Þjóðviljinn - 28.10.1984, Side 2

Þjóðviljinn - 28.10.1984, Side 2
FLOSI skammtur af fíkli „Það var til nokkurs að hætta í brennivíninu", hugsaði ég þegar prentaraverkfallið skall á og ég fattaði nokkuð sem ég hafði ekki áður hugleitt; nefni- lega það, að þó ég væri ekki ofurseldur englaryki, kókaíni, morfíni, heróíni né gúmílími og búinn að vera edrú árum saman, þá var ég rígfjötraður í viðjar ávanans og það af vímuefni, sem góðum mönnum hafði láðst að vara mig við. Það sem meira er: Þetta er efni, sem þjóðinni er byrlað inn daglega í stórum skömmtum og - eins og félagsráðgjafinn sagði á foreldrafundinum: „með lítillri eðaöngri aðgát, nema síður sé“. Og hvert er svo eitrið sem ég var orðinn svona ofurseldur? Lesefni, eða nánar tiltekið dagblöðin og innihald þeirra. Ég er ekki að segja að ég hafi vaknað með krampa, tremens og gæsahúð á morgnana yfir því að fá ekki Moggann í gegnum lúguna hjá mér í morgunsárið. Þaðanafsíður hefur mér nokkurntím- ann dottið í hug að hægt væri að „rétta sig af“ með lesmáli Þjóðviljans, Tímans eða smáauglýsingum DV. Samt var í mér einhver timburmannafílingur, eins og það er stundum kallað í þröngum hópi gleði- manna, en heitir á fræðimáli andleg fráhvörf. Skemmst er frá því að segja, að þegar búið var að kippa öllum blöðunum frá mér leið mér svona líkt og fyllibyttu, sem er búin að gleyma í hvaða blómstur- vasa hann faldi afréttarann. Ó, hvar voru nú lesendabréfin í Velvakanda um Keflavíkursjónvarpið og Dallas, eða hugleiðingar Billý Grahams; hvar voru berrössuðu Lúsíurnar og Súsíurnar sem löngum eru meginuppistaða bænda- blaðsins Tímans, rauðvínshugleiðingar og smá- auglýsingar DV, eða hinir pólitískt stefnumótandi greinaflokkar Þjóðviljans um subkulturens subjekti- vitet og menningar-, þjóðfélagsleg og listræn áhrif pungrokksins á sjálft þungapungrokkið í síðkapítal- ísku samhengi við tilkomu þungapungrokkgrúpp- unnar Fit-Shit og órofa tengsla hennar við marx- leníniska hughyggju? Allt hafði þetta verið frá mér tekið, einsog brjóst úr munni hvítvoðungs. Eina sem eftir stóð var Helgarpósturinn, blað sem ofstækisfullir miðjumenn helga gjarnan andlega krafta sína, okkur hinum til eftirbreytni og nægir skammt til að fullnægja fíkniþörf ástríðufulls blaða- lesara. Og ég hugsaði með mér: „Ég er bara einsog „dóp- isti“ “,en svo fannst mér orðið dópisti svo vont að ég fór að reyna að upphugsa íslenskt orð yfir fyrirbrigð- ið. Og þá var það að mér kom í hugann „fíkill“. Fíkill, ekki sem verst. Hvað um það. Fíkill var ég orðinn og varð að fá eitthvað að lesa til að svala fíkninni. Ég fór í bókabúð og keypti mér Ekstra-Bladet, danskt dagblað undanþegið tollum og opinberum álögum. Innkaupasamband bóksalatekurhinsvegar ómakið af hinu opinbera og sér til þess að blaðið er milli tvö- og þrjúhundruð prósent dýrara hér en í Köben. Ekstra-Bladet býður uppá alla þætti íslenskrarfjöl- miðlunar: Fréttir, fótamennt, það nýjasta í pungrokk- inu og smáauglýsingar. En meðan ég fékk enn Ekstra-Bladet var drýgstur hluti þess helgaður menntamálum í ríki Dana. Annetta nokkur Westrup fyllti forsíðu og baksíðu dögum og vikum saman vegna spánýrra kenninga í menntamálum. Hún taldi að grundvalla bæri nám í skólum á dönskum klámmyndablöðum; er sjálf yfir- kennari og kennir klámblöð, þegar aðrir kenna latínu og algebru. í síðasta Ekstra-Blaði sem ég sá sagði Annetta orðrétt á forsíðu, að það væri undirstaða húman- iskrar menntunar að námsmenn vissu að kynfæri væru jafn mismunandi að lögun og nefin á mönnun- um. Ég segi það bara að ef ég hefði borið gæfu til þess að öðlast menntun í skólanum hjá Annettu þessari, þá hefði ég ekki orðið svona hissa, þegar ég sá þá einu sinni í sjónvarpi stinga saman nefjum Martin Luther King og De Gaulle. Og þá dettur mér rétt einu sinni Ketill Flatnefur í hug. Það er nú meira hvað mér dettur hann oft í hug. En hvað um það. Prentaraverkfallið er búið, blöðin komin aftur og við ávanafíklarnir getum varpað önd- inni léttar. Karlarnir syngja hver með sínu nefi og konurnar líka á viðeigandi hátt. Kannske verður verkfall opinberra líka búið, þegar þessar hugleiðingar birtast á prenti, þó það sé nú fremur ólíklegt. Því það er nú einu sinni rétt, sem ráðherrann sagði á dögunum: „Sjaldan launar kálfur ofbeldi“. I Albert leiddur í sannleikann Nokkru fyrir hina alræmdu ræðu Alberts Guðmunds- sonar um kennarastéttina á Alþingi var hann staddur í kaffihlói á borgarstjórnarfundi og hélt uppi svipuðum firrum og var honum þar mótmælt harðlega af fulltrúum Alþýðu- bandalagsins og Sigurjón Fjeldsted skólastjóri, flokks- bróðir Alberts, kallaður til, til þess að leiðrétta þennan mis- skilning. Það gerði Sigurjón og leiddi Albert í allan sann- leika um málið. Annað hvort hefur Albert ekki skilið Sigur- jón eða ekki viljað skilja hann því að fáum dögum síðar var hin makalausa ræða flutt. ■ Refsistigalisti Eftirfarandi kom frá BSRB- manni: „Fjármálaráðuneytið hefur skipað forstöðu- mönnum stofnana að skrifa hjá sér afbrot starfsmanna og skila afbrotalistum til ráðu- neytis. Nú er hætt við að for- stöðumenn líti mismunandi augum á afbrotin. Þess vegna er nauðsynlegt að ráðuneytið sendi út staðal yfir afbrot til að samræmi sé í matinu. Við ger- um tillögu um eftirfarandi: Fyrir að tala illa um Albert 10.0 refsistig, Ragnhildi 7.5, Höskuld 7.0 og Steingrím 0.2.“ ■ Steingrímur brillerar í Israel í janúar á þessu ári birtist við- tal við Steingrím Hermanns- son í ísraelska blaðinu The Jerusalem Post Magazin og fjallar það aðallega um „efna- hagsundrið" á Islandi enda segir í greininni að Steingrím- ur sé líka fjármálaráðherra landsins. Þjóðviljinn hefur fengið þetta viðtal í hendur og í því segir forsætis(og fjár- málajráðherra að hann hafi skorað á Alþingi að fella niður tekjuskatt, sem sé óréttlátur, og hafi það vakið svo mikla athygli að það hafi verið aðal forsíðufrétt dagblaðanna þá. Ennfremur segir Steingrímur að þó að íslenska ríkisstjórnin hafi skorið niður mikiö af ríkis- útgjöldum hafi ekki verið hreyft við félagslegri þjónustu (svol). Þegar blaðamaður spyr svo Steingrím hvort hann sé reiðubúinn að gefa ísra- elsku stjórninni góð ráð í baráttunni gean verðbólgunni hlær leiðtogi íslendinga við og segir: „Ég er alltaf reiðubúinn að gefa vinum mínum góð ráð“. ■ Kómeiní og verkfallið Fregnir af verkfalli BSRB hafa farið vítt um álfur. Þannig er Þjóðviljanum kunnugt um að íranska sjónvarpið greindi frá því fyrr í þessarri viku með þeim ummælum að á íslandi væri lýðraeði greinilega fótum troðið og ríkisstjórnin bersýni- lega leppur Bandaríkja- manna. Kómeiní veit sýnilega nefi sínu lengra. ■ 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 28. Október 1984

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.