Þjóðviljinn - 07.02.1985, Qupperneq 23
ÍÞRÓTHR
England
Chelsea
áfram
Chelsea er komið í undanúrslit
enska mjólkurbikarsins eftir 300
mínútna baráttu við Sheff. Wed.
Liðin mættust í 3ja sinn á Stam-
ford Bridge í London í gærkveldi
og Chelsea sigraði 2:1, frammi
fyrir 36 þúsund áhorfendum.
Sheff. Wed. varð fyrri til að
skora, Irme Varadi var þar að
verki snemma í fyrri hálfleik.
Skömmu fyrir leikhlé jafnaði svo
David Speedie með skalla, 1:1.
Það var svo gamla kempan Micky
Thomas sem tryggði Chelsea sig-
urinn í síðari hálfleik.
Chelsea mætir Sunderland í
undanúrslitum mjólkurbikarsins
og er leikið heima og heiman. {
hinum undanúrslitaleiknum
mætast Ipswich og Norwich.
- VS
Badminton
Sextán
lið með
Sextán lið munu taka þátt í
deildakeppninni í badminton sem
fer fram í Laugardalshöllinni um
helgina. Sjö þeirra eru frá TBR,
fjögur þeirra leika í 1. deild og
þrjú í 2. deild.
Sex lið leika í 1. deild. TBR-a,
TBR-b TBR-c, TRB-d, ÍA-a og
KR-a. í 2. deild leika tíu lið og er
þeim skipt í tvo riðla. í A-riðli
leika TBR-e, Víkingur, ÍA-b,
BH (Hafnarfirði) og TBV
(Vestm.eyjum). í B-riðli leika
TBR-f, TBR-g, TBA (Akur-
eyri), Skallagrímur og KR-b.
Keppni hefst kl. 10 á laugardag
og lýkur á sunnudag. Liðið sem
sigrar í 1. deild vinnur sér rétt til
þátttöku í Evrópukeppni félaga-
Íiða en neðsta liðið fellur í 2.
deild. Sigurvegararnir í riðlum 2.
deiidar leika síðan um lausa sætið
í l.deild.
England
Oxford
tapaði
Oxford United, efsta lið 2.
deildarinnar í ensku knattspyrn-
unni, beið óvænt ósigur gegn
Crystal Palace, 1:0, í London í
fyrrakvöld. Palace var í 19. sæti
fyrir leikinn en lyfti sér með sigr-
inum uppfyrir Middlesboro, sem
tapaði 1:2 heima fyrir Oldham.
Loks vann Brighton stórsigur á
Carlisle, 4:1.
- VS
Handbolti
ÞHr í
kvöld
Þrír leikir úr 11. umferð 1.
deildar karla í handknattleik fara
fram í kvöld - hafa verið færðir
fram frá föstudagskvöldinu.
{ Digranesi mætast Víkingur
og Stjarnan og hefst sú viðureign
kl. 20.10. I Laugardalshöllinni
verða tveir leikir - Valur og
Breiðablik leika kl. 20 og síðan
KR og Þróttur kl. 21.15. Fjórði
leikur umferðarinnar fer fram í
Vestmannaeyjum annað kvöld
en þar mætast Þór Ve. og FH.
Bjarni Guðmundsson og Sigurður Gunnarsson - klárir í alla leikina gegn
Júgóslövum í næstu viku.
Landsleikirnir
Sigurður og
Bjami í alla
Atli spilar fyrsta leikinn
Miðleikurinn í Eyjum
Bjarni Guðmundsson og Sig-
urður Gunnarsson eru tilbúnir til
að leika alla þrjá landsleiki Is-
lands gegn Olympíumeisturum
Jugóslava í handknattleik sem
fram fara hér á landi í næstu viku.
Atli Hilmarsson getur aðeins
leikið með í fyrsta leiknum, á
þriðjudagskvöldið, en þarf að
fara beint til V.Þýskalands dag-
inn eftir. Alfreð Gíslason fékk
ekki leyfi frá Essen til að leika.
Sigurður Sveinsson kemur ekki
heldur, enda hafa HSÍ-menn
ekkert heyrt frá honum síðan
fyrir Frakklandsferðina.
Ákveðið hefur verið að leikur
númer tvö, á miðvikudagskvöld-
ið, fari fram í Vestmannaeyjum.
Verði ekki fært til Eyja verður
leikurinn færður til Kópavogs
eða Keflavíkur.
- VS
Sigurður
„Kemst í höfn
fljótlega“
„Enska knattspyrnusamband-
ið tryggir að Sheffíeld Wednes-
day muni halda þau ákvæði í
samningi Sigurðar Jónssonar sem
kveða á um að hann verði laus í
landsleiki þannig að ég á ekki von
á öðru en að allir samningar Sig-
urðar verði komnir í höfn mjög
fljótlega. Þessi mál taka alltaf
tíma, þetta eru skeytasendingar
fram og til baka,“
Sigurður byrjar væntanlega að
Landsleikir
„Fólk á inni
skemmtilegan
vetur“
Líkur á mörgum landsleikjum
hér heima nœsta vetur
„lólk á inni hjá okkur
skemmtilegan vetur og við von-
umst eftir að næsta vetur verði
talsvert af landsleikjum hér
heima. Þar er bjart framundan í
öllum landsliðssamskiptum - við
fengum mjög jákvæðar undir-
tektir í þcim efnum á þinginu í
ísrael á dögunum og margar
þjóðir hafa áhuga á að koma
hingað til lands. Það verður þó
ekkert byrjað að semja um leiki
fyrr en eftir 14. mars - þá verður
dregið í A-keppnina og þá sést
hvaða lið koma til með að leika
saman þar“, sagði Jón Erlends-
son framk væmdastjóri HSI í sam-
tali við Þjóðviljann í gær.
íslenska landsliðið mun taka
þátt í tveimur mótum erlendis
næsta vetur, fyrir A-keppnina í
Sviss í febrúar. Það fyrra verður
haldið í Sviss í októberlok og síð-
an tekur liðið þátt í Baltic-Cup
sem hefst 13. janúar. Jón sagði
miklar líkur á að allir aðrir lands-
leikir vetrarins færu fram hér
heima. _ VS
Sigurður Jónsson.
leika með varaliði og unglingaliði
Sheff. Wed. um leið og allt er
frágengið en hann hefur dvalið
við æfingar hjá félaginu í tæpan
mánuð. Það verður ekki létt verk
fyrir hann að tryggja sér sæti í
aðalliðinu - Sheff. Wed. hefur
ekki tapað leiks síðan 17. nóvem-
ber og er í 6. sæti 1. deildar.
- VS
Knattspyrna
Fækkar
um eitt
Fimm hœtta en fjögur
bœtast við
Þátttökuliðum í deildakeppni karla
á íslandsmótinu í knattspyrnu fækkar
um eitt frá því í fyrra - verða 75 í ár í
stað 76 í fyrra. Fimm félög sem sendu
lið í 4. deildarkeppnina í fyrra verða
ekki með í ár en fjögur ný koma í
staðinn.
Drangur frá Vík, Drengur úr Kjós,
Vorborðinn Eyjafirði, Stefnir frá
Suðureyri og hinir skrautlegu Hildi-
brandar úr Vestmannaeyjum senda
ekki lið í 4. deild í ár. í staðinn koma
Höfðstrendingar úr Skagafirði sem
tók þátt í íslandsmótinu 1977-1979,
Mýrdælingur sem kemur í stað
Drangs, Bjarmi úr S. Þingeyjarsýslu
og þá kemur í fyrsta skipti félag úr N.
Þingeyjarsýslu, UNÞ-b, sem mun
vera staðsett á Kópaskeri og ná-
grenni.
Liðin í 4. deild verða 38 talsins í
stað 40 í fyrra, en í 3. deild verða að
þessu sinni 17 lið í stað 16 vegna kær-
umálsins sem upp kom í N A-riðlinum
í fyrra og endaði með því að ekkert lið
féll úr honui i. _ ys
V. Pýskaland
Stuttgart
úr leik!
Tap í Saarbrucken
Stuttgart var slegið útúr
vestur-þýska bikarnum í knatt-
spyrnu í fyrrakvöld, tapaði eftir
framlengingu og vítaspyrnu-
keppni gegn 2. deildarliði Saar-
brúcken.
Staðan eftir venjulegan
leiktíma var 2:2. Thomas Kempe
og Júrgen Klinsmann komu
Stuttgart í 0:1 og 1:2 en undir lok
leiksins var Klinsmann rekinn af
leikvelli og Stuttgart því manni
færri í framlengingunni. Það var
hins vegar ekkert skorað og því
gripið til vítaspyrnukeppni.
Þremur leikmönnum Stuttgart,
Karl Allgöwer, Karl-Heinz Förs-
ter og Peter Reichert, mistókst
að skora á meðan leikmenn Saar-
brúcken sendu boltann í netið af
öryggi og Saarbrúcken stóð því
• uppi sem sigurvegari, 5:2. Saar-
brúcken mætir öðru 2. deildar-
liði, Hannover 96, í 8-liða úrslit-
um keppninnar. - VS
Knattspyrna
Francis fer
með vorinu
Sampdoria vill Rush í staðinn
Trevor Francis, á leið frá Sampdoria
og nokkuð örugglega tii Englands á
ný.
Enski landsliðsmaðurinn Tre-
vor Francis mun ekki leika áfram
með ítalska félaginu Sampdoria
þegar keppnistímabilinu lýkur í
vor. Honurn hefur gengið illa í
vetur, hefur aðeins skorað tvö
mörk í 13 leikjum þrátt fyrir að
Knattspyrna
Odýr mörk ttala
Heimsmeistarar ítala í knatt-
spyrnu lögðu íra að velli í vináttu-
landsleik í Dublin í fyrrakvöld,
2:1. ítalir komust snemma í 2:0
og voru bæði mörkin ódýr. Á 5.
mínútu var dæmd vítaspyrna á
Mark Lawrenson og úr henni
skoraði Paolo Rossi og skömmu
seinna missti Chris Hughton bolt-
ann á klaufalegan hátt - Sandro
Altobelli nýtti sér það og skoraði,
0:2. írar sóttu mjög í síðari hálf-
leik og Gary Waddock skoraði
ágætt mark en ítalir héldu út með
sterkum varnarleik. Lawrenson
meiddist í leiknum og varð að yf-
irgefa völlinn. Hann fór úr axlar-
lið og leikur varla með Liverpool
næstu dagana.
- VS
hafa sloppið óvenju vel við
meiðsli.
Sampdoria leggur nú alla
áherslu á að ná í Ian Rush frá
Liverpool í staðinn fyrir Francis.
Graeme Souness, fyrrum fyrirliði
Liverpool, er í aðalhlutverki í
miðjunni hjá Sampdoria og ítal-
irnir gera ráð fyrir að samvinna
hans og Rush verði ekki síðri hjá
þeim en hjá Liverpool. Að vísu er
ítölskum félögum bannað að
kaupa erlenda leikmenn fyrr en
eftir HM 1986 en mikil andstaða
er hjá félögunum gagnvart bann-
inu og því allt eins líklegt að því
verði aflétt í vor.
Rush er þó ekkert spenntur
fyrir því sjálfur að yfirgefa Li-
verpool. Hann er samningsbund-
inn félaginu til ársins 1988 og vill
helst vera um kyrrt, ekki síst
vegna sterkra tengsla við foreldra
sína og systkini. - VS
Fimmtudagur 7. febrúar 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 23