Þjóðviljinn - 07.02.1985, Síða 5
Fjölsótt þorrablót Alþýðubandalagsins síðastliðið laugardagskvöld
Leynigestur, happdrætti, fjöldasöngurog rússneskt þjóðlag útundirvegg
Þorrinn blótaður
og skeggprúður. Hann fór með
gamanmál af miklu fjöri og sagði
innansveitarkróníkur af Fells-
ströndinni í ljóðum og gerðu
menn góðan róm að. Dalamaður-
inn var Svavar formaður Gests-
son.
Rússneskt
þjóðlag
Auðvitað var sungið af miklum
krafti og loksins kom að því að
Silja veislustjóri fékk mikinn hóp
kvenna til að tölta upp á sviðið og
syngja fyrir hrútspúngana sem
eftir sátu í salnum. Þegar leið á
kvöldið voru sumir orðnir þjóð-
legir og kenndir og þá var haldið
áfram að syngja í smærri hópum
útundir veggjum millum þess sem
trog voru hroðin.
Bía af Skaganum, Bjarnfríður
Leósdóttir, var mætt á staðinn.
Fyrr um helgina hafði hún orðið
formaður verkalýðsmálaráðs Al-
þýðubandalagsins í sögulegri
kosningu. En hún var enn á vinn-
ingsleiðinni, því í happdrætti
kvöldsins gerði hún sér lítið fyrir
og vann ekki bara einn vinning,
heldur tvo. Það endaði auðvitað
með því að Baldur Óskarsson,
formannsefnið sem féll fyrir
Bjarnfríði, kyssti hana sósíalísk-
an rembingskoss við mikinn
fögnuð.
Svo dönsuðu menn af krafti
frameftir allri nóttu. Fyrir mig
var hápúnktur skemmtunarinnar
síðla nætur þegar Erlingur Vigg-
ósson söng rússneskt þjóðlag út
undir vegg fyrir mig og félaga
mína og við fengum næstum öll
tár í augun því Erlingur söng af
svo mikilli innlifun.
-ÖS
Guðmundur Hallvarðsson er að verða meiriháttar gítarsnillingur og á þorrablót-
inu lét hann sig ekki muna um að spila klassísk lög heldur líka pólitíska slagara
sem ollu mikilli kátínu. Ljós. eik.
Tvær vestfirskar baráttukonur, þær Margrét Óskarsdóttir (t.v.) og Elisabet Þorgeirsdóttir í miðjum klíðum. Ljósm. eik.
Á hjalla Alþýðubandalagsins í
Reykjavík var með afbrigðum
glatt síðastliðið laugardagskvöld,
þegar góður hópur félaga kom
saman í flokksmiðstöðinni til að
blóta þorra. Súrhveli, hrútspúng-
ar, hákarl og sultur sviða og svína
lágu í ilmandi hlöðum meðfram
veggjum, og þó að nokkur
skortur á gömlu brennivíni gerði
vart við sig snemma kvölds þá
vantaði sem betur fer ekki birgðir
af jökulköldu kláravíni til að
skola veisluföngunum niður.
Leynigestur
Blótendur þorra voru á öllum
aldri, allt frá Dísu Þórhalls í
Æskulýðsfylkingunni sem varð
sextán fyrir jólin upp í Tryggva
Helgason sem var einu sinni
helsti oddviti sjómanna á Akur-
eyri og er núna 83 ára og ný-
genginn í Alþýðubandalagið. Þar
í millum voru svo unglingar á
óræðum aldri einsog Erlingur
Viggósson skipasmiður.
Veislustjóri var Silja Aðal-
steinsdóttir og stjórnaði hófinu af
festu og röggsemi, en þó mildi-
lega. Jón Hnefill Aðalsteinsson
var ræðumaður kvöldsins og hélt
mikla tölu þar sem var fjallað vel
og af þekkingu um miði görótta.
Margrét Pála Ólafsdóttir fór með
kersknivísur sem hún orti sjálf og
fjallaði meðal annars um nýaf-
staðna atburði helgarinnar sem
vöktu ekki síður athygli Alþýðu-
bandalagsins en innan, þ.e.a.s.
aðalfund verkalýðsmálaráðs.
Leynigestur kvöldsins var há-
vaxinn Dalamaður, dökkur á hár
Viiborg Harðardóttir og Elísabet Gunnarsdóttir ræða málin eftir að hafa snætt lyst sína á gómsætum þorramat. Ljósm. eik
i
UMSJÓN: JÓNA PÁLSDÓTTIR
Fimmtudagur 7. febrúar 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5