Þjóðviljinn - 14.02.1985, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 14.02.1985, Qupperneq 16
ÞJÓÐMAJL Orkusölustefna eða orkustefna Al þýðubanda lagsi ns Rœtt við Hjörleif Guttormsson um stöðuna í orkumálum íslendinga, þróun orkumálannafrá 1978 ogframtíðarhorfur orkuiðnaðarins Orkumálin hafa mjög verið á dagskrá að undanförnu. Sverrir Hermannsson iðnaðarráðherra lýsti því yfir á dögunum að „þess- ari orkuvcislu væri nú lokið“, og margt bendir til þess að orkumál- in séu nú í heiidarendurskoðun. I viðtali í Morgunblaðinu nýverið kenndi iðnaðarráðherrann fyrir- rennara sínum Hjörleifi Gutt- ormssyni um flest það sem miður hefði farið í orkumálum okkar ís- lendinga. Af því tilefni ræddum við við Hjörleif Guttormsson um viðhorf hans til orkumálanna al- mennt, verkefni þau sem hann vann að sem ráðherra á árunum 1978-83, verðmyndun á raforku og fleiri brennandi mál er varða orkubúskap okkar Islendinga. Hvaða hugmyndir höfðu menn umframtíð orkuiðnaðarins þegar þú tókst við ráðherraembœtti 1978? Þegar ég tók við iðnaðarráðu- neytinu 1978 voru það fyrst og fremst hin ítarlega stefnumörkun Alþýðubandalagsins í orkumál- um frá 1976 og ákvæði stjórnar- sáttmála þeirra tveggja ríkis- stjórna sem ég átti aðild að sem mörkuðu stefnuna, og má segja að í báðum tilfellum hafi þessi atriði fallið það vel saman að ekki var um stórárekstra að ræða. Stefnumörkun Alþýðubanda- lagsins var afgreid á flokksráðs- fundi 1976 og var fyrsta heildar- stefnumótun stjórnmálaflokks hérlendis í orkumálum. Brýnustu viöfangsefnin Hver voru brýnustu viðfangs- efnin? Þau snérust í fyrsta lagi um jöfnun raforkuverðs, skipulags- mál raforkuiðnaðarins, fram- kvæmdaáætlun um uppbyggingu virkjana til lengri tíma og jafn- framt áætlun um orkunýtingu. Hvað varðar jöfnun raforku- verðsins, þá tengdist hún skipu- lagsmálunum, þar sem stefnt var að því að sameina raforkuflutn- ing hjá einum aðila sem ýmist var þá kallaður Islandsvirkjun eða ný Landsvirkjun. Strax á árunum 1978-’79 tókst þó að færa mjög saman gjaldskrár á heimilisraf- magni þannig að verðbilið var minnkað úr 90% niður í 20-25% þar sem það var mest. Með ný- jum lögum um Landsvirkjun sem sett voru í mars 1983 var kveðið á um að raforka skyldi seld sam- kvæmt sömu gjaldskrá í heildsölu á öllum afhendingarstöðum byggðalínanna. Þetta var mikil- vægt stefnumarkandi atriði sem fól í sér hagsbætur fyrir dreifbýl- ið, ekki hvað síst fyrir Orkubú Vestfjarða. Hins vegar hafði raf- orkuverð hjá Landsvirkjun hækkað verulega hjá Landsvir- kjun á þessu tímabili og stóðu um það mikil átök, sem tengdust raf- orkusölunni til stóriðju. Með nýju lögunum um Lands- virkjun spannaði orkusvæði fyrir- tækisins allt landið en hafði áður verið takmarkað við Suðvestur- land. Þetta gerðist samfara teng- ingu byggðalína sem fyrirtækið yfirtók af ríkissjóði, en Raf- magnsveiturnar höfðu lagt. Jafn- framt yfirtók Landsvirkjun heim- ildir til virkjana samkvæmt lögum um raforkuver frá 1981. Brotið blað í orkumálum Undanfari þeirrar lagasetning- ar og þingsályktunartillögu um röðun virkjanaframkvæmda sem afgreidd var vorið 1982 voru harðar deilur utan þings og innan, en þeim lyktaði með sam- hljóða samþykkt þingsins vorið 82, þar sem ákveðið var að Blönduvirkjun yrði næsta virkjun í landskerfinu, þá Fljótsdalsvirkj- un og síðan Sultartangavirkjun. Með öllum þessum ákvörðunum var brotið blað í orkumálum landsmanna og komið á heildar- skipulagi fyrir allt landið og ákveðið að ráðast í meiriháttar virkjanir utan Suðurlands. Fram- kvæmdahraði var hins vegar ekki fastmótaður, enda voru ákvarð- anir um orkunýtingu og þróun markaðar ekki fullmótaður. Öllum mátti hins vegar vera ljóst að þessi mál þyrftu að haldast í hendur ef vel átti að fara. Þannig lögðu Orkustofnun, Landsvirkj- un og Rafmagnsveiturnar fram mikla doðranta um þessi efni. Samstaða um stefnuna Ríkti á þesslim tíma ágreining- ur innan ríkisstjórnarinnar um mótun stefnunnar? Ég get ekki sagt að hann hafi verið teljandi, þótt áherslur hafi verið mismunandi hjá stjórnar- flokknum. Sérstök orkunýtingar- nefnd skipuð fulltrúum stjórnarf- lokkanna vann að stefnumótun og athugun á nýtingarkostum, þar sem gengið var út frá þeirri forsendu að um virkt íslenskt forræði yrði að ræða í þeim orku- iðnaði sem hér kæmi til greina. Dæmi um þetta var undirbúning- ur lagasetningar um kísilmálm- verksmiðju vorið 1982, þar sem gert var ráð fyrir að íslendingar gætu staðið einir að fyrirtækinu og því slegið föstu að íslenska rík- ið ætti minnst 51% hlutafjár. Á sama tíma starfaði á vegum ráð- aneytisins svokölluð Staðarvals- nefnd sem vann mikið og gott starf að því að kanna hvar helst væru forsendur til að koma upp meiriháttar iðnfyrirtækjuum í landinu sem hagnýttu innlendar orkulindir og innlent hráefni. Meiri bjartsýni Ríkti ekki meiri bjartsýni þá en nú urn möguleika orkufreks iðn- aðar? Það má til sanns vegar færa, enda gaf efnahagsástandið í heiminum visst tilefni til þess, t.d.hvað varðar olíuverð sem var þá í hámarki eftir stökkið mikla 1979. f þessu sambandi er vert að minna á Orkuþing, sem haldið var á vegum Iðnaðarráðuneytis- ins og fleiri aðila 1981. Þar kom fram allvíðtæk samstaða um þá stefnu sem stjórnvöld fylgdu, en erlenda stóriðjustefnan, sem á þessum árum fékk nafnið orku- sölustefnan, reyndist mjög á undanhaldi. Eitt af mörgu sem til athuganar var á þessum árum var framleiðsla á innlendu eldsneyti í krafti innlendrar orku, en mark- aðsverð á olíu hefur nú gert slíka framleiðslu óhagkvæma í bili að minnsta kosti. Hvað með orkusöluna til Alu- suisse? Eitt mikilvægasta verkefnið sem iðnaðarráðuneytið beitti sér fyrir á þessum árum var endur- skoðun orkusölusamninga til stóriðju, sem kom gleggst fram í deilunni við Alusuisse vegna ísal. Þau mál eru kunnari en svo að ástæða sé til að ryfja þau upp að þessu sinni. Ég minni aðeins á að á árunum 1980-81 töldu þáver- andi stjórnarandstæðingar flestir ástæðulaust að knýja á um hækk- un raforkuverðsins og settu sig í harðar varnarstellingar fyrir ork- usölusamninginn við Alusuisse. „Að drepa allt í dróma“ Hver var afstaða stjórnarand- stöðunnar á þessum tíma? Á mér dundi stöðug gagnrýni á þessum árum bæði á Alþingi og í málgögnum stjórnarandstöð- unnar um að ég væri að „drepa allt í dróma" í orkumálum og færi alltof hægt í sakirnar. Undir lok stjórnartímabils ríkisstjórnar Gunnars Thoroddsen hafði for- ysta Framsóknarflokksins slegist í þennan hóp og tók meðal annars undir kröfuna um stækkun ál- versins sem lið í samkomulagi við Alusuisse. Þessar aðstæður komu vel í ljós þegar iðnaðarráðuneyt- ið óskaði eftir endurskoðun á framkvæmdaáætlun við Hraun- eyjarfossvirkjun með stuðningi af stjórnarsáttmála og óskaði eftir viðræðum við Landsvirkjun um það efni í september 1978. Þá voru framkvæmdir við virkjunina nýlega hafnar á grundvelli ák- varðanna fyrri ríkisstjórnar. Þetta þótti hin mesta ósvinna af þáverandi stjórnarandstöðu og Morgunblaðinu, þótt aðeins væri um tilmæli að ræða. Niðurstaða þessara viðræðna varð tilfærsla á fjármagni og framkvæmdum á milli ára, en haldið var við upp- haflega áætlun um gangsetningu virkjunarinnar haustið 1981. Svipað var uppi á teningnum þeg- ar kom að ákvörðun um Sultar- tangastíflu veturinn 81-82, þá óskaði ráðuneytið eftir skírari rökstuðningi frá Landsvirkjun um nauðsyn þeirrar framkvæmd- ar, en sú ósk ein framkallaði póli- tískt upphlaup á Alþingi og hót- anir frá vissum stuðnings- mönnum ríkisstjórnarinnar, sem hafði valtan þingmeirihluta eins og menn muna. Orkuskorturinn svonefndi Þessu tengdist svo orkuskort- urinn svonefndi, sem varð vegna afbrigðilegs árferðis og leiddi til nokkurrar skerðingar á afhend- ingu orku, einkum til stóriðjufyr- irtækjanna á árunum 1980-’82. Mun meira var úr þessu gert en efni stóðu til og var orkuskortur- inn notaður af hálfu Landsvirkj- unar og þess pólitíska meirihluta sem þar stóð að baki til þess að knýja á um aukna orkufram- kvæmdir, sem síðan hafa komið til með Kvíslaveiturn, til viðbótar við það sem fyrir var. Fátt skýrir þessa stöðu betur en ósk Lands- virkjunar vorið 1982 um að fá að ráðast í byggingu nýrrar Búrfells- virkjunar samhliða Blönduvirkj- un, þar sem talið var þörf á því að Búrfell II kæmi í gagnið 1986 og Blanda 1987. Þetta var að mati Landsvirkjunar forsenda fyrir því að einhver raforka gæti orðið aflögu til stóriðju eins og t.d. kís- ilmálmverksmiðju, umfram hinn almenna markað. Við beiðni Landsvirkjunar um Búrfell II var hins vegar ekki orðið. Lágu að baki þessum óskum fyrirœtlanir um stækkun álvers- ins? Vissulega má leiða getum að því að hugmyndir um stækkun ál- versins hafi búið að baki þessari uppsetningu mála, en þær komu ekki opinberlega fram. Hvaða virkjunarframkvœmdir voru ákveðnar ístjórnartíð þinni í iðnaðarráðuneytinu? Þegar litið er til þeirrar um- framorku, sem nú er í landinu og svarar til 700-800 gígawatta- stunda á ári, þá verður í rauninni aðeins framkvæmdin við Sultar- tangastíflu rakin til ákvarðana sem teknar voru í iðnaðarráðun- eytinu í minni tíð, en hún var fyrst og fremst rökstudd af Lands- virkjun sem öryggisatriði vegna reksturs Búrfellsvirkjunar, þótt orkuvinnslugetan hafi jafnframt aukist um 130 gwst. 16 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 14. febrúar 1984

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.