Þjóðviljinn - 23.12.1984, Síða 10

Þjóðviljinn - 23.12.1984, Síða 10
Það sætir jafnan tíðindum þegar frum- sýna á íslenska kvikmynd hér á landi. Á annan í jólum verður nýjasta rhynd. Águsts Guðmundssonar, Gullsandur, sýnd í Aust- urbæjarbíói og bíða væntanlega margir spenntir þeirrar stundar. Af því tilefni ræddi Þjóðviljinn við Ágúst og þrjár persónur í myndinni. Voru tvö viðtalanna tekin í sumar, annað við blökkukonuna Glendu Nordé sem fór jafnskjótt og hún hafði lokið við hlutverk sitt í myndinni til síns heima í London, hitt við Abdou sem dvalist hefur hér á landi í báðum þrjú ár og leikur hann bandarískan hermann í Gullsandi. Aðal inntak þeirra viðtala eru kynþáttafordómar og misrétti. En sá grunur leikur á að Ágúst hafi eitthvað við þau mál að athuga. Þá er rætt við „blaðamann Þjóðviljans“ í myndinni, leikkonuna Hönnu Maríu Karls- dóttur, um þessa jómfrúrullu hennar í kvik- mynd. Framlag til friðar- samtaka Hstamanna Myndin fjallar um viðkvœmasfa deilumdl þjóðarinnar, þ.e. ef bjórinn er undanskiiinn Þaö er yfirleitt nokkuð Ijóst að á þessum tíma árs færist mik- ill spenningur í fólk, enda mörg tilhlökkunarefnin rétt fyrir jólahátíðina. Hinsvegar eru margir þeir sem bíða eftir einum degi sérstaklega um hátíðirnar með óvenju mikilli tilhlökkun og eftirvæntingu. Dagurinn er annar í jólum, hinir mörgu eru unnendur góðrar kvikmyndagerðarlistar og tilefnið er frumsýning ný rr- ar kvikmyndar leikstjórans Ágústs Guðmundssonar, sem ber nafnið Gullsandur. Þjóðviljinn greip Ágúst glóð- volgann í stutt viðtal, nýkom- inn frá London með afkvæmið fullskapað. - Flytur myndin þín nýja ein- hvern boðskap?~ - Hah! Þú spyrð eins og hann Páll Heiðar forðum þegar frum- sýna átti Útlagann. En, hmm, já. Hún er ekki áróðursmynd og er ekki að auglýsa einhverja á- kveðna stefnu. En írhenni koma þó fram skoðanir án þess ég sé beinlínis að þröngva þeim upp á aðra. Pegar ég byrjaði að skrifa handritið þá hugsaði ég það að sumuleyti sem framlagtil friðar- samtaka listamanna og þess sem þau standa fyrir. Ég vona að eitthvað eimi eftir af þeim ásetn- ingi. Myndin fjallar um viðkvæm- asta deilumál þjóðarinnar, þ.e.a.s. ef bjórinn er undan- skilinn, sem er vera bandaríska hersins á landinu. Öll umræða um þau mál hefur verið á einn veg, þ.e. á milli tveggja and- stæðra hópa. Kannski að í mynd- inni felist, þrátt fyrir alla gaman- semina, tilraun til að fjalla um þessi mál með nýjum hætti. En það kemur ansi margt inní þetta. Við vitum t.d. að upphaflega máttu ekki vera blökkumenn í hernum hér á landi og það voru fslendingar sem settu þau skil- yrði. - Sýnir myndin e.k. sveita- mennskuhugsun? - Hún sýnir ekki eingöngu sveitafólk Jieldur fyrst og fremst íslendinga og í rauninni stendur hreppsnefndin í sama vandamáli og Alþingi íslendinga í þessum málum sem öðrum. - Stílbrögð í myndinni? - í öðrum myndum mínum hef ég tekið eftir jóeirri tilhneigingu að gefa hlutina í skyn frekar en að hamra á þeim, láta lítil atvik túlka stóra hluti eins og t.d. persónu- einkenni o.þ.u.l. Meira að segja í Útlaganum fannst mér nauðsyn- legt að taka tiltölulega raunsæja stefnu og sýna hversdagslíf fólks sem margir aðrir leikstjórar hefðu gert að fornaldarhetjum á borð við Conan the Barbarian. Pessi tilhneiging verður svo enn ljósari í Með allt á hreinu. Pó að kímnin þar sé á stundum dálítið stórkarlaleg, þá hef ég tekið eftir því að fólk hlær að smáatriðum sem virðast ekki mikilvæg á yfir- borðinu, smáatriðum sem gjarna koma upp um eitt og annað í fari viðkomandi persónu. Þessi kímni felst í því að sýna venjulegt fólk í skringilegum kringumstæðum frekar en að sýna skringilegt fólk í venju- Iegum kringumstæðum, sem oft er inntak gamanleiks. Stíllinn í Gullsandi byggist einmitt á þess- um atriðum. l.mar. Þessi kímni felst í því að sýna venjulegt fólk í skringilegum kringumstæðum frekarenaðsýnaskringilegtfólkívenjulegum kringumstæðum, sem oft er inntak gamanleiks. Heit frétt fyrir Þjóðviijann Hanna María Karlsdóttir leikur veigamikið hlutverk í Gullsandi, sem blaðamaður Þjóðviljans...Það þótti þvítil- valið ao spyrja hana eilítið útúr. - Hvað er blaðamaður Þjóð- viljans að vilja inní bíómynd.? - Nú, hann þóttist þar hafa fiskað eina feita frétt. Hann fær símtal úr sveitinni um að Banda- ríkjamenn séu að gera usla þar, og þá vaknar nú brjóst Þjóðviljans heldur betur... - Hver hringir? - Ja, það er ungur maður, sem við getum sagt að sé ákaflega pólitískt meðvitaður. Ég leik þarna ákaflega metnaðarfulla blaðakonu og því er mér mikið í mun að verða fyrst á vettvang. Enda hlýtur þetta að vera heitari frétt fyrir Þjóðviljann heldur en önnur blöð á landinu. Að geta klekkt á Kananum, er það ekki málið? En einhvernveginn fengu blaðamenn DV nasaþefinn af fréttinni, og þetta endar með spennandi samkeppni blaðanna um fréttina. sem svo varð engin risa forsíðufrétt.. - Og fœr Þjóðviljinn það sem - Nei, þetta var ekki það sem - Við hverju bjóst hann? hann sóttist eftir? hann bjóst við. - Risaforsíðufrétt, manneskja! „Blaðamaður Þjóðviljans": - Að geta klekkt á Kananum, er það ekki málið? Hernaðarlegum uppljóstrunum, ég segi ekki meira um það... - Þetta er í fyrsta skipti sem þú leikur í kvikmynd, ekki satt? -Jú og það var geysilega gaman að kynnast þessu apparati, kvik- myndatökuvélinni. Én égvarlíka þar af leiðandi skíthrædd við þetta. Þegar ég hugsa um að mað- ur eigi eftir að birtast á breiðtjaldinu fæ ég óteljandi fiðr- ildi í magann. Annars mættu íslenskir leik- stjórar gjarna halda námskeið fyrir íslenska leikara í kvik- myndaleik, kenna þeim að leika fyrir framan kvikmyndavélar og losa þá við þessa hræðslu sem leikarar verða margir hverjir gripnir, þegar þeir standa and- spænis vélunum. Annars var yndislegt að vinna með þeim Gústa og Sigurði Sverri, og allt starfsliðið var með eindæmum hjálplegt og mórall- inn góður. Og það skiptir ekki svo litlu máli skal ég segja þér, að vinna með fólki sem maður getur treyst. I.mar. 10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 23. desember 1984

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.