Þjóðviljinn - 20.01.1985, Side 10

Þjóðviljinn - 20.01.1985, Side 10
Fyrsta stjórn Félags bifvélavirkja, kjörin 17. janúar 1935: Nicolai Þorsteinsson gjaldkeri, Eiríkur Gröndal formaður og Óskar K.B. Kristjánsson ritari. Valdimar Leonhardsson, sem gegndi formennsku í félaginu í tæpa 2 ára- tugi. Félag bifvélavirkja 50 óra Félag bifvélavirkja er 50 ára um þess- ar mundir. Félagið var stofnað 17. janúar 1935 í Bárunni við Vonarstræti. Fyrstu stjórn félagsins skipuðu þeir Eiríkur Gröndal, formaður, Óskar K.B. Krist- jánsson ritari og Nicolai Þorsteinsson gjaldkeri. Stofnendur félagsins voru 60 talsins. Valdimar Leonhardsson tók við formennsku félagsins 1937 og gegndi henni allt til 1960 er Sigurgestur Guð- jónsson tók við. Sigurgestur var formað- ur félagsins til 1976, en núverandi for- maður er Guðmundur Hilmarsson. Vasklegur hópur bifvélavirkja á verkstæði Ræsis 1942. Menntunarmálin mikilvœg segir Guðmundur Hilmarsson núverandi formaður félagsins Guðmundur Hilmarsson er núverandi formaður Félags bifvélavirkja. Við lögðum fyrir hann nokkrar spurningar um stöðu félagsins og iðngreinar- innarídag. í Félagi bifvélavirkja eru nú um 480 félagsmenn og nær fé- lagið til alls Stór-Reykjavíkur- svæðisins og Ámessýslu. Auk kjaramálanna eru helstu verkefni félagsins nú tengd menntunarmálum : annars vegar endurskipulagningu bifvéla- virkjadeildar Iðnskólans og hins vegar höfum við staðið að endur- menntunamámskeiðum fyrir starfandi bifvélavirkja. Að þessu höfum við unnið í samvinnu við atvinnurekendur í Bflgreina- sambandinu. Þá má einnig geta þess að við höfum fengið Þórunni Björns- dóttur sjúkraþjálfa til þess að halda námsskeið á vinnustöðu- num í réttri líkamsbeitingu við Guðmundur Hilmarsson við fé- lagsfána Félags bifvélavirkja. vinnuna og hefur Þórunn einnig gert tillögur um bætta vinnuað- stöðu með tilliti til líkamsbeiting- ar. Þá stendur einnig yfir endur- skoðun á reglugerð frá 1953 um vinnuaðstöðu á bifreiðaverk- stæðum, og er endurskoðunar- nefndin skipuð fulltrúum Vinnu- eftirlitsins,Félags bifvélavirkja og atvinnurekenda. Pið eruð með sýningu í tilefni afmœlisins? Já þetta er sýning sem á að sýna þá þróun sem átt hefur sér stað á þessu 50 ára tímabili. Jafn- framt er á sýningunni sýnt gró- flega hvernig námsaðstaðan var í Iðnskólanum fyir á ámm. Þá fannst okkur tilhlýðilegt í tilefni þessara tímamóta að láta skrifa atvinnulífssögu greinarinn- ar. Það er Ásgeir Sigurgestsson sem unnið hefur að þessu verki síðastliðin 2 ár. Mikilvægt er að allir þeir sem lúra á gömlum ljós- myndum eða öðrum heimildum hafa samband við skrifstofu félagsins eða Ásgeir beint. ólg. 'ö ö tö £ 'O 'ö> 0) tn nmmmm > ö '<D z m mnmmm JQ c 8 co C 'O *o D 0 j5 0 ö) % D ö> ln Við vorum aliir með Sigurgestur Guðjónsson sat í stjórn Félags bifvélavirkja í 41 árog hefursetiðþarlenguren nokkurannar. Hann varritari félagsins í 25 ár frá 1935- 1960 er hann tók við for- mennsku þess. Henni gegndi hann til ársins 1976 eða í 16 ár. Sigurgestur starfar nú hjá Brunabótafélagi íslandsvið útreikninga bifreiðatjóna, og það var þar sem Þjóðviljinn hitti hann að máli eftirvinnu- tíma til að ræða gamla daga í tilefni af 50 ára afmæli Félags bifvélavirkja. Þegar fyrstu samtök bifreiða- viðgerðarmanna voru stofnuð á árinu 1929 unnu á milli 40 og 50 manns í faginu og þá var einungis greitt fyrir unna tíma á verkstæð- inu og var greitt dagvinnukaup hvort sem unnið var að degi, kvöldi eða nóttu. Af þessu leiddi að þeir sem þurftu á þjónustu verkstæðanna að halda komu þangað ógjarnan á sínum vinnut- íma og vinnutími viðgerðar- manna á bflaverkstæðunum var að verulegu leyti utan hefðbund- ins vinnutíma. Svo sátu menn að- gerðarlausir og kauplausir um leið á verkstæðunum á daginn. Haustið 1929 tóku menn sig sam- an um að fara fram á eftirvinnuk- aup þegar unnið var eftir klukkan 7 á kvöldin. Það voru þeir Vil- hjálmur H. Jóhannesson og Ósk- ar K.B. Kristjánsson, sem þar stóðu fremstir í flokki. Jafnframt var stofnað félag, en það lognað- ist fljótlega útaf. Félagið stofnað Næst komst svo skriður á þetta veturinn ’33-’34, en þá var fyrst og fremst unnið að því að fá fagið samþykkt sem iðngrein. Verk- stæðiseigendurnir stóðu með í þeirri baráttu. Á þessum tíma voru 8 eða 10 verkstæði í Reykja- vík. Félagið var svo stofnað í jan- úar 1935 og voru stofnfélagar þess 60 talsins. Bifreiðaviðgerðir hlutu síðan viðurkenningu sem iðngrein um sumarið i 1935, og hlutu þeir sveinsréttindi sem voru búnir að vinna í faginu í meira en 4 ár. Fyrstu sveinsprófin voru síð- an haldin í janúar 1936. Þegar búið var að ganga þannig frá hin- um faglegu réttindamálum, gat félagið farið að huga að kjara- málunum. Það var hins vegar erf- iðleikum bundið vegna þess að atvinnurekendur og verkstæðis- eigendur voru þá einnig félagar í Félagi bifvélavirkja. Árið 1937 var það hins vegar samþykkt, að þeir einir gætu verið félagar í Fé- Íagi bifvélavirkja sem væru launþegar og veittu ekki öðrum atvinnu í iðninni. Þar með var fé- lagið orðið að hreinu stéttarfé- lagi. Var nú leitað eftir samning- um við verkstæðiseigendur, en það gekk mjög treglega. Var þá sótt um inngöngu í Alþýðusam- band íslands og síðan var boðað verkfall í júní 1937 sem stóð í 5 vikur. Þá loksins var samið um kaup og kjör. Fyrsta verkfallið Hver urðu áhrif þessarar fyrstu verkfallsreynslu félagsins? Menn voru eðlilega mjög óhressir með það hvað illa gekk að ná samningum. Ég tel hins vegar að það hafi orðið félaginu mjög til góðs að samningarnir náðust ekki fyrirhafnarlaust, því verkfallsreynslan þjappaði mönnum saman og herti þá í bar- áttunni og félagið bjó lengi að þeim kjarna sem þá myndaðist. Þú hefur tekið þátt í þessu verkfalli, - hvað varstu gamall þá? Ég er nú hræddur um það, ég var 25 ára. Hafði þetta áhrif á þig persónu- leg? Já, þetta hafði mikil áhrif á mann til virkari þátttöku í félags- málum. Ég var kominn í stjórn félagsins þegar þetta var og ritaði undir samninginn fyrir hönd þess. Þessi fyrsti samningur okk- ar hljóðaði ekki upp á fast vikuk- aup, heldur var einungis um að ræða taxta á tímakaupi fyrir unn- ar dagvinnu- og eftirvinnustund- ir. Tímakaupið var ein króna og sextíu eða sjötíu aurar ef ég man rétt og til þess var ætlast að við sætum og biðum eftir að verkefni bærust kauplausir þegar lítið var að gera. Ég man eftir því að eina vikuna 1939 var ég með 27 kr. í laun eftir vikuna og var þá hæstur þeirra 9 manna sem unnu á verks- tæðinu hjá Jóhannesi Ólafssyni & Co. Þetta var meira árstíðabund- in vinna þá en nú. Það var oft nóg að gera á sumrin, en að minnsta kosti á veturna vorum við of margir. Það kostaði jú verkstæð- iseigandann ekkert aukalega að hsfa fleiri menn þar sem einungis unnar stundir voru greiddar! Hvenær breyttist þetta? Ætli það hafi ekki verið á árun- um '42-44. Margt bilaði í þessum bílum Hvernig voru bílarnir á þessum tíma? Voru þeir sterkir og endi- ngargóðir miðað við bflana í dag? Á þessum tíma var mest um litla eins og hálfs til tveggja tonna vörubfla og fólksbfla sem tóku 5- 7 manns. Strætisvagnar komu upp úr 1930 og langferðabílar fara að koma um svipað leyti. Áður var fólk flutt í svokölluðum boddí-bflum, sem voru yfir- byggðir pallbflar. í rauninni var margt veikt í þessum bflum, og þeir þurftu mikið viðhald. Veg- irnir voru líka slæmir og buðu ekki upp á góða endingu. Hemla- búnaður var oft lélegur og mikið um fjaðrabrot fyrir utan venju- legar vélaviðgerðir. En nú entust þessir bflar oft mikið lengur en nútímabflar gera? Það verður að taka það með í reikninginn að keyrslan var mun minni á þessum árum. Algengt var að fólksbflum væri hreinlega lagt yfir vetrarmánuðina. bflum er í dag ekið mun meira þótt þeir endist kannski skemur. Annars má segja að yfirbygging bflanna á þessum árum hafi verið úr þykkra og vandaðra efni en nú tíðkast. Eitt af því sem olli minni endingu gömlu bflanna var hins vegar sá vani sem hér skapaðist að hlaða þá langt umfram uppgefið burð- arþol. Það er í rauninni tiltölu- lega stutt síðan farið var að ganga eftir því að bflar væru ekki of- hlaðnir. Hvenær byrjaðir þú að vinna að bflaviðgerðum? Ég byrjaði að vinna í þessu 1929. Fyrstu 3 mánuðina fékk ég ekkert kaup, en síðan átti ég að fá 100 krónur á mánuði. Mér þótti það heldur lítið, og þá var þessu breytt yfir í tímakaup, og fékk ég 1,50 kr. fyrir hverja unna vinnu- stund. Fyrsti bíllinn Chevrolet '29 Hvenær eignaðist þú þinn fyrsta bfl? 10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 20. janúar 1985 Sigurgestur Guðjónsson við gamlan Chevrolet árgerð 1934. „Það var óvenjuflegt að strákar eignuðust bíla á þeim árum“, segir Sigurgestur. Ég eignaðist minn fyrsta bfl 1935. Þá var ég23 ára. Þetta var 5 manna Chevrolet, árgerð 1929 tveggja dyra með ónýtri vél. Ég skrapaði saman úr öðrum bflum, keypti aðra gamla vél og gerði úr þessu þokkalegan bfl. Ég átti hann síðan í ár eða svo. Næsti bfll sem ég eignaðist var einnig Chevrolet árgerð 1929, en það var mun vandaðri bfll, enda keypti ég hann af borgarstjóran- um í Reykjavík, Jóni Þor- lákssyni! Var ekki óvenjulegt að ungir menn ættu bfla á þessum árum? Jú, það mun hafa verið frekar óvenjulegt að strákar eignuðust bfla á þessum árum. Hvað voru margir bflar til í Reykjavík, t.d. í kringum 1930? 1930 voru bflanúmerin komin á 9. hundrað og árið eftir yfir 900. Fólksbflar seldust bara á sumrin á þessum árum. Bílverðið 3000 kr. Hvað kostaði nýr fólksbfll þá? Það hefur verið um 3000 krón- ur. Ég man eftir þeim á afsláttar- verði haustið 1930 rétt undir 3000 krónum. Þá höfðum við 1,50 í tímakaup og sjaldnast fulla vinn- uviku. Sambærilegur nýr bfll kostar nú 4-500 þúsund krónur og mánaðarkaup bifvélavirkja er 23.000. Ef við reiknum síðan með fullri 40 stunda vinnuviku hefur vikukaupið verið 60 krónur og bflverðið samsvarað 50 vinnuvik- um. Ef vikukaupið nú er 5.700 krónur og samsvarandi bfll kostar 420.000 í dag þá jafngildir það hins vegar 73 vinnuvikum hjá bif- vélavirkja í dag. Varstu með bfladellu þegar þú varst ungur? Já, við vorum allir með bfla- dellu, og sjálfsagt hefur það átt sinn þátt í að maður fór að vinna við þetta. Það þurfti átak til að eignast sæmilegan bfl og þótti heilmikið fyrirtæki. Margir létu sér reiðhjólið nægja, enda var þörfin ekki eins mikil þá og nú. Bærinn var minni og allar vega- lengdir styttri. Menn voru komn- ir út úr bænum hérna við Rauðará. 72 daga verkfall '49 Eru einhverjir sérstakir at- burðir eða áfangar í sögu fé- lagsins sem þér eru minnisstæðir á þessu tímabili? Það er margs að minnast og af mörgu að taka. Það tók sinn tíma að vinna iðngreinina upp þannig að hún hlyti svipaðan sess og aðr- ar iðngreinar. Kreppan bitnaði á okkur eins og öðrum, og á stríðs- árunum var hér bensínskömmtun sem einnig bitnaði á greininni. Árið 1949 lentum við í 72 daga verkfalli. Meðal áfanga í sögu fé- lagsins má nefna eftirlaunasjóð- inn, sem stofnaður var 1959, en áður höfðum við stofnað sérstak- an styrktarsjóð. Við áttum aðild að stofnun Málm- og skipasmíð- asambandsins og gengum í líf- eyrissjóð þess 1970. Hvernig var félagslífinu hátt- að? Við héldum veglegar árshátíðir þar sem oft komust færri en vildu, við stóðum fyrir spila- og skemmtikvöldum og tókum snemma upp á því að halda nám- skeið fyrir félagsmenn. Á árunum í kringum 1963 var samið við atvinnurekendur um sérstakan kaupauka fyrir þá fé- lagsmenn sem höfðu sótt fagleg námskeið. Félag bifvélavirkja og atvinnurekendur hafa í samein- ingu unnið að því að þróa iðn- greinina og verkleg kennsla fer nú orðið að miklu leyti fram innan Iðnskólans. Atvinnusjúkdómun bakveiki Eru einhverjir atvinnusjúk- dómar sem fylgja þessu starfi? Já, það má segja að bakveiki hafi verið algeng meðal bifvéla- virkja, þótt ég viti ekki nákvæm- lega hvernig það er nú. Menn höfðu ekki nógu góð tæki hér áður fyrr og þurftu oft að lyfta Sunnudagur 20. janúar 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11 þungum hlutum. Það hefur ekki mikið breyst fyrr en á allra síð- ustu árum. Þá var algengt hér áður fyrr að loftræsting væri ekki nógu góð á verkstæðum og menn gátu farið illa á því. Nú er búið að setja reglur um þetta. Með lögun- um um vinnuvernd frá 1979-80 var stigið stórt skref í þá átt að bæta vinnuaðstöðuna. Þannig lauk samtali okkar Sig- urgests Guðjónssonar bifvéla- virkja, mannsins sem sat í 41 ár í stjórn síns stéttarfélags og mætti á því tímabili á öllum stjórnar- fundum nema einum. Sigurgest- ur er enn í fullu starfi og við bestu heilsu að sjá, og um leið og við óskum honum alls hins besta ósk- um við honum og íslenskum bif- vélavirkjum til hamingju með þessi tímamót í sögu stéttarfé- lagsins. ólg Forsíðumyndin Forsíðumyndin ertekin á bifreiðaverkstæði Nikulásar Steingrímssonar að Vatnsstíg 3 árið 1927, og mun vera elsta Ijósmyndin sem tekin hefur verið inni á bílaverkstæði hér- lendis. Á myndinni eru Ingólf- ur Sigurjónsson til vinstri og Nikulás Steingrímsson til hægri. Á gólfinu situr Korn- elíusHannesson. Það er rétt, að við erum þarna að gera við bflinn hans Carls Ól- afssonar ljósmyndara, sagði Kornelíus Hannesson bifvéla- virki þegar við bárum ljósmynd- ina undir hann. Þetta er Citroén fólksbfll ár- gerð ’25 eða ’26. Ég held að það sé einmitt verið að gera þennan bfl upp núna. Hvað ertu gamall á myndinni? Ætli ég sé ekki 16 ára. Ég byrj- aði í þessu hjá Nikulási 1. febrúar 1926 sem lærlingur. Þá var verk- stæðið á Klapparstígnum bak við Fálkann. Síðan fluttum við á Vatnsstíginn. Verkstæðið var í kjallaranum þar sem nú er lager heildverslunar Eiríks Ketils- sonar. Hvað voruð þið margir á verk- stœði Nikulásar? Við vorum 3 fyrir utan Lása. Á myndina vantar Steingrím Weld- ing. Komelíus Hannesson. Myndin er tekin á afmælisdegi stéttarfélagsins, 17. janúar 1985. Komelíus vann í fag- inu í 46 ár frá 1926 til 1972. Hvað hafðirðu í kaup á þessum tíma? Það voru 20 krónur á viku. Hvernig voru vinnuaðstœðurn- ar? Verkfærin voru af skomum skammti og mörg léleg. Við unn- um líka talsvert úti. En það var alltaf nóg að gera. Hvað varstu lengi í faginu? Ég var í þessu þangað til 1972, þá fór jafnvægistaugin úr sam- bandi og ég hef verið öryrki síð- an. Að vísu var ég 4 ár til sjós á árunum 1964-’68. -ólg

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.