, síðast
1979 og þar áður hafði hann ekki
sést í ein 14 ár. Hann er svona um
hálft kíló, en stöku dýr fer upp í 3
til 4 kfló“.
Einar taldi sjálfsagt að veiða
smokkinn, því það væru hvort eð
er flutt inn um 1800 tonn. - ÖS
Tll þessa hefur smokkurlnn verlð
velddur á færl, og notaðlr sérstakir
smokkakrókar, einsog þessl sem
sést hér á myndinnl. Nú eru hlns
vegar fyrirhugaðar velðar á
smokkfisk I flottroll. Ljósm. Atll.