Þjóðviljinn - 14.02.1985, Qupperneq 23
Stjörnuhlaup
Auðvelt hjá
Jóni Dikk
Jón Diðriksson vann frekar
auðveldan sigur í öðru Stjörnu-
hlaupi FH sem fram fór í Hafnar-
firði á sunnudaginn. Hann kom í
mark tæpri hálfri mínútu á undan
Keflvíkingnum Má Hermanns-
syni sem varð annar. Bragi Sig-
urðsson, Armanni, varð þriðji.
Jón keppti nú í fyrsta sinn undir
merki FH-inga en hann gekk ný-
verið til liðs við þá.
Guðrún Eysteinsdóttir sigraði í
kvennaflokki eftir harða keppni
við Rakeli Gylfadóttur. Súsanna
Helgadóttir varð þriðja en allar
eru úr FH. Steinn Jóhannsson,
ÍR, sigraði í drengjaflokki,
Gunnar Guðmundsson, FH, í
piltaflokki og Helen Ómarsdóttir
í telpnaflokki.
Knattspyrna
Gerets til
Maastricht
Eric Gerets, fyrrum landsliðs-
fyrirliði Belga í knattspyrnu,
höfuðpaurinn í mútumálinu
fræga í fyrravetur, hefur skrifað
undir samning við hollenska 1.
deildarfélagið Maastricht. Hann
byrjar að leika með því næsta
haust en þá rennur út keppnis-
bannið sem hann hlaut. Gerets
var leikmaður með AC Milanó á
Ítalíu þegar mútumálið kom upp
en ítalirnir vildu ekkert með
hann hafa eftir það.
Handbolti
Haukar á
toppnum
Haukastúlkurnar eiga lang-
bestu möguleikana á sæti í 1.
deild kvenna í handknattleik.
Pær eru komnar með 6 stiga for-
ystu eftir stórsigur á Þrótti ný-
lega, 26:11. Stjarnan og Þróttur
eiga mestu möguleikana á að
fylgja Haukum upp í 1. deild en
staðan í 2. deild er þessi:
Haukar........10 8 1 1 17
Próttur....... 9 5 1 3 11
Ármann........10 5 0 5 10
Stjarnan....... 7 4 12 9
Breiðablik.... 9 3 3 3 9
Fylkir......... 7 3 13 7
(BK........... 9 2 2 5 6
HK............. 9 0 18 1
-HrG/VS
Handbolti
ÍBV áfram
ÍBV er komið í 8-liða úrslit í
bikarkeppni kvenna í handknatt-
leik eftir sigur á ÍA á Akranesi,
15:13, sl. föstudagskvöld. Áður
höfðu Haukastúlkurnar tryggt
sér sæti í 8-liða úrslitum með stór-
sigri á ÍBK, 30:8, en okkur er
ekki kunnugt um að aðrir leikir
hafi farið fram í keppninni.
_________________-HrG/VS
V. Þjóðverjar
Einn nýliði
Vestur-Þjóðverjar hafa bætt
einum nýliða í landsliðshóp sinn
fýrir leikinn gegn Portúgölum 24.
febrúar í undankeppni HM í
knattspyrnu. Pað er Norbert Me-
ier, 26 ára gamall miðjumaður frá
Bremen, sem á drjúgan þátt í vel-
gengni Bremenliðsins í Bundes-
ligunni í vetur.
ÍÞRÓTTIR
Svavarsmálið
Vísað frá!
Víkingar hafa endanlega
tapað stigunum gegn Val
Dómstóil ÍSÍ vísaði í gær frá sér
áfrýjun handknattleiksdcildar
Víkings í Svavarsmálinu. Eins og
kunnugt er, úrskurðaði dómstóll
HSI að Svavar Magnússon hefði
verið ólöglegur með Víkingi í
sigurleiknum gegn Val ■ 1. deild
þann 8. janúar sl. Víkingar áfrýj-
uðu dómnum til dómstóls ÍSÍ. Þar
með Hafa Víkingar endanlega
tapað stigunum tveimur tii Vals
og eru því með 10 stig úr 10
leikjum og langt frá því að vera
öruggir með sæti í úrslitakeppn-
inni um meistaratitilinn en Vals-
menn hafa þá aðeins tapað þrem-
ur stigum, tveimur meira en FH
sem er í efsta sæti 1. deiidarinnar.
-VS
Handbolti
Gurrí rekin útaf
Framstúlkur efldust og burstuðu Víking
Guðríður Guðjónsdóttir, sem
hafði skorað 28 mörk í síðustu
tveimur leikjum Fram í 1. deild
kvenna, var rekin af leikvelli fyrir
munnsöfnuð í fyrri hálfleik gegn
Víkingi í Seljaskólanum í gær-
kvöldi. Umdeild ráðstöfun, en
hún bitnaði síður cn svo á leik
Framstúlkna - eftir að hafa leitt
13-8 í hléi fengur þær bara tvö
mörk á sig í seinni hálfleik og
unnu yfirburðasigur, 27-10.
Mörk Fram: Erla Rafnsdóttir 7, Oddný
Sigsteinsdóttir 6, Guðríður 6, Guðrún
Gunnarsdóttir 3, Arna Steinsen 3, Sigrún
Blomsterberg 2 og Margrét Blöndal 1.
Mörk Víkings: Eiríka Ásgrímsdóttir 4,
Valdís Birgisdóttir 2, Jóna Bjarnadóttir 2,
Sigurrós Björnsdóttir 1 og Inga Lára Þóris-
dóttir 1.
-HrG
Bjarni Guðmundsson skorar gegn Júgóslövum í fyrrakvöld. Hann átti góðan
leik í Eyjum í gærkvöldi. Mynd: E.ÓI.
Eyjaleikurinn
„ÓfyrírgefanlegtÍC
Island missti niður góðaforystu og tapaði 15-20 fyrir Jógóslövum í Eyjum.
Sigurðurfékk rauða spjaldið. Vitleysa að fara útí hörku, sagði Þorbergur.
„Það er ófyrirgefanlegt að spila
leiknum svona úr höndunum á
sér, úr 11-8 í 12-13. Að klikka á
vítakasti í stöðunni 14-15 má
heldur ekki ske“, sagði Bogdan
Kowalczyck landsliðsþjálfari í
handknattleik í samtali við Þjóð-
viljann eftir 15-20 ósigur íslands
gegn Olympíumeisturum Júgósl-
ava í ýestmannaeyjum í gær-
kvöldi. íslenska liðið lék mjög vel
í fyrri hálfleik og framan af þeim
seinni en síðan datt botninn úr
leik þess og þá var ekki að sökum
að spyrja.
Stemmningin var gífurleg strax
í byrjun, löngu uppselt á leikinn
og hátt í 900 manns troðfylltu
húsið. „Gaman að spila fyrir
svona áhorfendur“, sagði Por-
bergur Aðalsteinsson eftir
leikinn. Stress og fum einkenndu
leikinn í byrjun, einkum hjá ís-
lenska liðinu sem gekk illa til að
byrja með gegn framstæðri júg-
óslavneskri vörn. Samt náði liðið
forystu, 1-0 og 2-1, með þrumu-
mörkum Sigurðar Gunnars-
sonar. Júkkar jöfnuðu tvisvar en
þá hrökk íslenska liðið í gang svo
um munaði. Porbjörn Jensson
skoraði 3-2 og Kristján Arason
tvívegis, í fyrra skiptið með stór-
brotnu undirskoti, og staðan 5-2.
Síðan kom 6-3 og 7-4 og
stemmningin rosaleg. Bjarni
Guðmundsson hafði algerlega
klippt á hornamanninn snjalla,
Isakovic, en sá tók til sinna ráða
og færði sig utar. Hann reif júg-
óslavneska liðið í gang og skoraði
þrjú síðustu mörk þess í fyrri hálf-
leik. Sigurður gerði þó eitt inná
milli og staðan í hálfleik 8-7 fyrir
ísland.
Isakovic tók Sigurð strax úr
umferð í seinni hálfleik en Bjarni
og Porbergur skoruðu bara á
meðan, 10-7. Isakovic svaraði en
Páll Ólafsson kom inná fyrir Sig-
urð og skoraði, 11-8. En þá kom
upphafið á endinum. Á nokkrum
mínútum breyttu Júgóslavar
stöðunni í 12-13 sér í hag. Bjarni
jafnaði en það reyndist vera síð-
asta hálmstráið. Næst 13-15, Sig-
urður kom aftur inná og skoraði
14-15 og síðan fékk ísland víta-
kast. Kristján vippaði yfir mark-
vörðinn, en líka yfir markið.
„Þegar vítið klikkaði héldum við
ekki haus og misstum þetta útúr
höndunum á okkur“, sagði Por-
bergur. Vujovic skoraði tvisvar,
14-17, Sigurður skoraði, 15-17,
en það reyndist síðasta mark ís-
lands. Júgóslavar skoruðu þrisv-
ar á síðustu fimm mínútunum og
lokaðstaðan 15-20. Allt fór á háa
c-ið á síðustu mínútunni -
Mrkonja barði á Guðmundi
Guðmundssyni, Sigurður hefndi
og fékk fyrir það rauða spjaldið.
Dönsku dómararnir sem dæmdu
mjög vel framan af misstu tökin á
leiknum þegar á leið - „þeir voru
mjög slæmir“, sagði Bogdan en
honum var heitt í hamsi í lokin
ásamt fleirum.
Petta var köflótt hjá íslenska
liðinu. Pað sýndi skemmtilegan
handbolta í fyrri hálfleik og lék af
miklum krafti. Harka færðist í
leikinn í seinni hálfleiknum og þá
fóru íslensku leikmennirnir hall-
oka. „Það var hryllileg vitleysa
hjá okkur að fara útí hörku við
Júkkana, það þýðir ekkert á móti
svona Iiði“, sagði Pqrbergur.
„Við létum reiðina fara með okk-
ur, þeir voru rosalcga grófir og
við þoldum ekki mótlætið. Þetta
var „brútal“ leikur hjá þeim, þeir
sættu sig ekki við að vera undir í
leiknum“, sagði Bjarni. Bogdan
tók í svipaðan streng: „Ég er óá-
nægður með grófan leik Júgó-
slava í seinni hálfleiknum“, sagði
hann.
Sigurður átti stórleik í fyrri
hálfleiknum og skoraði glæsileg
mörk. Bjarni stóð sig mjög vel í
sókn og vörn og Einar Þorvarðar-
son varði af prýði í seinni hálf-
leik, 10 skot þá á móti íjorum í
þeim fyrri. Aðrir léku vel þegar
vel gekk, illa þegar á móti blés.
Bogdan tókst einhverra hluta
vegna ekki að fylgja eftir orðum
sínum um að nota fleiri leikmenn
en í leiknum í fyrra kvöld. Þegar
45 mín. voru liðnar hafði hann
aðeins notað 8 leikmenn en síðan
fengu Þorgils Óttar Mathiesen og
Hans Guðmundsson að spreyta
sig. „Þetta er búið, við hugsum
framí tímann og ætlum að gera
betur á morgun“, sagði Bjarni við
undirritaðan og vonandi tekst
strákunum að fylgja því eftir og
sigra Ólympíumeistarana í þriðja
og síðasta leiknum í Laugardals-
höllinni kl. 20.30 í kvöld.
Mörk íslands: Sigurður 6, Bjarni 2, Krist-
ján 2, Þorbjörn 2, Þorbergur 1, Páll 1 og
Guðmundur 1.
Mörk Jugóslaviu: Isakovic 8(1 v), Vukoc-
vic 3, Vujovic 3, Kuzminovski 3, Mrkonja 2
og Rntc 1.
- JR/Eyjum.
Borðtennis
Engin 3. deild-
arkeppni?
Þjóðir 3. deildar treysta sér ekki hingað.
Fær ísland sœti í 2. deild?
Ekkert verður af því að 3. deild
Evrópukeppninnar í borðtennis
fari fram hér á landi um helgina
eins og fyrirhugað var og allar
líkur eru á að keppnin falli alfarið
niður í ár.
Þjóðirnar sem eiga sæti í 3.
deild treysta sér ekki hingað til
lands vegna kostnaðar og er þetta
mjög bagalegt fyrir borðtenniss-
ambandið sem staðið hefur að
undirbúningi um langt skeið. Þá
er landsliðsfólkið nýkomið úr erf-
iðri æfinga- og keppnisför um
Danmörku.
Á þingi Evrópusambandsins
verður, samkvæmt heimildum
Þjóðviljans, farið fram á að BTÍ
fái endurgreiddan þann kostnað
sem farið hefur í undirbúninginn
og jafnframt að ísland f?,i sæti í 2.
deild næsta vetur. ísland fékk rét.t
til að leika í 2. deild sl. vetur en
síðan varð samkomulag um að sá
réttur yrði ekki nýttur og ísland
yrði áfram í 3. deild.
- VS
Fimmtudagur 14. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 23