Þjóðviljinn - 23.12.1984, Qupperneq 14
ra Fóstrustarf
V
Laus staöa fóstru á leikskólanum Kópahvoli, 50%
starf.
Uppl. veitir forstöðumaður í síma 40120. Laun samkv.
kjarasamningi Kópavogskaupstaðar. Umsóknum
skal skila á þar til gerðum eyðublöðum, sem liggja
frammi á Félagsmálastofnun Kópavogs Digranesvegi
12 og veitir dagvistarfulltrúi nánari uppl. um starfið í
síma 41570.
Félagsmálastofnun Kópavogs
Atvinna í boði
Rannsóknarstofnanir sjávarútvegsins óska
eftir að ráða húsumsjónarmann frá og með 1.
jan. 1985. Laun samkv. launakerfi opinberra
starfsmanna. Umsóknir berist skrifstofunni
að Skúlagötu 4 fyrir 31. des.
Fjölbrautaskólinn
við Ármúla
Kennara vantar í viðskiptagreinar á vorönn 1985 að
Fjölbrautaskólanum við Ármúla.
Upplýsingar gefur skólameistari í síma 621424.
Jólatrésskemmtun
Læknafélags Reykjavíkur og Lyfjafræðingafélags ís-
lands verður í Domus Medica fimmtudaginn 27. des-
ember og hefst kl. 15.00.
Jólasveinninn
Söluskattur
Viðurlög falla á söluskatt fyrir nóvember mánuð 1984,
hafi hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 27. þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir hvern
byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau eru orðin
20%, en síðan reiknast dráttarvextir til viðbótar fyrir
hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með 16. janúar.
Fjármálaráðuneytið,
17. desember 1984
Starfsmannastjóri
Laus er til umsóknar hjá Orkustofnun staða starfs-
mannastjóra.
Auk starfsmannastjórnar felur starfið í sér kynningu á
starfsemi stofnunarinnar. Lögfræðimenntun er
æskileg.
Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf send-
ist Orkustofnun fyrir 15. janúar 1985. Forstjóri
Stjórnsýsludeildar veitir nánari upplýsingar.
yrq ORKUSTOFNUN
r~ GRENSÁSVEGI 9 - 108 REYKJAVlK
Útboð
Bifreiðatryggingar
Tilboð óskast í bifreiðatryggingar ríkisbifreiða. Út-
boðsgögn eru seld á skrifstofu vorri og kosta kr.
500.00.
Tilboð verða opnuð á sama stað, 22. janúar 1985, kl.
11.00 f.h.
NNKAUPASTðfNUN RÍKISINS
íORGARTÚNI 7 sfiSfaS&M PÓSTHétF 1441 TELEX 2006 |
^eggjum ekki af staO i ierðalag i lélegum bíi eða illa útbúnum.
Nýsmurður bíll meðhreinnioliuog yfirfarinn t.d. á smurstöð er lík-
legur til þess aö komast heill á leiðarenda.
yUJgERDAR
EÆJARRÖLT
Ein er upp til fjalla
yli húsa fjær.
Ég þekki fólk sem hefur tekið
kvæði skáldsins svo bókstaflega
að það getur ekki hugsað sér að
leggja sér rjúpur til munns. Ég er
ekki einn þess enda hef ég vanist
við það að éta rjúpur á jólum frá
blautu barnsbeini og tel það álíka
mikinn hluta af jólunum og jóla-
tré og hangikjöt. Samt er ég hinn
mesti andstæðingur alls dráps og
hef aldrei getað tekið mér byssu í
hönd. Meira að segja veiðistangir
eru mér þyrnir í augum.
En hvað um það. Á aðfanga-
dagskvöld verða rjúpur á boð-
stólum hjá mér og hafa þær und-
anfarið hangið úti á verönd og
blakað vængjum alblóðugar.
Kettir hverfisins hafa horft löng-
unaraugum til þessarar girnilegu
bráðar en orðið frá að hverfa sak-
ir þess hve hátt þær eru uppi.
Kötturinn minn, hann Diddi,
gerði tilraun til að klífa stólpann,
sem næst þeim er, en gafst fljót-
lega upp enda er hann hálfgerður
kettlingur ennþá.
Svo var komið að því að ham-
fletta þær og það er ekki mín
sterka hlið. Þegar ég var barn í
Ein er upp ti
a a
sveit var ég látinn halda fati undir
kind sem var skorin á háls til að
láta blóðið drjúpa í það og hefur
alltaf farið hrollur um mig síðan
þegar ég hugsa til þess. Að sjá
augu bresta og finna lykt af volgu
blóði og innyflum fannst mér afar
óþægilegt. Samt finnst mér slátur
og kindakjöt gott.
Rjúpurnar lágu sem sagt á eld-
húsborðinu. Ó, mig auman. Ég
greip sveðju, beit á jaxlinn og
skar hausinn af þeirri fyrstu. Síð-
an fóru vængir, stél og fætur
sömu leið. Þar næst greip ég um
mjúka bringuna og svipti henni
frá holdi og beinum. Upp gaus
sterkur þefur en mér til undrunar
fékk ég ekki velgjubragð í munn-
inn heldur kom vatn í munninn
þegar ég fann lyng- og berjailm-
inn blandaðan líkama blessaðrar
rjúpunnar. Villimaðurinn kom
upp í mér og ég greip þær eina
eftir aðra og hamfletti. Fiður
sveif um allt eldhúsið og blóð
slettist út á gólf. Kötturinn Diddi
hallaði undir flatt og kynlegur
glampi sást í augum hans. Það er
villidýrið.
Já, svona er maður nú þrátt
fyrir allt. Einu sinni var ég með
vinnuflokki úti á landi og riffill
var meðferðis. Strákarnir fóru að
skj óta og brátt rann á þá æði. Þeir
skutu allt kvikt sem þeir sáu: krí-
ur, lóur og hvaðeina. Það var við-
bjóðslegt og ég var sá eini sem
neitaði að taka þátt í þessum ljóta
leik. Óspart var gert grín að mér
fyrir en ég þóttist meiri maður að.
Kannski var ég ekkert betri.
Maðurinn er grimmasta dýr jarð-
arinnar. En það er náttúrulega
munur á því að drepa sér til
skemmtunar eða drepa sér til
matar, segi ég.
Brátt lágu rjúpurnar snyrtilega
hlið við hlið, búið að fletta af
heim hamnum, skera af þeim alla
útlimi, taka innyflin og fóarnið
innan úr þeim og þurrka kjötið
varlega með rakri dulu. Mikið
hlakka ég til jólanna, fæðingar-
hátíðar frelsarans sem boðaði
frið á jörðu.
- Guðjón.
ALÞYÐUBANDALAGIfl '
ABR Breiðholt auglýsir Opið hús á Hverfisgötu 105 Á morgun, laugardaginn 22. desembeijverður oþið hús að Hverfis- götu 105frá kl. 18-23. Jólakaffi, kökurog jólag... (ekki blettir) frákl. 19.00. Árni Björnsson lítur inn og spjallar um jólaglögg og Stefán Jónsson ræðir um Sína menn. Söngvar, gamanmál og fleira. Gangið við í Flokksmiðstöð Alþýðubandalagsins meðan á jóla- innkaupunum stendur og takið þátt í stemmningunni með okkur. ABR Breiðholt Flokksfélagar Greiðið gjöldin! Ágætu flokksfélagar í AB. Munið að greiða heimsenda gíróseðla vegna flokks- og félagsgjalda ársins. Gíróseðla má greiða í öllum pósthúsum og bankaútibú- um. Markmiðið er að allir verði skuldlausir um áramót. - Gjald- kerar. Stjórn ABR
GERIÐ SKIL SEM FYRST
HAPPDRÆTTI
PJÓÐVILJANS 1984
Miðaverð 100 krónur.
Nr. 1 7200
VINNISGAR:
I Corona tölva
2. Farseðill frá Samvinnuferðum-Lands\n
3. Húsgögn frá íslenskum husbúnaðt hf.
4. Húsgögn frá Furuhúsinu hf.
5. Húsgögn frá Arfelli hf.
6. Heimilistceki frá Fonix sf.
7. Hljómtaki frá Japis-hf.
8. -13. Bókaúttektir hjá Bókaútgáfu Máls
og menningar kr. 5.000.00 hver
V erðgiUi kr.
92 000 M
30000 00
30 000.00
30.000.00
30.000.00
30.000.00
30 000 00
30.000.00
Dregid verður 23. des. J984.
Upplýsingar í síma 81333.
Samtals kr '02 000 00
Fjóldi miða 32.1XH)
Vinningar óskast sóttir fynr 23 /uni 1985
Hægt er að gera skil á afgeiðslu Þjóðviljans Síðumúla 6, hjá Alþýðubandalaginu Hverfisgötu 105,
hjá umboðsmönnum um land allt, greiða með gíróseðli í banka eða pósthúsi (sjá sýnishorn um
útfyllingu). Á Reykjavíkursvæðinu er hægt að sækja greiðslu til þeirra sem þess óska og er tekið
við þeim beiönum í síma 81333.