Þjóðviljinn - 16.02.1985, Síða 2
___________________________FRÉTTIR____________
Kjarnorkuvopn
Óþolandi ógnun
Guðrún Helgadóttir mœltifyrir tillögu um bann við kjarnorkuvopnum á íslandi
Kjarnavopn eru glæpur gegn
mannkyninu, tilvist þeirra
er óþolandi ógnun við allt líf á
jörðinni“, sagði Guðrún Helga-
dóttir alþingismaður á þingi í
fyrradag þegar hún mælti fyrir
þingsályktunartillögu sem hún
flytur ásamt Páli Péturssyni, Stef-
áni Benediktssyni, Sigríði Dúnu
Kristmundsdóttur og Geir Gunn-
arssyni um bann við geymslu og
notkun á hvers konar kjarnorku-
vopnum hér á landi jafnt á tímum
friðar sem ófriðar.
f tillögunni er einnig kveðið á
um bann við staðsetningu her-
sveita sem sérþjálfaðar eru í með-
ferð kjarnorkuvopna og búnaði
sem nauðsynlegur er fyrir notkun
þeirra.
f ítarlegri framsögu sinni sagði
Guðrún m.a. að um eitt gætu allir
landsmenn sameinast í öryggis-
málum og það væri að hér á landi
yrði aldrei kjarnorkumiðstöð.
Guðrún Helgadóttir. „varnar-
sáttmálinn" margbrotinn.
Benti hún á að fyrir hendi væri
búnaður á íslandi til að taka við
kjarnorkuvopnum og beita þeim
og rakti dæmi þar um. „Af þessu
má sjá að herstöðin á Miðnes-
heiði er kjarnorkustöð hvað sem
yfirlýsingum íslenskra og banda-
rískra stjórnvalda líður“.
Guðrún benti á að nýjustu
uppljóstranir gæfu til kynna brot
á svokölluðum varnarsáttmála:
„Það er ljóst að Bandaríkjastjórn
hefur farið gróflega á bak við ís-
lensk stjórnvöld í öllum atriðum
varnarsáttmálans“. Skoraði hún
á þingmenn að leggja flokkspól-
itík ágreiningsmál til hliðar og
taka höndum saman um að verja
rétt hvers og einasta íslendings til
að taka þátt í baráttunni fyrir
heimi þar sem gereyðingarvopn-
um er hafnað.
Geir Hallgrímsson tók undir
það sjónarmið að ekki yrði
geymd hér á landi kjarnorkuvopn
en taldi Guðrúnu gefa í skyn að
hér væru slík vopn nú þegar. Har-
aldur Ólafsson kvað ástæðu til að
spyrja: Getur það skaðað fsland
og hagsmuni Islands á nokkurn
hátt þó hér verði einhliða lýst yfir
að ekki skuli höfð hér kjarnorku-
vopn, hvorki á friðartímum né
tímum ófriðar?
Kjartan Jóhannsson svaraði þess-
ari spurningu: „Já ég held að það
sé verra. Ég held að það sé verra
vegna þess að hér er um einhliða
yfirlýsingu að ræða sem ekki
krefst neins af umhverfi sínu“.
Guðrún Helgadóttir benti m.a.
á í lokaræðu sinni að í 10 ár hefði
legið fyrir leyfi til að flytja til ís-
lands kjarnorkuvopn á hættutím-
um án þess að íslensk stjórnvöld
hefðu haft hugmynd um - og
menn hljóti nú að hafa dregið
einhvern lærdóm af því. Það
verði að vera lýðum ljóst að al-
þingi íslendinga hafni slíkum
leyfum og með samþykkt tillög-
unnar yrðu tekin af öll tvímæli.
Að lokinni umræðu var tillög-
unni vísað til utanríkisnefndar.
-óg-
Trjáklippingar
Nú er réttí
tíminn!
Það er ekki amalegt að nota
góða veðrið þessa dagana til að
grisja, klippa og snyrta trjá-
gróður í görðum sínum, en unda-
nfarna daga hefur mátt sjá menn
við þá iðju á opnum svæðum
borgarinnar og hjá Skógrækt-
arfélaginu.
Ólafur Sæmundsson hjá Skóg-
ræktarfélagi Reykjavíkur sagði í
samtali við Þjóðviljann í gær að
nú væri aðal tíminn til þessara
verka, áður en sól færi að hækka
meira á lofti. Einkum væri það
birkið sem þyrfti að klippa sem
fyrst, þar sem því hætti til að
blæða ef lengra liði fram á vorið.
Þá er þetta einnig upplagt veður-
far til að vetrarúða gegn trjá-
maðki, en skilyrði til þess að
þurfa að vera frostleysa og þurrk-
ur. Best er að jörð sé auð, kring-
um trjástofnana en garðar í
Reykjavík uppfylla þessi skilyrði
mjög vel um þessar mundir.
Ólafur sagði að Skógræktarfé-
lagið hefði vetrarúðað mikið í
fyrra, enda væru tjöruefnin sem
til þess eru notuð hættuminni en
önnur úðunarefni. Það hefði gef-
ið góðan árangur og er meiningin
að úða aftur núna.
-ÁI
Larsen einn efstur!
Vann biðskák sína gegn Margeiri í gœr
í gær voru biðskákir tefldar á
alþjóðamótinu í skák sem fram
fer á Loftleiðum. Larsen átti ekki
1 erfiðleikum með að innbyrða
vinninginn í biðskák sinni gegn
Margeiri. Þar með er Larsen orð-
inn einn efstur á mótinu, með IVi
vinning af 3 mögulegum. Næstir
eru Spassky og Van der Wiel með
2 vinninga hvor.
Jón L. og Hort tefldu í gær skák
sína er frestað var úr 1. umferð.
Búist var við hörku viðureign.
Skákmennirnir virtust hinsvegar
ekki vera í baráttuskapi og
sömdu um jafntefli eftir aðeins 14
leiki. Það sem af er mótinu hefur
borið alltof mikið á stuttum
„stórmeistarajafnteflum“. Tefl-
endur vírðast ekki taka neina
áhættu í byrjun mótsins, en von-
andi rætist úr þessu er síga fer á
seinni hlutann.
Endataflið í skák Jusupov og
Guðmundar var störmerkilegt.
Guðmundi tókst að hanga á jafn-
tefli með hárnákvæmri tafl-
mennsku. Við skulum líta á
hvernig skákin tefldist eftir bið.
Jusupov lék biðleik í þessari
stöðu:
Hvítt: A. Jusupov
Svart: Guðmundur
57. Kxa6 Kc6!
Lokar útgönguleið hvíta kóngsins.
58. Be3 Beí 59. g4
Þetta er eini leikurinn sem gefur hvít-
um einhverja vinningsmöguleika.
Eftir t.d. 59. Bf4 Bf2 og hvítur kemst
ekkert áleiðis.
59. - hxg4
60. h5 g3
61. h6 g2
62. h7 Bc3
63. Ka7 Be5
64. Bf2 Kc7
65. Bc5 Kc6
66. Bb6 Bf6
67. Bgl
Eftir 67. Kb8 Be5+! 68. Kc8 Bf6!
getur hvítur ekki unnið.
67. - Be5 69. Bf2 Bf6
68. a6 Kc7 70. Bg3+ Kc8
Hér kom einnig til greina að leika 7U.
- Kc6.
71. Bh2 Bd4+
72. Ka8 Bf6
73. Bgl Kc7
74. Be3 Bg7
imii neiur texist aö halda hvít
konungnum í stofufangelsi!
76 Bb6+BK 78‘ Bh2+ Kc6
/o. liboT- Kc6 *7o ifhfi
77. Bgl Kc7 Kb8
Nú verður svartur að tefla nákvæmt.
Hann leikur eina leiknum.
79. - Be5+! 80. Kc8!
Eftir 80. Bxe5 gl(D) 81. h8 (D)
Db6+ 82. Kc8 Dxa6+ nær svartur
jafntefli. Ef svartur leikur nú 80. -
Bxh2? kemur 81. a7 gl(D) 82.
a8(D)+ Kd6 83. h8(D) og hvítur
vinnur.
80. - Kb6!
Tryggir jafnteflið. T.d. 81. Bxe5
gl(D) 82. h8(D) Dc5+ o.s.frv. Lær-
dómsríkt endatafl.
Að lokum birtist hér framhald
biðskákar þeirra Larsens og
Margeirs. Margeir, sem hafði
svart lék biðleik í þessari stöðu:
41. - He8
Larsen taldi 41. - Hd8 betri leik. En
ekki er gott að finna vörn fyrir svart
eftirt.d. 42. e6! Margeirreynirheldur
að skapa sér mótspil eftir c-línunni.
42. d6 Dcl
43. Kh3
Nú væri vegur að fá sér lás fyrir
ísskápinn í eldhúsinu
Vinátta
Grikklands-
vinir stofna
samtök
Kaflar úr Lýsiströtu
fluttir á stofnfundi
Islendingar sem gist hafa
Grikkland á liðnum átta árum
eru komnir eitthvað á fjórða þús-
und. Nokkrir þeirra hafa nú tekið
saman höndum um að stofna með
sér samtök um að efla tengsl milli
Grikkja og íslendinga, jafnt í
menningarefnum sem á öðrum
sviðum, og verða þau opin öllum
Grikklandsvinum. Stofnfundur
samtakanna verður haldinn í
„Risinu“, fundarsal Veitinga- og
ferðaþjónustunnar að Hverfis-
götu 105, föstudaginn 22. febrúar
og hefst klukkan 20:30. Fundar-
salurinn er á horni Hverfisgötu og
Snorrabrautar, gengið inn frá
Hverfisgötu, en bílastæði í Hörp-
uporti.
Auk þess sem gengið verður
frá formlegri stofnun samtak-
anna, samþykkt lög og kosin
stjórn fyrir næsta ár, verður boð-
ið upp á grískan úrvalsrétt mat-
reiddan af þarlendum fagmanni
og grísk vín eins og hver vill hafa.
Að sjálfsögðu verður þjóðar-
drykkur Grikkja, ouzo, einnig á
boðstólum. Meðal skemmti-
atriða verða valdir kaflar úr gam-
anleik Aristófanesar, Lýsiströtu,
sem sýndur var í Þjóðleikhúsinu
fyrir allmörgum árum, upplestur
úr Grískum þjóðsögum og ævint-
ýrum í þýðingu Friðriks Þórðar-
sonar, og sýning á vinsælum
grískum dönsum. Leikin verður
grísk tónlist allt kvöldið ög stig-
inn dans eftir því sem verkast vill.
Með því að undirbúa þarf
matargerð fyrirfram, eru væntan-
legir stofnendur Grikklandsvin-
afélagsins beðnir að gera viðvart
um þátttöku í síma 24631 (Zorba)
þriðjudaginn 19. febrúar milli
klukkan 14 og 18. Þátttökugjald
verður 400 krónur á mann, mat-
urinn er innifalinn.
Þarna er hvíti kóngurinn í góðu
skjóli.
43. - Hc4 47. Dg6+ Kg8
44. Dc3 Ddl 48. De8+ Kh7
45. e6! fxe6 49. Dh5+ Kg8
46. Dxe6+ Kh7
Þar með hefur hvítum tekist að valda
hrókinn á f3. Larsen gerir nú út um
taflið með einföldum peðsleik.
50. f6
Og Margeir gafst upp. Hann verður
mát eftir 50. - gxf6 51. Dg6+ Kh8 52.
Dxf6+ Kg8 53. Df8+ Kh7 54. Hf7+
Kg6 55. Dg7+ og mát í næsta leik.
í dag verður 4. umferð tefld.
Hefst hún kl. 14 og leiða þá sam-
an hesta sína:
Jusupov - Hort
Spassky - Jón L.
Larsen - Guðmundur
Karl - Hansen
Helgi - Margeir
Jóhann - Van der Wiel
- HL
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 16. febrúar 1984