Þjóðviljinn - 28.10.1984, Blaðsíða 6
IÞROTTIR
Norðurlandamótið
Loksins - eftir 20 ár!
ísland sigraði Svíþjóð íjyrsta skipti síðan 1964 - 22-20 í Finnlandi í gœr
Verður ísland Norðurlandameistari í fyrsta sinn í dag?
Fyrir 20 árum vann íslenska
landsliðið í handknattleik fræk-
inn sigur á Svíum, 12-10, í
heimsmeistarakeppninni í Tékkó-
slóvakíu. Næsta leik þjóðanna,
þremur árum síðar, lauk með
jafntefli en i þau fjórtán skipti
sem ísland og Svíþjóð hafa mæst í
A-landsleik síðan hafa Svíar
ávallt sigrað. Þar til í gærkvöldi -
Island vann óvæntan sigur, 22-
! 20, í Finnlandi og á nú góða
möguleika á að verða Norður-
landameistari í fyrsta skipti í dag
- sigur á Norðmönnum og jafn-
tefli eða sigur gegn Dönum myndi
i gera langþráðan draum að veru-
leika. Leikið verður við Dani nú
kl. 9.30 að íslenskum tíma og kl.
116.30 við Norðmenn.
„Ég er mjög ánægður með
leikinn, að undanskildum fyrstu
fimm mínútunum og síðustu
fimm“, sagði Bogdan Kow-
alczyck þjálfari íslenska liðsins í
samtali við Þjóðviljann í gær-
kvöldi. „Þetta jafnaðist á við
jafnteflisleikinn gegn Júgóslöv-
um á Ólympíuleikunum. Við
eigum raunhæfa möguleika á að
verða Norðurlandameistarar en
dagurinn á morgun (í dag) verður
geysilega erfiður, tveir leikir og
lítil hvfld. Sigurinn í kvöld var
dýr, Þorbergur Aðalsteinsson
meiddist eftir 10 mínútur og verð-
ur ekki með á morgun og Sigurð-
ur Gunnarsson og Brynjar Kvar-
an eiga við meiðsli að stríða“,
sagði Bogdan.
Upphafsmínúturnar voru erf-
iðar en Einar Þorvarðarson
fleytti íslenska liðinu yfir þær
með frábærri markvörslu. Síðan
náði íslandi fljótlega undirtöku-
num, lék mjög vel, einkum í
vöminni, og náði fimm marka
forystu fyrir leikhlé, 11-6.
I síðarí hálfleik hélst munurinn
óbreyttur lengi vel, 5-6 mörk, og
sjö mínútum fyrir leikslok hafði
ísland fjögurra marka forystu. Þá
kom talsverð „panik“ í leik liðs-
ins, menn voru reknir útaf með
stuttu millibili og Svíar nýttu sér
það. Þeir lömuðu sóknarleik ís-
lenska liðsins með því að taka
Kristján Arason úr umferð og
þegar ein mínúta var til leiksloka
Danir lentu í stökustu vand-
ræðum með Finna á Norðurland-
amótinu í handknattleik í gær,
áður en íslendingar mættu Sví-
um. Finnar, sem töpuðu 13-32
fyrir íslendingum í fyrrakvöld,
stóðu í danska liðinu allan
leikinn, staðan í hálfleik var 13-
12, Dönum í hag, og þeir náðu að
sigra með þriggja marka mun, 26-
minnkuðu þeir muninn niður í
eitt mark, 21-20. íslenska liðinu
tókst að halda boltanum í 50 sek-
úndur, tíu sekúndum fyrir leiks-
lok skoraði Kristján með hörku-
skoti, 22-20, og langþráður og
góður sigur var í höfn.
f heild lék liðið mjög vel en
tveir stóðu þó uppúr, Einar í
markinu sem varði mikinn fjölda
skota, ein tvö vítaköst og nokkur
hraðaupphlaup, og Kristján sem
var í miklum ham og skoraði heil
ellefu mörk.
Mörkin gerðu: Kristján 11(4
víti), Hans Guðmundsson 3,
Steinar Birgisson 2, Sigurður
Gunnarsson 2, Þorbjörn Jensson
2, Þorbergur Aðalsteinsson 1 og
Páll Ólafsson 1.
-VS
23. Þeir léku þó ekki með sitt al-
sterkasta lið, heldur voru þeir að
prófa tvo nýja leikmenn og það
gekk heldur stirðlega.
Staðan á motinu er þessi:
ísland.........2 2 0 0 54-33 4
Danmörk........2 2 0 0 49-40 4
Svíþjóa........1 0 0 1 20-22 0
Noregur........1 0 0 1 17-23 0
Flnnland.......2 0 0 2 36-58 0
- VS
Norðurlandamótið
Danir í vandræðum!
Einar Þorvarðarson átti snilldarleik í íslenska markinu í gærkvöldi.
Körfubolti
EKKERT
AFGREIÐSLUGJALD
jeyiMff
ÚTTEKT MATVÖRU
SAMKVÆMT NXIU SAMKOMUIAGI
VIÐ MATVORUKAUPMENN
ATHUGIÐ
ÁÐUR BOÐAÐ AFGREIÐSLUGJALD
KEMUR ALDREITILINNHEIMTU
KORTIÐ SEM GILDIR
Yfirburðir
meistaranna
Sigruðu nýliða ÍS114-68 íNjarðvík
í gœrkvöldi
íslandsmeistar Njarðvíkinga
höfðu gífurlega yfirburði gegn
nýliðum ÍS er félögin mættust í
úrvalsdeildinni í körfuknattleik í
Njarðvík í gærkvöldi. Meistar-
arnir komust mest 53 stigum yfir
og sigruðu að lokum með 46 stiga
mun, 114-68.
Strax í upphafí stungu af Njarð-
víkingar og um miðjan fyrri hálf-
leik var ljóst að úrslit gátu ekki
orðið nema á einn veg. Staðan í
hléi var 66-29 og munurinn hélt
áfram að aukast, allt þar til stað-
an var orðin 110-57 skömmu fyrir
leikslok. Þá klóruðu Stúdentar
dálítið í bakkann og skoruðu ell-
efu stig gegn fjórum á lokakaflan-
um.
Njarðvíkurliðið var jafnt og
heilsteypt, nánast sama hvaða
fimm leikmenn voru inná hverju
sinni. Valur Ingimundarson var í
aðalhlutverkinu í stigaskoruninni
og vantaði aðeins eina körfu til að
fylla fjórða tuginn. Árni Lárus-
son náði sér mjög vel á strik í
síðari hálfleik og allir voru vel
„virkir - enginn leikmannanna tíu
skoraði undir fímm stigum.
Lið ÍS var óskaplega dauft og
ósannfærandi og á greinilega erf-
iðan vetur framundan. Skárstir
þar voru Árni Guðmundsson og
Björn Leósson.
Stig UMFN: Valur Ingimundarson 38,
Ellert Magnússon 14, Hreiðar Hreiðarsson
11, Teitur Orlygsson 10, Ami Lárusson 8,
Gunnar Þorvarðarson 8, Helgi Rafnsson 8,
Jónas Jóhannesson 8, Hafþór Óskarsson
6 og Isak Tómasson 5.
Stig ÍS: Björn Leósson 16, Guðmundur
Jóhannsson 14, Árni Guðmundsson 11,
Valdimar Guðlaugsson 10, Ragnar
Bjartmarz 7, Ágúst Jóhannesson 4, Gunn-
ar Ingimundarson 2, Karl Ólafsson 2 og
Þröstur Guðmundsson 2.
Jón Otti Ólafsson og Hörður
Tulinius dæmdu leikinn vel.
- SOM/Suðurnesjum.
Valur Ingimundarson hefur
skorað 64 stig í fyrstu tveimur
leikjum UMFN - gerÓi 38 í gær-
kvöldi.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 28. október 1984