Þjóðviljinn - 22.02.1985, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 22.02.1985, Qupperneq 2
FRETT1R Kaffibaunahneykslið Vissi um tekjumar Halldór Asgrímsson þáverandi endurskoðandi SÍS: Eilíft deilumál hvernig á að skipta tekjum milli rekstrareininga Kaffibaunamálið svokailaða er nú til umfjöllunar hjá ríkis- saksóknara. Hefur Þórður Björnsson ríkissaksóknari fengið langar og ýtarlegar ritgerðir til lestrar. Mun ákvörðunar hans um framhald málsins vera að vænta innan tíðar. Á þeim árum sem umræddur kaffibaunainnflutningur átti sér stað var Halldór Ásgrímsson nú- verandi sjávarútvegsráðherra fé- lagskjörinn endurskoðandi reikninga Sambands íslenska samvinnufélaga. Þjóðviljinn spurði Halldór Ás- grímsson um það hvort veittur af- sláttur á kaffibaunum hafi komið fram í bókhaldi SÍS á þeim árum sem rannsókn nær nú til. Halldór sagði m.a.: „í endurskoðunarskýrslu aðal- endurskoðanda Sambandsins árið 1981 til stjórnarinnar kom fram að innflutningsdeild Sam- bandsins hafði verulegar tekjur af innflutningi á kaffibaunum. Það er hins vegar eilíft deilumál í stóru fyrirtæki eins og SÍS hvern- ig á að skipta tekjum milli rekstr- areininga. Það er auðvitað ljóst að innan Sambandsins styður ein deildin aðra. Má í því sambandi nefna að á þessum árum var mjög mikill taprekstur á iðnaði Sambandsins á Akureyri. Við sem vorum félagslega kjörnir endurskoðendur litum sérstaklega eftir því hvort tap- rekstur væri viðvarandi í ein- hverjum greinum sem ógnaði starfsöryggi fólks.“ Hafa félagslega kjörnir endur- skoðendur fullnœgjandi aðstöðu til að fylgjast með bókhaldi og reikningum Sambandsins? „Reikningar eiga að gefa rétta mynd af þeim athöfnum sem eiga sér stað í hverju fyrirtæki. Félags- legir endurskoðendur byggja störf sín að mestu leyti á störfum löggiltra endurskoðenda og ann- arra sérfræðinga. Þeir ráða að sjálfsögðu ekki við allt og verða því að einbeita sér að ákveðnum málum og geta því ekki komið í staðinn fyrir hina löggiltu endur- skoðendur. Ég lagði á sínum tíma til að ráðinn yrði sérstakur óháð- ur endurskoðandi sem starfaði í fullu starfi. Þetta var gert. Félagslega kjörnir endurskoð- endur eru mjög mikilvægir til að hafa eftirlit með rekstri en þeir hafa ekki möguleika til að vinna endurskoðunina sjálfa eins og ýmsir virðast telja.“ - hágé. TORGIÐ Ætlar ekki Þjóðviljinn að krefj- ast 10% innheimtulauna hjá HSÍ? Verðlagsstofnun Sýknar SÍS og Kaaber Verðlagsstofnun telur að Sam- band íslenskra sam vinnufélaga og O. Johnson og Kaaber hafi ekki brotið verðlagslöggjöfina vegna verðlagningar á kaffi á árunum 1979 til 1981. Telur stofnunin ekki ástæðu til frekari aðgerða í málinu. Ríkissaksóknari hefur það mál á sínu borði og er um að ræða álitsgerðir frá rannsóknardeild ríkisskattstjóra og einnig frá Seðlabankanum varðandi meint brot á gjaldeyrislögum. _ v. Halldór Ásgrímsson innfelldur í vegg höfuðstöðva Sambandsins við Sölvhólsgötu: félagslega kjörnir endurskoðendur hafa ekki möguleika á að endurskoða reikninga sjálfir. Ljósm.: E.ÓI. Útvarpsmálið Yfirlýsing Vegna frétta Þjóðviljans sl. miðvikudag (20. febrúar) um íhugaða málsókn HSÍ á hendur Ámunda Ámundasyni, skal það tekið fram, að Ámundi Ámunda- son tók að sér fjáröflun fyrir HSÍ 1983-84 (stjórn happdrættis og auglýsingaöflun vegna blaðaút- gáfu). Sú fjáröflun bar verulegan árangur. Vegna tregðu á innheimtu auglýsinga var uppgjöri Ámunda Ámundasonar við HSÍ ekki lokið á tilskildum tíma. Á stjórnar- fundi sl. mánudag var okkur undirrituðum falið að ganga frá þeim málum. Því uppgjöri er nú að fullu lokið. Þar með er Ám- undi ekki í neinum vanskilum við HSÍ. Við væntum þess að þessi yfir- lýsing verði birt á sama stað í Jblaði yðar og umrædd frétt. I Reykjavík, 21. febrúar 1985. Virðingarfyllst, Þórður Sigurðsson (gjaldkeri HSÍ), Guðmundur Friðrik Sigurðsson (fyrrv. gjaldkeri HSÍ). Skipt inná í útvarpsráði María Jóhanna Lárusdóttir kennari var í gær kjörin varamað- ur Kvennalista í útvarpsráð í stað Ingibjargár Hafstað, sem orðin er aðalmaður. Þá var Guðrún Sæmundsdóttir kjörin varamað- ur sama lista í stjórn Húsnæðis- stofnunar í stað Kristínar Einars- dóttur, sem orðin er aðalmaður. -ÁI Fjölbreytni án auglýsingavalds Breytingatillögur Hjörleifs Guttormssonar jörleifur Guttormsson hefur lagt fram breytingatillögur við útvarpslagafrumvarp stjórn- arfiokkanna ásamt nefndaráliti, þar sem lögð er höfuðáhersla á að Ríkisútvarpið sé eflt, að nýjar stöðvar byggi ekki starfsemi sína á auglýsingatekjum og að tryggt verði opinbert eignarhald á dreifikerfum útvarpsins. Tillögur Hjörleifs, sem er full- trúí Abl. í menntamálanefnd neðri deildar lúta m.a. að eftir- farandi: • stuðningi við gerð innlends dagskrárefnis og ákveðnum lág- markskröfum í því sambandi, • efni fyrir börn í Ríkisútvarp- inu sé aukið. • áhrif starfsmanna RUV séu aukin (m.a. með stofnun starfs- mannaráðs), þá séu útvarpsstjóri og framkvæmdastjóri útvarps ráðnir til fimm ára í senn, • banni við verslunar- og við- skiptaauglýsingum í svæðisstöðv- um. • dreifikerfi útvarpsstöðva um þráð- og endurvarpsstöðvar verði í opinberri eigu. Þá er gert ráð fyrir því að út- varpsréttamefnd fái ákveðna fjárhæð m.a. til að koma upp í hverjum landshluta vel búnu út- varpsveri sem útvarpsréttarnefnd veitir þeim sem útvarpsleyfi hafa fengið aðgang að gegn viðráðan- legu leigugjaldi. Þessi fjárhags- stuðningur við svæðisstöðvar á að „auðvelda þeim dagskrárgerð og útsendingu og tryggja sem mesta fjölbreytni“. - áb Kennarar 25 þúsund í desember Hagfrœðingur BHM: heildarlaun BHM-ara í desember ná ekki dagvinnulaunum á almennum markaði Iplöggum sem fjármálaráðu- neytið hefur tekið saman kem- ur auk an,:ars fram að mcðallaun kennara á síðasta ári voru 37 þús- und á mánuði miðað við desemb- erverðlag. Þessar fréttir voru lesnar í útvarpi í vikunni, en Indr- iði Þorláksson í launadeild ráðu- neytisins segir að starfsmenn hafi tekið saman upplýsingarnar Kjaradómi til aðstoðar. Þær séu ekki komnar í útvarp frá sér. iKennarar halda því fram við Þjóðviljann að tölur fjármála- ráðuneytisins séu villandi. f fyrsta lagi sýni taxtar í desember ekki ársafkomu kennara eða há- skólamanna hjá ríkinu þarsem nokkrar kjarabætur fengust í lok ársins. í öðru lagi sé hér um að ræða mikla yfirvinnu. Dagvinnu- laun kennara voru að meðaltali um 25 þúsund í desembermán- uði. Birgir Björn Sigurjónsson hag- fræðingur hjá BHM sagði Þjóð- viljanum í gær að hann gætí hvorki staðfest upplýsingar ráðu- neytisins né mótmælt þeim, þær væru byggðar á gögnum sem launadeildin ein hefur aðgang að. Birgir sagði þessar tölur sýna það sem BHM-arar hefðu haldið fram að ríkisstarfsmenn byggju við gríðarlegt yfirvinnuálag. Það væri hinsvegar athyglisvert að þráttfyrir yfirvinnugreiðslurnar næðu launin ekki almennum dag- vinnulaunum háskólamanna í einkageiranum. - m Útvarpslögin Rædd á mánudag 45 breytingatillögur frá minnihlutanum. Varaformaður Sjálfstœðisflokksins lýsir andstöðu við brœðing stjórnarflokkanna Fulltrúar stjórnarflokkanna í menntamálanefnd neðri deildar hafa komið sér saman um bræðing í útvarpslagamálinu og skiluðu meirihlutaáliti á fimmtudag. I gær komu svo fram þrjú álit minnihlutans ásamt 45 breytingatillögum en jafnframt lagði Friðrik Sófusson, varafor- maður Sjálfstæðisflokksins fram 3 breytingatillögur. Búist er við að útvarpslögin verði rædd á alþingi á mánudag. I bræðingi stjórnarflokkanna er fallist á það sjónarmið Fram- sóknarflokks að ekki skuli fjár- magna einkasjónvarp með aug- lýsingum, en tillögur Friðriks Sófussonar beinast í þveröfuga átt. Alþýðubandalagið flytur 12 breytingatillögur, Bandalag jafn- aðarmanna 12 og Alþýðuflokk- urinn 21 breytingatillögu. -ÁI

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.