Þjóðviljinn - 16.02.1985, Síða 6

Þjóðviljinn - 16.02.1985, Síða 6
SKÁK Leiðarljós Karpovs, leikkonan Marina Neyolova hafði gott auga á sínum manni allan tímann. engu minna þekkt og afar vinsæl í Sovétríkjunum. Leikkonan Mar- ina Neyolova 36 ára gömul sem hefur ekki sleppt augunum af Kasparov meðan einvígið hefur staðið yfir er manna á meðal kölluð „jafnteflisfrúin". Návist hennar hefur að sögn þeirra er til þekkja orðið skáksnillingnum mikil uppörvun ekki síst þegar öll sund sýndust lokuð. Vörn var snúið í sókn og úrslitin sýndust í nánd, þegar slitið var á þráðinn. Við verðum því að bíða eftir lok- auppgjörinu þar til í haust. f>á mæta þeir að nýju meistararnir í Verkalýðshöllinni í Moskvu og úti í salnum munu sitja að öllum líkindum stjórnandinn Klara og hin fagra Neyolova. - Ig. (People). Lífsglaður og skemmtilegur segja þeir sem til hans þekkja. Óvenjuleg mynd af snillingnum en skákin er hvergi langt undan eins og lesa má á húfuderinu. Kasparov Hinn sanni sigurvegari Klara og hinfagra Neyolova létu sig ekki vanta á eina einustu skák Ákvðrðun Campomanesar forseta Alþjóðaskáksambandsins sem tilkynnt var í Moskvu í gær um að heimsmeistaraeinvígi þeirra Karpovs og Kasparovs skuli hætt hefur að vonum vakið mikla athygli. Þykjast margir sjá þá einu skynsamlegu skýringu að Campomanes sé nú að borga so- véskum skákyfirvöldum stuðn- inginn frá síðasta FIDE-þingi með því að bjarga núverandi heimsmeistara og fulltrúa sové- skra yfirvalda, Karpov, úr bráðum vanda. Uthaldið er búið, taugarnar gáfu sig og Kasparov sem áður sýndist heyja vonlausa baráttu stendur uppi, í það minnsta í augum almennings, sem sigurvegari þessa um margt óvenjulega einvígis sem nú hefur skyndilega verið stöðvað. „Gary Kasparov mun líklega ekki vinna heimsmeistaratitilinn, en hann hefur unnið hug og hjörtu þjóðar sinnar“, segir í fyr- irsögn í grein um skáksnillinginn í bandaríska tímaritinu People á dögunum. Það eru orð að sönnu. Mömmustrákur En hver er þessi ungi piltur? Aðeins 21 árs gamall og yngsti skákmaður sem nokkru sinni hef- ÍÞRÓTflR ur komist í sjálft heimsmeistara- einvígið. Eftir 5 mánaða stranga setu og 48 skákir er hann kominn á fulla ferð, hafði haft allar hrak- spár að engu og stefndi ótrauður á sigur. Náið samband Kasparovs við móður sína Klöru er löngu þekkt, en hún er hans sterkasti bakhjarl og mesti stuðningur og stjórnar öllu er lýtur að undirbúningi og aðstoð af mikilli festu. Það var hins vegar faðir hans, Kim Weinstein vélfræðingur og fiðlu- leikari góður sem kenndi synin- um strax á unga aldri galdur skák- íþróttarinnar. Weinstein sem var gyðingur féll frá þegar Gary var 7 ára og þá tók hann eftirnafn móð- ur sinnar Kasparov sem ekki hljómaði eins gyðingslega. Klara hélt stráknum við efnið og 10 árum síðar var stórmeistaraá- fanginn í höfn. „Hún mamma stjórnar þessu, hún er bossinn", segir skáksnillingurinn. Allar skákirnar 48 hefur Klara setið úti í sal og fylgst með stráknum sín- um og stytt sér stundir með því að lesa í bók. „Jafnteflisfrúin" En það er önnur kona sem ekki hefur heldur látið vanta sig á einu einustu skák í einvíginu. Sú er Tómas á samning Tómas Guðjónsson, einn fremsti borðtennismaður íslands um árabil, hefur gert auglýsinga- samning við JL-húsið. Tómas hlýtur styrk frá JL-húsinu og skuldbindur sig á móti til að spila með auglýsingu frá fyrirtækinu á keppnisbúningi sínum. Adidas- umboðið á íslandi, Heildsala Björgvins Schram, hefur enn einu sinni sýnt velvilja sinn í garð íþróttamanna með því að útvega Tómasi allan þann útbúnað sem þarf til æfinga og keppni. Körfubolti Enn vinnur UMFN Tíundi íröð gegn Haukum, nú 76-73 Járngrip Njarðvíkinga á Haukum virðist ekki ætia að linna, í gærkvöldi sigruðu Njarð- víkingar 76-73 í fjórðu viðureign liðanna á þessu keppnistímabili og þeirri tíundu í röð. Forskot Njarðvíkinga á Hauka er nú sex stig þegar hvort liðið um sig á aðeins tvo leiki eftir. Þó að staða næstu liða á eftir geti breyst þá er allt útlit fyrir að Njarðvíkingar mæti KR í undanúrslitum móts- ins og Haukar fái Val. UMFN hafði yfirleitt nokkura stiga forystu í fyrri hálfleik, þeir komust í 31-21 og í hálfleik höfðu þeir yfir 47-37. Haukar byrjuðu seinni hálf- leikinn með miklum látum, kom- ust í 51-50, Njarðvíkingar sigu framúr aftur og síðan skiptust lið- in á forystunni. Rétt fyrir leikslok höfðu Haukar náð tveggja stiga forskoti 71-69, en Njarðvík var Kynning á bogfimi Bogfimideild íþróttafélags Fatlaðra í Reykjavík verður með kynningu á bogfimi á morgun, sunnudag, eins og áður hefur komið fram. Kynningin fer fram í húsi Öryrkjabandalagsins að Hátúni 10-a í Reykjavík og hefst kl. 15. sterkara undir lokin, skoraði 7 stig án svars og breyttu stöðunni í 76-71. Síðasta karfan var eign Hauka og lokatölur því 76-73. Valur Ingimundarson var yfir- burðarmaður hjá Njarðvík, skoraði 29 stig, þar af 15 úr 3 stiga skotum. ísak Tómasson var einn- ig sterkur. Hjá Haukum var ívar Webster bestur, náði ógrynni af fráköstum auk þess sem hann var lang stiga- hæstur maður liðsins. Stig UMFN: Valur 29, Hreiðar Hreiðars- son 18, Isak 12, Ellert Magnússon og Gunnar Þorvarðarson 6, Teitur örlygsson 3, Helgi Rafnsson 2. Stig Hauka: Ivar 26, Hálfdán 12, Pálmi 11, Ólafur Rafnsson 10, Kristinn Kristins- son og Sveinn Sigurbergsson 6, Henning Henningsson 2. England Sunderland í úrslit? Sunderland á mikla möguleika á að leika til úrslita um Mjólkurbikarinn enska í knattspyrnu í fyrsta skipti. Sunderland vann fyrri undanúrslita- leikinn gegn Chelsea, 2-0, á Roker Park, heimavelli sinum, í fyrrakvöld. Colin West skoraði bæði mörkin en liðin eiga eftir að leika á Stamford Bridge í London og samanlögð markatala ræður úrslitum. Leik Ipswivch í undanúrslitunum var frest- að. _VS Sigurður Valur og Rob Iliffe dæmdu leikinn vel. -SÓM/Suðurnesjum. Akureyri KA marði sigur KA marði sigur á Þór, 26-25, í fyrri leik liðanna í Akureyrar- mótinu í handknattleik sem fram fór í fyrrakvöld. Þórsarar köst- uðu frá sér sigri í lokin, voru tveimur mörkum yfir þegar skammt var til leiksloka. Anton Pétursson, ungur nýliði, skoraði sigurmark KA á síðustu stundu. -K&H/Akureyri Handbolti Tveir leikir voru háðir í 2. deild handboltans í gærkvöldi. í Selja- skólanum unnu Haukar Ar- menninga með fjögurra marka mun, 25-21, eftir að þeir fyrr- nefndu höfðu haft einu marki bet- ur í hálfleik, 12-11. í íþróttahúsi Seltjarnarness tók heimalið Gróttu á móti Fylki. Gestirnir höfðu betur í mjög jöfnum leik, lokatölur 21-20 eftir að Fylkir hafði verið með foryst- una í hléi, 11-10. - Frosti. Knattspyrna Þróttur úr leik Þróttarar verja ekki íslands- meistaratitil sinn í innanhúss- knattspyrnu í ár, þeir mega hins vegar hafa sig alla við til að falla ekki í 2. deild. í gærkvöldi töpuðu þeir tveimur leikjum sínum af þremur í 1. deild, 3-6 fyrir KR og 1-9 fyrir Fram. Úrslit í íslandsmótinu í Laugardalshöll í gærkvöldi urðu þessi: 1. delld: A: FH-Vlkingur.......................4-4 A: Valur-FH..........................5-4 C: KR-ÞrótturR.......................6-3 C: Fram-Þróttur R...................9-1 3. deild: D: IK-Stjarnan......................7-6 Kvennaflokkur: A: Breiðablik-Stokkseyri.............6-2 A: Vlkingur-Afturelding..............5-3 A: Víkingur-Stokkseyri...............4-3 A: Breiðablik-Afturelding............9-0 A: Breiðablik-Víkingur...............4-3 A: Afturelding-Stokkseyri...........3-1 B: Fram-Stjaman.....................2-1 B: Valur-lBK........................8-1 B: (BK-Stjarnan.....................3-1 B: Valur-Fram.......................3-1 B: Valur-Stjarnan...................12-0 B: (BK-Fram..........................3-0 Breiðablik og Valur eru því komin í undanúrslit í kvennaflokki. Keppt verður í dag frá kl. 10 til 22 og á sunnudag frá 10 til 19.30. Úrslita- leikur í kvennaflokki fer fram kl. 18.46 á sunnudagskvöld og úrslita- leikur í karlaflokki á eftir, eða kl. 19. - VS 6 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN Laugardagur 16. febrúar 1984

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.