Þjóðviljinn - 14.02.1985, Page 22
HEIMURINN
Lögtök
Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík og að undangegnum
úrskurði verða lögtök látin fram fara án frekari fyrirvara
á kostnað gjaldenda, en ábyrgð ríkissjóðs, að átta
dögum liðnum frá birtingu auglýsingar þessarar, fyrir
eftirtöldum gjöldum:
Söluskatti fyrir okt., nóv. og des. 1984, svo og sölu-
skattshækkunum, álögðum 21. nóv. 1984 - 7. jan.
1985; vörugjaldi af innlendri framleiðslu fyrir okt., nóv.
og des. 1984; skipulagsgjaldi af nýbyggingum, gjald-
föllnu 1984; þungaskatti af dísilbifreiðum fyrir árið
1985 og skoðunargjaldi bifreiða og vátryggingarið-
gjaldi ökumanna fyrir árið 1985; aðflutningsgjöldum
1984, svo og skemmtanaskatti fyrir maí, juní, júlí, ág-
úst, sept. okt nóv. og des. 1984.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík
8. febrúar 1985
Þýðingarsjóður
Umsóknarfrestur um framlög úr þýðingasjóði vegna
útgáfu erlendra bókmennta á íslensku máli er fra-
mlengdur til 1. mars 1985. Tilskilin umsóknareyðu-
blöð fást í menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,
Reykjavík.
Ákreeén-ferðastyrkurinn
Auglýst er eftir umsóknum um Ákerrén-feröastyrkinn svonefnda. Styrkurinn
er ætlaöur Islendingum sem hyggjast fara til náms á Norðurlöndum. Gert er
ráö fyrir aö veittir veröi 2 styrkir, aö fjárhæö 2.000 sænskar krónur hvor.
Umsóknum skal komið til menntamálaráöuneytisins, Hverfisgötu 6, 101
Reykjavík, fyrir 1. april n.k. - Umsóknareyöublðð fást i ráöuneytinu.
Menntamálaráðuneytið
11. febrúar 1985
9
Heilbrigðisfulltrúi
Staöa heilbrigðisfulltrúa við Heilbrigðiseftirlit Reykja-
víkursvæðis er laus til umsóknar. Staðan veitist frá 1.
mars 1985.
Laun samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar. Um menntun, réttindi og skyldur
fer samkvæmt reglugerð nr. 150/1983 ásamt síðari
breytingum.
Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi í
heilbrigðiseftirliti eða hafa sambærilega menntun.
Umsóknir ásamt gögnum um menntun og fyrri störf
skulu hafa borist formanni svæðisnefndar Reykjavík-
ursvæðis (borgarlækninum í Reykjavík) fyrir 25. febrú-
ar nk., en hann ásamt framkvæmdastjóra heilbrigðis-
eftirlits veitir nánari upplýsingar.
Borgarlæknirinn
í Reykjavík
Blikkiðjan
Iðnbúð 3, Garðabæ
Onnumst þakrennusmiöi og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmiði.
Gerum föst verðtilboö
SIMI46711
ÓDÝRARI
bamaföt
bleyjur
leikföng
Kjarnorkuvopn
Fordæmi
Nýja Sjálands
Bandarískum herskipum með kjarnorkuvopn
bannað að koma til hafnar.
Ríkisstjórn Lange sýnir afdrifaríktfordœmi
Baráttan gegn kjarnorkuvíg-
búnaði risaveldanna eflist
með margvíslegu móti. Fjölda-
hreyfingar efna til aðgerða.
Ríki mynda bandaiög um
ákveðnar stefnukröfur. Ein-
staka ríkisstjórnir stíga skref
sem marka tímamót.
Verkamannaflokkurinn á
Nýja Sjálandi hefur hrint í
framkvæmd kosningafyrirheiti
um að banna komu herskipa
sem kunna að hafa kjarnorku-
vopn innanborðs. Þessi stefna
hefur skapað mikla spennu
innan Anzus bandalagsins
sem er hernaðarbandalag
Bandaríkjanna, Ástralíu og
Nýja Sjálands. Hún hefur einn-
ig orsakað mikinn óróa í Was-
hington vegna þess að önnur
ríki kynnu að fylgja fordæmi
Nýja Sjálands. Þar með væri
kippt mikilvægri stoð undan
kjarnorkuvígbúnaði risaveld-
anna. Einstök ríki gætu þá
komist upp með að ákveða
einhliða að banna flutning á
kjarnorkuvopnum um haf-
svæði sín. Baráttan fyrir kjarn-
orkuvopnalausum svæðum
hefði þá eignast áhrifaríkt
tæki.
Slík fordæmi gera alvarleg
strik í vígbúnaðarreikning
kjarnorkuveldanna. Þess
vegna eru afdrif hinnar nýju
stefnu ríkisstjórnarinnar Da-
vids Lange áhugaefni allra
sem vilja takmarka útbreiðslu
kjarnorkuvopna.
Nýja Sjáland -
kjarnorkuvopna-
laust svæði
Baráttan gegn kjarnorkuvopn-
um hefur lengi átt sterkan hljóm-
grunn á Nýja Sjálandi. Innan
Verkamannaflokksins hefur öfl-
ug forystusveit stutt kröfuna um
að Nýja Sjáland verði í reynd
kjarnorkuvopnalaust svæði og
sýni á þann hátt fordæmi í friðar-
baráttunni. Andstaðan gegn
kjarnorkuvopnatilraunum á
eyjum í Kyrrahafi hefur verið öfl-
ugur drifkraftur í þessari baráttu.
Samúðin með íbúum ýmissa smá-
eyja sem orðið hafa fórnarlömb
kjarnorkuvopnatilrauna hefur
átt ríkan hljómgrunn á Nýja Sjá-
landi. Óttinn við að vígbúnaðark-
apphlaup risaveldanna myndi
færast í auknum mæli út í
heimshöfin hefur einnig sett svip
á röksemdir Verkamannaflokks-
ins. Eyþjóðirnar yrðu því að
standa saman og rísa gegn þessari
þróun.
f aðdraganda síðustu kosninga
ákvað Verkamannaflokkurinn
að gera algert bann við komu her-
skipa, sem kynnu að hafa kjarn-
orkuvopn meðferðis, að horn-
steini stefnunnar í utanríkismál-
um. Þegar Lange (framborið:
Longí) vann yfirburðasigur töldu
margir í Washington og ýmsir
fréttaskýrendur í heimspressunni
að þessu stefnumáli yrði þegjandi
og hljóðlaust stungið undir stól.
Það hafði gerst nokkru áður í
Ástralíu þegar Hawke komst þar
til valda. Hann saltaði bara stóru
orðin um sjálfstæða stefnu í
kjarnorkuvopnamálum. Lange
reyndist hins vegar staðfastari.
Þegar ríkisstjórn Bandaríkj-
anna tilkynnti fyrir nokkrum vik-
um að herskipið Buchanan ætlaði
að koma til hafnar á Nýja Sjá-
landi tóku ráðamenn í ríkisstjórn
Verkamannaflokksins málið til
gaumgæfilegrar athugunar. Þeir
komust að þeirri niðurstöðu að
líklegt væri að Buchanan væri
með kjarnorkuvopn innanborðs.
Þess vegna neituðu þeir að leyfa
komu herskipsins til hafnar á
Nýja Sjálandi. Lange og féiagar
höfðu stigið fyrsta skrefið til að
sanna að þeim væri alvara með að
gera Nýja Sjáland að kjarnorku-
vopnalausu svæði.
Anzus-bandalagið
Weinberger varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna og Bob
Hawke forsætisráðherra Astralíu
sneru bökum saman í árásum á
þessa ákvörðun ríkisstjórnar
Lange. Ástæður þeirra voru þó
mismunandi. Weinberger óttað-
ist að önnur ríki kynnu að fylgja í
kjölfarið og smátt og smátt yrðu
Bandaríkjunum settar þröngar
skorður við flutningi kjarnorku-
vopna um heimshöfin. Hawke
var hins vegar í mun að koma í
veg fyrir eigið fylgistap í Ástralíu.
f kosningunum fyrir skömmu
hafði nýr flokkur kjarnorku-
vopnaandstæðinga unnið fylgi frá
flokki Hawke vegna tvískinnungs
ríkisstjórnarinnar í þessum mála-
flokki. Ef Nýja Sjáland kæmist.
upp með að framfylgja banninu
væri Hawke kominn í slæma
stöðu. Nýja Sjáland hefði sannað
að hægt væri að hafa sjálfstæða
stefnu. Röksemdir Hawke um
skyldur við Anzus-bandalagið
hefðu þá reynst haldlitlar.
Á sama hátt og Bandaríkin
mynduðu um og uppúr 1950
hernaðarbandalög í flestum
heimshlutum voru Ástralía og
Nýja Sjáland dregin inn í þriggja
landa bandalag með Bandaríkj-
unum, Anzus-bandalagið. Á veg-
um þess hafa reglulega farið fram
heræfingar og á sínum tíma sendu
Nýja Sjáland og Ástralía her-
menn til Víetnam með tilvísun til
skuldbindinga innan Anzus-
bandalagsins. Þessi tengsl hafa
reynst Bandaríkjunum notadrjúg
og þau hafa komið sér upp marg-
víslegum tæknibúnaði og hernað-
araðstöðu í skjóli þessa banda-
lags.
Þegar Nýja Sjáland ákveður
einhliða að setja hernaðarum-
svifum Bandaríkjanna þröngar
skorður hafa viðbrögð Weinber-
ger og Hawke verið fólgin í að
benda á alvarlegar afleiðingar
þess fyrir samheldnina í Anz-
us-bandalaginu. Þær röksemdir
eru að vísu þekktar frá umræðum
innan annarra hernaðarbanda-
laga. Lange forsætisráðherra hef-
ur hins vegar haldið því fram að
bann við siglingu herskipa með
kjarnorkuvopn muni ekki hafa
áhrif á aðra þætti í framlagi Nýja
Sjálands til hinnar hefðbundnu
samvinnu innan Anzus-
bandalagsins. Það hafi hins vegar
verið dregið strik sem sýni tak-
mörkin.
Þvinganir
og
neitanir
Margir velta því nú fyrir sér
hver verði viðbrögð ríkisstjórnar
og hernaðaryfirvalda í Washing-
ton. Nýja Sjáland þarf mjög á
markaði í Bandaríkjunum að
halda fyrir útflutning á landbún-
aðarafurðum. Sá markaður nýtur
góðs af undanþágum og fyrir-
greiðslu stjórnvalda. Það hefur
því verið haft á orði síðustu daga
að Reagan og Weinberger kunni
að grípa til efnahagslegra
gagnráðstafana og þrengja mjög
markaðsmöguleika Nýja Sjá-
lands.
Viðskiptaþvinganir af því tagi
væru vissulega grófar hefndir. í
umræðum á Nýja Sjálandi hefur
komið fram að slík viðbrögð
Bandaríkjanna myndu þjappa
þjóðinni saman og gera almenn-
ing enn harðari í stuningi við
stefnu Lange. Þjóðarstoltið væri
þá komið í spilið. Nýja Sjáland
myndi sanna að það léti ekki
múta sér. Viðskiptaþvinganir
geta því reynst tvíeggjað vopn.
Annað atriði hefur einnig vak-
ið athygli í ummælum banda-
rískra ráðamanna og blandast
saman við svör Weinberger þegar
Papandreou gaf yfirlýsingu um
flutning kjarnorkuvopna frá
Grikklandi. Stefnunni um að
neita hvorki né játa tilvist kjarn-
orkuvopna á tilteknum land-
svæðum eða stöðum var skyndi-
lega vikið til hliðar í umfjöllun
um stefnu Nýja Sjálands og
Grikklands. Weinberger ræddi
nú eins og ekkert væri um stað-
setningu kjarnorkuvopna.
Geir Hallgrímsson ætti að hafa
þetta í huga þegar hann þarf næst
að biðja um yfirlýsingu frá Was-
hington um hugsanlega stað-
setningu kjarnorkuvopna á fs-
landi. Væntanlega fer Weinber-
ger ekki að setja ísland á annan
bás en Grikkland og Nýja Sjá-
land!
Olafur Ragnar
22 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 14. febrúar 1984