Þjóðviljinn - 16.02.1985, Blaðsíða 4
LEIÐARI
Fjörutíu ámm síðar
Um þetta leyti eru fjörutíu ár liðin frá því að
leiðtogarBandamanna, þeir Churchill, Stalín og
Roosevelt, komu saman á fund í Jalta á strönd
Svartahafs til að ræða um framtíð Evrópu. Herir
ríkja þeirra voru að Ijúka því verkefni sem brýn-
ast var fyrir Evrópu og reyndar heim allan: Að
losa mannkynið við þýska nasismann. Sovéski
herinn hafði borið mestan þunga í þeim mikla
bardaga eins og menn ættu að muna og hafði
hrakið þýska herinn frá Póllandi, Ungverjalandi,
Rúmeníu, Búlgaríu og að nokkru leyti Júgóslav-
íu. Herir Vesturveldanna voru við vesturlanda-
mæri Þýskalands. Það var vor í lofti og Evrópu-
menn bjartsýnir. Brátt yrði lokið mikilli hörmung-
artíð og tími uppbyggingar og frelsis hæfist.
Hinar bjartsýnu vonir rættust ekki nema að
litlu leyti. Og lengi síðan hafa menn rakið þá
þróun til þess sem gerðist í Jalta fyrir fjörutíu
árum. Þá hafi leiðtogarnir-og eru þeir Churchill
forsætisráðherra Breta og Stalín marskálkur
helst tilnefndir - skipt löndum Evrópu í áhrifa-
svæði og upp úr því hafi járntjald risið þvert yfir
Evrópu sem fáir komust yfir um tíma nema fugl-
ar fljúgandi.
Þessari kenningu hefur að sönnu verið mót-
mælt oftlega. Skiptingin í áhrifasvæði hafi aldrei
verið neinum fastmælum bundin. Stalín hafi í
Jalta lofað að virða lýðræðislegar leikreglur í
Austur-Evrópu. Skiptingin hafi gerst síðar, þeg-
ar Sovétmenn fluttu sína þjóðfélagsgerð út til
grannríkjanna og Vesturveldin reyndu með
Marshallaðstoð og fleiri ráðum að koma í veg
fyrir að sú þróun yrði endanleg. Hvað sem því
líður: Það sem rætt var undir borðum í Jalta
hefur mjög gengið eftir. Ríki Evrópu fengu pólit-
íska forystu sem réðist af því, hvar herir sigur-
vegaranna námu staðar, en ekki af því hver var
styrkleiki borgaralegra flokka eða verkalýðs-
flokka. Og það sem verra var: Þeir draumar um
„sósíalisma í lýðræði" sem svo margir góðir
drengir töldu sig hafa verið að berjast fyrir í
heimsstyrjöldinni, þeir viku fyrir óhrjálegum
staðreyndum kalda stríðsins og fullkomins
fjandskapar milli hernaðarblakka þeirra, sem
hin nýju risaveldi höfðu komið sér upp.
Það hafa síðan komið ýmsar gloppur á járn-
tjaldið fræga. Menningarstaf og viðskiptahags-
munir hafa lækkað það verulega. Menn hafa
betri yfirsýn en áður um það hvað er að gerast-
ef þeir kæra sig um að horfa í kringum sig. En
tvískipting álfunnar er sem fyrr mikil og háska-
leg staðreynd.
Margir hafa gefist upp fyrir henni, segja sem
svo, að það sé ekki hættandi á nein frávik, neitt
sjálfstæðisbrölt smærri ríkja - þá sé jafnvægið
fræga rofið, það jafnvægi óttans sem tryggi
friðinn. Þessi uppgjöf er að því leyti háska-
samleg að hún gerir ríki Evrópu fyrst og síðast
að leiksoppum risanna, að vettvangi þar sem
þeir skáka til herjum, eldflaugum og kjarnorku-
vopnum. Nú, þegar senn líður að því að haldið
verði upp á fjörutíu ára afmæli sigurs yfir Hitler,
er það mikils virði að stjórnmálamenn og aðrir
áhrifamenn leggi nokkuð á sig í leit að leiðum
sem liggja út úr þeim vítahring sem dæmdir
Evrópumenn til óvirkrar biðstöðu í málum sem
varða bæði frið og frelsi. Þær leiðir eru hvorki
auðfundnar né auðfarnar. En þær eru helst
forsenda fyrir því, að Evrópumenn í austri og
vestri geti litið vonaraugum til framtíðarinnar.
Og að því er okkur íslendinga varðar: Það
minnsta sem við gætum lagt til mála er að
hlaupa ekki á eftir nauðhyggju kalds stríðs,
heldur taka vel undir hvert frumkvæði meðal-
stórra og smárra ríkja, rfkja sem ekki hafa bund-
ið hendur sínar fyrirfram, til að stöðva þá þróun,
sem nú um hríð hefur ekki leitt til annars en nýjar
vopnabirgðir hrúgast upp af miklum hraða.
- ab
Ó-ÁUT
„Hugsið ykkur bara.
Ef þið væruð
kennarar í einkaskóla,
fenguð þið miklu, miklu
miklu hærri laun.“
DJOOVIUINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufólag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Árni Berqmann, Össur Skarphéðinsson.
Rit8tjórnarfulltrúi: Oskar Guðmundsson.
Fróttastjóri: Valþór Hlöðversson.
Blaðamenn: Aðalbjörg Óskarsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Guðjón
Friðriksson, Helgi Guðmundsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gísla-
son, Mörður Árnason, Ólafur Gíslason, Sigurdór Sigurdórsson,
Víðir Sigurðsson (íþróttir).
Ljó8myndir: Einar ólason, Einar Karlsson.
Útlit og hönnun: Filip Franksson, Þröstur Haraldsson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson.
Utbreiðslustjóri: Sigríður Pótursdóttir.
Auglýsingastjóri: Ragnheiður Óladóttir.
Auglýsingar: Anna Guðjónsdóttir, Ásdís Kristinsdóttir,
Hreiðar Sigtryggsson.
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pótursdóttir.
Símavarsla: Margrót Guðmundsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir.
Húsmæður: Bergljót Guðjónsdóttir, Ólöf Húnfjörð.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson.
Bílstjóri: Ólöf Sigurðardóttir.
Útkeyrsla, afgreiðsla, auglysingar, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í iausasölu: 30 kr.
Sunnudagsverð: 35 kr.
Áskriftarverð á mánuði: 330 kr.
Afgreiðsla blaðsins er opin á laugardögum
frá kl. 9 til 12, beinn sími: 81663.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN ' Laugardagur 16. febrúar 1984