Þjóðviljinn - 14.02.1985, Page 2
Eyjafjörður
Mengun yffir stórt svæði
Norskar rannsóknir: Mengun við Eyjafjörð afvöldum álvers meiri en
haldið var. Staðarvalsnefnd boðarfund með heimamönnum!
- Ég get í raun og veru ekki sagt
neitt um þetta að svo komnu þar
sem iðnaðarráðherra og aðrir
sem málið snertir, eiga eftir að fá
skýrsluna. Það er þó hægt að
segja, að samkvæmt niðurstöð-
um skýrslunnar lítur út fyrir að
mengun frá álveri við Eyjafjörð,
komi til með að ná til stærra
svæðis en við höfðum gert okkur
vonir um.
Þetta sagði Sigurður Guð-
mundsson, formaður Staðar-
valsnefndar, er blaðið leitaði
fregna hjá honum um niðurstöð-
ur mengunarrannsókna, sem
norsk rannsóknarstofnun hefur
gert og miðar að því að spá um
dreifingu frá hugsanlegu álveri
við Eyjafjörð.
- A þessu stigi verður ekkert
um það fullyrt hvort þessi meng-
un verði slík, að gróðri og dýralífi
stafi hætta af, sagði Sigurður
Guðmundsson.
Staðarvalsnefnd mun, við
fyrstu hentugleika, halda fund
með heimamönnum um þessar
niðurstöður. Leitað verður álits
þeirra manna, sem best ættu að
þekkja til þessara mála og hafa
m.a. fjallað um mengun frá álver-
inu í Straumsvík. í framhaldi af
því verður svo væntanlega hald-
inn blaðamannafundur á Akur-
eyri og skýrslan lögð þar fram.
Norska rannsóknarstofnunin
hefur lagt til að gerðar verði frek-
ari rannsóknir, sem m.a. væru í
því fólgnar að hleypa út á stór-
iðjustaðnum óskaðlegu gasi og
athuga síðan útbreiðslu þess.
-mhg.
Skólalúðrasveit Stykkishólms. Stjórnandi: Daði Þór Einarsson.
Hljómleikar
Sex skólahljómsveitir í Háskólabíói
Félag einstæðraforeldra stendur fyrir tónleikunum
Félag einstæðra foreldra stend-
ur fyrir glæsilegum og eftir-
tektarverðum hljómleikum í
Háskólabíói n.k. laugardag, 16.
febrúar, og hefjast þeir kl. 14.00.
Þarna koma fram skólahljóm-
sveitir frá eftirtöldum sveitarfé-
lögum og borgarhlutum: Frá
skólunum í Kópavogi, stórnandi
Björn Guðjónsson, Seltjarnar-
nesi, stjórnandi Skarphéðinn
Einarsson, Stykkishólmi, stjórn-
andi Daði Þór Einarsson, Arbæ
og Breiðholti, (sameiginleg
sveit), stjórnandi ÓlafurL. Krist-
jánsson, Mosfellssveit, stjórn-
andi Birgir D. Sveinsson og
Laugarnesskólanum, stjórnandi
Stefán Þ. Stephensen. Kynnir á
hljómleikunum verður Jón Múli
Árnason.
Það er Björn Guðjónsson,
stjórnandi Skólahljómsveitar
Kópavogs, sem hugmyndina átti
að þessu hljómleikahaldi og hef-
ur undirbúið það af áhuga og at-
orku. Hann giskaði á að í hljóm-
sveitunum væru 20 hljóðfæra-
Ieikarar a.m.k. og eru þeir á aldr-
inum frá 9 og upp í 15-16 ára.
Börnum verður boðið upp á
ókeypis hressingu í hléi.
Viðfangsefni hljómsveitanna
eru hin fjölbreytilegustu og er
ekki að efa að margir munu
leggja leið sína í Háskólabíó á
laugardaginn til að hlýða á hina
ungu hljóðfæraleikara. Og ekki
ætti það að spilla fyrir að allur
ágóði rennur í byggingarsjóð Fé-
lags einstæðra foreldra.
Aðgöngumiðar verða seldir í
skrifstofu félagsins að Traðar-
kotssundi 6 alla daga fram til
laugardags og í Háskólabíói frá
kl. 13 á laugardag.
-mhg.
Ætli Reagan muni símanumer-
ið hjá Geir?
Landspítali
Nýbygging
hafln
Krabbameinsdeild
í K-byggingu árið
1988
í gær um fjögurleytið stakk
Matthías Bjarnason skóflu í jörð
norðan við Landspítalann og hóf-
ust þar með framkvæmdir við
svonefnda K-byggingu spítalans.
í þessu 7600 fermetra húsi verður
fengist við krabbamein og gjör-
gæslu og þar verða skurðstofur
og röntgendeild. K-byggingin
verður reist í tveimur áföngum og
er ætlunin að fyrri áfanginn,
krabbameinsdeildin, verði full-
búinn árið 1988.
Hönnun hófst fyrir sex árum.
Fjárveiting frá alþingi í fyrra og
aftur í ár gerir kleift að ljúka á
þessu ári jarðvegsframkvæmd-
um, byggja undirstöður og kom-
ast nokkuð á veg með uppsteypu
fyrri áfanga sem er um þriðjung-
ur alls hússins. Gert er ráð fyrir
að fyrri áfanginn kosti um 225
milljónir, og fara þaraf 75 til að
kaupa tæki og búnað.
í fréttatilkynningu frá yfir-
stjórn mannvirkjagerðar á
Landspítalalóð segir að eitt meg-
inmarkmiða með K-byggingunni
sé að koma upp góðri aðstöðu til
krabbameinslækninga; nú sé
tækjabúnaður og aðstaða öll til
þeirra alls ófullnægjandi og þjón-
usta við krabbameinssjúklinga
minni en í grannlöndum. Þær
deildir aðrar sem eiga að vera í
byggingunni búi nú við þrengsli.
Á hin nýja bygging fullreist að
„gera Landspítalanum kleift að
rækja hlutverk sitt sem þjónustu-
og kennslusjúkrahús alls lands-
ins“. Vonir standa til að lokið
verði við bygginguna árið 1992.
-m
Vertíðin
Blaðaútgáfa
Stóraukinn
þorskafli
Heildaraflinn íjanúar um 117þús. lestir
orskaflinn í janúar var nær
helmingi meiri en á sama tíma
í fyrra samkvæmt bráðabirgða-
tölum Fiskifélagsins. í ár eru
komin á land rúm 22 þús. lestir af
þorski en aðeins 13 þús. lestir í
janúar í fyrra.
Það eru einkum góðar gæftir í
mánuðinum sem skipta sköpum
auk þess sem nokkuð jöfn og góð
þorskveiði hefur verið fyrir
norður- og vesturlandi. Hins veg-
ar hefur verið mjög dræm þorsk-
veiði fyrir suðurlandi það sem af
er árinu.
Heildarbotnfiskaflinn frá ára-
mótum er tæp 160 þús. tonn en
var aðeins 31.400 tonn á liðnu ári.
Hér munar fyrst og fremst um
stóraukna loðnuveiði. Nú hafa
komið á land nær 117 þús. lestir
en í fyrra aðeins 804 lestir á sama
tíma.
-•g-
Ný ratsjá
Andófsmenn ratsjárstöðva gefa útblað á Vestfjörðum. „Velduþá lífið“
AVestfjörðum er nú komið út
blaðið Ratsjá, sem er gefið út
af þeim sem andæfa byggingu rat-
sjárstöðva vestra og á norð-
austurhorninu. Ábyrgðarmaður
blaðsins er séra Lárus Þ. Guð-
mundsson, en auk hans unnu
tveir aðrir klerkar að blaðinu,
þeir séra Jón Ragnarsson og séra
Jakob Hjálmarsson. Hópur ann-
arra andófsmanna ratsjárstöðva
vann einnig að útgáfu blaðsins.
Efni blaðsins er mjög vandað
og ber merki þess mikla tilfinn-
ingahita sem býr í fólki yfir vænt-
anlegri byggingu ratsjárstöðva.
Auk greina um ratsjár almennt
og andófið fyrir vestan er líka
grein um ratsjár á norðaustur-
landi.
Þá er flett rækilega ofan af
þeirri leynd, sem hefur hvílt yfir
byggingu ratsjárstöðva og þeim
blekkingum sem stjórnvöld hafa
haft í frammi. Þannig er greint frá
ummælum Wesley MacDonald,
yfirmanns Atlantshafsflota
Bandaríkjamanna, sem lýsti því
yfir sl. haust að búið væri að á-
kveða uppsetningu nýrra ratsjár-
stöðva á Islandi og þakkaði yfir-
völdum góða samvinnu. Þegar
Sverrir Haukur Gunnlaugsson
hjá svokallaðri varnarmáladeild
var spurður út í þetta á fundi í
Bolungarvík svaraði hann því til,
að hershöfðinginn hefði bara
mismælt sig!
Á einum stað er vitnað í Móse-
bók: „Ég hef lagt fyrir þig lífið og
dauðann, blessunina og bölvun-
ina. Veldu þá lífið...“
-OS
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 14. febrúar 1984