Þjóðviljinn - 20.01.1985, Qupperneq 18
BRIDGE
SAMBAND ÍSLENZKRA SVEITARFÉLAGA
HÁALEITISBRAUT 11 - PÓSTHÓLF 5196 - 125 REYKJAVlK
Tölvuþjónusta sveitarfélaga
Útboð
Óskað er eftir tilboði í gerð staðlaðs fjárhagsbókhalds
fyrir sveitarfélög (S.F.S.) á einkatölvur (P.C.) með
P.C. - D.O.S./M.S. - D.O.S. stýrikerfi.
Útboðsgögn verða afhent hjá Tölvuþjónustu
sveitarfélaga að Háaleitisbraut 11, Reykjavík, gegn
10.000 kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á
sama stað kl. 11.00 föstudaginn 15. febrúar 1985.
Þriðjudaginn 29. janúar 1985 kl. 15.00 verður haldinn
kynningarfundur þar sem mönnum gefst tækifæri til
að afla nánari upplýsinga um verkið.
F.h. Tölvuþjónustu sveitarfélaga,
Logi Kristjánsson
Tilkynning
um eftirgjöf aðflutningsgjalda af bifreiðum
til fatlaðra
Ráðuneytið tilkynnir hér með að frestur til að sækja
um eftirgjöf aðflutningsgjalda af bifreið til fatlaðra skv.
27. I. 3. gr. tollskrárlaga er til 15. febrúar 1985.
Sérstök athygli er vakin á því að sækja skal um eftir-
gjöf á sérstökum umsóknareyðublöðum og skulu um-
sóknir ásamt venjulegum fylgigögnum sendast skrif-
stofu öryrkjabandalags íslands, Hátúni 10, Reykjavík,
á tímabilinu 15. janúar til 15. febrúar 1985.
Fjármálaráðuneytið
10. janúar 1985
St. Jósepsspítali Landakoti
Ársstaða aðstoðarlæknis á barnadeild St. Jóseps-
spítala Landakoti er laus til umsóknar. Staðan veitist
frá 1. júní n.k.
Umsóknir er greini námsferil og fyrri störf sendist til
yfirlæknis barnadeildar fyrir 1. mars n.k.
Birgðavörður óskast
Starfssvið: Umsjón með birgðageymslum spítalans,
vörumóttöku og dreifingu. Birgðavörður mun taka þátt
í uppsetningu tölvustýrðs birgðakerfis.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást hjá
skrifstofustjóra spítalans.
Reykjavík 18.1.1985
St. Jósepsspítali, Landakoti
Getum afgreitt með stuttum fyrir-
vara rafmagns- og dísillyf tara:
Rafmagnslyftara, 1,5-4 tonna.
Disillyftara, 2,0-30 tonna.
Ennfremur snúninga- og hliöarfærslur.
Tökum lyftara upp í annan.
Tökum lyftara í umboössölu.
Flytjum lyftara um Reykjavík og nagrenr.i.
Littu inn — við gerum þér tilboö.
LYFTARASALAN HF.(
Vitastíg 3, simar 26455 og 12452.
Skútuvogur 7, Reykjavík
Kauptilboð óskast í grunnbyggingu að iðnaðarhúsnæði við
Skútuvog 7, Reykjavík, þ.e. sökklar og steypt plata að hluta,
4300 m3. Stærð lóðar er 11.155 m2.
Tilboðseyðublöð liggja frammi á skrifstofu vorri þar sem
allar nánari upplýsingar eru veittar.
Kauptilboð þurfa að hafa borist skrifstofu vorri fyrir kl. 11:00,
5. febrúar n.k.
Landsliðskeppni
á dagskrá
Bridgesamband íslands hefur
ákveðið að senda þrjú landslið til
keppni ytra á sumri komandi.
Það eru: Á opinn flokk á Evrópu-
mótið og í kvennaflokk á Evr-
ópumótið og í yngri flokk spilara
(fæddir eftir 1959) á Norður-
landamótið.
Evrópumótið v'erður haldið á
Ítalíu dagana 22. júní - 6. júlf í
Salsmaggiore og Norðurlanda-
mótið í Danmörku, dagana 15.
júlí - 19. júlí í Odense.
Til vals á öllum þessum þremur
liðum, hefur Bridgesambands-
stjórn ákveðið, að efna til
landsliðskeppni meðal spilara.
Stefnt er að þátttöku 12-16 para í
hverjum flokki, sem spila inn-
byrðis (með Butler-útreiknings-
sniði). Tvö efstu pörin öðlast síð-
an rétt til að velja sér meðspilara
úr hópi keppenda. Þessi tvö lið
keppa síðan í einvígi um sigur.
Sigurvegarar úr þeirri viðureign
eru þarmeð komnir í landslið.
Þriðja par í opinn flokk og
kvennaflokk, verður síðan valið í
samráði við landsliðsspilarana/-
landsliðsfyrirliða.
Landsliðskeppninni verður
skipt í tvo hluta. Sjálft mótið og
einvígi. Landsliðskeppnin verður
spiluð helgina 10. - 12. maí og
einvígin fara fram helgina 17. -
19. maí.
Frestur til að tilkynna þátttöku
til keppni í öllum flokkum, renn-
ur út mánudaginn 15. apríl.
Koma skal þátttökutilkynningum
til skrifstofu Bridgesambands ís-
lands skriflega, með nöfnum um-
sækjenda. Berist fleiri umsóknir
en keppnistilhögun gerir ráð
fyrir, mun Bridgesambands-
stjórn velja úr hópi væntanlegra
þátttakenda, eftir stigafjölda,
fyrri árangri etc.
Vakin er athygli á því, að öllum
er heimil þátttaka í þessum
mótum.
Nánari upplýsingar um spila-
stað o.fl. verður auglýst síðar.
Skipting sveita
á svæði fyrir íslandsmótið í
sveitakeppni 1985:
Reykjavík
Reykjanes
Suðurland
Austurland
Norðurl. eystra
Norðurl. vestra
Vestfirðir
Vesturland
íslandsmeistarar
3 plús 7 : 10 sv.
2 plús 1 : 3 sv.
1 plús 2 : 3 sv.
0 plús 1 : 1 sv.
0 plús 1 : 1 sv.
1 plús 2 : 3 sv.
0 plús 1 : 1 sv.
0 plús 1 : 1 sv.
1 : 1 sv.
8 sveitir 24 sveitir
Varasveitir eru:
1. varasveit á Reykjanes
2. varasveit á Reykjavík
3. varasveit á Suðurland
4. varasveit á Austurland
Undanrásir fyrir íslandsmótið í
sveitakeppni 1985 verða spilaðar
helgina 29. - 31. mars. 3 riðlar
verða spilaðir t Reykjavík og 1
riðill á Ákureyri. Dregið verður í
riðla skv. reglugerð Bridgesam-
bands íslands. Er því nauðsyn á
því að svæðasambönd á landinu
hafi haldið sínar undankeppnir
með nægjanlegum fyrirvara, til
að hægt sé að skipa sveitir í riðla.
Öllum úrslitum þar að lútandi
skal koma til skrifstofu Bridge-
sambands íslands.
í framhaldi má geta þess, að
undanrásir fyrir íslandsmótið í
tvímenning, verða spilaðar helg-
ina 20. - 21. apríl í Iðnabæ
Reykjavík.
Urslit í sveitakeppninni verða
um páskana á Loftleiðahótelinu.
Úrslit í tvímenningskeppninni
verða einnig á Loftleiðum helg-
ina 4. - 5. maí.
Keppnisgjöld pr. sveit og par,
verða birt síðar.
stig
1. sv. Úrvals 121
2. sv. Jóns Baidurssonar 120
3. sv. Guðbrandar Sigurbergss. 104
4. sv. Þórarins Sigþórssonar 102
5. sv. Jóns Hjaltasonar 98
6. sv. Sigmundar Stefánssonar 94
7. sv. Sigurðar B. Þorsteinssonar 94
Vakin er athygli á því, að næstu
fjórar umferðir verða spilaðar á
laugardaginn (í dag) í Hreyfils-
húsinu og hefst spilamennskan
kl. 12 á hádegi.
Opna mótið
á Akureyri
Skráning í Opna Minningar-
mótið á Akureyri, sem verður
helgina 15. -17. febrúar er komin
á fullt skrið. Stefnt er að þátttöku
minnst 60 para. Fyrirkomulagið
verður þannig, að fyrst verður
öllum pörum skipt í jafnstóra
riðla, spilaðar þrjár umferðir
(tvímenningur) í undanrás,
slönguraðað. Að þeim loknum,
komast 22 efstu pörin í úrslit,
barometer. Þar verða spiluð 3
spil milli para, alls 63 spil, sem
hefjast á laugardagskvöldinu, og
lýkur á sunnudagseftirmiðdaginn
(fyrir kvöldflug til Reykjavíkur).
Keppnisgjald verður kr. 1200
pr. par. Alls verða um 40-60.000
kr. í verðlaun, eignabikar og silf-
urstig. Þátttakendur geta komist
að mjög hagstæðum samningum
við Flugleiðir og hótelin á Akur-
eyri, svoka'laðan helgarpakka
(þó ýmsu verði nú aö sleppa sem
honum fylgir....).
Á Akureyri taka stjórnarmenn
þar við þátttökutilkynningum, en
í Reykjavík sér Ólafur Lárusson
um að skrá væntanlega þátttak-
endur, í s: 18350 á skrifstofu Bri-
dgesambands íslands. Frestur til
að tilkynna þátttöku rennur út
fimmtudaginn 7. febrúar nk.
Skagfirðingar í
hóp þeirra stœrstu
Aðalsveitakeppni Bridgesam-
bands Skagfirðinga í Reykjavík
hófst sl. þriðjudag. Til leiks
mættu 16 sveitir. Sem þýðir, að
félagið er nú sennilega það fjórða
stærsta á landinu þessa stundina.
Aðeins Breiðfirðingar í Reykja-
vík, Akureyringar og Bridgefélag
Reykjavíkur eru með meiri spil-
arafjölda á kvöldi.
í aðalsveitakeppninni, eru spil-
aðir tveir leikir á kvöldi, allir v/
alla. Eftir fyrstu tvær umferðirn-
ar, eru þessar sveitir efstar:
stig
1. sv. Magnúsar Torfasonar 50
2. sv. Hjálmars Pálssonar 45
3. sv. Friðriks Indriðasonar 38
4. sv. Guðrúnar Hinriksdóttur 36
5. sv. Leifs Jóhannessonar 34
6. sv. Gísla Stefánssonar 33
Frá Bridgedeild
Barðstrendinga-
félagsins
Mánudaginn 7. janúar hófst
aðalsveitakeppni félagsins með
þátttöku 14 sveita. Spilaðir eru 16
spila leikir.
Staða efstu sveita eftir 4 um-
ferðir
stig
1.-2. sv. Gunnlaugs Þorsteinss
Friðjóns Margeirss. 60
Reykjavíkurmótið
Eftir 6 umferðir í undankeppni
Reykjavíkurmótsins í sveita-
keppni, er staða efstu sveita
þessi:
3. sv. Sigurðar ísakssonar 59
4. sv. Ragnars Þorsteinss. 57
5. sv. Viðars Guðmundssonar 54
6. Þóris Bjarnasonar 46
Frá Bridgefélagi
Grundarfjarðar
Firmakeppni félagsins var
haldin í lok desember. 10 pör
tóku þátt í keppninni. Þrjú efstu
pörin urðu, meðalskor 81.
1. Ragnar - Óli
(Samvinnubankinn) 105
2. Ásgeir - Þórólfur
(Rafv.t. Guðni Hallgr.ss.) 97
3. Pálmar - Kristján
(Vörufl. Ragnars Haraldss.) 87
4. Oddrún - Guðni
(Sæfang) 86
5. Júlíus - Gísli
(Hraðfrystihús Grundarfj.) 82
Félagið vill þakka fyrirtækjum
fyrir þátttökuna.
Snæfellsmótið var haldið í
Grundarfirði 29. desember, þátt-
takendur voru frá norðanverðu
Nesinu, alls 24 pör. Sigurvegarar
urðu:
1. Jón Steinar -
Þorsteinn Stykkish. 186
2. Ellert - Kristinn Stykkish. 138
3. Eggert - Erlar Stykkish. 55
4. Ragnar - Óli Grundarf. 46
5. Júlíus - Gísli Grundarf. 44
Bridgefélagið þakkar öllum
þátttakendum fyrir góða og
skemmtilega keppni.
Frá Bridgeklúbb
Akraness
Fimmtudaginn 20. des. s.l.
lauk sveitarkeppni Bridgefélags
Akraness þar sem spiluð voru 16
spil á milli sveita.
10 sveitir tóku þátt í þessari
keppni og urðu úrslit þessi:
stig
1. sv. Alfreðs Viktorssonar 201
2. sv. Skúla Ketilssonar 169
3. sv. Guðmundar Sigurjónss. 147
Auk Alfreðs Viktorssonar spil-
uðu þeir Karl Alfreðsson, Guð-
jón Guðmundsson og Ólafur G.
ólafsson í sigursveitinni.
Um þessar mundir stendur yfir
keppni, Board and Match og taka
11 sveitir þátt í þeirri keppni og
mun henni ljúka n.k. fimmtudag
þ. 10. jan.
Að þeirri keppni lokinni hefst
svo Akranesmótið í tvímennings-
keppni sem verður með „baro-
meter“ fyrirkomulagi og verða
spiluð 7 spil á milli para.
Mikil þátttaka hefur verið í
mótum B.A. í vetur og er útlit
fyrir að svo verði áfram. Margir
okkar bestu spilarar hafa verið á
loðnuvertíð en eru nú að koma í
land og verða væntanlega með í
næstu mótum félagsins.
Frá Bridgeklúbbi
hjóna
Þriðjudaginn 8/1 var spiluð
eins kvölds tvímenningskeppni,
með þátttöku 32 para. Spilað var
í tveimur riðlum og urðu úrslit
þessi: Stlg
A) Edda-Sigurður 249
Sigrún-Haukur 249
Sigriður-Jóhann 247
Sigríður-Ingólfur 242
B) Ólöf-Gísli 286
Halla-Bjarki 256
Erla-Kristmundur 247
Ásthildur-Jónas 220
Aðaltvímenningskeppni klú-
bbsins hefst svo næsta þriðjudag,
22/1. Spilað er í Hreyfilshúsinu
v/Grensásveg. Formaður klúbbs-
ins er Valgerður Eiríksdóttir.
18 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 20. janúar 1985