Þjóðviljinn - 14.02.1985, Qupperneq 1
14
febrúar
1985
fimmtu-
dagur
37. tölublað 50. órgangur
DJOÐVIUINN
New York Times
ÞJÓÐMÁL
HEIMURINN
Vamarsáttmálinn brotinn
New York Times staðfestir ígœr að „varnarsáttmáli“ íslands og Bandaríkjanna hafi verið brotinn árum
saman. Forsetinn hafi ílO árgefið varnarmálaráðuneytinu heimild til aðflytja kjarnorkuvopn
til íslands án vitundar íslenskra stjórnvalda. „Ég trúiþvíekki“ sagði Geir ídesember
Bandarískir embættismenn sögðu íslenskum
stjórnvöldum að áætlunin um að flytja kjarnorkuvopn til
íslands væri til. Hvorki Geir né Steingrímur hafa skýrt
frá þessari staðfestingu. Orion P-3 flugvélarnar í Kefla-
vík ætlaðar til að varpa sprengjunum. Hver hinna 48
sprengja á stærð við Hiroshimasprengjuna. Carrington
framkvæmdastjóri NATO gagnrýnir Bandaríkin fyrir að
gera slíkar áætlanir án vitundar íslands og dregur í efa
að tími gefist til að ieita eftir samþykki íslenskra
stjórnvalda þegar herinn teidi nauðsynlegt að koma
með kjarnorkusprengjunar. Upplýsingar Arkins enn
staðfestar.
Greinin er eftir Lesli H. Geld
einn helsta sérfræðing blaðs-
ins í afvopnunarmálum stórveld-
anna. Hann var forstöðumaður
þeirrar deildar Bandaríkja-
stjórnar sem fer með pólitísk og
hernaðarleg málefni á árunum
1977-79 (í tíð Carter-
stjórnarinnar) og cr mjög virtur
fræðimaður á þessu sviði. Hljóð-
varpið greindi frá þessum frétt-
um í hádeginu í gær.
í greininni segir, að Banda-
rfkjastjórn hafi gert áætlanir um
að flytja á ófriðartímum kjarn-
orkuvopn til Islands, Kanada,
Bermuda og Puerto Rico og er
þetta haft eftir embættismönnum
í Washington. Fréttir um þessar
áætlanir hafi gert embættis-
mönnunum erfitt fyrir vegna þess
að þeir hefðu ekki tilkynnt við-
komandi ríkisstjórnum þessar
áætlanir. Sumar þeirra hefðu ver-
ið í gildi í áratug. Haft er eftir
embættismönnum að upplýsingar
um þær hafi fyrst verið veittar
stjórnum landanna eftir að fjöl-
miðlar í viðkomandi löndum fjöl-
luöu um þær. Þeir leggja áherslu
á að þetta séu bráðabirgðaáætl-
anir og viðkomandi ríkisstjórnir
verði spurðar leyfis komi til
greina að flytja þangað kjarnork-
uvopn.
Þetta er önnur staðfestingin á
réttmæti þeirra upplýsinga sem
Arkin veitti hérlendis í desember
sl. og utanríkisráðherra lét hafa
eftir sér „Ég trúi því ekki“.
Þjóðviljinn fékk senda þessa
grein úr New York Times í gær og
er þýðing hennar birt í heild sinni
á bls. 8.
óg-
Lögbann
Prófmál
um
hugbúnað
Lögbannsbeiðni
lögðfram um bann
við sölu og
dreifingu forrita
Tölvubúðin hf í Reykjavík hef-
ur lagt fram lögbannsbeiðni við
gerð, dreifingu og notkun allra
þeirra forrita, sem íslensk for-
ritaþróun sf. hefur gert eða látið
gera eintök af síðan leigt afnot af
eða dreift á annan hátt undir
nafninu Plús-hugbúnaður eða
Plús forrit.
Eigendur síðarnefnda fyrir-
tækisins voru um árabil starfs-
menn Tölvubúðarinnar og unnu
m.a. við að þróa hugbúnað fyrir
bókhald.
f samantekt Tölvubúðarinnar
vegna lögbannsbeiðninnar segir
að hugbúnaðarframleiðsla fyrir
míkrótölvur sé tiltölulega ný
atvinnugrein og samkeppnin sé
oft hörð og óvægin innan hennar.
„Á íslandi hefur réttarstaða for-
ritara gagnvart hugbúnaðarfram-
leiðanda ekki verið skýrð t.d.
með prófmáli", og bent er á að
atvinnugreinin hafi ekki fengið
ráðrúm til að móta með sér sínar
eigin siðareglur.
Eigandi Tölvubúðarinnar er
Reynir Hugason, en eigendur ís-
lenskrar forritunar eru Örn
Karlsson og Vilhjálmur Þor-
steinsson.
-óg
HelgiÓlafssonogBentLarsenhélduáframaðteflaskáksínaúrfyrstuumferð afmælismóts Skáksambandsins í gær
og fór skákin aftur í bið. Staðan er nú þannig aö einungis er spurt hvort Larsen tekst að ná jafntefli. Allt um skákmótið
er á síðu 7 í blaðinu í dag. (Ljósm.: E.OI.).
Húsbyggjendur
Löng bið eftir lánum
Þeirsem gerðu íbúðirfokheldar í ágúst 1984 hafa enn ekkifengið
húsnœðismálalán og enginn veithvenœrþau koma
Staða þeirra sem eru að byggja
nú er vægast sagt orðin alvar-
leg. Þeir sem gerðu íbúðir sínar
fokheldar í ágúst í fyrra og áttu
íbúðir fyrir, hafa enn ekki fengið
fyrsta hiuta lána hjá Húsnæðis-
stofnun ríkisins og það sem verra
er, stofnunin segist ekki geta sagt
til um hvenær þeir fái lán.
Þeir sem ekki áttu íbúðir fyrir
og gerðu fokhelt í ágúst eða sept-
ember hafa fengið fyrsta hluta
lána. Þeir sem aftur á móti gerðu
fokhelt í október, hafa enn ekki
fengið lán og enginn veit hvenær
þeir fá lán.
- S.dór
Skák
Larsen aftur
í sviðsljósinu
Bent Larsen var aftur í sviðs-
Ijósinu í gærkveldi þegar 2. um-
ferð afmælismóts Skáksam-
bandsins fór fram. Hann tefldi þá
gegn Margeiri Péturssyni og var
skák þeirra æsispennandi allan
tímann en hún fór í bið og staðan
tvísýn, en þó öllu vænlegri hjá
Larsen.
Önnur úrslit urðu þau að Spas-
sky sigraði Curt Hansen, Helgi
Ólafsson og Karl Þorsteins gerðu
jafntefli, sömuleiðis Jóhann
Hjartarson og Hort. Skák Guð-
mundar og Yusupov fór í bið en
Jón L. og Van der Wiel gerðu
jafntefli. Sjá nánar um skákina á
síðu 7.