Þjóðviljinn - 20.01.1985, Side 19

Þjóðviljinn - 20.01.1985, Side 19
SKAK Svœðamótið í Gausdal Þegarein umferðvareftiraf svæðismótinu í Gausdal voru allir íslendingarnir við toppinn og áttu möguleika á sæti í millisvæðamóti. Margeirvar efstur ásamt þeim Larsen og Agdestein með 6V2 vinning. Næstur kom Jóhann með 6 vinninga og Helgi var með 51/2 vinning sem og þeir Schus- sler og östenstad. Allir þessir menn eiga möguleika á sigri og síðasta umferðin því afger- andi. ÞáteflirMargeirmeð hvítu gegn Westerinen, Jó- hann hv. gegn Larsen, Helgi hv. móti Ostenstad, Agde- stein sv. gegn Ernst, Schus- sler sv. gegn Hansen og loks tefla þeir Yrjola og Moen en skák þeirra hefur enga þýð- ingu ítoppbaráttunni. Skák dagsins verður að öllum lík- indum Jóhann-Larsen þar sem báðir munu tefla stíft til vinnings enda mikið í húfi. Það mun þó Ijóst vera að Margeir stendur best að vígi af íslendingunum og á hann verulega möguleika á sigri. Ýmislegt hefur gerst frá því aö fjallað var um mótið í síðasta helgarblaði. Larsen tók undir sig stökk eftir slæma byrjun og hefur heldur betur komist í stuð. Norð- manninum unga Agdestein hefur tekist að hrella hina íslensku keppendur, lagði þá Jóhann og Margeir að velli. Góð frammi- staða Östenstad, sem er einnig Norðmaður, hefur vakið verð- skuldaða athygli, h'ann er aðeins 16 ára. Uppgangur í skáklífi norskra og er það vel, enda tími til kominn. Margeir Pétursson hefur teflt mjög vel það sem af er þessu móti. í tíundu umferð mætti hann Schiissler með svörtu. Schiissler þessi hefur orð á sér fyrir traustan skákstíl og ekki mun vera neinn hægðarleikur að leggja hann, hvað þá með svörtu mönnunum. Eins og búast mátti við svaraði Margeir drottningarpeðsleik hans með Tarrasch vörn, en með henni lagði hann einmitt Larsen í fyrstu umferð eins og mönnum er vonandi enn í fersku minni. Schussler hefur eflaust gefið sér góðan tíma til að rannsaka þessa byrjun en hafði ekki árangur sem erfiði. Tarrasch vörn Margeirs stóð af sér eitt áhlaupið enn, enda býst ég við því að töp Margeirs í þessari byrjun megi telja á fingr- um annarrar handar. En skoðum nú rás atburða nánar. Hvítt: Harry Schiissler (Sví) Svart: Margeir Pétursson Tarrasch vörn (En ekki hvað?) 1. d4 dS 5. RD Rc6 2. c4 e6 6. g3 Rf6 3. Rc3 c5 7. Bg2 Be7 4. cxdS exd5 8. 0-0 0-0 Þessi staða er orðin að nokkurs konar grunnstöðu í þessari byrj- un, hún kemur upp í langflestum tilfellum. Uppbyggingin sem hvítur beitir náði vinsældum um 1920 og átti Rubinstein stærstan þátt í því, lagði sjáfan Tarrasch með henni í frægri skák árið 1922 í Bad Pistyan. Síðan hefur upp- byggingin oftast verið nefnd Ru- binstein afbrigðið. Er Tarrasch var, í upphafi, að kveðja byrjun sinni hljóðs átti hún erfitt upp- dráttar. Menn töldu hið staka peð sem svartur fær oftast á d5 mikla veilu og höfnuðu þar með hugmyndinni. Mann skal svo sem ekki undra því að á þessum tíma var stöðulegi skólinn allsráðandi með Capablanca í fararbroddi. Tarrach vörnin gleymdist síðan að mestu fram til 1956 er Keres beitti henni í áskorendamótinu. En 1969 verður samt að teljast upphafsár endurlífgunar varnar- innar því þá notaði Spassky hana mikið í einvígi sínu um heimsmeistaratitilinn við Petro- sjan. Vörnin bar góðan árangur og átti sinn þátt í sigri Spasskys, en það er annað sem er merki- legra: Petrosjan hinum mikla meistara stöðubaráttunnar mis- tókst að koma á hana höggi. í ljós kom að þó peðaveilur væru í svörtu stöðunni unnu menn hans vel saman, höfðu einskonar leyndan sprengikraft. Það kemur því ekki á óvart að nýjasti „guru“ varnarinnar sé enginn annar en Kasparov og má því búast við að á næstu árum vaxi Tarrasch vörn- inni enn fylgi. 9. dxcS Aðrir möguleikar eru t.d. 9. Bg5 og 9. b3 en því lék Larsen einmitt gegn Margeiri í fyrstu umferð. 9. - Bxc5 10. Ra4 Algengasta leiðin er 10. Bg5 d4 11. Bxf6 Dxf6 12. Rd5 eða 12. Re4 og staðan er flókin þó smá- sjáin segi hvítan standa örlítið betur. Leikur Schusslers er ein- mitt sá sami og Rubinstein lék gegn Tarrasch í áðurnefndri skák. Hann hefur það markmið að ná uppskiptum á svartreita biskup svarts en við það veikjast svörtu reitirnir í kringum staka peðið á d5. Helstu annmarkar þessarar áætlunar eru þeir að hún er hægfara og svartur nær að koma liði sínu vel fyrir. 10. - Be7 12. Hcl Bg4 11. Be3 He8 13. Bc5 Mér sýnisf þessi leikur vera eðli- legt framhald þeirrar áætlunar er ég greindi frá áðan. Á Reykjavík- urskákmótinu í fyrra lék hol- lenski stórmeistarinn Ree 13. h3 gegn Margeiri en eftir 13. - Bh5 14. Rd4 Dd7 15. Rxc6 bxc6 16. Hel Bb4 hafði svartur komið ár sinni vel fyrir borð. Schussler virðist á sama máli. 13. — Re4! 83 Bxf3 14-. Bxe7 Dxe7 16- 8x13 Hér skilja þeir félagar við fræðin eftir því sem ég kemst næst. Á skákmóti í Palma de Mallorca 1969 lék Reshevsky 16. exf3!? gegn Ivkov og fékk eftir 16. - Rf6 17. f4 Hac8 18. Hel Dxel+ 19. Dxel Hxel+ 20. Hxel heldur betra endatafl. Mér segir svo hugur að taflmennsku Ivkov megi bæta t.d. reynir svartur yfir- leitt að koma í veg fyrir drottn- ingarkaup í áþekkum stöðum. 16. — HadR 17. Bg2Hd6! 24. - Dg5 25. Hcdl bS! 26. Da3 Re5 27. b3 Svartur hótaði að vinna skiptam- un með 17. - Rc4 Mjög nytsamlegur leikur. Svarti hrókurinn eykur valdið á c6 hann heldur þeim möguleika opnum að tvöfalda og getur sveiflað sér yfir á kóngsvænginn í sókn ef svo ber undir. 18. Rc5 Rxc5 19. HxcS Hvítur notar hvert tækifæri til þess að skipta upp á mönnum enda munu möguleikar hans aukast er nær dregur endataflinu. 19. - d4! 20. Hc2 h5! 21. Hd2? Hvítur beinir spjótum sínum að staka peðinu en eftir því sem mér skilst mun það peð varla teljast veikt lengur. 21. - h4 23. Da4 H8d7 22. g4 Hed8 Nauðsynieg varúðarráðstöfun til að valda peðið á a7 eftir hugsan- leg uppskipti á c6. 24. Hcl? Áætlun hvíts stenst ekki af takt- ískum ástæðum og nú tapar hann tempói. 27. - Rxg4! Djörf ákvörðun þegar mikið er í húfi en sagði ekki einhver: „The world belongs to the brave“! 28. hxg4 Dxg4 29. Kh2 Df4+ 30. Khl Dxf2 31. b4? Flétta svarts byggir ekki síst á því að hvíta drottningin er út úr spil- inu. Betri leið til þess að bæta úr því væri 31. Dc5 og enda þótt þvingað framhald liggi ekki fyrir svörtum verður sókn hans að telj- ast í versta falli beitt. 31. - h3 32. Bxh3? Tapleikurinn þó að 32. BO líti ekki glæsilega út. 32. - d3! 33. Hxd3 Hxd3 34. exd3 Ef 34. Hxd3 þá 34.-Del+ og35. - Dxe2+ og hrókurinn fellur. 34. - Df3+ 35. Kh2 De2+ 36. Kg3 He7 og Schussler gafst upp því mát blasir við. STORUTSALA Mikið úrval af fatnaði, t.d. gallabuxur flauelsbuxur háskólabolir SKÚLAGÖTU 26 jogginggallar úlpur jakkar vinnuskyrtur sokkar VfSA Sendum f póstkröfu stígvól leðurjakkar VINNUFATABUÐIN ftst Sunnudagur 20. janúar 1985 pjóðvIUINN - SÍÐA 19

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.