Þjóðviljinn - 07.02.1985, Blaðsíða 22

Þjóðviljinn - 07.02.1985, Blaðsíða 22
Finnbogi Ragnar óttar Sialufjörður Afvinnumálaráðstefna Alþýöubandalagið efnir til ráðstefnu um atvinnumál á Siglufirði nk sunnudag 10. febrúar kl 16.00. Framsögumenn verða Finnbogi Jónsson framkvæmdastjóri Ið- þróunarfélags Eyjafjarðar, Ragnar Arnaldsalþingismaðurog Ótt- ar Proppé bæjarstjóri. Ráðstefnan eröllum opin. - Alþýðubanda- lagið Steingrímur Ragnar Þórður Vestur-Hún. - Skaaafjörður Almennir fundir um byggðastefnu og málefni bænda verða haldnir í: Ásgarði Miðfirði föstudaginn 8. febrúar kl 21.00 og Ásgaröi Lýtingstaða- hreppi Skagafirði laugardaginn 9. febrúar kl 14.00. Framsögu- menn verða þingmennirnir Steingrímur J. Sigfússon, Þórður Skúlason og Ragnar Arnalds. - Fundirnir eru öllum opnir. Frjálsar umræður. - Alþýðubandalagið Alþýðubandalagið Hafnarfirði Bæjarmálaráðsfundur Bæjarmálaráð ABH boðar fund í Skálanum Strandgötu 41, mánu- daginn 11. febrúarn.k. kl. 20.30. Dagskrá: Fjárhagsáætlun Hafn- arfjarðarbæjar fyrir 1985. Félagar fjölmennið. Áríðandi að allirfull- trúar í nefndum og ráðum mæti. Stjórnin Árshátíð Alþýðubandalagsins á Akureyri Árshátíð Alþýðubandalagsins á Akureyri verður haldin í Húsi aldraðra á Akureyri laugardaginn 23. febrúar næstkomandi. ★ Hátíðin hefst kl. 20.00 stundvíslega með borðhaldi. ★ Vönduð skemmtiskrá verður auglýst síðar í Þjóðviljanum og/eða Norðurlandi. ★ Að loknu borðhaldi verður stiginn dans við undirleik Sig- urðar Sigurðssonar og félaga. Væntanlegir þátttakendur í hátíðahöldum þessum eru vin- samlegast beðnir að láta skrá sig sem fyrst hjá Ragnheiði í síma 23397 eða Óttari í síma 21264. ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Útboð Tilboð óskast í stýribúnað með umferðarljósum og fleira vegna brúarframkvæmda fyrir gatnamálastjórann í Reykja- vík. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík. Tilboðin verða opnuð miðvikudaginn 27. febrúar nk. kl. 11.00 f.h.. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800 Sókn auglýsir Tillögur uppstillingarnefndar og trúnaðarráðs um stjórn og aðra trúnaðarmenn félagsins fyrir árið 1985 liggja frammi á skrifstofu félagsins frá og með fimmtudeginum 7. febrúar. Öðrum tillögum ber að skila á skrifstofu Sóknar fyrir kl. 12.00 fimmtudaginn 14. febrúar. Stjórnin. Auglýsið í Þjoðviljanum HEIMUPINN Framhald af bls. 17 fasísku herforingjastjórnar sem þá sat í Aþenu til að sameina Kýpur Grikklandi, sem hratt þeim atburðum af stað). Um tíma leit út fyrir að meiriháttar uppgjör væri í vændum milli bræðra í Nató. Utanríkisráðherra Tyrklands lét svo um mælt, að Tyrkir ættu tilkall til hálfs Eyjahafs - og meinti þá grískar eyjar skammt undan vesturströnd Tyrklands - og hermálaráðherrann bætti um betur: „Valdahlutföllin í Eyjahafi eru Tyrkjum í vil“, sagði hann. Og ekki var látið við þetta sitja. Tyrkir drógu saman um 100 þúsund manna herlið á vesturströndinn og hafa 147 landgöngupramma tilbúna, sem áreiðanlega „eiga ekki að landa á Svartahafsströnd Sovétríkj anna“ eins og Papandreú hefur komist að orði. Grikkir svöruðu með því að senda um 70 þúsund manna lið til þessara eyja. Tyrkjum gramdist það mjög og vitna í samkomulag frá 1923 um að eyjar þessar skulu ekki vígvæddar - en Grikkir telja það samkomulag löngu úrelt. Niðurstaðan er svo sú, að hvorki Grikkir né heldur Tyrkir vilja núna setja tilteknar hersveitir sínar beint undir stjórn Nató til ráðstöfunar á tvísýnum tímum eins og það heitir. ÁB tók saman. Olof Palme „Eg lofa ekkí gulli og grænum skógum“ Erfið kosningabarátta bíður Sósíaldemókrata Óvissuþœttir bœði til hœgri og vinstri Olof Palme í ræðuham. Sósíaldemókratar sækja í sig veðrið síðustu vikurnar, en borgarasamsteypan hefur drjúgt forskot. Það verður kosið í Svíþjóð í september og skoðanakann- anir benda til þess að Olof Palme forsætisráðherra og Sósíaldemókrata flokkur hans eigi undir högg að sækja: enn geta þó veður skipast í lofti. Samkvæmt nýlegum skoðana- könnunum njóta Sósíaldemó- kratar nú fylgis 40.5% kjósenda, en fengu 45.6% þegar síðast var kosið. Það er svo VPK, Vinstrifl- okkurinn kommúnistar, sem hafa tryggt stjórn sósíaldemókrata í sessi. En með þeim ca. 5% at- kvæða, sem þeim er nú spáð, vantar mikið á að verkalýðs- flokkarnir hafi í fullu tré við borg- araflokkana,en þeim er nú spáð um 53% atkvæða. Hægfara, aðal hægriflokkurinh hafa nú 31% at- kvæða í skoðanakönnunum, Miðflokkurinn 9.5% og Þjóðarf- lokkurinn 9%. Kristilegir demó- kratar hafa 3-4% en ættu að kom- ast á þing með kosningasamstarfi við Miðflokkinn. (í Svíþjóð þarf flokkur að fá fjögur prósent at- kvæða til að komast á þing). En með þessu er ekki öll sagan sögð. Það er vert að muna eftir því að á síðastliðnu ári skiptist borgarablökkin og vinstriblökkin á um að hafa meirihluta í skoð- anakönnunum. Því er ekki úr vegi að benda á tvö atriði í við- bót. í fyrsta lagi segjast um 6.5% ekki hafa ákveðið sig enn um það hvað þeir vilji kjósa (það þykir mikið í Svíþjóð, en er reyndar ótrúlega lítið á íslenskan mælik- varða). f annan stað er búið að stofna nýjan flokk sem vill ekki láta skipa sér í fylkingar og getur hirt um fjögur prósent af mót- mælaatkvæðum af ýmsu tagi, en það er flokkur umhverfisvern- darmanna. Kommunistar Fleiri óvissuþætti er reyndar að finna í dæminu en hina sænsku græningja. Vinstriflokkurinn- -kommúnistar, VPK, stuðnings- flokkur sósíaldemókrata, á í uppgjörserfiðleikum. Hér er bæði um að ræða endurtekin átök milli evrópukommúnista og len- ínista í flokknum og svo gamlar og nýjar deilur um um stuðning við sósíaldemókratíska stjórn. Formaður flokksins, Lars \Vern- er, sem er mjög hlynntur sam- starfinu við sósíaldemókrata, var á nýlegu þingi VPK í janúar mjög gagnrýndur fyrir stefnu sína og það gerðist, sem ekki hefur lengi komið fyrir hjá VPK, að stillt var upp gegn honum í formanns- kjöri. Að vísi drógu mótfram- bjóðendur sig til baka - en það er ekki talið fara á milli mála að með framboðum þessum hafi andstað- an viljað leggja áherslu á, að VPK eigi að draga sósíalíska stefnu miklu skýrar fram í sam- skiptum sínum við sósíaldemó- krata. Reyndar skrifaði einn af hagfræðingum sósíaldemókrata, Sven Gassman, nýverið grein í málgagn VPK, og gagnrýndi kommúnista fyrir að þeir væru of auðsveipir sósíaldemókrötum - það þætti einum' of sjálfgefið, að VPK væri öryggisnet sósíaldemó- krata þegar borgaraflokkarnir gerðu hríð að þeim. VPK nýttist því ekki þeim öflum meðal sósí- aldemókrata sjálfra, sem reyndu að færa verkalýðsflokkinn stóra lengra til vinstri. Borgaraflokkarnir Olof Palme getur hinsvegar huggað sig að nokkru við það, að borgaraflokkarnir eiga einnig við sín heimilisböl að stríða. Borg- aralegar samsteypustjórnir hafa lent í miklum samstarfsörðug- leikum og þau dæmi ganga sem illur draugur um búðir hægri- manna. Hver á til dæmis að taka við stjórnarforystu? Svo virðist sem það hljóti að vera formaður hinna Hægfara, Ulf Adelsohn, sá flokkur á um helming borgara- legs fylgis í landinu. En þar með er borgaraleg stjórn komin með mjög greinilegan íhaldssvip og það kæra miðjuflokkarnir sig ekki um. Síst þó Miðjuflokkurinn sem gat áður gert foringja sinn Torbjörn Fálldin að forsætisráð- herra borgaralegra stjórna. Efnahagurinn Efnahagsástandið ætti að vera Olof Palme heldur í vil. Hagvöxt- ur í sænskum iðnaði er fjórum sinnum meiri en í Vestur-Evrópu sem heild. Það er gróði á við- skiptum við útlönd. Halli á fjár- lögum dregst saman úr 80 milj- örðum í 65 miljarði sænskra króna og nemur þá ekki nema sem svarar vaxtabyrði af er- lendum skuldum. Þegar þetta er haft í huga gæti það virst undarlegt, að stjórn sós- íaldemókrata hafi verið að tapa fylgi. En þá má því ekki gleyma, að almenningur varð í upphafi ferils þessarar sósíaldemókrat- astjórnar að taka á sig verulegar byrðar til að undirbúa þá upps- veiflu í efnahagslífi sem nú er staðreynd. Rauntekjur minnk- uðu eftir að sænska krónan var felld um 16% og eftir ítrekaðar aðhaldsráðstafanir á fjárlögum. Palme minnti á þetta í nýjársræðu sinni og bætti því við, að nú væri að koma betri tíð, á árinu 1985 mættu menn gera ráð fyrir aukningu rauntekna, hærri barn- abótum og eftirlaunum. En hann vildi samt ekki hleypa of mikilli bjartsýni í menn: Eg lofa ekki gulli og grænum skógum, sagði forsætisráðherrann sænski enn- fremur - enda bíða hans manna erfiðir launakjarasamningar í vor, sem miklu ráða um skap- lyndi kjósenda í haust. áb tók saman. 22 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 7. febrúar 1985

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.