Þjóðviljinn - 20.01.1985, Side 12

Þjóðviljinn - 20.01.1985, Side 12
ÆT7FRÆÐI LAUS STAÐA FRÉTTAMANNS í EÞÍÓPÍU Rauði kross íslands auglýsir hér með fyrir Alþjóðarauðakrossinn lausa stöðu fyrir fréttamann í Addis Ababa í Eþíópíu. Ráðningartími er þrír mánuðir frá miðjum febrúar og möguleiki áframlengingu. Meðal verkefna fréttamannsins verður: a) að vinna og senda til Alþjóðarauðakrossinsfréttaefni í máli og myndum, sem síðan verður dreift til landsfélaga og fjölmiðla víða um heim, b) að aðstoða Rauða krossinn í Eþíópíu við að taka á móti erlendum fréttamönnum ogsinna þeim, c) að vinna við gerð upplýsingabæklings um starfsemi Rauða krossins í Eþíópíu. Leitað er að starfsmanni með: a) minnstfimm árastarfsreynslu sem fréttamaður, b) gott „fréttanef", c) fullkomið vald á ensku í mæltu og rituðu máli d) þekkingu og áhuga á starfsemi Rauða krossins. Umsóknir sendist til framkvæmdastjóra Rauða kross íslands, Nóatúni 21, Reykjavík, sem gefur nánari upplýsingar í síma 26722. Rauði Kross íslands VINNUEFTIRLIT RÍKISINS Síðumúla 13. 105 Reykjavík. Sími 82970 Lausar stöður Eftirtaldar stöður eru lausar til umsóknar: UMDÆMISEFTIRLITSMAÐUR Á NORÐURLANDI VESTRA með aðsetri á Sauðárkróki. UMDÆMISEFTIRLITSMAÐUR Á VESTFJÖRÐUM með aðsetri á ísafirði. Umsækjendur skulu hafa staðgóða tæknimenntun, t.d. tæknifræðimenntun, ásamt starfsreynslu. Önnur menntun kemur þó til greina. Laun samkv. launakerfi opinberra starfsmanna. Nánari upp- lýsingar um starfið veitir Sigurður Þórarinsson, deildarstjóri eftirlitsdeildar, í síma 91-29099. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar nk. Umsóknum skal skilaö á þar til gerðum eyðublöðum sem fást á aðalskrifstofu stofn- unarinnar (sími 91-82970). Á mölinni mætumst með bros á vör — ef bensíngjöfin er tempruð. Blikkiðjan Iðnbúð 3, Garðabæ Onnumst þakrennusmiöi og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmiði. Gerum föst verðtilboð SÍMI 46711 Ættfrœðigetraun 2 Að þessu sinni er ættfræðiget- raunin með því sniði að lesendur spreyta sig á því að finna út barn- abörn 6 þekktra manna og kvenna sem öll eru horfin yfir móðuna miklu. Á myndum 1-6 eru afar eða ömmur en á mynd- um 7-12 eru barnabörn þeirra. Nú eiga lesendur að spreyta sig á að finna hver eru barnabörn hvers. Er t.d. sr. Bjarni Jónsson afi Kolbrúnar Kjarval eða ein- hvers annars á myndum 7-12 eða er Theódóra Thoroddsen amma Helgu Kress? Dregið verður úr réttum lausnum ef margar berast. Þær sendist Þjóðviljanum, Síðumúla 6, merktar Ættfræðigetraun 2 og er nauðsynlegt að setja þær í póst fljótlega eftir helgi því að dregið verður úr réttum lausnum nk. föstudag og rétt svör birt í næsta Sunnudagsblaði. Ef blað- ið berst mjög seint til staða úti á landi má hringja inn lausnir til Guðjóns Friðrikssonar. Glataðir snillingar Fyrir jólin kom út meistaraverk- ið Glataðir snillingar eftir William Heinesen hjá Máli og menningu. Þetta er áttunda bókin í sagna- safni Heinesens sem kemur út hjá forlaginu í rómaðri þýðingu Þorgeirs Þorgeirssonar. Um næstu helgi verður skorið úr um hver fær þetta eigulega skáld- verk færeyska meistarans í verð- laun. 1. Sr. Bjarni Jóns- son, vígslu- biskup 2. Guðbrandur 3. Héðinn Valdi- Magnússonfor- marssonalþm. stjóri ÁTVR. 4. Helgi Hjörvar rit- höfundur 5. SigurðurThor- 6. TheódóraThor- oddsen verk- oddsen skáld fræðingurog yfirkennari 7. DagurSigurðar- son skáld 10. Kolbrún Kjarval myndlistarmað- ur 8. Guðrún Ágústs- 9. Helga Kress dóttir borgarfull- cand.mag. trúi 11. Laufey Sigurðar- 12. Magnús Kjart- dóttir fiðluleikari anssonmynd- listarmaður Svör við œttfrœðigetraun 1 Greinilegt er aö margir hafa haft gaman af því að spreyta sig á ættfræöigetrauninni og bárust blaðinu fjölmargar lausnir. Dregið var úr þeim og kom upp nafn Gísla Jó- hannssonar, Brunnum, Suðursveit. Verðlaunin eru endurminningar Sigurðar Thoroddsens, Einsog gengur, og hafa þau þegar verið póstlögð til þess heppna. Rétt svör voru þessi: 1. Adda Bára Sigfúsdóttir og Gísli Jónsson eru börn hálfsyst- kinanna Sigfúsar Sigurhjartar- sonar alþm. og Arnfríðar Sigur- hjartardóttur húsfreyju á Hofi í Svarfaðardal. 2. Björn Bjarnason og Markús Örn Antonsson eru synir systkinanna Sigríðar Björnsdótt- ur (konu Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra) og Antons Björnssonar íþróttakennara en þau voru frá Ánanaustum í Reykjavík. Hátt á annað hundrað svör bárust í fyrsta hluta ættfræðigetraunarinnar og sést yfirættfræðingur Þjóðviljans draga hér úr lausnunum í gær. (M.E.ÓI). 3. Erlingur GÍslasoh og Hlíf Sigurjónsdóttir eru börn bræðr- anna Gísla Ólafssonar bakara- meistara í Rvík og Sigurjóns Ól- afssonar myndhöggvara. 4. Hjörleifur Guttormsson og Jón Helgason eru synir systranna Guðrúnar Pálsdóttur á Hallorms- stað og Gyðríðar Pálsdóttur á Seglbúðum, en þær voru frá Þykkvabæ í Landbroti. 5. Ragnhildur Helgadóttir og Sigurður Baldursson eru börn hálfsystranna Kristínar Bjarna- dóttur læknisfrúar á Kleppi og Marenar Pétursdóttur í Reykja- vík en þær voru dætur Ragnhildar Ólafsdóttur í Engey. 6. Sigrún Stefánsdóttir og Þór- arinn Eldjárn eru börn systkinanna Petrínu Soffíu Eld- járns á Akureyri og Kristjáns Eldjárns forseta íslands. Þess skal svo að lokum getið að Adda Bára og Gísli annars vegar og Sigrún og Þórarinn hins vegar eru af 2. og 3. lið og Ragnhildur og Sigurður annars vegar og Björn Bjarnason hins vegar eru sömuleiðis af 2. og 3. lið. 12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 20. januar 1985

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.