Þjóðviljinn - 23.12.1984, Blaðsíða 7
Viðtalið
undir skapandi tónlist á öllum
sviðum í Bandaríkjunum á und-
anförnum 20 árum. Starf þeirra
hefur verið ómetanlegt og þeir
hafa reynt að berjast gegn ásælni
stórfyrirtækjanna sem ekki hugsa
um annað en hámarksgróða. En
þetta er ekki auðvelt og margt
bendir til þess að djass-tónlist
verði ófáanleg í framtíðinni á al-
mennum hljómplötumarkaði.
Sennilega verður að panta hana í
pósti.“
Markviss
heilaþvottur
- Þegar minnst er á Art En-
semble of Chicago og frábœrt
uppeldisstarf djass-manna þar
vestra, vœrigaman að heyra hvort
unglingar í dag hafi breiðari tón-
listarsmekk en áður.
„Því miður ríkir kreppa í þeim
efnum, eins og reyndar á öðrum
sviðum í þjóðfélaginu. Eftir hina
skammlífu pönk-bylgju, sem var
þó heiðarleg tilraun til að brjóta
upp einhæfa og kerfisbundna iðn-
aðartónlist, virðist ástandið verra
en það hefur verið nokkurn tíma
fyrr. Vídeó-rokkið og sjónvarpið
með sitt „Skonnrok(k)“ er alls-
ráðandi og mótar tónlistarsmekk
unglinganna. Þetta er markviss
heilaþvottur.“
- Hvað með fyrirbœri eins og
„Rás 2“?
„Það er skárra en Skonrok(k)-
pokun eða fáfræði að ræða. Það
er reyndar furðulegt að aldrei er
almennilega fjallað um djass síð-
astliðinna 20 ára. Það er eins og
menn hér heima vilji ekki kann-
ast við það sem hefur verið að
gerast undanfarið í þessari tón-
list.“
Búð og
brallhorn
- Hvar kemur svo búðin inn í
dœmið?
„Hún er náttúrulega partur af
sömu hugmynd og útgáfustarf-
semin og tónleikahaldið. Hún
heldur utan um allt hitt og tengir
það saman. Það væri óhugsandi
að starfa að plötuútgáfu og tón-
leikum ef búðin væri ekki fyrir
hendi. Við reynum nefnilega að
fylgja hinni starfseminni eftir
með hljómplötum og bókum.
Búðin gerir alla dreifingu mun
auðveldari, því vonlaust væri að
standa í slíku stússi gegnum aðrar
verslanir. Þar mundi margt af
þessari starfsemi kafna í sam-
keppni við annað.“
- En nú hafið þið farið inn á
fleiri brautir ísambandi við plötu-
sölu en djass og rokk. T.d. eruð
þið með klassískar hljómplötur,
s.s. eldri upptökur á frœgum
söngvurum og alls konar „raritet"
sem ekki fœst annars staðar. Og
svo er það þjóðleg tónlist frá fjar-
lœgum heimshornum.
„Já, þetta er allt partur af sömu
Grammi
ið. Það versta við vídeó-rokkið er
að það býður einungis upp á
flótta frá raunveruleikanum, inn í
einhverja falska draumaveröld.
Hvað sem segja má um pönkið,
þá voru þar gerðar tilraunir til að
túlka raunveruleikann. En það er
kannski það versta sem fólk getur
hugsað sér; það hryllir við stað -
reyndum tilverunnar.Þaðer allt í
lagi að gefa peninga í Afríku-
hjálpina, einu sinni á ári, en svo
vilja menn helst vera lausir við
vandamálið þess á milli. Það er
greinilegt að ríkjandi öfl í þessum
heimi vilja engu breyta til batn-
aðar. Undir þetta afstöðuleysi
tekur vitundariðnaðurinn með
markaðsrokkinu. “
Hljómleikahald
- Jafnframt útgáfustarfsemi
hefur tónleikahald verið megin-
starfsemi Grammsins. Þar hefur
verið reynt að kynna erlendar
hljómsveitir og tónlistarmenn
fyrir íslenskum áhugamönnum, í
bland við kynningar á íslenskri
tónlist.
„Já, hingað til hafa komið fjöl-
margar rokk-hljómsveitir, s.s.
„The Fall“, „Crass“ og „Psychic
T.V.“. Einnig kom hingað á veg-
um Grammsins ljóðskáldið Lint-
on Kwesi Johnson. Þá hafa ýmsir
djass-tónlistarmenn verið hér á
vegum okkar, s.s. hljómsveitin
„Air“, Braxton og Cryspell, Pet-
er Kowald, Andrew Cyrille og
Leo Smith. Það var raunar leiðin-
legt hve slæma dóma sá síð-
astnefndi hlaut hér, frá hendi
gagnrýnenda. Við skiljum vægast
sagt ekki hvernig á því stendur.
Nú hefur þessi maður verið í
flokki merkari trompett-leikara
djassins síðastliðin 15 ár og hér
heima hélt hann námskeið fvrir
ísienska tónlistarmenn. Svo fær
hann einungis skömm í hattinn
frá gagnrýnendum. Okkur er
spurn hvort ekki sé hér um for-
tilraun, sem béinist að niðurifi
þeirra múra sem umlykja hverja
tegund tónlistar fyrir sig. Við vilj-
um halda því fram að öll heiðar-
leg tónlist, hverju nafni sem hún
nefnist, eigi erindi til fólks hér
heima. Það skipti ekki máli hvað-
an hún komi né hverjir framleiði
hana. Þetta er að okkar mati eina
raunhæfa afstaðan í heimi þar
sem auka þarf skilning þjóða á
millum. Það þarf að vinna bug á
allri þessari þjóðernislegu ein-
angrunarstefnu“.
- Hvað með brallhornið góða,
sem var hér um daginn?
„Við vorum með smá afkima
fyrir fólk sem vildi koma með
góðar hugmyndir í sambandi við
starfsemina. Við höfðum kaffi á
boðstólum og kökur, en plássið
var of lítið ogþegar bókasending-
in kom urðum við að rýma til fyrir
henni. Ef ef búðin stækkar ein-
hvern tíma verður aftur farið af
stað með nýtt brallhorn“.
- Hvaða bœkur eru það sem
þið hafið á boðstólum?
„Það eru bækur sem tengjast
hljómplötunum og öðru því sem
Grammið hefur á sínum snærum.
T.d. ermikið af bókum um svarta
tónlist og menningu svertingja,
einkum í Vestur-Indíum. Svo eru
aðrar með textum, ljóðum og
öðru því sem til felíur og skiptir
máli varðandi stjórnmálabaráttu
þá sem blandast tónlistinni. Svo
fljóta með plaköt af þekktum
rokkurum og ýmsir bæklingar um
tónlist almennt."
- Að endingu, erþetta þakiclátt
starf?
„Tja, þetta er okkar áhugamál.
Við Dóra höfum upplifað bæði
slæma og góða tíð í þessum
bransa. í rauninni er ekki hægt að
svara þessu öðru vísi en játandi,
þar sem þetta er helsta áhugamál
okkar. Við munum halda þessu
áfram hvað sem það kostar.“
HBR
Vissir þú að hjá okkur færðu margar hugmyndir að
góðum jólagjöfum? Gjöfum sem gleðja um leið og
þær gera gagn.
Veitum sérstakan jólaafslátt af verkfærum og ýmsum
vörum fyrir þessi jól:
Skíðabogar á bíltoppinn . kr. 775.-
Bílamottur 4 stk. í setti ... kr. 980.-
Skíðahanskar ............. kr. 240.-
Leikfangabílar ........frákr. 30.-
Tölvuúr ...............frá kr. 233.-
Litlar, þunnar reiknitölvur
Barnabílstólar
Vasaljós
Rakvélar
Olíulampar
Kassettutöskur
Topplyklasett
Vatteraöir kulda-vinnugallar
— og margt, margt fleira.
Gerið svo vel. Komið og skoðið úrvalið.
Sunnudagur 23. desember 1984 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 7